Morgunblaðið - 28.10.1992, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER 1992
7
Ovenjulega mörg
jökulhlaup í ár
ÓVENJUMARGIR íslenzkir jöklar hafa hlaupið fram það sem af
er árinu. I fréttabréfi Jöklarannsóknafélags Islands kemur fram
að mikil hreyfing hafi verið á sex jöklum á árinu.
í fréttabréfinu segir að fram-
hlaup Skeiðaráijökuls hafi enzt
langt fram á síðastliðinn vetur og
í sumar hafi verið gangur í þeim
hluta hans sem kemur niður á
milli Þórðarhyrnu og Háubungu.
„Á veturmánuðum hljóp Þjórs-
árjökull sunnanverður fram um
200-300 m. í marz og apríl 1992
hljóp Köldukvíslaijökull sunnan-
verður ofan í Hvítalónslægðina og
stíflaði þar aftur upp lón sem
tæmdjst 1989,“ segir í fréttabréf-
inu. „í sláturtíðinni hljóp svo Múla-
jökull fram eftir aðeins 6 ára hlé
og er enn á sprettinum ef að líkum
lætur. Mældist Leifi Jónssyni að
jökuljaðarinn væri kominn 50 m
fram þann 26. september.“
Greint er frá því að jaðar Sátu-
jökuls (norðanverðs Hofsjökuls) sé
óvenjubrattur ofan til og væntan-
lega komi í ljós á næstunni hvort
þar sé venju fremur mikil hreyfing
á jöklinum. Þá hafi Helgi Björns-
son jöklafræðingur og félagar orð-
ið varir við óvenjumikið skrið á
Tungnaáijökli, en of snemmt sé
að segja til um hvort þar sé hafið
framhlaup.
Flugleiðir
leigja
Boeing þotu
Flugleiðir hafa tekið á leigu
þessa Boeing 757 þotu af
breska flugfélaginu Monarch.
Vélin kom til landsins á mánu-
dag og verður notuð fram til
22. nóvember þegar lokið hefur
verið reglubundinni skoðun á
tveim þotum Flugleiða af sömu
gerð. Vélamar eru aðallega
notaðar á Ameríkuleiðum fé-
lagsins og em nú til síðustu
stórathugunar í skýli Banda-
ríkjahers. Ný viðhaldsstöð
Flugleiða í Keflavík verður tek-
in í notkun í desember.
Sum íslensk
ökuskírteini
talin ógild
í útlöndum
NOKKUR brögð hafa verið að
því að íslendingar sem aka um
í útlöndum hafi lent í vandræðum
vegna þess að á ökuskírteinum
þeirra segir að þau séu ekki leng-
ur í gildi. Þetta á við um skír-
teini sem samkvæmt eldri regl-
um væru útrunnin en gildistími
þeirra var framlengdur árið 1989
þegar ákveðið var að ekki þyrfti
að endurnýja skírteini fyrr en
við 70 ára aldur.
Ómar Smári Ármannsson, að-
stoðaryfírlögregluþjónn, segir að
útlendingar eigi eðlilega erfitt með
að skilja, að ökuskírteinin séu í
fullu gildi ef á þeim stendur að þau
séu útrunnin. Hann segir að nokkr-
ir íslendingar hafi lent í stappi
vegna þessa, en enginn í teljandi
vandræðum. „Það er hins vegar
full ástæða til að benda fólki á að
fá sér ný ökuskírteini áður en hald-
ið er til útlanda, ef þetta á við um
þeirra skírteini," segir hann.
Ómar segir að sá misskilningur
virðist ríkjandi hjá mjög mörgum,
að engin ökuskírteini þurfí að end-
urnýja fyrr en við 70 ára aldur.
„Þetta er ekki rétt. Þeir sem eru
með meirapróf þurfa að endurnýja
skírteinin reglulega og einnig þeir,
sem eru með bráðabirgðaskírteini,
sem gilda í tvö ár frá bílprófi. Ef
gildistími þessara skírteina rennur
út og fólk dregur í eitt ár eða leng-
ur að endurnýja þau verður það að
endurtaka bílprófið. Frá þessu eru
engar undantekningar," sagði Óm-
ar Smári.
----♦ ♦ ♦
Hótel Loftleiðir
Blómasaln-
um lokað
BLÓMASALURINN á Hótel
Loftleiðum er nú lokaður og seg-
ir Þórunn Reynisdóttir hótel-
stjóri að óráðið sé hvenær hann
verður opnaður aftur. Ástæður
lokunarinnar eru dræm aðsókn
að staðnum og samdráttur í bók-
unum á hótelið. „Þetta er svipað
ástand hjá okkur og öðrum í
veitingarekstri og við brugðumst
við með því að loka Blómasaln-
um,“ segir Þórunn.
Að sögn Þórunnar mun stjórn
hótelsins skoða málin og fara yfir
stöðuna í veitingarekstrinum áður
en tekin verður ákvörðun um fram-
haldið. „Við erum að velta fyrir
okkur breyttum áherslum og einnig
er inni í myndinni að breyta innrétt-
ingunum í Blómasalnum,“ segir
Þórunn.
HEIMSKLÚBBUR INGÓLFS
KYNNIR:
Skipulag og fararstjórn:
Ingólfur Guðbrandsson
IQLATILBOÐ
s
foti.
Thailand
Sólskinsparadís um jól
26 dagar með lúxusgistingu
og fullum morgunverði á
fimm stjömu hótelum
ÓDÝRARA EN Á KANARÍEYJUM!
Flug báðar leiðir
aðeins kr. 89.000,-
barnaafsláttur kr. 30.000,-
Lúxusgisting 24 dagar í tvíbýli
með fullum morgunverði aðeins
kr. 69.000,-
Börn í herbergi með foreldrum 50% afsláttur.
Staðgreiðsluverð án flugvallarskatts.
AUSTURSTR&TI 17,4. hæð 101 REYKJAVÍK-SÍMI 620400-FAX 626S64
Uppselt
Grípið einstakt tækifæri
og pantið strax
HEIMSKLUBBUR INGOLFS
Ljúfasta líf í skammdeginu
á besta hóteli Filippseyja og glæsilegasta
strand- og hvíldarstað Thailands.
Westin Plaza Manila,
670 glæsilega búin herbergi,
stór garður með pálmalundum
og landslagssundlaug. Margir
veitingasalir með ijúffenga rétti
og rómaða þjónustu.
Ambassador city — Jomtien
✓ Lúxusgististaður alveg við ströndina.
/ 3 glæsilegar stórsundlaugar í
fögrum garði.
/ Friðsæll staður laus við skarkala.
/ Fullkomnasta aðstaða sem um getur til
hvíldar, slökunar, þjálfunarog
heilsubótar.
/ 14 fjölþjóðlegir veitingasalir að velja sér
gómsæta rétti á austurlenska og
vestræna vísu á lágu verði, s.s.
kínverskan, japanskan, thailenskan.
ítalskan, franskan o.s.frv.
viðbótarsæti til sölu núna