Morgunblaðið - 28.10.1992, Blaðsíða 4
MOfttíUNlBlkbÍD MIDWátÍDAtíUR 28. OKTÖBRk 1992
ri
Atvinnulíf í Eyjum tekur
kipp með komu sfldarinnar
Vantar fólk, segir Sigurgeir Sigurjónsson, verkstjóri í Vinnslustöðinni
Vestmannaeyj um.
ATVINNULÍF í Eyjum hefur tekið kipp með komu síldarinnar. Síldar-
vinnsla er á fullu bæði hjá ísfélagi og Vinnslustöð og farið er að
ijúka úr skorsteinum bræðslna fyrirtækjanna og peningalykt komin
í bæinn.
í gær var var unnið af krafti i
Vinnslustöðinni við frystingu og
söltun og einnig var vinnsla í gangi
í ísfélaginu. Mokveiði hefur verið á
síldarmiðunum í Lónsbugt síðustu
daga og hafa bátamir fengið aflann
í fáum köstum. Til að mynda fékk
ísleifur 600 tonna kast í vikunni.
Nú hafa um 4.500 tonn borist á
land í Eyjum á sfldarvertíðinni.
Bátar Vinnslustöðvarinnar hafa
landað um 2.500 tonnum og ísfé-
lagsbátamir um 800 tonnum en auk
þess hafa Gullberg og ísleifur land-
að um 1.300 tonnum í bræðslu hjá
Vinnslustöðinni.
Mest flakað o g fryst fyrir
Evrópumarkað
Sigurgeir Siguijónsson, verk-
stjóri í síldarfrystingu Vinnslu-
stöðvarinnar, sagði að þeir hefðu
um 12.000 tonna sfldarkvóta og
reiknað væri með að um 5.000 tonn
færu í vinnslu, frystingu og salt,
en restin færi til bræðslu. Sigur-
geir sagði að síldin væri þokkalega
falleg og vinnslan gengi vel en
mest af sfldinni væri flakað og fryst
fyrir Evrópumarkað.
„Það eru um 50 manns sem vinna
hjá mér við sfldina og það hefur
verið frekar erfítt að fá fólk og
okkur vantar fólk frekar en hitt,“
sagði Sigurgeir. Hann sagði að
hámarksafköst í flakafrystingunni
væm um 65 tonn af frystum flökum
á dag en þeir keyrðu yfirleitt 35
til 40 tonn í gegn, sem væri vinnsla
úr 80 til 90 tonnum af sfld. Sigur-
geir sagðist búast við að Vinnslu-
stöðin myndi geyma um 1.000
tonna síldarkvóta fram yfir áramót
en það hefði verið gert á síðustu
vertíð og gafst vel því síldin hafi
hafi haldið vinnslunni gangandi í
janúar, sem oft hefði verið frekar
rólegur mánuður.
Kryddsaltað fyrir Svía
í kjallara Vinnslustöðvarinnar
var verið að kryddsalta síld. Guð-
mundur Ásbjömsson verkstjóri
sagði að þeir hefðu kvóta fyrir að
salta í 1.000 tunnur, sem væri ekki
mikið og því væri rólegt yfír söltun-
inni, en sfldin væri falleg og góð
til söltunar. „Við söltum í eitthvað
á annað hundrað tunnur á dag og
það er allt kryddsaltað fyrir Sví-
þjóð,“ sagði Guðmundur. Hann
sagði að einnig ætti að salta flök
og bita, sem fæm á Norðurlöndin
og Þýskaland, og bjóst hann við að
það yrðu um 3.000 tunnur.
VEÐUR
IDAGkl. 12.00
HBimild; Veðurstofa ístands
(Byggt á vaðurspá kl. 16.16 í gær)
VEÐURHORFUR 1DÁG, 28. ÖÍOÖBER:
YFIRLIT: Við Skotland er 983 mb tægð sem þokast austur. Við Hvarf er 1.023 mb
hæð sem þokast austur og yftr Norður-Grænlandi er önnur hæð, 1.025 mb, sem
er nssrri kyrrstæð.
SPÁ: Norðanátt austantil, kaldi eða stinningskaldi og slydduél norðaustanlands en
skýjað með köflum eða léttskýjað suðaustantil. Vestanlands verður norðan- og norð-
vestan gola eða kaldi og víða léttskýjað. Hiti 0-5 stig að deginum en víðast næturfrost
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR A FIMMTUDAG: Vestlæg átt, víðast fremur hæg. Utils háttar slydda eða
snjókoma á Vestfjörðum og Norðurtandi en léttskýjað sunnanlands og austan. Hiti
nálægt frostmarki.
