Morgunblaðið - 28.10.1992, Síða 16

Morgunblaðið - 28.10.1992, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER 1992 Afmæli Níu stækkaöar myndir af barninu/börnunum þínum, þar af ein í ramma Ljósmyndastofurnar 3 ódýrastir Ljósmyndastofan Mynd sími 65 42 07 Barna og fjölskyldu Ijósmyndir sími 677 644 Ljósmyndastofa Kópavogs sími 4 30 20 Asgeir Þ. Olafsson fyrrverandi héraðs- dýralæknir - 90 ára í dag, 28. október, verður Ásgeir Þ. Ólafsson, fyrrverandi héraðs- dýralæknir í Borgarnesi, níræður. Ásgeir hóf störf hér í Reykjavík strax að loknu námi við dýraiæknis- háskólann í Hannover árið 1927, en var skipaður dýralæknir í Vest- firðingafjórðungi haustið 1928 með aðsetri í Borgamesi._ í Borgarnesi bjó Ásgeir alla sína embættistíð en með fjölgun dýra- lækna og breyttri skipan umdæma héraðsdýralækna er nú svo komið að sjö dýralæknar starfa í þeim héruðum sem Ásgeir þjónaði einn fyrstu embættisár sín. Hér á landi hefur sú breyting orðið undanfarna áratugi að flestar starfsstéttir hafa fengið viður- kenndan mun styttri vinnutíma en áður var og flestir vinna nú aðeins fimm daga vikunnar. Þessu er öfugt farið með héraðsdýralækna. Með fullkomnari símþjónustu, bættum samgöngum og vegakerfí og betri efnahag þeirra sem dýr hafa undir höndum hefur starfsdagur héraðs- dýralækna víða lengst frá því sem áður var þegar erfitt var að ná til þeirra í síma og takmarkað hve mörgu var hægt að sinna vegna samgönguerfiðleika. Nú má heita að flestir héraðs- dýralæknar séu bundnir við starf sitt allt árið, helga daga jafnt og virka, og á mesta annatíma gefst oft lítill tími til hvíldar eða reglulegs XBarnaheill Ráðstefna um Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna verður haldin á vegum Barnaheilla í samvinnu við Rauða kross íslands dagana 30. til 31. október 1992. Ráðstefnustaður er Vinabær (gamla Tóna- bi'ó) og ráðstefnugjald kr. 1.500.- Vinsamlegast skráið þátttöku f sfma 680545. DAGSKRÁ: Föstudagur 30. október 1992 13:00 - 13:10 Nemendur í Suzuki-skólanum leika á hljóðfæri. 13:10 - 13:20 Anna Harðardóttir 15 ára flytur ávarp. 13:20 - 13:30 Arthur Morthens, formaður Barnaheilla, setur ráðstefnuna. 13:30 - 14:00 Tilurð Barnasáttmálans, vægi hans og hlutverk. Hvaða skyldur leggur Barnasátt- málinn stjórnvöldum á herðar? Guðmundur Eiríksson, þjóðréttarfræðingur. 14:00 - 14:30 Verkefni íslenskra stjórnvalda í kjölfar fullgildingar Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra. 14:30 - 15:00 Kaffihlé 15:00 - 16:00 Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna, gjöf Sameinuðu þjóðanna til bama heims- ins. Trond Viggo Torgersen, umboðsmaður barna í Noregi. 16:00 - 16:30 Fyrirspurnir og pallborðsumræður. Pallborð: Trond Viggo, Guðmundur Eiríksson, Hrólfur Kjartansson, Anna Ólafs- dóttir Björnsson og Arthur Morthens. Fundarstjóri Páll Ásgeirsson, yfirlæknir. Laugardagur 31. október 1992 svefns. Þegar slíkt annríki stendur vikum saman þarf engan að undra þó að það komi fyrir að þeir séu ekki alltaf jafn vel fyrir kallaðir. Við svipaða starfstilhögun og hér er lýst þurfti Ásgeir að búa lengst af. Það er til marks um líkamlega hreysti Ásgeirs að þegar hann lét af störfum rúmlega sjötugur að aldri