Morgunblaðið - 28.10.1992, Síða 19

Morgunblaðið - 28.10.1992, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER 1992 19 Hví slær þú mig-, prestur? Opið bréf til sr. Þórhalls Höskuldssonar á kirkjuþingi # > * eftir Ola Agústsson Ekki vissi ég nein deili á þér. Aldrei hafði ég séð þig og aldrei hafði ég heyrt þig. Aldrei hefur þú komið inn á gólf Samhjáipar og aldr- ei hefur þú talað við starfsfólk Sam- hjálpar. Ég held að þú vitir ekkert um Samhjálp Hvítasunnumanna og hafir engan áhuga á að vita neitt um hana. Samt ertu nú kominn á kirkjuþing hér í Reykjavík og flytur tillögu um að starf Samhjálpar verði dæmt annars eða þriðja flokks áfengismeðferð af prestastéttinni á íslandi. Ég sætti mig ekki við ósannindi þín og undra mig á hvað hægt er að leyfa sér í skjóli hempu og hök- uls. Meðflutningsmenn þínir að til- lögunni eru þrír, einn sr. Gunnar Kristjánsson á Reynivöllum í Kjós. Aldrei hef ég hitt hann og aldrei hefir hann komið inn á gólf Sam- hjálpar. Þá er þarna sr. Ólafur Jens Sigurðsson fangaprestur, hvað veit hann um Samhjálp? Og loks er þarna sr. Jón Bjarman og undrar það mig mest. Sr. Jón hefir haft samstarf við Samhjálp og þá yfirleitt gefið henni gott orð. Það dularfulla við tillöguna eru svö tveir menn á meðriti hennar, læknarnir Þórarinn Tyrfíngsson, for- maður SÁÁ, og Jóhannes Berg- sveinsson, yfirlæknir á áfengisdeild Ríkisspítalanna. Þórarinn veit ekki mikið um Samhjálp. Það upplýstist á áfengismálafundi nýulega. Og hvað veit Jóhannes um Samhjálp? Samstarf er stöðugt á milli deildar hans og Samhjálpar. Aldrei hefur komið fram hjá Jóhannesi sú skoðun að meðferð Samhjálpar væri annars eða þriðja flokks. Það skyldi þó ekki vera að hagsmunamál þeirra ýti þessu öllu af stað? Sem leiðréttingu við ósannindun- um vil ég segja þetta: 1. Það hefir aldrei verið samstarf á milli Krossins í Kópavogi og Samhjálpar Hvítasunnu- manna. 2. Samhjálp Hvítasunnumanna hefir aldrei óskað eftir vist- heimilinu á Vífilsstöðum. 3. Það er til skrá yfir 60 tilfelli, á síðustu 12 mánuðum, þar sem Samhjálp greiðir götu skjólstæðinga sinna til hinna ýmsu áfengisstofnana, SÁÁ og Landspítalans. 4. Samhjálp er ekki söfnuður og hefir þess vegna enga hags- muni í að fjöiga í „flokknum“. 5. Samhjálp skilgreinir sjúkdóm- inn eftir forskrift Alþjóða heil- brigðisstofnunarinnar: Alco- holismus Chronicus og Abusus medicamentum. Samstarf Samhjálpar við þjóð- kirkjuna hefir verið verulegt. Þrír biskupar hennar hafa prédikað þar. 18. þingSSÍ hefst í dag 18. þing Sjómannasambands Is- lands verður haldið næstu daga að Hótel Sögu. Þingið verður sett klukkan 10 árdegis í dag, miðvikudag. Þingið stendur fram á föstudag. Helztu málefni þingsins að lokn- um ávörpum sjávarútvegsráðherra og annarra gesta verða atvinnu- og kjaramál, markaðsmál sjávaraf- urða, öryggis- og tryggingamál, líf- eyrismál og evrópska efnahags- svæðið. Helztu málin verða kynnt í dag, en fimmtudagurinn fer að mestu í nefndarstörf. Stjómarkjör verður á fímmtudagskvöld sam- kvæmt dagskrá, en í sumar boðaði Konráð Alfreðsson framboð sitt til formanns sambandsins. Núverandi formaður er Óskar Vigfússon. Á föstudag lýkur umræðum og álykt- anir og tillögur þingsins verða af- greiddar. Þá hafa þrír