Morgunblaðið - 23.10.1992, Blaðsíða 23
Bretland
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 1992
23
Samdrátt-
ur er á öll-
um sviðum
efnahagsins
London. Reuter.
MIKILL samdráttur varð á öll-
um sviðum efnahagslífsins á
þriðja fjórðungi þessa árs, sam-
kvæmt könnun • sem breska
verslunarráðið (BCC) birti gær.
Dróst framleiðsla saman eða
stóð í stað á öllum svæðum
Bretlands á þessu tímabili.
Könnunin náði til 8.242 fyrir-
tækja og er framkvæmd árs-
fjórðungslega.
Christopher Stewart Smith, for-
maður BCC, sagði aðstæður allar
hafa verið mjög slæmar á þriðja
ársfjórðungnum. Samdráttur hefði
orðið á jafnt innanlandsmarkaði
sem útflutningsmörkuðum, miklar
sveiflur verið í vaxta- og gengis-
málum og almennur óstöðugleiki
í efnahags- og stjórnmálum Bret-
lands. „Þetta eru ekki aðstæður
sem gefa tilefni til efnahagsbata,"
sagði Stewart Smith.
John Major forsætisráðherra til-
kynnti á þriðjudag um breyttar
áherslur í efnahagsmálum en í
þeim felst að aðaláherslan verður
lögð á hagvöxt og sköpun atvinnu-
tækifæra. Er það skoðun ríkis-
stjórnarinnar að vegna hinnar
djúpu efnahagslægðar, sem Bret-
land er nú í, sé ekki hætta á að
þessi áherslubreyting kyndi undir
verðbólgu.
INNLENT
félaganna og atvinnuekendur eru
ekki færir um að bjóða eitt eða
neitt. Þótt útflutningur í sumum
greinum hafi aukist allnokkuð að
undanförnu er ástandið á heima-
markaði afar bágborið og fátt, sem
bendir til, að úr rætist á næstunni.
Svo er einnig með gamla og gróna
markaði Pinna í Svíþjóð, Bretlandi
og Rússlandi.
Ríkisstjórn Eskos Ahos virðist
ætla að lifa af áfallið, sem hún
varð fyrir í sveitarstjórnarkosning-
unum, en sigurvegarar þeirra eru
jafnaðarmenn og einnig græningj-
ar. Það er líka talið sennilegt, að
úrslitin verði til að auðvelda samn-
inga á vinnumarkaði og hugsanlegt
samstarf stjórnar og stjórnarand-
stöðu og þegar allt kemur til alls
skiptir það ekki meginmáli hverjir
standa við stjórnvölinn á svona tím-
um. Kostimir eru skýrir og það
fínnast engar gervilausnir.
Forsetakosningar verða í Finn-
landi 1994 og allnokkur umræða
um þær er hafin nú þegar. Eru
margir nefndir til sem líklegir
frambjóðendur en fínnsku forset-
arnir voru flestir forsætisráðherrar
þegar þeir voru kjörnir í embættið.
Aho neitar því raunar, að hann
hafi hug á að bjóða sig fram en
hann ætlar að þrauka í forsætisráð-
herrastólnum í vetur og að minnsta
kosti fram til næsta sumars og
hver veit nema eitthvað rætist úr
fyrir efnahagslífinu. Það væri ekki
ónýtt fyrir hugsanlegan forseta-
frambjóðanda að geta þakkað sér
fyrir að hafa leitt þjóðina út úr
erfíðleikunum.
(Höfundur er formaður ráðs
atvinnulífsins í Finnlandi og fyrr-
verandi sendiherra í Sviss og
Bandaríkjunum)
t
Námamenn
fagna sigri
Roy Link, leiðtogi Sambands lýð-
ræðislegra námamanna (UDM),
fagnar hér sigri ásamt félögum
sínum eftir vikulangt setuverkfall
í kolanámu í Silverhill til að mót-
mæla áformum bresku stjómar-
innar um að loka 31 kolanámu.
Verkfallinu lauk í gær eftir að
stjómin hafði horfíð frá áformum
sínum í einni mestu kúvendingu
breskrar ríkisstjómar undir for-
ystu íhaldsflokksins í tvo áratugi.
