Morgunblaðið - 27.10.1992, Side 28

Morgunblaðið - 27.10.1992, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 1992 JMrogt Útgefandf mftfnfetfr Árvakur h.f., Reykjavík Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Ritstjórnarfulltrúi Björn Vignir Sigurpálsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 110 kr. eintakið. Atvinnuleysi og endurhæfing Aheildina litið hefur störfum ekkert fjölgað hér á landi frá árinu 1988. Á sama tíma hefur fólki á vinnualdri fjölgað umtalsvert. Atvinnuþátttaka hefur með öðrum orðum farið minnkandi. Hún náði hámarki, 84%, á skattlausa árinu, 1984, var 78,5% 1989, verður 76,5% í ár og lækkar í 76% á kom- andi ári, samkvæmt þjóðhags- áætlun fyrir það ár. Atvinnuleysi hefur vaxið úr 0,6% af vinnuafli árið 1988 í tæp 3% 1992. Fyrstu átta mán- uði ársins var atvinnuleysið 2,6% að meðaltali samanborið við 1,4% í fyrra. Það jafngildir því að um 3.600 manns hafi verið án vinnu að jafnaði á þessu tímabili. Og í - áætlun Þjóðhagsstofnunar er reiknað með að atvinnuleysi aukizt enn á komandi ári, verði 3,5% af fólki á vinnualdri. Mælikvarði á atvinnuleysi hér á landi er skráning þeirra sem telja sig eiga rétt á at- vinnuleysisbótum. Lilja Móses- dóttir hagfræðingur heldur því hins vegar fram að atvinnuleysi hér á landi sé í raun 60% meira en skráning Vinnumálaskrif- stofu félagsmálaráðuneytisins segir til um. Ýmsir sem ekki eigi rétt á atvinnuleysisbótum séu vantaldir, svo sem verktak- ar, fólk í árstíðabundinni vinnu sem hefur unnið minna en 425 klukkustundir síðustu tólf mán- uði, þeir sem koma á vinnu- markað í fyrsta sinn, fatlaðir, heimavinnandi fólk í leit að at- vinnu, fólk sem hefur verið lengi atvinnulaust og misst bótarétt o.fl. í hugum margra flokkast rétturinn til atvinnu undir al- menn mannréttindi, eins og rétturinn til menntunar og önn- ur hliðstæð þegnréttindi. í því ljósi hlýtur vaxandi atvinnuleysi sem við blasir að öllu óbreyttu að hvetja til samátaks allra þjóðfélagsafla til að styrkja rekstrar- og samkeppnisstöðu íslenzkra atvinnuvega. Það má m.a. gera með áframhaldandi endurskipulagningu í atvinnu- lífinu og með breyttri skatt- iagningu fyrirtækja til sam- ræmis við það sem er í helztu viðskiptalöndum okkar. Atvinnuleysi hjá Evrópuþjóð- um hefur náð inn í flestar starfsstéttir, háskólamenntað- ar, iðnmenntaðar og ófaglærð- ar. Atvinnuleysið er þó hvar- vetna hlutfallslega mest meðal ófaglærðs fólks. Við þessum vanda hefur sums staðar verið brugðizt með endurmenntun, endurhæfingu og fullorðins- menntun atvinnulausra. Það er meir en tímabært að taka upp þann þráðinn hér á landi. Svein- björn Bjömsson háskólarektor sagði í ræðu við brautskráningu kandídata sl. laugardag: „í V-Evrópu hefur atvinnu- leysi, allt að tíu af hundraði, verið landlægt í nokkur ár. Það hefur komið harðast niður á lít- ið menntuðu starfsfólki. Nýj- ungar í tækni gera eldri sér- þjálfun oft lítils virði. Fólk með litla almenna þekkingamndir- stöðu á þá erfitt með að tileinka sér nýjungarnar og hefur hvorki efni né aðstæður til að verða sér úti um þá viðbótar- menntun, sem til þarf . . .