Morgunblaðið - 23.10.1992, Page 25

Morgunblaðið - 23.10.1992, Page 25
24 ; MORGUNBLAÐtÐ FÖSTUDAGUR 23. QKTÓBER 1992 fltofgaitsMftfrtö Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. [ lausasölu 110 kr. eintakið. Skipasmíðaiðnaðminn Fiskiþing- Alyktun fjárhagsnefndar Útilokar ekki gengisfellingai Orðalag um lækkun launakostnaðar fellt úr ályktuninni MIKLAR umræður urðu um ályktun fjárhagsnefndar á Fiskiþingi um afkomu sjávarútvegsins. í upphaflegu ályktuninni var að finna þau orð að þingið útiloki ekki að óhjákvæmilegt verði að lækka gengi krónunnar að einhverju marki. í umræðum var siðan samþykkt að fella út orðin „að einhveiju marki“. Sagan sýnir að það er mikil- vægt fyrir eyþjóð, sem sækir afkomu sína að stærst- um hluta til sjávar og er veru- lega háð millilandasiglingum, að til staðar sé þróaður og samkeppnisfær skipasmíða- ijðnaður, meðal annars til að sinna nauðsynlegu viðhaldi fiskiskipaflotans. Það er á hinn bóginn á brattann að sækja að halda hér uppi þró- uðum iðnaði af þessu tagi með viðhaldsverkefnum einum saman; það þarf jafnframt til að koma nokkur nýsmíði svo verkefni séu næg. Veiðigeta fiskveiðiflotans er langt umfram veiðiþol nytjastofna. Samt sem áður fellur jafnan til einhver ný- smíði, meðal annars vegna úreldingar. Æskilegt er að nýsmíði, breytingar og við- gerðir, sem til falla, komi í hlut heimaaðila, ekki sízt á' tímum atvinnuleysis. Eðlilegt er hins vegar að fram- kvæmdaaðilar beri saman verð og gæði þjónustunnar á þessu sviði sem öðrum. Samkeppnisstaða íslenzks skipasmíðaiðnaðar hefur versnað undanfarið. Frá því er greint í fréttum Morgun- blaðsins síðastliðinn þriðjudag að hlutdeild innlends skipa- smíðaiðnaðar verði aðeins 8,2% af fjárfestingu í fiski- skipum í ár í stað 40% á síð- asta ári og 55% að meðaltali á síðustu tíu árum. Talsmenn atvinnugreinarinnar kenna m.a. um undirboðum frá ríkis- styrktum skipasmíðaiðnaði í Evrópu. Svo er komið að ýms- ir óttast algjört hrun í grein- inni þegar bryddar á uppsögn- um og umtalsverðu atvinnu- leysi. Að sögn Jóns Sigurðs- sonar iðnaðarráðherra hefur ríkisstjórnin sett á fót starfs- hóp til að kanna, hvort hingað hafi borizt ólögmæt undirboð af hálfu pólskra skipasmíða- stöðva. Starfshópurinn á jafn- framt að kynna sér fyrir- komulag ríkisstyrkja til skipa- smíðaiðnaðar í ríkjum hins fyrirhugaða Evrópska efna- hagssvæðis. Fyrir stuttu stóð mikill styrr um umsamda viðgerð á strandferðaskipinu Búrfelli (áður Heklu) í Póllandi, en þarlend skipasmíðastöð átti lægsta tilboð í verkið. Það urðu hins vegar lyktir máls að Halldór Blöndal sam- gönguráðherra ákvað, að við- gerð á Búrfellinu færi ekki fram í Póllandi, eins og gerður hafði verið samningur um, heldur í Stálsmiðjunni í Reykjavík, sem átti lægsta tilboð innlendra aðila. „Mér fínnst að ríkisstjómin hafi tekið skynsamlega á málum með því að taka þá ákvörðun að láta 'gera við Búrfellið í Reykjavík í stað þess að sigla því til Póllands. Það hefur ekki verið létt verk hjá sam- gönguráðherra að breyta fyrri ákvörðun og því er þessi stefnubreyting mjög virðing- arverð,“ sagði formaður Fé- lags járniðnaðarmanna. Ríkið er eigandi Búrfellsins. Umframkostnaður við viðgerð skipsins hér á landi, miðað við kostnað í Póllandi, kemur að hluta til til baka í sköttum fyrirtækis og starfsfólks sem að viðgerðinni koma. Með til- liti til