var hann enn eins unglegur og maður á miðjum aldri, kvikur í hreyfíngum, bar sig vel og hafði tii að bera þá reisn og snyrtimennsku að eftirtekt vakti. Nokkru eftir að Ásgeir hóf störf í Borgarfirði kom þar upp skæður smitsjúkdómur í sauðfé, svonefnd lungnapest. Það kom í hlut Ásgeirs ásamt Niels Dungals, síðar prófess- ors, að rannsaka þennan sjúkdóm. Þeir komu sér upp aðstöðu til rann- sókna á læknissetrinu á Kleppjáms- reykjum í Reykholtsdal. Þó að allar aðstæður til rannsóknarstarfa væm þar næsta frumstæðar og ófull- komnar tókst þeim að sýna fram á hver væri orsök veikinnar og síðan að þróa varnarlyf gegn henni. Nú rúmum sextíu árum síðar finnst manni lýsing á störfum þeirra félaga við þessar aðstæður líkust furðulegu ævintýri, en sýnir um leið glöggt hve miklu áhugi, dugnaður og einbeitni fá áorkað þó að aðstæð- ur séu fátæklegar og frumstæðar. Nokkrum árum síðar kom annar sauðfjársjúkdómur upp í héraði Ás- geirs, svonefnd mæðiveiki. Barst sá sjúkdómur til landsins með innfluttu sauðfé. Olli sjúkdómurinn geysitjóni á mörgum bæjum í héraðinu og breiddist þaðan út til annarra lands- hluta. Stóðu menn í fyrstu ráðþrota gegn þessum sjúkdómi þar sem lítið var um hann vitað í þeim löndum þar sem hann var iandlægur. Ásgeir fylgdist að sjálfsögðu með þessum sjúkdómi frá byijun og nú munu haldbestu upplýsingar um hegðan sjúkdómsins og útbreiðslu hans fyrstu árin vera að finna í rit- gerð Asgeirs frá árinu 1937 um þennan faraldur. Síðar kom það hins vegar í hlut annarra að rannsaka mæðiveikina, sem raunar reyndist vera tveir sjúkdómar þó að þeir kæmu stundum báðir fyrir í sömu kindinni samtímis. Gaf Ásgeir raun- ar í skyn að svo gæti verið í áður- nefndri grein sinni. Eins og kunnugt er tókst að út- rýma báðum þessum lungnasjúk- dómum með stórfelldum niðurskurði alls_ fjár í sýktum landshlutum. Á fyrstu starfsárum Ásgeirs kom upp miltisbrandur, oft banvænn smitsjúkdómur, á einum bæ í Reyk- holtsdal. Drápust þar nokkrir stór- gripir og maður sem átti við fyrsta Borgarráð gripinn sem drapst áður en ljóst var hver voði væri á ferð, veiktist alvar- lega. Þegar ljóst varð hve hættuleg- ur sjúkdómur þetta var vakti það óhug og ótta, ekki bara hjá fólkinu á bænum heldur líka í sveitinni allri. Enn er fólkið á þeim bæ þar sem veikin kom upp að dásama hve ötul- lega Ásgeir gekk fram í öllum nauð- synlegum sóttvarnaraðgerðum, en þó ekki síður hitt, hve drjúgan tíma hann gaf sér til að skýra málin og draga þannig úr ótta fólksins við þennan voðasjúkdóm, sem menn kunnu fá ráð við. Um árabil skrifaði Ásgeir um búfjársjúkdóma í tímarit bænda og var þeim fróðleik tekið með þökkum enda voru þessar greinar vel skrif- aðar án allra óþarfa málalenginga. Störf héraðsdýralækna eru jöfn- um höndum lækningar, leiðbeining- ar og eftirlitsstörf ýmiskonar. Hefur stundum reynst erfitt að halda öllum þessum skyldum fram án þess að til árekstra kæmi. Þeim málum gegndi Ásgeir á þann veg að hann vann hylli flestra þeirra héraðsbúa sem hann þurfti að hafa skipti við. Kom þar til virðuleg framkoma og alla jafna hlýlegt viðmót og er stirð- lega gekk hafði Ásgeir jafnan á hraðbergi rætnislausar skopsögur eða glettin tilsvör, sem oftast komu