“ Það á að vera kappsmál landsfeðra sem og aðila vinnu- markaðarins að skapa sem flestum — og þá fyrst og fremst atvinnulausum — aðstöðu og möguleika til endurmenntunar og endurhæfíngar; máski fyrst og fremst hagnýtrar menntun- ar í þágu atvinnulífsins. Endur- menntunarstofnun Háskólans, sem þegar þjónar um 4.000 nemendum með stuttum nám- skeiðum og skemmri starfs- þjálfun sem nemendur geta stundað með starfi, er góður vegvísir, en trúlega má einnig nýta verzlunar-, iðn- og tækni- skóla á þessum vettvangi. End- urhæfing og menntun af þessu tagi leggur ekki aðeins ein- staklingunum upp í hendur betri vopn í lífsbaráttu þeirra; hún skilar og samfélaginu aftur kostnaði sínum fyrr og betur en önnur fjárfesting. Islenzkur þjóðarbúskapur styðst fyrst og fremst við auð- lindir lands (gróðurmold/vatns- föll) og sjávar. Við þurfum hins vegar að virkja hugvit þjóðar- innar betur en nú er gert — með aukinni menntun og þekk- ingu, rannsóknum og þróunar- starfí — m.a. til að ná meiri verðmætum út úr þeim hráefn- um sem til staðar eru. í sama tilgangi þurfum við að efla fag-, tækni- og ekki sízt verkmennt í þágu atvinnulífsins. Endur- menntun, sem hér er um rætt, fellur vel að þeim tilgangi. Síð- ast en ekki sízt þurfum við að efla og þróa markaðssetningu, ekki aðeins á sjávarvöru, helzt fullunninnar, heldur einnig á ýmiss konar þekkingu, svo sem á sviði varma- og orkunýtingar, sjávarútvegs, heilsuræktar- og heilbrigðisþjónustu og hugbún- aðar. Morgunblaðið/Kári Kristjánsson Ættartalan í heild sinni eins og hún blasir við handan gljúfursins. Til hægri á myndinni sést í sand- brekkuna þar sem Hollendingarnir unnu umhverfisskúlptúr sem tengdist ættartölunni og myndaði ásamt henni hið svokallaða umhverfislistaverk þeirra. Áin hefur hins vegar afmáð skúlptúrinn. Hollenskir listamenn unnu umhverfisspjöllin í Jökulsárgljúfri Gáfu út bók til að lýsa tilurð verksins NÁTTÚRUVERNDARRÁÐ hefur ekki fjallað um hvort grípa skuli til aðgerða til að afmá ættartré Völsunga sem tveir hollenskir listamenn, Reinout van den Bergh og Gerhard Lentink, máluðu á bergið í Jökulsárgljúfri, að aust- anverðu hjá Upptyppingum, sum- arið 1987. Auk þess að skrá ættar- tölu Völsunga á hamravegginn stóðu mennirnir fyrir miklum framkvæmdum í sandbrekku við austanvert fljótið og gerðu þar fnikinn umhverfisskúlptúr, og settu á svið gjörninga byggða á sögnum Völsunga-sögu um Sigurð fáfnisbana. Mennimir gáfu út bók um þetta verk sitt og kom hún út í Hollandi árið 1989 undir nafninu Upptyppingar og fékk Morgun- blaðið bókina í hendur seint í gærkvöldi. Skrifstofu Náttúru- verndarráðs hefur verið kunnugt um að tilvist ættartölunnar í 2-3 ár en Arnþór Garðarsson, formað- ur Náttúruverndarráðs, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að málið hefði ekki komið til um- ræðu hjá ráðinu en sjálfur hefði hann fengið vitneskju um tilvist ættartölunnar í síðustu viku. Hjá Náttúruverndarráði hefur ver- ið talið að verkið hafi verið unnið árið 1984 en í bók tvímenninganna kemur fram að það var 1987. Arn- þór sagði ljóst að ráðið myndi fjalla um málið og láta kanna til hvaða ráða unnt sé að grípa og hvort hol- lensku listamennimir hafi kallað yfir sig ábyrgð að íslenskum lögum eða hvort þeir beri ábyrgð á kostnaði við hreinsun hamraveggsins. Amþór kvaðst telja eðlilegt að afla álits lög- fræðinga á þessum málum og þá einnig á því hvort hugsanlegt sé að lögbrot sem kunni að hafa verið framin í þessu sambandi séu fyrnd eða Hollendingamir beri ábyrgð á hreinsun hamraveggsins. Sigurður Ármann Þráinsson, starfsmaður umhverfisráðuneytisins, starfaði hjá Náttúruverndarráði þeg- ar vitneskja um verk þetta barst þangað. Hann sagði að tilefnið hefði verið það að íslendingur sá eða frétti af bók tvímenninganna í Danmörku fyrir 2-3 árum. Hins vegar hefðu upplýsingar um málið verið óljósar og svo virtist sem ekki hafi verið gerður reki að því að hafa upp á mönnunum tveimur. Kári Kristjánsson, sem verið hefur landvörður í Herðubreiðarlindum frá Listamennirnir, Reinout van den Bergh og Gerhard Lentink. myndum í bókinni en Jökulsá á Fjöllum hefur afmáð það fyrir löngu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.