Morgunblaðið - 27.10.1992, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 27.10.1992, Qupperneq 1
64 SIÐUR B 245. tbl. 80. árg. ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 1992 Prentsmiðja Morgunblaðsins Dúshanbe aftur í höndum sijórnarhermanna Stjómarhemum í Tadzhíkístan tókst í gær að hrekja uppreisnarmenn kommúnista burt úr höfuðborginni. Borgarbúar óttast þó enn nýjar árásir. Borgarastríð- ið í landinu, sem geisað hefur í fimm mánuði, hefur líklega kostað nokkrar þúsundir manna lífið. Hér sést rússneskur hermaður stökkva af skriðdreka sín- um á flugvellinum í höfuðborginni Dúshanbe en Rússar hafa reynt að miðla málum í landinu. Landbúnaðarráðherrar EB Sjónarmið Frakka um GATT fengn stuðning Lúxemborg, Brussel. Reuter, The Sunday Telegraph. Landbúnaðarráðherrar Evrópubandalagsins' (EB) komu saman tii fundar í Lúxemborg í gær og var deila EB og Bandaríkjastjómar í GATT-viðræðunum aðalumræðuefnið. Virtust flestir ráðherranna styðja sjónarmið Frakka, en þeir hafa hvað harðast lagst gegpi þeim samkomulagshugmyndum, sem uppi eru og verið taldir eiga á hættu að einangrast innan bandalagsins. Háttsettur embættismaður framkvæmdastjómar EB sagði hins vegar við Reuters-fréttastof- una í gær að hann væri þess full- viss að samkomulag myndi nást í viðræðunum á miðvikudag eða fimmtudag. Hann sagði það vera á ábyrgð ftamkvæmdastjórnarinn- ar að það myndi takast og að andstaða Frakka yrði ekki til að stöðva málið. „Þetta mun ganga upp,“ sagði embættismaðurinn. Breska blaðið The Sunday Tele- graph birti um helgina frétt þess efnis að Bill Clinton, forsetafram- bjóðandi demókrata, og Jacques Delors, forseti framkvæmda- stjórnar EB, hefðu gert með sér samkomulag um að ekki yrði sam- ið um GATT fyrir bandarísku for- setakosningamar sem fara fram 3. nóvember. Hefur blaðið þetta Fyrrverandi kommúnistar vinna stórsigur í þingkosningum í Litháen Gætum orðið fyrstir til að glata nýfengnu sjálfstæði segir talsmaður stjórnarflokks Landsbergis forseta FLOKKUR fyrrverandi kommúnista vann stórsigur í þingkosningn- um í Litháen á sunnudag og myndar formaður hans, Algirdas Braz- auskas, að líkindum nýja stjórn með fulltingi smærri vinstriflokka. Flest bendir til þess að kjósendur hafi viljað lýsa andúð á markaðsum- bótastefnu stjórnar Sajudis-flokksins en lífskjörum hefur hrakað mjög að undanförnu. Talsmaður Sajudis sagðist í samtali við Morgun- blaðið óttast að frelsi og sjálfstæði Litháa, sem voru fyrstir Sovét- þjóða til að krefjast fullveldis 1988, gæti verið stefnt I hættu. Síðustu tölur gáfu til kynna að kommúnistar fengju nær helming atkvæða, um 47%, en óljóst er hvort þeir ná meirihluta í báðum deildum þingsins. í þeim kjördæm- um sem enginn frambjóðandi nær meirihluta í verður kosið aftur inn- an tveggja vikna. Sajudis, flokkur Vytautas Landsbergis forseta, hafði fengið um 20% fylgi en aðrir flokkar minna. Brazauskas hvatti í gær til þess að mynduð yrði samsteypustjóm á breiðum grundvelli en fara yrði hægar í sakimar í markaðsumbót- unum. Landsbergis forseti sagðist aðspurður vera vantrúaður á að samstaða næðist milli flokkanna. Auk þess væri þörf á lýðræðislegri stjómarandstöðu í landinu. Tveim vikum fyrir kosningar ákváðu Rússar að selja Litháum framvegis olíu á heimsmarkaðsverði, marg- falt hærra verði en nú, og duga birgðir til húshitunar aðeins í nokkrar vikur. Landsbergis sagði Rússa hafa reynt að hafa áhrif á niðurstöðu kosninganna og benti m.a. á að Andrej Kozyrev, utanrík- isráðherra Rússlands, hefði sagt blákalt að þeir myndu reyna það eftir mætti. Kozyrev hefur annars verið talinn dyggur lýðræðis- og umbótasinni og hefur afstaða hans því valdið miklum vonbrigðum. Talsmenn