Morgunblaðið - 28.10.1992, Side 10

Morgunblaðið - 28.10.1992, Side 10
10 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER 1992 hreyfíngum. Við sjáum upphitun, hnefaleika, línudans, skautadans, ruðningsbolta og karate — allt með nokkuð glettnu ívafí. Verkið er samið árið 1971 og er dálítið bam þess tíma og hefur e.t.v. ekki elst vel. Kostir verksins eru glettnin og hve auðvelt er að fylgja höfundi eftir, enda voru leikhús- gestir vel með á nótunum. Hópur- inn skilaði sínu mjög vel. Hér reyndi nokkuð á leikræna hæfi- leika og karldansararnir David Greenall, Hany Hadaya og Rafael Delgado voru góðir og eins lofa nemamir í hópnum, þau Viðar Maggason og Hlíf Þorgeirsdóttir, góðu. Tónlistin var eftir Handel, háklassísk barrokktónlist. Smekk- ur manna er misjafn, en þetta val á tónlist stakk mig svolítið, þó svo að tilgangurinn hafí verið að kalla fram andstæður. Fyrir vikið varð glettnin öll að vera í hreyfíngun- um, engin hjálp frá tónlistinni þar. Samt sem áður hið ágætasta verk. Notturno er ljóðrænn ballett í nýklassískum stíl, sem gerist á mörkum svefns og vöku. William Soleau samdi þennan ballett fyrir íslenska dansflokkinn og er hér um heimsfrumsýningu að ræða. Þessi ballett var hápunktur sýn- ingarinnar. Notturno tekst að hrífa áhorfandann með sér. Hreyf- ingarnar eru ákveðnar og fjaður- magnaðar, en tekst samt að við- halda dulúð og draumkenndum, ljóðrænum blæ. Staðsetningin á sviðinu var góð og samstilling dansaranna með ágætum. Fyrsti kaflinn er dansaður í þögn, en síð- an tekur við tónlist eftir Irving Fine, sem styður verkið vel. Bún- ingar voru góðir og lýsingin ljóm- andi vel unnin. Ég hef ekki séð Hany Hadaya í annan tíma gera betur. Hann dansaði hlutverk sitt frábærlega vel og hafði það á valdi sínu. Melissa Anderson er nýliði í dansflokknum og heillaði með þokka og mýkt. Hún var sem fís í höndum Hany Hadaya og tvídans þeirra í lokin stórgóður. Átta dans- arar eru í verkinu og stóðu sig allir vel. Nefna mætti einnig Hel- enu Jóhannsdóttur, David Gre- enall og Rafael Delago, en þeir tveir eru í hópi karldansaranna, sem bæst hafa í dansflokkinn og styrkja hann. Rauðar rósir heitir lokaverkið og er rómantískur ballett um ást- ina, þó að hún vilji stundum taka á sig harkalegar myndir. Dansað er við tónlist Edith Piaf og smellur hún beint í hjartastað. Sex dansar eru í verkinu, sem er aðgengilegt og liggur ljóst fyrir. Helena Jó- hannsdóttir naut sín bæði í sólók- afla í Le Vieux Piano og svo ásamt Rome Saladino í Cést Peut Etre. Og aftur og enn heilla Hany Hadaya og Melissa Anderson með góðum samdans. Svona verk er kjörið sem lokapunktur sýningar, enda var undir lokin búið að byggja upp góða stemmningu í salnum. Það verður að telja þessa sýn- ingu sigur fyrir hópinn sem að henni stendur. Sýningin hefur alla möguleika til að höfða til breiðs hóps áhorfenda. Hér gefst kjörið tækifæri til að höfða til framhalds- skóla og annarra, sem ég vil leyfa mér að kalla „byrjendur" í því að horfa á ballett á sviði. Móttökur leikhúsgesta á frumsýningu voru framúrskarandi og risu þeir á fætur og þökkuðu fyrir sig. Það má búast við miklu af þessum hópi og uppreisn íslenska dans- flokksins er hafín fyrir