HORFUR A FÖSTUDAG: Breytileg étt. Léttskýjað á Suðausturlandi, él norðanlands
en slydda og síðar súld suðvestantil. Hlýnandi veður suðvestanlands.
HORFUR A LAUGARDAG: Suðaustanstrekkingur með rlgnlngu eða súld um sunn-
an- og vestanvert landið en hægari og þurrt norðaustanlands. Hiti á bilinu 2-6 stig.
Nýlr veðurfregnatfmar: 1.30, 4.30,7.30,10.46,12.46,16.30,19.30,22.30. Svarsfmi
Veðurstofu íslands — Veðurfregnlr: 990600.
Heiðskírt
r r r
r r
r r r
Rigning
Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað
Ý Ý í
Skúrir Slydduél Él
* / * * * *
* r * *
r * / * * *
Slydda Snjókoma
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstefnu
og fjaðrirnar vindstyrk,
heil fjöður er 2 vindstig.^
10° Hitastig
V Súld
= Þoka
itig..
FÆRÐ A VEGUM: <ki. 17.30.9ær)
Pjóðvegir landsins eru yfirleitt ágætlega greiðfærír en þó er víða hálka á vegum,
svo sem á Helllsheiði og Þingvallavegi. Gjábakkavegur er aðeins fær jeppum og
stærri bílum. Þá er hálka á Fróðárheiði, í Kerlingarskarði, Bröttubrekku og á Holta-
vörðuheiði. Færð hefur þyngst fyrir Gilsfjörð en þar verður mokað á morgun. Á
Vestfjörðum er hálka og snjór án fyrirstöðu á heiðum og fjallvegum en Hrafneyrar-
heiði og Þorskafjarðarheiði eru bó aðeins færar jeppum og stærri bílum. Á Noröur-
landi er hálka I Vatnsskarði, á Oxnadalsheiði og i Víkurskarði en Lágheiði er aðelns
fær jeppum og stærri bflum. Þá er hálka og snjór án fyrirstöðu víða á Norðaustur-
landi og á fjailvegum á AustfjÖrðum. Öxarfjarðartieiði og Hellisheiði eystri eru að-
eins fær8r jeppum.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftiriiti í síma 91-631600 og í grænni línu
99-6316. Vegagerðin.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
hltl veður
Akureyri 3 rigning
Reykjavfk 3 léttskýjað
Björgvin 7 skýjað
Helsinkí +4 snjókoma
Kaupmarmahöfn 7 léttskýjað
Narssarssuaq *7 léttskýjaö
Nuuk vantar
Óstó 2 alskýjað
Stokkhólmur 2 léttskýjað
Þórshöfn 7 skýjað
Algarve 19 alskýjað
Amsterdam 8 þokumóða
Barcelona 21 hálfskýjað
Berlín 2 þoka
Chicago 1 léttskýjað
Feneyj8r 17 heiðskírt
Frankfurt 8 rigning
Glasgow 4 skúr
Hamborg 4 þokumóða
London 10 rigning
LosAngeles 17 atekýjað
Lúxemborg 5 rigning
Madrfd 15 þokumóða
Malaga 23 hálfskýjað
Mallorca 21 hálfskýjað
Montreal 3 úrkoma (grennd
NewYork 9 léttskýjað
Oriando 19 þokumóða
Parfe 10 alskýjað
Madeira 20 skýjað
Róm 20 skýjað
Vín 8 skýjað
Washington 13 skýjað
Winnipeg 4 skúr
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
„Það fara 15 kíló af salti, 7 kíló af sykri og 1 poki af A-kryddi í
blönduna,“ sagði Óli Pétur Sveinsson, sem útbjó kryddblönduna í
steypuhrærivél.
Tilraunavinnsla fyrir
Þýskalandsmarkað
í Vinnslustöðinni stendur yfír til-
raunavinnsla á síld. Flökunarvél
hefur verið breytt þannig að hún
haussker, kviðristir og slógdregur
síldina. Hún er síðan fryst og seld
til Þýskalands. Ingi Júlíusson verk-
stjóri sagði að þessi vinnsluaðferð
væri ný hér á landi, en Þjóðverjar
hefðu unnið eitthvað af síld á þenn-
an hátt. „Við prófuðum þetta einn-
ig á vertíðinni í fyrra og það gekk
ágætlega. Núna ráðgerum við að
vinna 200 tonn á þennan hátt og
selja til Þýskalands. Það er spenn-
andi að prófa þetta og vonandi verð-
ur framhald á,“ sagði Ingi.