þeirrar staðreyndar, sem og aukins atvinnuleysis í landinu, sem kallar á vaxandi útgjöld í atvinnuleysisbótum, verður að taka undir þau orð formanns Félags jámiðnaðar- manna að ákvörðun sam- gönguráðherra hafí verið rétt. Það er á hinn bóginn ekki hægt að deila á útvegsmenn, sem flestir eiga í vök að veij- ast með reksturinn, þótt þeir taki hagstæðustu tilboðum í nýsmíði og viðgerðir, hvort heldur þau koma frá erlendum eða innlendum aðilum. Það leiðir af frjálsri samkeppni og frelsi í viðskiptum landa á milli. Á þessu máli em þó fleiri hliðar, sem íslenzkt samfélag hlýtur að horfa til. Nefna má ríkisstyrki til skipasmíðaiðn- aðar í samkeppnisríkjum, sem leiða til undirboða. Þeir sam- ræmast ekki heilbrigðri mark- aðssamkeppni. Ef ríkisstyrkt undirboð leiða til þess að verk- efni og störf flytjast úr landi, á tímum atvinnuleysis, með tilheyrandi skatttekjutapi fyr- ir ríkissjóð og sveitarfélög og útgjaldaauka fyrir samfélagið í atvinnuleysisbótum, er ástæða til að staldra við og huga að viðbrögðum. Býr t.d. skipasmíðaiðnaðurinn við sambærileg rekstrarskilyrði og samkeppnisfyrirtæki í Evr- ópu, að því er varðar skatta á aðföng og starfsemi og/eða aðra rekstrarþætti? Er fjár- munum, sem ella fæm í aukn- ar atvinnuleysisbætur, ekki betur varið til atvinnuskap- andi og arðbærra fram- kvæmda eða til þess að létta álögum af fyrirtækjum, sem standa í harðri samkeppni við erlenda aðila um að halda störfum í landinu? En mesta umræðan spannst um orðalag í kaflanum um þá kostnaðar- lækkunarleið sem nú er til athugunar og þingið er samþykkt. Þar sagði m.a. að tvísýnt væri að sú leið dygði og að nauðsynlegt kynni að vera að leita fleiri leiða meðal annars að lækk'a launakostnað. Nokkrir þingffulltrúa sem til máls tóku töldu að þetta orða- lag mætti skilja sem svo að þingið væri samþykkt beinni launalækkun sem leið til að mæta vandanum og að slíkt væri ógeðfellt. Því var ákveð- ið áð fella úr ályktuninni orðin „með- al annars að lækka launakostnað". Orðrétt er því endanleg útgáfa af þessum kafla ályktunarinnar svo: „51. Fiskiþing telur lækkun kostnaðar vera Guðjón A. Kristjánsson segir að hann telji nauðsynlegt að rannsaka áhrif lax á nytjastofna og hvort lax- inn éti mikið af seiðum nytjastofna eins og þorsks og ýsu. Þetta sé alger- lega órannsakað hér við land og hann fái ekki séð hvemig eigi að standa að þeim rannsóknum án þess að veiða laxinn. „Við vitum ekkert um þátt laxsins í fæðukeðjunni í sjónum hér við land og teljum að hann þurfí að kanna," segir Guðjón. Einn þeirra sem lagðist algeriega gegn þessum hugmyndum á þinginu var Arthúr Bollason. Arthúr segir að það sé álíka gáfulegt að telja að lax éti þorsk í einhveijum hættuleg- um mæli og að hann sjálfur sé að í hinni upphaflegu ályktun um EES sem lá fyrir þinginu frá fjárhagsnefnd var ekki að finna yfirlýsingu um stuðning eða andstöðu við EES-samn- inginn heldur m.a. skorað á stjómvöld að falla ekki frá kröfum um tollfrelsi og lýst áhyggjum vegna ríkisstyrkja til sjávarútvegs. Meðal þeirra sem til máls tóku í umræðunum um ályktunina var Krist- ján Loftsson. Hann sagði það sína skoðun að samþykkja ætti EES-samn- inginn enda engin hætta því samfara. Hægt væri að segja samningnum upp með eins árs fyrirvara. Kristján og Pétur Bjamason fluttu síðan sameig- vænlegustu leiðina til þess að atvinnu- lífíð lifí af