alvöru. Uppreisn ekki kveðin niður Bernskur útskurður Myndlist Bragi Asgeirsson Það má um Sæmund Valdi- marsson segja, að hanr sé iðinn við kolann, því að frá því hann kom fyrst fram fyrir 9 árum eru einkasýningar hans orðnar 10 talsins! Trauðla er það samt of mikið ef hann heldur sínu striki, því að jafnaðarlega eru á sýningum hans forvitnilegir hlutir. Þá eru þessir útskomu tijábolir hans á svo hóflegu verði, að manninum gengur augsjáanlega flest annað til en hagnaðarsjónarmið og sýndarmennsku held ég að þessi látlausi maður eigi ekki til. Fram til 6. nóvember getur að líta 8 verk listamannsins í list- homi Sævars Karls Ólasonar á homi Banka- og Ingólfsstrætis. Engar stökkbreytingar eiga sér stað í list Sæmundar, en greina má þó hæga þróun og þá helst í þá átt, að listamaðurinn vill tjá meiri sögu í verkum sínum og virkja náttúraöflin í mynd- sköpun sinni, þannig feykir vind- urinn dökkbrúnu hári stúlkunnar í mynd nr. 8 er ber nafnið „Sunn- anvindur“ og í myndinni „Amor“ (4) kemur fram græskulaust gaman við hagnýtingu kvists í trédrambinum. En hér truflaði mig hinn ónáttúralegi blái litur í hárinu. Þá er myndin Hallgerð- ur (langbrók) með táknræna til- vísun og í verkinu „Heimasæta“ hniprar stúlkutetrið sig saman og er eins og það sé í sálarháska í einveranni. Flest virðist ganga upp í verkinu „Stúlka" (7), en þar er viðurinn nýttur til fulls og einhver sposkur svipur er á andliti stúlkunnar með kattar- augun. Þetta er sem sagt skemmtileg sýning og margt má lesa úr myndunum, allt eftir því hvert hugarfarið er hjá þeim sem skoð- ar. _________Ballett__________ Ólafur Ólafsson Ballettar: Concerto Grosso, Nottumo, Rauðar rósir. Danshöfundar: Charles Czamy, WiUiam Soleau, Stephen MiIIs. Dansarar: Ásta Henriksdóttir, Birgitte Heide, Helena Jó- hannsdóttir, Hlíf Þorgeirsdótt- ir, Lára Stefánsdóttir, Melissa Anderson, Anthony Wood, David Greenall, Hany Hadaya, Rafael Delgado, Rome Salad- ino, Viðar Maggason. Tónlist (af bandi): Georg Fried- rich Handel, Irving Fine og söngvar með Edith Piaf. Búningahönnun: Joop Stokvis, Guðrún Reynisdóttir. Ljósahönnun: Björa Þ. Guð- mundsson. Sýningarsljóri: Kristín Hauks- dóttir. Framkvæmdastjóri: Salvör Nordal. Aðstoð við sviðsetningu: Alan Howard. Sviðsetning: María Gísladóttir. Þjóðleikhúsið 25. október 1992. Straumhvörf urðu hjá íslenska dansflokknum á sunnudagskvöld- ið, þegar dansflokkurinn hélt sína fyrstu framsýningu eftir nokkurt 51500 Maríubakki - Rvik Til sölu góð 3ja herb. íb. á 1. hæð. Herb. fylgir í kj. Hafnarfjörður Laufvangur Góð 4-5 herb. ca. 115 fm íb. á 2. hæð í sex íbúða stigahúsi. Áhv. ca. 2 millj. Hjallabraut Góð 4-5 herb. ib. á 1. hæð. Trönuhraun Til sölu gott rúml. 300 fm skrifst- húsn. Hentar vel fyrir félagasam- tök eða sem kennsluaðstaða. Allar nánari uppl. á skrifst. Vantar Vantar gott einb. í Hafnarfirði fyrir fjársterkan aðila, helst í skiptum f. glæsilega hæð og ris í Hafnarf. Milligjöf staðgreidd. Allar nánari uppl. á skrifst. Árni Grétar Finnsson hrl., Stefán Bj. Gunnlaugss. hdl., Linnetsstig 3,2. hæð, Hfj., simar 51500 og 51601 hlé. Veralegar breytingar hafa orðið á skipulagi og starfsemi hans. íslenski dansflokkurinn hefur hlotið mun meira