mönnum í léttara skap og liðkuðu málin. Árið 1930 gekk Ásgeir að eiga Guðrúnu Svövu Ámadóttur, mikil- hæfa myndarkonu, sem alla tíð hef- ur stutt bónda sinn í starfi og verið hin styrka stoð á hvetju sem gekk. Hún ól honum þijá sonu, Ólaf, verkfræðing í Bandaríkjunum, Braga, tannlækni í Reykjavík og Ásgeir, fulltrúa í Borgamesi. „Já, er hann að verða níræður, Ásgeir blessaður. Hann hjálpaði oft,“ sagði gömul borgfirsk húsmóð- ir við mig um daginn. Undir þau orð mun margt eldra bændafólk í Borgarfírði geta tekið. Á þessum tímamótum senda dýralæknar landsins aldursforseta sínum bestu heillaóskir og þakkir fyrir unnin störf en um árabil var Ásgeir formaður félags þeirra, og biðja þess að Elli kerling fari um hann mildum höndum. Páll A. Pálsson. 10:00 - 10:30 Sýning myndbands um Barnasáttmálann og fulltrúi Barnaheilla fjallar um sáttmálann í heild. 10:30 - 10:50 Hannes Hauksson, framkvæmdasjóri Rauða kross íslands, flytur ávarp. 11:00 - 11:15 Réttur fatlaðs barns skv. 23. gr. Ásta Þorsteinsdóttir, formaður Þroskahjálpar. 11:15 - 11:30 Réttur barns til leiks og frístunda skv. 31. gr. Guðrún Alda Harðardóttir, fóstra við Félagsmálastofnun Hafnarfjarðar. 11:45 - 12:00 Réttur barns til bestu heilbrigðisþjónustu skv. 24. gr. Dr. Sveinn Kjartansson, barnalæknir á Heilsuverndarstöð Reykjavíkur. 12:00 - 12:15 Réttur barna til slysavarna pg öruggs umhverfis skv. 24. gr. Herdís Storgaard, hjúkrunarfræðingur hjá SVFÍ. 12:15 - 13:15 Matarhlé. 13:15 - 13:45 Réttur barns til beggja foreldra skv. 9. gr. og 18. gr. Nanna K. Sigurðardóttir, félagsráðgjafi, Tengslum sf. 13:45 - 14:15 Réttur barns sem tímabundið eða til frambúðar nýíur ekki foreldra sinna skv. 20. gr. Guðrún Erna Hreiðarsdóttir, lögfræðingur Barnaverndarráðs. 14:15 - 14:45 Ábyrgð iðnríkja á börnum þróunarríkja. Ólafur Ragnar Grímsson, alþingismaður. 14:45 - 15:00 Kaffihlé. 15:00 - 15:30 Fyrirspurnir og umræður. Fundarstjóri Haraldur Finnsson, skólastjóri. Tíu millj. til atvinnu- leysistryggingasjóðs SAMKVÆMT lögum njóta starfsmenn sveitarfélaga í BSRB ekki endur- greiðslna úr atvinnuleysistryggingasjóði ef þeim er sagt upp störfum vegna samdráttar. En þeim er lögum samkvæmt tryggður réttur til atvinnuleysisbóta frá ríki og viðkomandi sveitarfélagi. Árin 1991 og 1992 greiddi Reykjavíkurborg rúmlega 10 milljónir í atvinnuleysistryggingasjóð. Þetta kemur fram í svari Jóns G. Kristjánssonar, starfsmannastjóra Reykjavíkurborgar, við fyrirspurn Sigrúnar Magnúsdóttur, Framsókn- arflokki, í borgarráði. Sigrún spurði ennfremur hvort ekki væri um tví- sköttun á sveitarfélögin að ræða ef sveitarfélög þurfa eftir sem áður að greiða sjálf atvinnuleysisbætur til fyrrverandi BSRB-starfsmanna sinna. f svari Jóns kemur fram að um tvísköttun er að ræða að því marki sem nemur útborguðum atvinnuleys- isbótum hvers sveitarfélags fyrir sig. Gjaldstofn tryggingagjalds fyrir Reykjavíkurborg vegna ársins 1991 var rúmlega 5.500 millj. 0,15% af þeirri upphæð eru um 8,3 millj. sem renna til atvinnuleysistrygginga- sjóðs. Reykjavíkurborg greiddi sjóðnum rúmlega 4,5 millj. í bætur fyrir árið 1991 og rúmlega 5,5 millj. árið 1990. V

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.