þann vanda sem við er að glíma og til þess að tryggja að at- vinnuástand geti orðið sæmilegt. En hinsvegar er ljóst að um svo geigvæn- legar fjárhæðir er að ræða að tvísýnt er að niðurfelling skatta og lækkun þjónustugjalda nægi. Þess vegna kann að reynast nauðsynlegt að leita fleiri leiða. Ekki þarf að taka fram að eng- in ný skattlagning á sjávarútveginn getr komið til álita, þar með talin greiðsla Hagræðingarsjóðs. Þar að auki er nauðsynlegt að lækka vexti og lengja lán þeirra fyrirtækja sem lífvænleg eru talin og létta þannig þjmgstu greiðslubyrðina." éta hvalastofnana undir drep. „Ef menn era að leita að orsökum fyrir því að nytjastofnamir era jafnilla famir og raun ber vitni, með þessum hætti, er verið að leita ansi langt eftir sökudólgum," segir Arthúr. „Við eigum að veiða lax á stöng eins og gert er en ekki í sjó enda hefur kílóið af stan'gveiðilaxi skilað okkur 1.000 dolluram en kílóið af laxi veiddum í sjó gefur okkur 10 dollara." Pétur Bjarnason segir að hann hafí komið með málamiðlun sína þar sem hann telji rétt að lífhættir laxs- ins í sjó séu kannaðir en hinsvegar vilji menn alls ekki fara út í ein- hvert hagsmunastríð við laxabænd- inlega ályktunina sem samþykkt var naumlega. Ályktun um þjóðaratkvæði kom frá Jónasi Haraldssyni. Hann sagðist flytja hana þar sem hann taldi að þjóð- in ætti að fá að tjá hug sinn í þessu máli, alveg burtséð frá því hvort EES- samningurinn væri sjávarútvegi hag- kvæmur eða ekki. Þar sem ályktun Kristjáns og Pét- urs var talin ganga lengst af þeim þremur sem fyrir lágu kom hún fyrst til atkvæða. Er ljóst var að hún hafði samþykki meirihluta fulltrúa voru hin- ar tvær ályktanimar ekki bornar upp til atkvæða. Snarpar umræður um laxveiðar í sjó Alyktun um tilrauna veiðar á laxi samþykkt SNARPAR umræður urðu á Fiskiþingi í gærdag um ályktun frá allsher- jarnefnd um nýtingu á hval og sel. í fjórða lið þeirrar ályktunar er kveðið á um rannsóknir á þeim sviðum vistfræði sem hugsanlega hafa áhrif á nytjastofna. Guðjón A. Kristjánsson kom með viðbótarályktun við þann lið sem kvað á um að tilraunaveiðar yrðu hafnar á laxi í sjó til að rannsaka áhrif hans á lífríki nyljastofna. Eftir harðar umræður kom Pétur Bjarnason síðan með breytingu á þessari viðbót sem kvað á um takmarkaðar tilraunaveiðar og þannig var ályktunin samþykkt. Skorað á Alþingi að samþykkja EES Áíyktunin var samþykkt með naumum meirihluta FISKIÞING samþykkti með naumum meirihluta ályktun þar sem skor- að er á Alþingi að samþykkja EES-samninginn. Ályktunin var sam- þykkt með 17 atkvæðum gegn 15. Tvær aðrar ályktanir um EES lágu fyrir þinginu en voru ekki afgreiddar vegna þessa. Var önnur þeirra um að þjóðaratkvæði ætti að fara fram um EES. -- - ■ - 2Q0Í Sí Morgunblaðið/Kristinn Eflaust hlakka margir krakkar til að fá far með tveggja hæða Lundúnastrætisvagni. Borgarkringlan 11 daga Bretlandsveisla JÓN Sigurðsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, opnaði Bret- landsveislu í Borgarkringlunni með því að vígja nýuppgerðan breskan símaklefa frá árinu 1939 í gær. Veislan felst í viðamik- illi kynningu á breskri vöru ogþjónustu og stendur til 1. nóvem- ber. Meðal þeirra sem skemmta gestum í Borgarkringlunni á meðan á Bretlandsveislunni stendur era skoski sekkjapípu- leikarinn Robert Maclntosh, listakonan Helen Cooper sem málar á silki og