prófessorar við guð- fræðideild Háskóla íslands prédikað þar. Til viðbótar því hafa yfír 20 þjónandi prestar þjóðkirkjunnar prédikað þar. Þetta er gert af um- hyggju fyrir skjólstæðingum Sam- hjálpar sem eru jú 96% þjóðkirkju- menn. Einnig er þetta gert með því hugarfari að efla samkirkjulega við- leitni, sem nú er ofarlega í þjóðun- um, en virðist hafa farið framhjá þér. Samhjálp Hvítasunnumanna er mjög sjálfstæð stofnun og ræður sínum málum sjálf. En hvað er Sam- hjálp Hvítasunnumanna? Mig langar að upplýsa um það í sem fæstum orðum: Samhjálp er kristilegt sam- starf. Hún er stofnun Fíladelfíusafn- aðarins í Reykjavík. Hún verður 20 ára í janúar næstkomandi. Hún er byggð á módeli sænskra Hvíta- sunnumanna, LP stiftelsi, sem hefir starfað í 30 ár. Þeir hafa yfír 600 rúm til umráða. í niðurskurði á fjár- lögum sænskra, er minnst skorið hjá LP stiftelsi. Vegna þess að þeirra árangur er góður. Samhjálp rekur meðferðarheimili í Hlaðgerðarkoti. Þar er starfsleyfi fyrir 30 rúm. Stöðugildi eru 16. Meðalnýting síðustu ár er 104%. Fimm af starfsmönnum þar eru há- skólamenntaðir. Geðlæknir, hjúkr- unarfræðingur, lyfjafræðingur, guð- fræðingur og starfsmaður sem hefur sérhæft sig í efninu „mannleg sam- skipti" sem byggir á kennisetningum prófessors við Loyola háskólann í Chicago og hefír kristna trú sem bakgrunn. Dagskrá meðferðarinnar í Hlað- gerðarkoti varir frá klukkan 9.00 til 19.00 alla virka daga. Frá klukkan 12.00 til 18.00 aðra daga. Þátttaka í dagskránni er skylda. Þar fer fram hópastarf og fjöldakennsla. Þá eru viðtöl í gangi alla daga. Unnið er með skjólstæðingum úr ytri vanda þeirra einnig. Af sjö til átta manns sem vinna við meðferðina eiga fimm að baki margra ára óreglu sem þeir hafa sigrast á. Samhjálp rekur einnig félagsmið- stöð í Hverfísgötu 42. I félagsmið- stöðinni er kaffistofa, samkomusalur og áfangaheimili. Rekstur kaffistof- unnar er styrktur af Félagsmála- stofnun Reykjavíkurborgar. Hún er opin alla virka daga kl. 10.00 til 17.00. Súpa og brauð eru gefin þar á þriðjudögum, útigangsmönnum og öðrum sem þurfa á að halda. í sam- komusalnum er komið saman þrisvar til fjórum sinnum í viku. Þar eru kristilegar samkomur og bæna- stundir. Þar er aldrei glímt við að reka út illa anda. Ráðgjafarþjónusta Óli Ágústsson „Það er alkunna að frjálsum félagasamtök- um hefir tekist að reka hin ýmsu fyrirtæki á hagkvæmari hátt en því opinbera. Og er það eitt af markmiðum heil- brigðisáætlunar ríkis- stjórnarinnar að efla félagasamtök af þess- um toga.“ er látin í té alla þriðjudaga. Hana annast guðfræðingur stofnunarinn- ar. Þá er í félagsmiðstöðinni áfanga- heimili, þar sem einstaklingar fá að búa eftir meðferð í Hlaðgerðarkoti, á meðan þeir eru að koma undir sig fótunum. Allt starf félagsmiðstöðv- arinnar er eftirmeðferðarstarf og forvarnarstarf og miðar að því að hughreysta fólk, uppörva það og brýna. Áætlaður fjöldi gesta í félags- miðstöðina á árinu er 18.000 til 20.000, miðað við aðsókn fyrstu 10 mánuði ársins. Samhjálp rekur einnig Gistiskýli í Þingholtsstræti 25 í Reykjavík fyr- ir Félagsmálastofnun Reykjavíkur- borgar. Þar er gistirými fyrir 15 manns. Borgin fær þar virkari rekst- ur fýrir minni peninga en áður. Stöð- ugt er