Morgunblaðið - 27.10.1992, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 1992
9
MUNIÐ S
HÓTELREKSTUR ERLENDIS
Stofnun hlutafélags um hótelrekstur erlendis.
Þátttökueyðublöð og upplýsingar hjá
Gulli og Silfri hf., Laugavegi 35,
símar 22013 og 20620 og
Manor House hótel
í síma 90 44 803 605164.
DVELJIÐ Á EIGIN HÓTELUM ERLENDIS.
Skilafrestur er til 1. nóvember 1992.
Léttu þér störfin!
ELFA-DELCA uppþvottavélin
kostar aöeins
Tekur borðbúnað fyrir 6 manns. 7 kerfi, þurrkar og
skammtar sjálf þvottaefni, getur staðið á borði, má
einnig byggja inn í skáp. íslenskar leiðbeiningar.
Mál: Hæð: 49 sm, breidd: 50 sm, dýpt: 52 sm.
Einar Farestveit & Co.hf.
Borgartúni 28 — S“ 622901 og 622900
Stuðnings-
aðgerðir hef-
ur vantað
I grein sinni segir Þor-
valdun „Eins og jafnan
áður, þegar gefur á þjóð-
arskútuna, heyrast nú
háværar kröfur um geng-
isfellingu krónunnar úr
hópi hagsmunasamtaka í
sjávarútvegi. Samtökin
biðja um, að gengið verði
fellt til að styrkja stöðu
sjávarútvegsfyrirtækja á
kostnað almennings.
Þetta er skiljanleg ósk.
Undir cðlilegum kring-
umstæðum kæmi það vel
til greina að fella gengið
til að lyfta sjávarútvegin-
um og þjóðarbúskapnum
upp úr lægð, enda hefur
gengisfelling stundum
komið að góðu haldi við
hagstjóm hér heima,
einkum á sjöunda ára-
tugnum, og viða erlendis.
Gengisfellingar hér
heima og annars staðar
hafa þó iðulega verið því
marki brenndar, að þeim
hefur ekki verið fylgt eft-
ir með nauðsynlegum
stuðningsaðgerðum. Það
hefur vantað á, að þeim
fylgdi öflugt aðhald í pen-
ingamálum og ríkisfjár-
málum til að eyða eða
halda aftur af þenslu-
áhrifum gengisfellingar-
innar á verðlag og kaup-
lag. Þess vegna hafa
gengisfellingar hneigzt til
að kynda óþarflega undir
verðbólgu. I þ'ósi þessarar
reynslu hefur stöðugt
gengi verið kjölfestan í
aðhaldsstefnu stjómvalda
undanfarin ár. Þessi
stefna hefur verið skyn-
samleg.
Gamla lagið
kemur ekki til
greina
Við núverandi aðstæð-
ur er á hinn bóginn ekk-
ert svigrúm til hefðbund-
inna aðhaldsaðgerða til
að vega á móti verðbólgu-
álirifum gengisfellingar.
Þorvaldur Gylfason tel-
ur að gengisfellingu
verði meðal annars að
fylgja eftir með lækkun
matarverðs í skjóli inn-
flutnings landbúnaðar-
M afurða-
Gengismál og skipu-
lagsbreytingar
Þorvaldur Gylfason hagfræðiprófessor
ritar grein í nýjasta hefti Vísbendingar
undir fyrirsögninni „Á að fella gengið?“
Hann varar þar við því að fara gömlu
gengisfellingarleiðina og gleyma þeim
aðhaldsaðgerðum, sem framkvæma
þurfi samhliða gengislækkun. Hins vegar
kemst Þorvaldur að þeirri niðurstöðu að
ákveði stjórnvöld að fella gengið, verði
jafnframt að skera upp landbúnaðarkerf-
ið og fiskveiðistjórnunarkerfið til þess að
lækka kostnað og verðlag.
Þetta segir sig sjálft:
stjómvöld segjast þegar
vera komin á yztu nöf í
niðurskurði ríkisútgjalda
þrátt fyrir áframhaldandi
hallarekstur, og raun-
vextir eru með hæsta
móti og verða þvi varla
hækkaðir frekar með
samdrætti útlána í að-
haldsskyni. An aðhaldsað-
gerða til mótvægis myndi
gengisfelling fara rakleitt
út S verðlág og kauplag,
enda gera núgildandi kja-
rasamningar ráð fyrir
föstu gengi. Gengisfelling
með gamla laginu kemur
þvi ekki til greina nú.