grínleikarinn Adrian Kaye í gervi Charlie Chaplins. Tískusýningar verða haldnar á haust- og vetrartískunni frá nokkram þekktustu hönnuðum Bretlands s.s. Vivienne Westwo- od, Jasper Conran og Paul Smith. Og ekki má gleyma áætlunarferðum tveggja hæða Lundúnastrætisvagns í Borgar- kringluna. Ferðir strætisvagns- ins era ókeypis. Meðal þess sem minnir á Bretland í Borgarkringlunni þessa daga er þessi gamli símaklefi. Landssamtök atvinnulausra fengu styrki og húsnæði í gær Tekjutenging bóta og bótaréttur sjálfstæðra atvinnurekenda athuguð Nýsköpun meö styrk atvinnuleysistryggingasjóös TIL greina kemur að miða atvinnuleysisbætur við tekjur bótaþega að sögn Sighvats Björgvinssonar ráðherra heilbrigðis- og tryggingamála. Nefnd á hans vegum vinnur að því að endurskoða lög um atvinnuleysis- bætur og segir Sighvatur rétt að endurmeta reglur um hveijir eigi aðild að atvinnuleysistryggingasjóði, með tilliti til sjálfstæðra atvinnurekenda. Nefndin mun líka fjalla um skráningu atvinnulausra og vinnutilboða en Sighvatur segir að ekki verði horfið frá vikulegri skráningu, í henni felist nauðsynlegt eftirlit. Allt eru þetta baráttumál nýstofnaðra Lands- samtaka atvinnulausra. Reynir Hugason formaður samtakann segir að um 120 manns hafi skráð sig í þau og segjast verkalýðsforkólfar til í að ræða hugsanlegt samstarf. Samtökin fengu styrki frá atvinnurekend- um í gær og hyggjast leigja húsnæði við Ármúla 38. Landssamtök atvinnulausra hyggj- ast leita til ríkis og sveitarstjóma um fjárstuðning. Tvö samtök atvinnurek- enda létu 200.000 í té í gær, og seg- ir Reynir Hugason að ekki sé eftir neinu að bíða. Til stendur að ráða starfsmann í hálft starf og leigt hefur verið 55 fm húsnæði við Ármúla 38. Þangað geta atvinnulausir snúið sér og taka vinnuhópar til starfa um helg- ina. Á stofnfundinum furðuðu menn sig á að verkalýðsleiðtogar létu ekki sjá sig og vildu ræða hvemig stéttar- félög gætu stutt við bak atvinnulausra félagsmanna. Lára V. Júlíusdóttir framkvæmda- stjóri Alþýðusambands íslands segir sjálfsagt að ræða við fulltrúa atvinnu- lausra og reyna að greiða fyrir þeim. „Við vorum ekki boðuð sérstaklega á fundinn í gær og töldum rétt að hóp- urinn fengi að hittast áður en við blönduðumst í málin." Þórann Sveinbjömsdóttir formaður Sóknar tekur í svipaðan streng, segir eðlilegt að samtökin leiti til stéttarfé- laga og ræði aðgerðir. „Ég get ekki á þessari stundu sagt til um hver við- brögð yrðu en við viljum gera það sem hægt er til að hjálpa þeim sem ekki fá vinnu. Hvað uppbyggingu atvinnu- lausra varðar má nefna gott mál, sem er námskeið Námsflokkanna fyrir þennan hóp,“ segir Þórunn. Magnús L. Sveinsson formaður VR segist telja að boða hefði átt forystu launþegasamtaka á stofnfundinn i fyrradag til að ræða hvernig standa ætti að starfinu. „Aðstaða fyrir at- vinnulausa til að hittast er kannski ágæt hugmynd, en það sem mestu skiptir er að ráða fram úr atvinnuleys- inu sjálfu." Skiptar skodanir um rétt sjálfstæðra atvinnurekenda Bjöm Grétar Sveinsson formaður Verkamannasambands íslands segir að óhætt hljóti að vera að fullyrða að verkalýðsfélögin muni styðja sína menn. „Húsnæði verkalýðsfélaga úti á landi stendur atvinnulausum félög- um til dæmis ábyggilega opið,“ segir hann. „En ég get ómögulega tekið undir kröfu samtaka atvinnulausra um að sjálfstæðir atvinnurekendur fái