Morgunblaðið - 27.10.1992, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 1992
Roger Miller
Ásakanir auðkýfingsins frá Texas um óvönduð meðul Bush
HLUSTUM Á iifamí TÓNUST! 35
Sigvaldi Kaldalóns/fid Welch:
Fanfare
Ounnar Þórðarson;
Nocturne
Ýmsir/Ed Welch:
Svðurnesjosyíta
hórir Baldursson:
Sjávarmál
Trúbrot:
Magnús P. Slgmund^son
HIjómsveitarstjóri: Ed Welch
TÓNLEIKAR
M-HÁTÍÐ Á SUÐURFiESJUM
ÍSLENSKUR TÓNLISTARDAQUR
KEFLAVIK
fimmtudaginn 29. októben kl. 20.30
HÁSKÓLABÍÓ
Iaugardaginn 31. október kl. 17.00 og kl. 20.00
Reuler
Umdeild stíflugerð í Dóná
Slóvakar, sem búist er við að öðlist sjálfstæði frá Tékkóslóvakíu um
áramótin, hafa hafið framkvæmdir við umdeilda stíflu í Dóná við landa-
mærin að Ungveijalandi þrátt fyrir kröftug mótmæli Ungveija. Stjórn-
völd í Ungveijalandi og Tékkóslóvakíu gerðu samning um stífluna
árið 1977 en Ungveijar riftu honum fyrir þremur árum þar sem þeir
telja stíflugerðina geta haft hörmulegar afleiðingar fyrir lífríkið. Tals-
maður ungverska utanríkisráðuneytisins viðurkenndi í gær að nú væri
að öllum líkindum orðið of seint að stöðva framkvæmdirnar þar sem
Slóvakar eru þegar byijaðir að koma fyrir stórum steinblökkum í fljót-
inu til að breyta farvegi þess, eins og sjá má á myndinni.
látinn
Söngvarinn
- og laga-
smiðurinn Ro-
’ ger Miller lést
af völdum
krabbameins á
sjúkrahúsi í
gær á 57. ald-
ursári. Miller Roger Miller
var kunnur fyrir sveitatónlist
sína og mestum vinsældum náði
lagið „King of the Road“. Önnur
lög hans sem öðluðust umtals-
verðar vinsældir eru „Dang Me“,
„Chug-a-Lug“, „Little Green
Apples“ og „Walking in the
Sunshine".
Flóttamenn
ekki til
Grænlands
POUL Schlúter, forsætisráð-
herra Dana, hefur sagt þvert nei
við þeirri tillögu Framfara-
flokksins að senda júgóslavn-
eska flóttamenn, sem sækja um
pólitískt hæli í Danmörku, til
Syðri-Straumfjarðar í Græn-
landi. Samkvæmt tillögunni átti
að koma flóttfólkinu fyrir í bygg-
ingum, sem bandaríski flugher-
inn yfirgaf nýlega.
Komust ein-
hverjir lífs af?
Suður-kóreskur stjórnmálamað-
ur sagðist í gær hafa það úr
bandarískri skýrslu, að sumir
farþeganna úr kóresku þotunni,
sem Sovétmenn skutu niður yfir
Sakhalin-eyju 1983, kynnu að
hafa komist lífs af. Yfirvöld í
Moskvu segjast ekki kannast við
að flugufótur sé fyrir þessari
staðhæfíngu.
Perot dregur í land og segist
sáttur við svör repúblikana
Boston. Frá Karli Blöndal, fréttaritara
Morgunblaðsins.
ÞEGAR auðkýfingurinn Ross
Perot frá Texas hætti við að
bjóða sig fram til forseta í sumar
tók Bill Clinton, ríkisstjóri Ark-
ansas, kipp í skoðanakönnunum
og náði þar forskoti á George
Bush Bandaríkjaforseta. Nú er
Perot hættur við að hætta við
og skyndilega birtast skoðana-
kannanir þar sem bilið á milli
Clintons og Bush er komið niður
í fimm prósent. Perot lætur ekki
þar við sitja. A sunnudag kvaðst
hann hafa dregið sig í hlé í sum-
ar vegna þess að repúblikanar
hefðu með lygum og falsaðri ljós-
mynd ætlað að eyðileggja brúð-
kaup dóttur sinnar. I gær dró
hann svo heldur í land og sagðist
una neitunum repúblikana.
Perot sagði í viðtali í sjónvarps-
þættinum „60 mínútur" á sunnu-
dagskvöld að í herbúðum Bush hefði
verið lagt á ráðin um að hlera skrif-
stofur sínar í Dallas og við dagblað-
ið The Boston Herald sagði hann
að útsendari Bush hefði ráðið mann,
sem verið hefur verktaki fyrir banda-
rísku leyniþjónustuna, CIA, til að
hlera tölvuviðskipti með hlutabréf á
skrifstofum sínum.
Perot kvaðst ekki hafa sannanir
fyrir þessum ásökunum, en dóttur
sinnar vegna hefði hann ekki viljað
taka neina áhættu. Heimildarmaður
Perots er maður að nafni Scott Bar-
nes, sem liðsmenn Bush hafa þegar
reynt að gera tortryggilegan, og
tveir ónefndir „háttsettir“ repúblik-
prósent Bush og 15 prósent Perot.