Þarf að rétta
reglumar
Hvað þarf til að rífa
atvinnulífið upp úr öldu-
dalnum?
Sumir tejja, að stjóm-
völd eigi að halda að sér
höndum og biða þess, að
einkafyrirtækin taki við
sér af eigin rammleik.
Það er mikið til i þessu
að mínum dómi, enda er
mikil hagræðing að eiga
sér stað nú víða í atvinnu-
lífinu að frumkvæði fyr-
irtækjanna sjálfra. En
þessi skoðun hefur þó
þann annmarka, að leik-
reglur atvinnulífsins eru
fyrirtækjunum andsnún-
ar að ýmsu leyti, þótt
margt hafi að visu breytzt
til batnaðar á síðustu
árum og aðild að Evr-
ópska efnahagssvæðinu
sé nú í sjónmáli. Það þarf
að rétta reglumar og
skapa fyrirtækjunum
tækifæri til að rífa sig upp
úr erfiðleikunum með því
móti. Það þarf að létta
þungum byrðum af fyrir-
tækjunum og fólkinu í
landinu, viðskiptavinum
fyrirtækjanna, með þvi
að auka samkeppni og
færa verðlag og kostnað
niður á við með þvi móti.“
Skipulagsum-
bætur ná-
tengdar geng-
isstefnu
I lok greinar sinnar
segir Þorvaldur Gylfason:
„Nauðsynlegar skipulags-
umbætur i landbúnaði og
sjávarútvegi eru nátengd-
ar gengisstefnunni. Verði
niðurstaða stjómvalda sú,
þegar allt kemur til alls,
að gengisfelling sé nauð-
synleg til að veijast
áhlaupi á gjaldeyrisforð-
ann eða til að örva út-
flutning og halda aftur
af innflutningi, þá verður
að fylgja henni eftir með
aðgerðum, sem halda
verðlagi og kauplagi í
skefjum. Það er þegar
komið fram, að það er
ekkert svigrúm til frekari
aðhaldsaðgerða í ríkis-
fjármálum og peninga-
málum, eins og nú háttar
á þeim vettvangi. Þá
hljóta böndin að berast
að skipulagsbreytingum í
landbúnaði og sjávarút-
vegi. Með þvi að knýja
matarverð niður með
aukinni samkeppni er-
lendis frá og með þvi að
nota tekjur af sölu veiði-
leyfa eða veiðigjaldi til að
lækka til dæmis virðis-
aukaskatt væri hægt að
búa þannig um hnútana,
að hófleg gengisfelling
hefði Util sem engin áhrif
á framfærslukostnað
heimilanna og þá ekki
heldur á verðlag og kaup-
gjald. Þannig væri hægt
að lyfta iðnaði, verzlun
og þjónustu upp úr öldu-
dalnum og styrkja innviði
landbúnaðar og sjávarút-
vegs um leið án þess að
leggja byrðar á almenn-
ing.“
pnny
5 dyra hladbakur
• útvarp/segulband - 4 hátalarar
• 84 hestafla vél
• tölvustýrð fjölinnspýting
• 5 gíra beinskipting eða 4 þrepa
tölvustýrð sjálfskipting
• veltistýri
• rafknúnar rúðuvindur
• rafknúin samlæsing
• litað gler
• samlitir stuðarar og hliðarspeglar
• hvarfakútur
HYunoni
...til framtiðar
\[e^
BIFREIÐAR &
LANDBÚNAÐARVÉLAR HF.
ÁRMÚLA 13. SÍMI: 68 12 00
★ GBC-Pappírstætarar
Þýsk framleiðsla
Ýmsar stærðir og gerðir fáanlegar
OTTO B. ARNAR HF.
Skipholti 33 ■ 105 Reykjavík
Símar 624631 / 624699
20% AFSLATTUR
á permanenti
og strípum út október
- ^
Hárgreióslustofan
^fjjbena
Leirubakka36 S 72053
HVITAR
T E N N U R
Rembrandt tannkremið
gerir tennur hvítari
og hreitisar burt
óhreinindi eins og
tannstein, kaffi-
og tóbaksbletti.
Gefur góðan
árangur.
F/est tn.a.
í apótekum
og snyrtistofunni
Paradís.
REMBRANDT,
WHITENING TOOTHPASTE
Heildsala, sími 91-81 35 88.