Sajudis segja hins vegar að Borís Jeltsín forseti sé ekki á bak við þessar aðgerðir, fremur sé um að ræða að harðlínumenn úr röðum hersins og stjómenda stærstu iðnfyrirtækjanna rói undir. Lára M. Ragnarsdóttir alþingismaður Allt virtist fara vel og lýðræðislega fram EVRÓPURÁÐIÐ og fleiri aðilar sendu fuiltrúa til að fylgjast með framkvæmd kosningana í Litháen og var Lára Margrét Ragnarsdóttir alþingismaður einn fulltrúa ráðsins. Er Morgun- blaðið ræddi við hana kom fram að allt virtist hafa farið vel og lýðræðislega fram en sums staðar hefði fólk óttast að starfs- menn pósthúsa gætu komist í kjörgögn er send voru milli staða. „Það var eitt sem ég tók sér- staklega eftir. Fulltrúar kommún- istaflokksins, sem nú ber annað nafn, voru alls staðar á kjörstöð- um og greinilegt að flokkurinn er langbest skipulagður. Nýju flokkamir hafa einfaldlega ekki haft nægilegan tíma til að búa sig undir frjáisar og lýðræðislegar kosningar." Lára Margrét var í landinu á síðasta ári og sagði lífs- kjör hafa versnað mjög, atvinnu- leysi væri gríðarlegt og verðbólga síðustu 12 mánuði um 2.000%. Húshiti mætti samkvæmt nýjum reglum ekki vera meiri en 13 gráður vegna olíuskortsins og heitt vatn fengist aðeins nokkrar stundir á dag. Morgunblaðið ræddi í gær sím- leiðis við Andrjus Kubilus, tals- mann Sajudis, og spurði hvort kjós- endur væm að biðja um kommún- isma á ný. „Það er ekkert auðvelt fyrir okkur heldur að skilja þetta en ef til vill höfðu efnahagsvand- ræðin úrslitaáhrif. Uppskeran brást að vemlegu leyti í sumar vegna þurrka og matarbirgðir end- ast varla út veturinn." Á sunnudag var samþykkt ný stjórnarskrá í þjóðaratkvæði og er búist við for- setakosningum í samræmi við ákvæði hennar innan fjögurra mánaða. Helstu keppinautar verða sennilega Brazauskas og Lands- bergis. Kubilus sagði að ef til vill myndu kommúnistar leynilega hvetja til dáða furðufugl á borð við Stanislas Tyminski, er bauð sig fram gegn Lech Walesa í Póllandi. Tyminski hét markaðskerfi og paradísarsælu kæmist hann til valda. Þannig gætu andstæðingar kommúnista klofnað í Litháen að sögn Kubilus en hann sagðist jafn- framt óttast að úrslitin núna gætu grafið undan sjálfstæðinu. „Brazauskas var að vísu um- bótasinnaður kommúnisti í anda Gorbatsjovs en nú hafa harðlínu- seggir undirtökin í flokknum hér. Sigri afturhaldið í Moskvu getur farið svo að Litháar, sem fyrstir kröfðust sjálfstæðis frá Kreml, verði fyrstir til að glata því á ný,“ sagði Kubilus. Sjá einnig frétt á bls. 27 eftir háttsett'um ónafngreindum embættismönnum í Brussel. Þjóðaratkvæði um Quebec Kanadamenn gengu í gær að kjörborðinu til að greiða at- kvæði með eða á móti samningi um stöðu Quebec-ríkis. Sam- kvæmt samningnum öðlast rík- ið sérstöðu sem auðveldar íbú- unum að varðveita tungu sína, frönsku, og menningu. Hér sést Brian Mulroney, forsætisráð- herra Kanada, greiða atkvæði í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Hann hefur sagt að klofningur Kanada sé yfírvofandi verði samningnum hafnað. Reuter Færeyjar Samningum við opinbera starfsmenn sagt upp ATLI Dam, lögmaður Færey- inga, átti í gær fund með fuiltrú- um stéttarfélaga opinberra starfsmanna. Tilkynnti hann þar að öllum kjarasamningum við félögin hefði verið sagt upp. Verkalýðsleiðtogarnir mót- mæltu með því að segja ekki eitt einasta orð það sem eftir var fundarins. Dam tilkynnti í gær þær aðgerð- ir landsstjórnarinnar sem búist hef- ur verið við um nokkra hríð. Því er spáð að 250 opinberir starfs- menn verði ekki ráðnir aftur. Laun hinna verða lækkuð um 8% auk þess sem yfírvinnugreiðslur verða afnumdar og ýmis hlunnindi og réttindi skorin niður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.