Stjómin hyggst þó loka einhveij-
um námum og breska þingið hef-
ur hafnað tillögu Verkamanna-
flokksins um að þær verði allar
starfræktar áfram.
ÖRYGGl ■ GOTT VERÐ
REKSTRARÖRYGGI
Sá sveigjanlegasti, Laserjet IIID. Prentar báðurn megin á blöðin.
Tveir bakkar gefa kost á mismunandi pappír og möguleiki er á sér
umslagamatara. (8 blaðsíður á mínútu, 300 punkta upplausn,
upplausnaraukning, tveir bakkar, tengjanlegur við net,
möguleikar á PostScript] Kr. 275.338.-
Sá nettasti, Laserjet IIIP. Tilvalinn á skrifborðið. Hentar vel þar
sem gerðar eru kröfur um hámarksgæði við útprentun. Möguleiki
erá tveimur bökkum. (4 blaðsíðurá mínútu, 300 punkta upplausn,
upplausnaraukning, einn bakki, tengjanlegur við net og möguleiki
á PostScript) Kr. 121.064,-
Sá afkastamesti, Laserjet IIISi. Vandaður, öflugur og hraðvirkur
prentari með ótrúlega stækkunarmöguleika. Tilvalinn til
tengingar á netkerfum. (16 blaðsíður á mínútu, 300 punkta
upplausn, upplausnaraukning, tveir bakkar, tengfanlegur
við net og möguleiki á PostScript, minni stækkanlegt upp í 17 Mb)
Kr. 417.424.-
Sá hagkvæmasti, Deskjet 500. Bleksprautuprentari sem fer nú
sigurför um heiminn. Tæknin sem notuð er gefur upplausn á við
vönduðustu geislaprentara. (240 stafir á sekúndu, 300 punkta
upplausn, HP PCL3 samhæfður) Kr. 44.450.-
Sá litríkasti, Deskjet 500C. Bleksprautuprentari með mikil gæði
I litaprentun. Ómissandi fyrir þá sem prenta á glærur. (240 stafir
á sekúndu, 3 mlnútur blaðsíðan í litaham, 300 punkta upplausn,
HP PCL3 samhæfður) Kr. 82.786,-
Sá stærsti í lit, Paintjet 300XL. A3 bleksprautuprentari með
hámarksgæði í útprentun hvort sem er í lit eða svart/hvítu.
Prentarinn er mjög stækkanlegur og tilvalinn til tengingar á netkerfi.
möguleiki
(1,5 mínútur blaðsíðan I lit, 300 punkta upplausn,
á netkortum, minni stækkanlegt upp 118 Mb, 4 blekhyíki með
frumlitunum, HP PCL5 samhæfður) Kr. 266.984,-
HP Scanjet IIp myndlesari. Gráskala myndlesari með 256 skugga-
afbrigðum, allt að 1200 punkta upplausn, 10 sekúndur að lesa
A4 blaðsíðu. Kr. 99.083,-
HP Scanjet Ilc myndlesari. Litamyndlesarí með 16,7 milljón
litaafbrigðum, allt að 800 punkta upplausn, 15 sekúndur að lesa
A4 blaðsíðu. Kr. 169.915.-
Heimilistæki hf
ÖRTÖLVUTÆKNI
« Skeitunni 17 ■ slml: 72 20 ■ Fax: 68 72 60
SKEIFAN 17- -a (91) 681665, FAX: (91) 680664
UMBOÐSMENN UM LAND ALLT
GOTT VERD ■ TÆKMNYJUNGAR ■ REKSTRARÖRYGGI ■ GOTT VERD ■ TÆKNINYIUNGAR ■ REKSTRARORYGGl ■ GOTT VERfyv
PRENTARAR FRA HEWLETT-PACKARD
'.. j
TÆKNINÝIUNGAR ■ REKSTRARÖRYGGI ■ GOTT VERD ■ TÆKNINÝJUNGAR ■ REKSTRARÖRY.GGI ■ GOTT VERÐ ■ TÆKNINÝJUNGAR ■ REKSTRARÖRYGGI ■ GOTT VERÐ ■ TÆKNINÝJUNGAR