aðild að atvinnuleysistryggingarsjóði. Ég minni á forsöguna, um sjóðinn var samið eftir fimm vikna verkfall 1955 og við höfum hvað eftir annað þurft RLR verði gert kleift að sinna hlutverki sínu - segir Hörður Jóhannesson, nýráð- inn yfirlögregluþjónn RLR „ÞAÐ þarf að endurskoða verkaskiptingu lögregluembættanna á Reykjavíkursvæðinu og gera Rannsóknarlögreglu ríkisins kleift að sinna því hlutverki, sem henni var ætlað I upphafí. Lögregian í Reykja- vík, Kópavogi og Hafnarfirði ætti að sinna smærri afbrotum sjálf, líkt og önnur lögregluembætti landsins gera, enda er staðarlögregian oft betur í stakk búin til að greiða úr slikum málum en rannsóknarlögregi- an, sem á, eðli sínu samkvæmt, að einbeita sér að stærri málum,“ seg- ir Hörður Jóhannesson, yfirlögregluþjónn Rannsóknariögreglu ríkisins. Hörður, sem er 38 ára Reykvík- ingur, starfaði hjá Rannsóknarlög- reglu ríkisins frá 1981 til ársloka 1990, þegar hann tók við starfi skrif- stofustjóra embættis ríkissaksókn- ara. Þann 1. september sl. tók hann við starfi yfírlögregluþjóns hjá rann- sóknarlögreglunni, en þá var yfir- stjóm stofnunarinnar breytt, svo nú eru yfírlögregluþjónamir tveir. Fyrir var Helgi Daníelsson. Hörður segir að sér lítist mjög vel á nýja starfíð, en hann hefur ákveðnar hugmyndir um breytingu á verksviði RLR. Smærri mál fari ekki til RLR „Þegar rannsóknarlögreglan var stofnuð, árið 1977, var henni ætíað að sinna alvarlegri brotamálum á höfuðborgarsvæðinu og aðstoða önnur lögregluembætti landsins við rannsókn slíkra mála,“ segir Hörð- ur. „Það var mikið framfaraskref að koma RLR á laggirnar, en síðan hefur of lítið gerst. Rannsóknarlög- regian fær núna til sín aragrúa mála, en stærstan hluta þeirra gætu embættin á höfuðborgarsvæðinu rannsakað sjálf. Rannsóknardeildir annarra lögregluembætta á landinu sinna slíkum málum og eru raunar betur í stakk búnar til þess en rann- sóknarlögreglan. Það skýtur til dæmis skökku við að þjófnaður á þvotti af snúru í Mosfellsbæ, eða stuldur á hjólbarða í Hafnarfirði skuli koma inn á borð rannsóknar- lögreglunnar." Hörður segir að rannsóknarlög- reglan finni stundum fyrir alls konar „tískusveiflum" í málatilbúnaði. „Á tímabili var töfralausn allra sem ekki gátu leyst úr ágreiningsmálum sínum að kæra til rannsóknarlög- reglunnar og allt átti að leysa með „opinberri rannsókn". Ég fullyrði að Iögmenn losuðu sig iðulega við við- skiptamenn sína með því að kæra mál hingað, jafnvel vitandi að ekki væri um lögreglumál að ræða. Okk- ur er hins vegar ætlað að rannsaka sakamál, hvort brot hafi verið fram- ið og þá hver það gerði, en ekki að leysa úr ágreiningi milli manna eða gera upp þeirra viðskipti." Sérfræðiþekking innan RLR Hörður segir að rannsóknarlög- reglan hafi yfír víðtækri þekkingu og tækjabúnaði að ráða, til að rann- saka alvarleg sakamál. „Við stofnun RLR vora deildir hennar þrjár. Ein sinnir ofbeldis- og kynferðismálum, önnur fjársvikum og skjalafalsi og sú þriðja innbrotum, þjófnuðum og unglingamálum. Fjórðu deildinni var svo bætt við árið 1985 og það er tímanna tákn að hún sinnir rann- sóknum á skatta- og efnahagsbrot- um. Þá er tæknideild okkar ágætlega tækjum búin. Ég er maður sérhæf- ingar og trúi því statt og stöðugt að það sé öllum til góða að við höf- um sérfræðinga á hveiju sviði. Starfsmenn RLR fara til útlanda í þjálfun og ráða yfir víðtækri þekk- ingu, til dæmis í .skriftarrannsókn- um, rannsóknum á eldsupptökum og á fleiri sviðum. Þeir era góð blanda af eldri og reyndari mönnum og ungum mönnum, sem eiga framtíð fyrir sér.