sjálfstæði, sem (auk fjármagns) er ytri forsenda þess að fijótt listrænt starf geti náð að blómstra. í löngu máli mætti fjalla um ábyrgð og skyldur hins opinbera gagnvart listum en hér er hvorki réttur staður né stund til þess. En það er staðreynd að veralegar breytingar hafa orðið í skipulagsmálum flokksins og til hins betra. Einnig er nú lagt af stað með nýjan kjarna dansara. Þeim brautryðjendum, sem nú hafa lokið störfum sínum hjá flokknum, ber að þakka fyrir gott starf. Ef til vill hefur það svolítið gleymst í hita og þunga dagsins. Sumir hveijir höfðu starfað með dansflokknum frá upphafí og starf framheija er ávallt erfítt. Núna er að hefjast 19. starfsár flokksins og um leið nýr kafli. Á fyrstu sýningu starfsársins era þrír ballettar. Sýningin ber heitið Uppreisn. Það er á margan hátt táknrænt heiti og það er víst að þessi uppreisn tekst og sýning- in er í alla staði hin ágætasta. Það er verið að reisa flokkinn við og hann rís úr öskustónni með sóma. Listdansstjóri flokksins er María Gísladóttir. Verkefnaval og list- ræn stefnumótun hvílir á hennar herðum. Henni er vandi á höndum að velja verkefni sem mæta list- rænum kröfum og metnaði og uppfylla einnig væntingar ís- lenskra leikhúsgesta. Einnig þarf að huga að dönsuranum og hvað hæfír þeim og líkamsbyggingu þeirra. En hvert skal stefna; inn á klassískari brautir eða á að byggja upp nútímaballett? Þessi umræða er ekki ný og listdans- stjóri verður að hafa frelsi til að velja. Kannski Iiggur vandinn í því að verkefnin hafa ekki verið nógu mörg til að hægt hafí verið að „ala upp“ áhorfendur. Með þessari fyrstu sýningu fer hún skynsam- lega af stað í verkefnavali. Hér era fluttir þrír ballettar sem falla í eina heild þótt þeir séu nokkuð ólíkir; einn kómískur, annar draumkenndur og ljóðrænn og sá þriðji alþýðlega rómantískur. í stöðunni var þetta rétta útspilið og enginn verður svikinn af þess- ari sýningu. Conserto Grosso er kómískur nútímalegur ballett eftir Charles Czamy, þar sem hreyfíngar íþróttamanna hafa verið teknar og notaðar sem grannur að dans- 91^7fl LÁRUS Þ. VALDIMARSSON framkvæmdastjóri 'ml I vU'k I 0 / v KRISTINNSIGURJONSSON,HRL.loggilturfasteígnasali Til sýnis og sölu meðal annarra eigna: Stór og góð - sérþvottahús Nýleg 2ja herb. íb. á neðri hæð v. Kambasel 70,3 fm. Fjórbýli. Góð lán fylgja. Laus fljótl. Hentar m.a. fötluðum. Glæsileg sérhæð í tvíbhúsi Nýleg 4ra herb. neðri hæð 104,3 fm skammt frá Háskólanum. Allt sér. Gott skipul. Frág. lóð. Góður bílskúr. Laus fljótl. Einbhús í Stekkjahverfi vel byggt og vel með farið steinhús ein hæð 136 fm. Bílsk. 30 fm. Stór, ræktuð lóð. Vinsæll staður. Losun eftir samkomulagi. Efri hæð við Garðastræti - þríbhús 5 herb. mjög góð sérhæð 125,1 fm. Tvennar svalir. Geymsluris fylgir. Bílsk. Ræktuð lóð. Fráb. staöur. Skammt frá Landspítalanum nýl. endurb. 4ra herb. neðri hæð tæpir 100 fm í þríbhusi. Góð sam- eign. Langtlán. Tilboð óskast. Skammt frá Menntask. við Hamrahlíð glæsil. 6 herb. neðri hæð. Allt sér. Forstherb. m. snyrrtingu. Góður bílsk. Öll eins og ný. immmmma^^^^^^^^^^mm^^^m ... AtMENNA 2ZXSSSSS2, FASIEIGNASAUN gamla austurbaenum. LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.