Morgunblaðið - 27.10.1992, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 27.10.1992, Blaðsíða 32
Morgunblaðið/Rúnar Þór Brotajárni skipað út Á milli 11 og 1200 tonnum af brotajárni var skipað út í Baske, leiguskip Eimskipafélagsins, í gær en starfsmenn Hringrásar hafa að undanfömu verið að safna brotajáminu saman á Akureyri, brytja það niður og flokka. Bætt verður í skipið í Reykjavík og það mun síðan sigla utan til Hollands þar sem brotajárnið verður brætt, en gert er ráð fyrir að um 2.500 tonn verði send utan nú á næstunni. Sveinn Ásgeirsson framkvæmdastjóri Hringrásar sagði að nefnd á vegum sveitarfélaganna í Eyjafirði hefði leitað eftir hugmyndum um hvernig best væri að þessum málum staðið í framtíðinni, en eins og stæði væri nokkur losarabragur á. Vilji væri til þess að vinna skipulega að málum og væri verið að vinna að hagkvæmri lausn þannig að hægt væri að losna við brotajámið svo sómi væri að. Ólafsfjörður • • Okumaður á ofsahraða velti bíl sínum á brú Vegur í Bakka- selsbrekkunni Hagvirki- Klettur bauð 40 milljónum undir áætlun JÓHANNA Sigurðardóttir félags- málaráðherra afhenti á laug- ardag fulltrúum Akureyrarbæjar fyrstu viðurkenningu Jafnréttis- ráðs fyrir lofsvert framtak á sviði jafnréttismála. Starfshópur sem skipaður var til að vinna að þessu máli komst að þeirri niðurstöðu að Akureyrarbær skaraði framúr, • • Okumaður grun- aður um ölvun UNGUR maður var fluttur á slysadeild Fjórðungssjúkra- hússins á Akureyri á sunnudag eftir að hafa ekið á ofsahraða um Ólafsfjarðarbæ, en öku- ferðin endaði með því að hann keyrði á brúarstólpa og velti bíl sínum. Hann er grunaður um ölvun við akstur. Guðni Aðalsteinsson lögreglu- maður í Ólafsfirði sagði að sér hefði borist tilkynning um bíl sem ekið væri á mikilli ferð frá Dalvík til Ólafsfjarðar. Hann hefði farið til móts við bflinn og mættust þeir í forskálan- um að Múlagöngunum. Sinnti öku- maður bflsins ekki merki lögreglu um að stöðva bfl sinn og komst framhjá lögreglubflnum. Ók maðurinn sem leið lá til Ól- afsfjarða og um bæinn á miklum hraða, eftir nokkum eltingaleik ók hann áleiðis út úr bænum og að gamalli brú yfir ósinn. Endaði ökuferðin á því að hann ók á brúar- stólpa, lenti upp á handriði brúar- innar og valt bíllinn síðan inn á brúna. Læknir kom á staðinn, en síðan var farið með manninn á slysa- deild, en hann var að sögn Guðna nefbrotinn, en meiðsl hans óveru- leg að öðru leyti. Bifreiðin er talin ónýt. Maðurinn er grunaður Um ölvun við akstur. „Það er mesta mildi að ekki fór verr, skömmu áður en þetta at- vik varð voru börn að veiða á brúnni, en þau voru sem betur fer farin er þetta gerðist," sagði Guðni. Kvenfélög í Eyjafjarðarsveit Undirskriftir til stuðn- ings Kristnesspítala Ytri-Tjörnum. KVENFÉLÖGIN þijú í Eyja- fjarðarsveit gangast nú fyrir undirskriftasöfnun meðal íbúa sveitarinnar sem senda á heil- brigðisráðherra, Sighvati Björgvinssyni, þar sem mót- mælt er eindregið allri skerð- ingu á starfsemi Kristnesspít- ala, hvort heldur þjónustu við aldraða eða að dregið verði úr uppbyggingu og starfsemi end- urhæfingardeildar. Að sögn Gerðar Pálsdóttur í Kvenfélaginu Iðunni hefur undir- skriftasöfnunin gengið mjög vel og verða listarnir afhentir ráð- herra strax og söfnun er lokið. Gerður sagði að mikillar undr- unar og reiði gætti nú meðal íbúa sveitarinnar vegna þeirra ummæla ráðherra að til greina koma að leggja Kristnesspítala niður, eink- um í ljósi þeirra fyrirheita núver- andi ríkisstjómar að flytja ætti ríkisstofnanir út á land. „Þetta er eins og köld vatnsgusa framan í okkur flbúa héraðsins," sagði Gerð- ur. „Okkur þykir alveg fráleitt ef leggja á þessa stofnun niður og flytja starfsemina suður til Reykjavíkur." — Benjamín ----» ♦ ♦--- Nauðgun um helgina Maðurinn hefurjátað RÚMLEGA tvítugur maður hef- ur játað að hafa nauðgað fjórt- án ára stúlku á heimili sínu á Akureyri aðfaranótt laugar- dags. Höfðu þau hist í miðbæ Akur- eyrar umrædda nótt og bauð mað- urinn, sem er frændi stúlkunnar, henni far með sér heim í leigubfl, en maðurinn býr hjá foreldrum sínum. Maðurinn hefur við yfirheyrslur hjá rannsóknarlögreglunni á Akureyri játað að hafa komið fram vilja sínum við stúlkuna. NÝR vegur upp Bakkaselsbrekk- una í Öxnadal verður lagður