“ Hörður segir að erfitt gæti reynst að manna deildina, sem rannsakar skatta- og efnahagsbrot. „Lögreglu- skólinn þjálfar menn ekki í bókhaldi og öðram fræðum, sem nauðsynlegt er að kunna skil á til að vinna í þeirri deild. Raunar miðast skólinn ekki að neinu leyti við að mennta menn til starfa í rannsóknarlögreglu. Áhugi rannsóknarlögreglumanna á því að starfa að rannsóknum á efna- hagsbrotum og annarra lögreglu- manna að koma til RLR er lítill, kannski vegna þess að launamis- Morgunblaðið/Júlíus Hörður Jóhannesson, yflrlög- regluþjónn RLR. munur er nánast enginn. Ég bendi á, að inn í stofiianir lögreglunnar erlendist hafa í auknum mæli verið ráðnir viðskiptafræðingar og endur- skoðendur, til að starfa samhliða lögreglumönnum." Auðgunarbrot fyrirferðarmikil Afbrot hafa breyst í tímanna rás og Hörður segir alls konar auðg- unarbrot miklu fyrirferðarmeiri en áður. „Tékkafalsið er að miklu leyti angi af fíkniefnavandanum," segir ' hann. „í hópi þessara falsara er fólk, sem kemur aldrei nálægt afbrotum framar, ef það getur losað sig út úr vítahring áfengis og fíkniefna. Það er því ekki allt fengið með því að efla löggæslu og þyngja dóma, því það hefur lítil áhrif á þennan hóp, sem þarf fyrst og fremst að aðstoða við að komast út úr þessum vítahring. Rannsóknarlögreglan er því ekki hluti af þeirri lausn. Við eram ágætlega í stakk búnir til að rannsaka mál, en tékkamál era allt of mörg. Lausnin liggur fyrst og fremst hjá þeim, sem höndla með tékka. Kæraleysi þeirra er allt of mikið og þeir spyija til dæmis ekki um skilríki með mynd, svo þeir viti við hveija þeir era að skipta. Bankar þurfa líka að bera meiri ábyrgð á viðskiptamönnum sínum og vera vandfýsnari á þá. Það er fáránlegt, en satt, að menn sem hafa verið dæmdir fyrir tékkamisferli, hafa gengið inn í banka, opnað tékka- reikning og fengið tékkhefti eins og ekkert hafi í skorist." Hörður segir að bankakort séu vita gagnlaus og geri fremur ógagn en hitt. „Við höfum nýverið upplýst mál manna, sem komust yfír tékk- hefti og bankakort. Þeir tæmdu heft- ið og komust svo yfir nokkur hefti til viðbótar. Þeir gátu skrifað út ávísanir að vild og alltaf sýndu þeir sama bankakortið. Með þessu móti komust þeir yfir hundrað þúsunda." Bókhaldsbrot og nótulaus viðskipti Nauðsynlegt er að skerpa laga- ákvæði, sem ná til bókhaldsbrota, að mati Harðar. „Það er engin hemja að þessi mál skuli ekki hafa verið tekin fastari tökum. Ef bókhalds- skyldur aðili heldur ekki bókhald, þá á það eitt að nægja til sakfelling- ar. Bókhaldsleysi og gjaldþrot í framhaldi af því er kjörinn jarðvegur fyrir mann, sem vill taka fé út úr rekstrinum. Þá þarf að vekja at- hygli almennings á því, hve mikil meinsemd nótulaus viðskipti era. í Danmörku hefur tekist að innræta fólki, að það sé öllum í hag að nótu- laus viðskipti líðist ekki, heldur beri öllum að standa skil á virðisauka- skatti. Hér eigum við langt í iand og stjórnvöld verða að fara að gera upp við sig hvort þau vilja taka á þessu," segir Hörður Jóhannesson, yfirlögregluþjónn Rannsóknarlög- reglu ríkisins. að veija hann í kjarasamningum. Nú segjast sjálfstæðir atvinnurekendur vilja komast inn og ég spyr hver á að fylgjast með þessum mönnum? Hvenær á að telja þá atvinnulausa?