Morgunblaðið - 27.10.1992, Síða 45

Morgunblaðið - 27.10.1992, Síða 45
mér. Það sem hann sagði og því sem hann lofaði, stóð eins og stafur á bók, fáir menn voru eins hjálpfúsir sem Haraldur og sama gildir um Jóhönnu. Samstarf okkar hefur ver- ið farsælt og traust, bárum virðingu hvor fyrir öðrum. Ég þakka samver- una á liðnum árum og megi hann hvíla í Guðs friði. Jóhönnu eftirlif- andi konu hans og fjölskyldu sendi ég mínar samúðarkveðjur. Knútur Jóhannesson. Fagra haust þá fold ég kveð faðmi vef mig þínum, bleikra laufa láttu beð að legstað verða mínum. Þannig kvað Steingrímur Thor- steinsson, er hann hugaði að sinni hinstu för. Haustið með sína fegurð og sinn söknuð svo óendanlega sam- ofíð lífí manna. Bleiku laufín höfðu fallið til jarðar þegar Haraldur í Haga kvaddi okkur 19. október sl. Haraldur lifði viðburðaríka ævi eins og hans kynslóð. Þó varð hann oft öðrum fljótari að tileinka sér hinar ýmsu nýjungar, sem aðrir sáu í meiri fjarlægð. Ungur að árum var hann kominn með bílpróf og fljót- lega eftir það eignaðist hann sinn eigin bíl og hélt uppi föstum áætlun- arferðum milli Gnúpveijahrepps og Reykjavíkur í fjölda ára. Svo um- svifamikill var Haraldur í þessu starfí, að innan tfðar átti hann 3 bíla, en þá batt hann sig ekki við rútuna, en var með hópferðir og aðra flutninga um landið að ógleymdum vikurflutningum úr Þjórsárdal til Jóns Loftssonar í Reykjavík. En allur sá flutningur markaði tímamót á sínu sviði. Á þessum árum eru sunnlenskir bændur að bijóta sér leið inn á mjólkurmarkaðinn í Reykjavík, en ýmsir þættir torvelduðu þá leið, ekki síst hvemig kleift væri að koma mjólkinni yfir Hellisheiði til Reykja- víkur þegar snjóa lagði á þá leið. En úr þeim vanda fundu menn þá leið að flytja mjólkina á bíl út á Kamba, þar var hún sett á sleða og þannfg flutt út á Kolviðarhól, en þangað væri hún sótt á bíl sem hefði aðsetur í Reykjavík. Menn sáu fljótt hvílíkum annmörkum það var háð að komast þessa leið á bíl í öll- um veðmm og færð með þau einu mokstrartæki sem þá tíðkuðust, en það var mannshöndin með skóflu. Þegar þar er komið er mér sagt, að menn hafí fljótt orðið sammála um að engum manni treystu þeir eins og Haraldi í Haga til að leysa þann vanda, enda fóru mál svo að Haraldur tók að sér þessa flutninga um nokkurt skeið og leysti það vel af hendi. En síðar á ævinni minntist hann oft þessara ferða og hvað þær hefðu verið erfíðar, þegar sól- arhringurinn dugði naumast í ferð- ina. Á þessu tímabili kvæntist Har- aldur Guðrúnu Stefánsdóttur í Haga og tóku þau við búi af Margréti tengdamóður hans. Mátti nú segja að hamingjusól Haralds væri í há- degisstað með glæsilega konu og dætur sem þeim fæddust í tímanna rás. En skyndilega dró ský fyrir sólu því eftir fárra ára sambúð með Guðrúnu missti Haraldur hana frá nýfæddri dóttur og þrem eldri dætr- um. Þá sá maður að hægt er að beygja hina hraustustu menn. En hinum mikla gjafara eru engin tak- mörk sett, því nokkrum árum seinna kvæntist hann Jóhönnu Jóhanns- dóttur frá Hamarsheiði og hafa þau búið saman í farsælu hjónabandi í yfír 40 ár og eignuðust eina dóttur. Það urðu mikil tímaskipti fyrir Hagaheimilið að fá aðra eins konu og Jóhanna er, fyrir Harald, dæt- urnar og tengdamóðurina, því hún reyndist á allan hátt þeim vanda vaxin að leggja lið því heimili sem hafði þolað svo mikið áfall. Og nú fékk Haraldur aftur fullnægt sinni athafnaþrá á nýjum vettvangi við búskapinn heima í Haga og komst þar fljótt í röð fremstu bænda. Þeir einir sem hafa verið nágrannar Hagahjónanna í áratugi geta frá því sagt hvers virði það er að eiga góða nágranna. Við hjónin þökkum Haraldi sam- veruna á liðnum árum, Jóhönnu og fjölskyldu vottum við samúð okkar. Ragnheiður og Ásólfur, Ásólfsstöðum. seei aaaomo .ts 5moA.auisifl«i coaAjan johom MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUÐAGUR-27. OKTÓBER' 1992- - 45 t Faðir okkar, RAFN SIGURÐSSON, Bröttugötu 6, Borgarnesi, andaðist 24. október. Sigrún Rafnsdóttir, Signý Birna Rafnsdóttir, Ævar Andri Rafnsson. + Okkar kæra SIGRÍÐUR ÓLAFSDÓTTIR, Droplaugarstöðum, áðurtil heimilis ílngólfsstraeti 21D, verður jarðsungin frá Fossvogskapellu í dag, þriðjudaginn 27. október kl. 15.30. Guðný Ólafsdóttir, Sigríður Ólöf Árnadóttir, Anna Margrét Árnadóttir. t Eiginmaður minn, faðir og afi okkar, HINRIK EIRÍKSSON, Nökkvavogi 28, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag, þriðjudaginn 27. októ- ber, kl. 15.00. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á líknarstofnanir. Kristín Jónsdóttir, ^ Þórhildur Hinriksdóttir, Þórður Sigurjónsson og barnabörn. + Elskulegur eiginmaður minn, faöir okkar, tengdafaðir og afi, ARNÓR S. GÍSLASON skipstjóri, Hrafnistu, Hafnarfirði, lést í St. Jósefsspítala, Hafnarfirði, laugardaginn 24. október. Petra Ásmundsdóttir, Margrét Arnórsdóttir, Árni Gunnarsson, Emma Arnórsdóttir og barnabörn. + Sonur minn, faðir okkar, bróðir og afi, FRIÐRIK ÞÓRHALLSSON, sem lést á heimili sínu 13. október sl., verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 29. október kl. 13.30. Þórhallur Björnsson, Njörður Friðriksson, Margrét Friðriksdóttir, Gisli Friðriksson, barnabörn, tengdabörn og systkini. + Systir okkar og mágkona, ÓLÖF JÓNA STEFÁNSDÓTTIR, til heimilis að Svalbarði, Neskaupstað, sem lést 20. þ.m., verður jarðsungin frá Norðfjarðarkirkju miðviku- daginn 28. október kl. 14.00. Helga Stefánsdóttir, Jóhannes Stefánsson, Sveinbjörg Stefánsdóttir, Auðbjörg Stefánsdóttir, Hreinn Stefánsson og aðrir aðstandendur. Soffía Björgólfsdóttir, Björn Bjarman, Hallgrímur Þórarinson, + Ástkæreiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, ÞÓREY ÞÓRÐARDÓTTIR, Sólvallagötu 11, Reykjavík, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn 28. október kl. 15.00. Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim, sem vildu minnast henn- ar, er bent á Krabbameinsfélag íslands. / Sigurður Demetz Fransson, Bjarni Stefánsson, Þórður Stefánsson og fjölskyldur. + Faðir okkar, tengdafaðir og afi, EINAR KJARTAN ÓLAFSSON, Funafold 55, áður Látraströnd 26, Seltjarnarnesi, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 29. október kl. 15.00. Hjördís Einarsdóttir, Sesselia Ó. Einarsdóttir, Katrín S. Einarsdóttir, Ágústa Einarsdóttir, Sigrún Einarsdóttir, Gróa Einarsdóttir, Þórey Einarsdóttir, Lind Einarsdóttir, Ólafur Einarsson, tengdabörn, barnabörn + Þökkum innilega fyrir samúð og hlýhug vegna andláts og jarðar- farar FRIÐBJARGAR EYJÓLFSDÓTTUR. Áslaug Guðbrandsdóttir, Eyjólfur Guðbrandsson, Ólafur Guðbrandsson, Sigurður Guðbrandsson, Gísli Guðbrandsson Albert Guðbrandsson. Orn Bjarnason, Sólveig Axelsdóttir, Svanhildur Aðalsteinsdóttir, Sigríður Einarsdóttir, Anna Sveinsdóttir, + Innilegar þakkir færum við öllum þeim fjölmörgu, er sýndu okkur hluttekningu og vináttu varðandi andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, GUÐMUNDAR MATTHÍASSONAR fyrrverandi bónda á Óspaksstöðum, Hrútafirði. Matthea K. Guðmundsdóttir, Ingimar Einarsson, Sigrún Guðmundsdóttir, Jóhann Gunnar Guðmundsson, Guðrún Árnadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Systir okkar, ANNA MARÍA ÞORLEIFSDÓTTIR, Fálkagötu 17, Reykjavfk, lést þann 15. október sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Halldóra Þorleifsdóttir, Sólveig Þorleifsdóttir, Sigurður Þorleifsson og aðrir aðstandendur. + Við sendum öllum þeim, ættingjum, vin- um og aðdáendum HAUKS MORTHENS, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát hans og útför, hjartans þakkir. Ragnheiður Magnúsdóttir, synir, tengdadætur og barnabörn. + Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, mágkona og amma, STEFANÍA SIGURGEIRSDÓTTIR frá Granastöðum, Espigerði 10, Reykjavik, verður jarðsett frá Langholtskirkju í dag, þriðjudaginn 27. októ- ber, kl. 13.30. Þorgeir Pálsson, Páll Þorgeirsson, Helga Þorkelsdóttir, Sigurgeir Þorgeirsson, Málfríöur Þórarinsdóttir, Hólmfríður Þorgeirsdóttir, Árni Vésteinsson, Droplaug Pálsdóttir og barnabörn. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför mannsins míns, föður, tengdaföður og afa, GUÐMUNDAR ÞÓRS JÓNSSONAR, Melteigi 20, Keflavík. Elín Ingólfsdóttir, Signý Guðmundsdóttir, Hólmar Tryggvason, Stefán Hólm Guðmundsson, Guðmunda R. Birgisdóttir, Ragnhildur L. Guðmundsdóttir, Rögnvaldur H. Helgason, Guðný Guðmundsdóttir, Róbert Ingimundarson, Þóra O. Guðmundsdóttir, Ægir Ólafsson og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.