á næsta ári. Tilboð í útboði Vega- gerðarinnar voru opnuð í gær og varð verktakafyrirtækið Hagvirki-Klettur hf. hlutskarp- ast. Tilboð þess var 44,7 milljón- ir kr. sem er 53% af kostnaðar- áætlun. Vegurinn í Bakkaselsbrekku sem nú verður lagður er 3,3 km að lengd. Verkinu á að ljúka fyrir 15. október á næsta ári. Kostnaðaráætlun Vegagerðar- innar hljóðaði upp á tæpar 84,8 milljónir kr. Ellefu verktakar buðu og voru öll tilboð undir 70 milljón- um kr. Tilboð Hagvirkis-Kletts, 44,7 milljónir kr. var lang lægst, 40 milljónum kr. undir kostnaðar- áætlun. Næst lægsta tilboðið var frá Klæðningu hf. í Garðabæ 53,3 milljónir kr. og þriðja lægsta frá V. Brynjólfssyni sf. 53,5 milljónir kr. Akureyrarbær fær viður- kenningu Jafnréttisráðs en með fordæmi sínu sýndi bær- inn öðrum sveitarfélögum hvað hægt er að gera á sviði jafnréttis- mála ef vilji og áhugi er fyrir hendi. Markvisst hefur verið unnið að jafnréttismálum á vegum Akur- eyrarbæjar síðustu 10 ár, en jafn- réttisnefnd var skipuð eftir sveitar- stjórnarkosningar árið 1982, sem verið hefur mjög virk frá upphafí. Árið 1985 var samþykkt að þiggja boð félagsmálaráðuneytis um að samnorræna verkefnið „Bijótum múrana" um kynjaskiptingu vinnu- markaðarins yrði á Akureyri. Þá var jafnréttisáætlun samþykkt árið 1989 og haustið 1991 var ráðinn jafnrétt- isfulltrúi til að fylgja áætluninni eft- ir. Haldin hafa verið námskeið fyrir konur um stofnun og rekstur fyrir- tækja, námskeið fyrir kennara um náms- og starfsfræðslu í grunnskól- um og gerð hefur verið rannsókn á stöðu kvenna í stjórnunarstöðum á Akureyri. „Sýnishorn af samþykktum bæj- arstjómar síðustu mánuðina sanna að bæjaryfirvöld á Akureyri hafa ekki i hyggju að slaka á kröfunni um raunverulegt jafnrétti. Ákveðið hefur verið að koma á sveigjanlegum vinnutíma á öllum vinnustöðum og deildum bæjarins þar sem það er framkvæmanlegt, að bæta verulega og auka framboð á námskeiðum fyr- ir ófaglært starfsfólk, s.s. á dagvist- um og í öldrunarþjónustu, en þar eru konur í miklum meirihluta og hvetja það kynið sérstaklega sem er í minnihluta í starfsgrein til að sækja um þegar störf eru auglýst laus til umsóknar," segir í frétt frá Jafnrétt- isráði. „Svona viðurkenning er í sjálfu sér ánægjuleg og hvetjandi, öll hvatning er vel þegin og mikilsvirði og segir manni að við erum á réttri leið. Þetta er líka hvatning til að halda áfram, því enn er langt í land með að fullu jafnrétti sé náð,“ sagði Valgerður Bjarnadóttir jafnréttis- fulltrúi Akureyrarbæjar. Fulltrúar Akureyrarbæjar með félagsmálaráðherra eftir afhendingu viðurkenningarinnar. Talin frá vinstri Valgerður Bjarnadóttir, Gísli Bragi Hjartarson, Sigríður Stefánsdóttir, Jóhanna Sigurðardóttir og Lára Júlíusdóttir. Kjördæmisráð Þjóðarflokksins Hefja verður umræðu um nýja fískveiðistefnu Kjördæmisfélag Þjóðarflokksins á Norðurlandi eystra krefst þess að þjóðaratkvæðagreiðsla verði um EES-samninginn að undangeng- inni kynningu á samningnum. Aðalfundur kjördæmisráðsins var hald- inn á Akureyri fyrir skömmu og þar var meðal annars kosin ný stjórn ráðsins. í ályktun sem samþykkt var á fundinum segir að umræða um sam- einingu sveitarfélaga sem nú fari fram sé á villigötum. Flokkurinn sé hlynntur sameiningu sveitarfélaga, en bendir á að til að hagræða og spara í rekstri sveitarfélaganna sé leið Þjóðarflokksins vænlegust; End- urskoðun stjórnarskrárinnar með það að markmiði að setja á laggirn- ar þriðja stjómsýslustigið með stofn- un fylkja sem hafi pólitíska og rekstrarlega ábyrgð. Bein tengsl milli tekjuöflunar og eyðslu myndu leiða til sparnaðar. Miðstýring frá Reykjavík hafí leitt til hningnunar í efnahagslífí og verði ekkert að gert muni áframhaldandi miðstýring leiða til efnahagslegs hruns. Þá telur fundurinn að hefja verði umræður um nýja fiskveiðistefnu. Veiðar og úrvinnsla aflans hafí fest á fárra manna höndum, en það kerfí verði að brjóta upp þannig að nýlið- un í greininni geti átt sér stað. Kvótakerfí með framseljanlegum aflaheimildum verði aflagt, fískveiði- stjórnun fari fram með lokun hrygn- ingarstöðva og tímabundnum svæðalokunum og hvatt verði til sérhæfingar í fískvinnslu og stefnt að fullvinnslu aflans hér á landi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.