“ Magnús L. Sveinsson bendir á að fjórðungur af tekjum sjóðsins komi frá sjálfstæðum atvinnurekendum eða einyrkjum. Það hafi sýnt sig að undan- fömu að þeir geti líka orðið atvinnu- lausir. Atvinnurekendur borga 6,2% ið- gjald af öllum launum og fer obbi þess til lífeyris- og slysatrygginga Tryggingastofnunar en 1,15% í at- vinnuleysistryggingasjóð. Iðgjaldið er reyndar 2,7% fyrir þá sem vinna að fiskveiðum, iðnaði og landbúnaði. Sig- hvatur Bjorgvinsson segir vél komá til greina að í ljósi þéssa verði annað hvort breytt reglum um iðgjaldið eðá sjálfstæðum atvinnurekendum veittur réttur til atvinnuleysisbóta. Gert er ráð fyrir að atvinnuleysis- tryggingarsjóður þurfi 2,3 milljarða króna á næsta ári en iðgjöldin gefa aðeins 1,2 milljarða. Ríkissjóður samdi nýlega við sveitarfélögin um 500 millj- óna framlag á næsta ári. Þau geta svo sótt um framlög úr sjóðnum fyrir tiltekinn fjölda manna sem takist á við ný verkefni. Sighvatur Björgvins- son segir að framlag á mann verði jafn hátt bótunum, ávinningurinn fel- ist í að borga til atvinnuskapandi verk- efna og stuðla að framföram. Eitt af baráttumálum nýstofnaðra Landssamtaka atvinnulausra er að skilyrði verði sköpuð í þjóðfélaginu til að fólk fái atvinnu við hæfi og nýsköp- un i atvinnulífi er þáttur í því. Sighvat- ur segir að á Húsavík hafi verið gerð tilraun í takt við samkomulagið fyrir 1993. Þar hafi tekist vel til. Keflvíkingar undirbúa samstarf við atvinnuleysistryggingasjóð Ellert Eiríksson, bæjarstjóri í Kefla- vík, segir að bæjaryfirvöld athugi nú möguleika á að fá styrk úr Atvinnu- leysistryggingasjóði í því skyni að greiða laun starfsmanna fyrirtækja í nýiðnaði um ákveðinn tíma, gegn því að fólk, sem verið hefði atvinnulaust, fengi vinnu. Að sögn Ellerts stendur þetta ein- göngu til boða fyrir fyrirtæki í nýiðn- aði eða nýjum atvinnugreinum, sem ekki era í samkeppni við atvinnustarf- semi, sem fyrir er á staðnum. Hefð- bundinn fiskiðnaður kemur því til dæmis ekki til greina í þessu sam- bandi. Hann sagði að enn hefði ekkert samkomulag af þessu tagi komizt í kring. Hópur fyrirtækja, sem nú væra í rekstri, hefði gert fyrirspumir um styrki, en ekki reynzt uppfylla skilyrð- in. Menn, sem væra með hugmyndir um nýjan rekstur, hefðu rætt við bæjaryfirvöld, þar á meðal einn sem hefði í hyggju að setja á stofn fisk- réttaverksmiðju af nýrri tegund. Þá hefði bærinn boðið tveimur eða þrem- ur aðilum upp á styrk af þessu tagi. Þar á meðal væri Stakksvík (áður Hraðfrystihús Keflavíkur). „Þeim var sagt að ef þeir vildu fara af stað með humarvinnslu eða einhvetja aðra ný- breytni, væri hægt að bjóða þeim 20 starfsmenn í átta vikur," sagði Ellert. „Þetta er raunverulega styrkur í byijunarþrepinu. Menn era kannski nokkum tima að koma framleiðslulínu í gang, kenna starfsfólkinu réttu handtökin og annað slíkt. Hámarkið er átta vikur með þessum styrk og á þeim tíma verða menn að koma fyrir- tækinu á flot eða ekki,“ sagði Ellert. „Þá getur þetta samstarf Atvinnuleys- istryggingasjóðs og viðkomandi sveit- arfélags hjálpað. Það er miklu betra að gera eitthvað í þessa vera en að bærinn taki stöðugt fólk í vinnu í umhverfísmálum, því að það er ekki til frambúðar." -P

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.