Morgunblaðið - 27.10.1992, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 27.10.1992, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 1992 17 Brady Millícan og Tríó Reykjavíkur Tónlist Ragnar Björnsson í Hafnarborg upplifði maður enn eina tónleikana með Tríói Reykja- víkur sl. sunnudagskvöld. Að þessu sinni var þó ekkert tríó á efnis- skránni, í þess stað þrír dúettar, ef hægt er að kalla fjórhent píanó- spil því nafni. Brahms sellósónatan í e-moll op. 38, sú fyrri af tveim, fluttu þeir Brady Millican, bandaríski píanó- leikarinn, og Gunnar Kvaran. Millican sýndi ágæti sitt í Norræna húsinu á hádegistónleikum fyrir nokkrum dögum og sýndi nú ágæti sitt sem „kammermúsiker". Sá góði listamaður Gunnar Kvaran hefur átt betri stundir en að þessu sinni, þótt margt væri fallega gert. Fýrsti þátturinn virkaði dálítið þunglamalegur, fékk einhvemveg- inn ekki að syngja frjálst og eðli- lega. Hvort ein ástæðan var að Gunnar hafði ekki nógu langan boga, þ.e. skipti of oft um boga- strok, en einnig að tónöryggið var ekki óaðfinnanlegt, sem lagaðist þó mjög eftir því sem á leið sónöt- una. A stundum fannst mér eins og Gunnar ofléki, en slíkt er hættu- legt hljómburðinum í Hafnarborg og algjörlega óþarfi listamanni sem Gunnar er. Millican fannst mér að aftur á móti átta sig mjög vel á hljómburði salarins, dró frek- ar af sér og reyndi aldrei að sprengja hljóðmúrinn. Hvor var meira tónlistarundur Mozart eða Schubert skal ekki reynt að ráða í hér, en Mozart fékk þó nokkur æviár fram yfir Schubert til að skila sínu hlutverki. En óskiljanleg eru afrek Schuberts sem hann fékk til aðeins 31 ár. Fantasían í f-moll op. 103 er skrifuð á síðasta æviári hans, nokkrir dansar og ein fúga, þrungin fegurð og einfaldleika. Schubert var á móti ofsa og yfir- drifnu spili í eigin verkum og í þeim anda fluttu þeir Fantasíuna Brady Millican og Halldór Halldórs- son, fjórhent á píanóið, tært lát- laust en fallega. Tónleikunum lauk á síðustu sónötu Brahms fyrir fiðlu og píanó í d-moll op. 108. Þessi síðasta þriggja systra, hefur stund- um verið talin sú minnst áhuga- verða að formi til og innihaldi, en rík af ytri glæsileik. Að þessu sinni sýndi Guðný ytri glæsileik, en einn- ig ríkt innihald, hún var þó ekki ein um það, því Millican sýndi fram- úrskarandi leik í mjög krefjandi píanóhlutverki. En Guðný sýndi einn þann besta leik sem undirrit- aður hefur heyrt til hennar, syngj- andi fallegan tón, yfirvegun í hverri hendingu og mikið tónöryggi, hvort sem var í tvígripum eða hröðum Brady Millican brotnum hljómum og samleikur þeirra tveggja var oft „briliant“, eins og t.d. í tveim síðustu þáttun- um. Guðný sagði frá því áður en hún hóf leik sinn að sónötu þessa hefði hún lært hjá kennara sínum Birni Ólafssyni fyrir 25 árum, og svo vildi til að hefði hann lifað væri hann nú 75 ára. Hér var framúrskarandi listamanns og brautryðjanda fagurlega minnst. Íslensk-ítalskir söngtónleikar KÁRI Friðriksson tenórsöngvari og Þóra Fríða Sæmundsdóttir píanóleikari halda söngtónleika um þessar mundir. Tónleikarnir verða í Safnaðar- heimili Selfosskirkju þriðjudaginn 27. október kl. 20.30. í Samkomusal Bamaskóla Húsavíkur laugardaginn 31. október kl. 16.00 og í Skjólbrekk- um Mývatnssveit sunnudaginn 1. nóvember kl. 15.00. Tónleikamir verða eingöngu með íslensku og ítölsku efni, meðal ann- ars má nefna Maístjömu Jóns Ás- geirssonar, Hamraborg Sigvalda Kaldalóns, Verdi aríuna La donna e’mobile og L’ultima canzone eftir Tosti. Kári Friðriksson útskrifaðist sem tónmenntakennari 1988 og lauk 8. stigi í söng frá Tónlistarskólanum í Reykjavík ári síðar. Síðan lá leiðin til Italíu þar sem hann stundaði fram- haldsnám hjá tenórunum Pier Mir- anda Ferraro og Franco Ghitti. Þóra Fríða Sæmundsdóttir lauk píanókennaraprófí frá Tónlistarskól- anum í Reykjavík og stundaði síðan framhaldsnám í tónlistarskólum í Þýskalandi. Hún hefur mikla reynslu af að vinna með söngvurum og starf- ar nú sem píanóleikari og kennari í Reykjavik. Vetrarstarf Arnes- ingakórsins hafið Árnesingakórinn í Reykjavík hefur nú hafið vetrarstarfið og hefur starfsemi kórsins sjaldan vetur. Á þeim tíma hefur kórinn leikaferðir um landið og í ferð siðastliðið sumar. í fréttatilkynningu frá kómum segir: „Ferðast var um 3.000 km leið og tók ferðin 14 daga. Fyrst var flogið til Lúxemborgar, þaðan ekið til um Þýskaland til Salzburg og síðan til Vínarborgar, þar sem kórinn hélt tónleika í Canisius Kirche. Næst var haldið til Prag, þar sem kórinn söng í Dómkirkj- unni og veitingastaðnum Reykja- vík. í Prag gisti kórinn tvær næt- ur á skipi á ánni Moldá. Eftir það var haldið til Dresden og þaðan verið jafnöflug og síðustu þrjá gefið út hljómplötu, farið í tón- til þriggja landa í Mið-Evrópu til Berlínar þar sem sungið var i Þakkarkirkjunni sem er í miðborg Berlínar. Að lokum fór kórinn til Kölnar og söng þar i St. Gereon Kirche fyrir fullu húsi áheyrenda. Á efnisskrá kórsins var íslensk kirkjutónlist. Einsöngvari í ferð- inni var Ámi Sighvatsson barítón. Píanóleikarni var Bjami Jónatans- son og söngstjórinn Sigurður Bragason. í fréttatilkynningunni kemur einnig fram að hann geti bætt við sig nokkmm altröddum. Bíll möguleikanna á frábæru verði Við eigum nokkra Fond Econoline bíla, bæði sendibíla og Club Wagon á ffábæru verði, ffá 1.929.000 krónum m/Vsk. Ford Econoline er sannarlega bíll möguleikanna. Hann hefur ffábæra aksturseiginleika, er mjög rúmgóðui; þægilegui; hljóðlátur og þú færð tæpast betri bíl til ferðalaga. Tryggðu þér Fond Econoline strax í dag. Ryðvöm og skráning er innifalin í verðinu. G/obusp -heimur gœöa! Lógmúla 5, simi 91- 68 15 55 Hefurþú ekiö Ford.....nýlega? HAGSYNU ERU KOMNIR Á STJÁ JAPISS _______________________

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.