Fyrir kappræður þremenninganna
var fylgi Clintons 46 prósent, Bush
38 prósent og Perots aðeins sjö pró-
sent.
Samkvæmt öðrum skoðanakönn-
unum sem birtust um helgina munar
nú um tíu prósentum á Clinton og
Bush. I könnun Times Mirror, hefur
Clinton tapað fjögurra prósenta fylgi
frá því í byijun október, og hefur
nú 44 prósent. Bush stendur í stað
með 34 prósent og fylgi Perots jókst
úr 11 prósentum í 19. Niðurstaða
þessarar könnunar var sú að fram-
boð Perots tæki um þriðjung fylgis
síns frá Clinton, en tæpan fjórðung
frá Bush. Einnig virðast ásakanir
repúblikana hafa skaðað Clinton. I
upphafi mánaðarins sagði 21 prósent
aðspurðra að af frambjóðendunum
væri Clinton síst treystandi. Nú voru
32 prósent þeirrar hyggju.
Clinton kvaðst í gær láta fjöl-
miðla um að túlka þessar kannanir,
en athygli vakti að Bush lét hjá líða
að gagnrýna „klikkaða" smiði skoð-
anakannana og spáði sjálfum sér
„sláandi" sigri í kosningunum eftir
viku.
------» ■ ♦ ----
Suður-Afríka
ANC sakað
um fjöldamorð
Jóhannesarborg. Reuter.
INKATHA-frelsisflokkurinn í
Suður-Afríku sakaði í gær Afríska
þjóðarráðið (ANC) um að hafa
staðið fyrir fjöldamorðum á að
minnsta kosti 20 manns, sem tóku
þátt í töfraathöfn í Natal-héraði.
Fréttaskýrendur óttast að fjölda-
morðin leiði til enn harðari átaka
milli þessara stríðandi fylkinga
blökkumanna. F.W. de Klerk, forseti
Suður-Afríku, kvaðst harma morðin
og hvatti leiðtoga Inkatha-frelsis-
flokksins, Mangosuthu Buthelezi, og
Nelson Mandela, leiðtoga ANC, til
að efna tafarlaust til friðarviðræðna.
Vopnaðir menn réðust inn í tvö
hús í þorpinu Mpushini í Natal á
laugardag þegar þorpsbúarnir voru
að fagna nýjum töfralækni. Kvöldið
áður voru að minnsta kosti sex stuðn-
ingsmenn ANC drepnir í nágranna-
þorpinu Folweni.
Reuter
Perot í vinahópi
Ross Perot heilsar stuðningsmönnum í New Jersey á sunnudag.
anar.
Marlin Fitzwater, talsmaður for-
setans, sagði á sunnudag að ekkert
væri hæft í þessum ásökunum. „Eg
veit ekki hvaðan hann hefur þetta,“
sagði Fitzwater. „Þetta er geggjun."
„Ég veit það eitt að liðsmenn
Bush rótuðu í vegabréfsskýrslum
móður Clintons," sagði James Car-
ville, sem skipuleggur kosningabar-
áttu demókratans. „Ég hef ekki
hugmynd um hvað er hæft í einstök-
um ásökunum, en þeir hafa sýnt að
þeir eru til alls líklegir."
Clinton kvaðst í gær ekki vita
hvað hann ætti að segja um þessar
ásakanir. „Þær eru undarlegar.“
Ásakanir Perots hafa komið af
stað umfjöllun í fjölmiðlum um per-
sónuleika hans og í The New York
Times í gær var gefið í skyn að
Perot hefði snert af ofsóknarbijál-
æði. Þessi umfjöllun, ásamt við-
brögðum repúblikana, leiddi til þess
að Perot vatt sér í gærmorgun inn
á fund þar sem tveir aðstoðarmenn
hans ræddu við blaðamenn. Perot
endurtók að hann gæti ekkert sann-
að, en ítrekaði að það hefði rennt
stoðum undir það að grunur sinn
væri réttur að Bush hefði afboðað
fund sem hann hefði beðið um sjálf-
ur, en Perot kvaðst vilja ræða við
hann um þessar ásakanir skömmu
eftir að hann hætti við framboðið.
Fréttaskýrendur spá því að þessi
umræða muni ekki verða Perot til
framdráttar meðal almennings.
Hvorki Bush né Clinton þora hins
vegar lengur að horfa framhjá Pe-
rot. Bush stendur í stað í skoðana-
könnunum, Clinton sígur og Perot
nálgast 20 prósenta fylgi. Demó-
kratar viðurkenna að spenna sé að
færast í leikinn, en repúblikanar vilja
ganga lengra og sagði einn að Ciint-
on væri nú farinn að „sökkva eins
og steinn". Samkvæmt skoðana-
könnun sem birtist í dagblaðinu The
New York Times á sunnudag styðja
nú 40 prósent kjósenda Clinton, 35