Grímur
íslensk áhöfn
á Bakkafoss
EIMSKIP hefur gert þurrleigusamning við eiganda þýska skipsins
Bakkafoss og ákveðið að fslensk áhöfn verði á skipinu. Eimskip hefur
verið með Bakkafoss, sem áður hét Helios, á tlmaleigu með erlendri
áhöfn að hluta. Sjómannafélag Reykjavíkur hefur verið að kanna launa-
kjör sjö Filippseyinga í áhöfn skipsins vegna gruns Alþjóða flutninga-
verkamannasambandsins, ITF, um að þau væru undir lágmarkstöxtum
sambandsins og hefur komið til tals að kyrrselja skipið vegna þeirra
mála.
„Við erum mjög ánægðir með að
Eimskip skuli hafa tekið þennan pól
í hæðina," sagði Birgir Björgvinsson
stjórnarmaður í Sjómannafélagi
Reykjavíkur þegar leitað var álits
hans á þurrleigusamningi Eimskips
á Bakkafossi. Taldi hann að afskipti
félagsins af launamálum Filippsey-
inganna væru þar með úr sögunni.
Birgir sagði að án efa væri barátta
þeirra í málinu ástæðan fyrir því að
þessi breyting var ákveðin og væri
mjög ánægjulegt að þarna sköpuðust
störf fyrir þeirra félagsmenn. Sjó-
mannafélagið hefði lengi barist fyrir
aukinni vinnu fyrir sína menn og
þetta mál tengdist því að hluta.
Þurrleigusamningurinn, sem er til
tæplega eins árs, hefur í för með sér
að Eimskip verður ábyrgt fyrir öllum
Fleiri grun-
aðir um ölvun
LÖGREGLAN í Reykjavfk hand-
tók 85 ökumenn vegna gruns um
ölvun við akstur í septembermán-
uði og höfðu 15 þeirra lent í
óhöppum og slysum. í sama mán-
uði í fyrra voru 65 ökumenn grun-
aðir um ölvun við akstur og höfðu
sex þeirra lent í slysum.
Að sögn Ómars Smára Ármanns-
sonar aðstoðaryfírlögregluþjóns vek-
ur það athygli í þessu sambandi að
konur eiga mestan hluta fjölgunar-
innar, þótt enn séu karlar mun fjöl-
mennari í þessum hópi. Karlamir eru
56 en voru 54 í fyrra. Konum hefur
fjölgað úr 11 í 29.
rekstri Bakkafoss, mönnun hans og
viðhaldi. Mun fyrirtækið taka við
rekstri skipsins í Árhus í dag.
Á Bakkafossi verður eliefu manna
íslensk áhöfn og verður hann áfram
í siglingum til Norðurlandahafna.
------♦ ♦ ♦---—
Réðust á
mann og
rændu
MAÐUR var rændur á Snorra-
braut laust eftir klukkan eitt í
fyrrinótt. Lögreglan handtók
ræningjana skömmu síðar. Þeir
höfðu 700 krónur upp úr krafsinu.
Maðurinn var að koma frá veit-
ingastaðnum Keisaranum við Hlemm
og gekk eftir Snorrabraut þegar tveir
menn réðust að honum aftan frá,
slógu hann niður og gengu í skrokk
á honum. Annar þeirra tók seðla-
veski úr úlpuvasa hans með banka-
bók og 700 krónum í reiðufé.
Mennimir hlupu á brott og voru
horfnir þegar lögregla kom að en sá
sem rændur var gat gefið á þeim
lýsingu og vom þeir handteknir við
Barónsstíg skömmu síðar og færðir
á lögreglustöðina. Veskið fannst á
öðrum þeirra. Báðir hafa þeir marg-
sinnis komið við sögu lögreglu. Sá
sem rændur var var færður á slysa-
deild en mun ekki hættulega meidd-
ur.
Rætt um að Flugleið-
ir aðstoði Nígeríumenn
RÆDDIR háfa veríð möguleikar á
að Flugleiðir aðstoði einkaaðila i
Nígeríu við að stofna flugfélag.
Einar Sigurðsson, blaðafulltrúi
Flugleiða, segir málið skammt á
veg komið en Nígeríumenn séu að
leita eftir sérfræðiaðstoð.
Einar segir Flugleiðir nú vera að
leita fyrir sér um leiguflug og rætt
hafi verið við tvo aðila. Fyrirhugað
sé að leigja út eina af fjórum Boeing
737 vélum félagsins en taka í notkun
þriðju Boeing 757 vél þess sem nú
er leigð af bresku flugfélagj. Þannig
á sætaframboð á næsta ári að auk-
ast um 8%. Þá hyggjast Flugleiðir
leigja Fokker 50 vél, en ekki varð
af samningum við Malasíumenn.
Flugleiðir hafa áður átt þátt í að
koma á fót flugfélag í Nígeríu og
segir Einar að þá hafi vél verið leigð
til félagsins, Kabo Air, sem enn starfar.