unnið að því að hvetja menn til þess að taka á málum sínum og leitað úrræða með þeim. Er þá leið þeirra greidd í hinar ýmsu meðferðir. Um Gunnarsholt. Hugmynda- fræði Samhjálpar um Gunnarsholt er um fjölskyldumeðferð. Gunnars- holt er vel í sveit sett til þess að sinna slíku starfi. Þar er mikið af húsum og hægt að taka á móti mörgu fólki. Varla er hægt að hugsa sér glæsilegra starf en það að geta grætt saman heila fjölskyldu. Hjón með börn, þar sem fjölskyldan er við það að tvístrast vegna erfíðra aðstæðna. í Samhjálp er fólk aldrei hvatt til hjónaskilnaðar. Þar er alltaf reynt að græða sár og laða fólk saman að nýju. í Gunnarsholti væri hægt að útvega fólki atvinnu, bæði á staðnum og í nágrannbæjum, og kenna því að ganga undir ábyrgð að nýju og styðja það á þeim erfíða vegi. Halda utan um það, tryggja því sigur, vilji það sigur. Jafnframt væri það þátttakendur í öflugu með- ferðarstarfí sem færi fram utan venjulegs vinnutíma. Umfram allt, þá er engin meðferð jafn líkleg til þess að fullnægja slík- um þörfum eins og kristileg umönn- un. Samhjálp mun sækja það af al- efli að fá aðstöðu til þess að sýna hvers trúin er megnug í að endur- skapa fólk. Hún mun einnig sækja það að fá að vinna meira starf fyrir minni peninga. Það ætti öllum að líka vel á þessum sorgartímum efna- hagsmála. En ég vil geta þess að við hreyfðum málinu fyrst í ágúst 1991, áður en farið var að kveina um niðurskurð. Það er alkunna að fijálsum fé- lagasamtökum hefír tekist að reka hin ýmsu fyrirtæki á hagkvæmari hátt en því opinbera. Og er það eitt af markmiðum heilbrigðisáætlunar ríkisstjórnarinnar að efla félagasam- tök af þessum toga. Að lokum. Samhjálp Hvítasunnu- manna hefir ekki mikinn- áhuga á orðaskaki í fjölmiðlum. Hún mun þó ekki sætta sig við óheiðarlegan áróð- ur og verjast honum af fremsta megni. í öllu falli mun hún gera allt sem hún getur til þess^að fá að starfa og segja sannleikann. „Hafi ég illa mælt, þá sanna þú, að svo hafi verið, en hafi ég rétt að mæla, hví slær þú mig?“ Höfundur er forstöðumaður Samhjátpar. Verðdæmi: F 4804 X OFN Yfir-undirhiti, biástur og grill, hvítt glerútlit, klukka kr. 39.150,- TV 483 B HELLUBORÐ Keramik yfirborð hvítur eða svartur rammi, fjórar hellur kr. 42.250,- LV 8-343 UPPÞVOTTAVÉL Hvít, 45 cm breið, 4 kerfi.hljóðlát kr. 51.550,- Funahöfða 19, sími 685680. Söluaðili ó Akureyri: Örkin hans Nóa, Glerórgötu 32. FileMaker Pro 15 klukkustunda námskeið um þetta öfluga gagnavinnslukerfí á Macintosh og PC. Spjaldskrár, límmiðar, og alls konar upplýsingaúrvinnsla verður leikur einn. Tölvu- og verkfræðiþjónustan Verkfræðistofa Halldórs Kristjánssonar Grensásvegi 16 • stofnuð 1. mars 1986 ® é> Fimmtudaginn 5. nóvember fylgir Morgunblaðinu sérblað með yfirskriftinni Tækni - á heimilinu. Þar verður fjallað um ýmsa þá tækni, sem er til staðar á nútímaheimilum og nýjungar, svo sem tækni í eldhúsinu, tölvutækni á heimilum, hljómtæki, stýrikerfi, almiðlun, símtækni og margt fleira forvitnilegt. Þeim sem áhuga hafa á að auglýsa í biaðinu er bent á auglýsingadeild Morgunblaðsins í síma 691111, en tekið verður við auglýsingapöntunum í þetta blað til kl. 11.00, mánudaginn 2. nóvember.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.