Morgunblaðið - 28.10.1992, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 28.10.1992, Qupperneq 32
J2 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. OKTOBER 1992 „Snjallræði“ - hvað er það? eftir Orm Guðjón Ormsson Því er oft svarað að fátt verði um_ svör þegar stórt er spurt. Ég ætla með þessari grein að leitast við að svara því hvað „Snjallræði“ er frá sjónarhóli hug- vitsmanns sem telur sig hafa feng- ið talsverða innsýn í og reynslu af málefnum hugvitsmanna í gegn- um tíðina. „Snjallræði" er samkeppni sem ætluð er til að örva nýsköpun og frumkvæði í íslensku atvinnulífi, eða svo er sagt í auglýsingum. Iðnaðarráðuneytið, Iðnlánasjóð- ur og Iðnþróunarsjóður fjármagna þessa hugmynd en Iðntæknistofn- un íslands (hér eftir nefnd ITI) sér um framkvæmd þessa verkefnis. Ég held ég muni rétt, að ég hafi lesið um í blöðum þar sem talað var um að þessir sjóðir og iðnaðarráðuneytið legðu saman- lagt til þessa verkefnis 40 milljón- ir kr. Þykir mér það talsverð upp- hæð, ef satt er eftir haft. Því vakn- ar sú spurning hvort þessu fé væri ekki á annan hátt betur varið til árangurs, frá sjónarhóli hugvits- . manna, en að fela það ITI til ráð- stöfunar, burtséð frá þörf ITI til nauðsynlegrar fjáröflunar fyrir sig. Ég vil vekja athygli opinberra ráðamanna og forsvarsmanna sjóða ef ætlunin er að efla og örva íslenskt hugvit og atvinnulíf með hugmyndum hugvitsmanna. Er það samdóma álit þeirra hugvits- manna sem ég þekki til, að betur MÓTORVINDINGAR og aðrar rafvélaviðgerðir á vel búnu verkstæði. RAFLAGNAÞJÓNUSTA í skipum, verksmiðjum og hjá einstaklingum. VANIR MENN vönduð vinna, áratuga reynsla. Reynið viðskiptin. Vatnagöröum 10 • Reykjavík ■H’ 685854 / 685855 • Fax: 689974 væri varið til árangurs í nýsköpun að svona upphæð væri sett í þró- unarsjóð fyrir hugmyndir sem nú þegar í sumum tilvikum er búið að styrkja með opinberu fé, en liggja hjá hugmyndasmiðum hálf- kláraðar og misjafnlega á veg komnar vegna fjárskorts. Þannig sjóður gæti t.d. verið í umsjá Rannsóknaráðs ríkisins og einungis ráðstafað í hugmyndir sem þannig er sannanlega ástatt um. Sá hugvitsmaður sem einu sinni hefur leitað til ITI með sín mál, fer ekki þangað aftur ótilkvaddur, sú er reynsla mín og margra ann- arra sem ég þekki til af þeirri stofnun. Það breytir ekki þeirri staðreynd þó haft sé eftir forsvarsmönnum Snjallræðis að ITI hafí í mörgum tilvikum aðstoðað hugvitsmenn með hugmyndir þeirra og þar hafi margt oft orðið um áþreifanlegan árangur að ræða. Þá hygg ég að þaðan hafi margur farið út fátæk- ur af visku og fé en ríkari af reynslu. Ég tel, og það eru fleiri þeirrar skoðunar, að tími sé kominn fyrir stjórnmálamenn að taka til endur- skoðunar tillegg sitt til íslensks hugvits, ef það á ekki að verða marklaust bla bla allt tal þeirra um að efla þurfi íslenskt hugvit og styrkja það til nýsköpunar og skapandi atvinnutækifæra fyrir land og lýð. Eins og svo fagurlega er kveðið að í ræðu og riti - á sunnudögum. Það er staðreynd að það er eng- inn of sæll af því að vera þeirri áráttu gæddur að velta fýrir sér hlutunum, gerast hugvitsmaður og fást við skapandi verkefni, í flest- um tilfellum á eigin vegum, í hjá- verkum. Ég þekki ekki marga sem hafa komist út úr því óskaddaðir, að segja má á sálu og líkama, að ekki sé síður talað um fjárhags- lega, eins og hlúð er að þessum „vandræða“mönnum í dag á ís- landi. Hugvitsmenn verða oft fyrir aðkasti og háði samborgara sinna, sem hættir við að líta á þá sem skrítið fólk. Þegar þeir hafa varið ómældum vinnustundum í hugmynd sína og fjármunum frá heimili sínu, oftast langt fram í tímann, segja vinir og kunningjar: „Hvernig í ósköp- unum datt þér í hug að fara út í þessa vitleysu?" En samt höldum við áfram. Það mun vera fátítt að þeir sem gerast hugmyndasmiðir séu há- tekjumenn. Þeir eru heldur ekki hámenntaðir háskólamenn. í flest- um tilfellum eru þetta menn með almenna menntun og í sumum til- vikum iðnlærðir. Ég hef ekki rekist á nein fyrir- tæki á íslandi, sem leggja fé í þró- unarverkefni og þar af leiðandi ekki ginkeyptir fyrir að kaupa hugmyndir hugvitsmanna. Þetta þarf að breytast og það er örugg- lega höfuðatriði til að koma nýjum álitlegum hugmyndum áfram í framleiðslu svo að þjóðin, fýrirtæk- in og hugvitsmaðurinn fái notið arðsins sem af því yrði. Ég ætla bara að vona að ég hafi rangt fyrir mér þegar ég segi að „Snjallræði" verði ekki til þess að bæta þar um. Framkvæmd keppninnar, eins og ég skil hana, er ekki til þess fallin. Þeir sem í úrslit komast bætast í hóp þeirra Ormur Guðjón Ormsson „ Auðvitað tel ég að ITI sé þarfleg stofnun, og hún er það á ýmsum sviðum, en hún þarf að bæta umgengni sína við íslenska hugvitsmenn til þess að þeir líti hana hýru auga, ef svo má segja.“ sem nú sitja uppi með hálfkláraðar hugmyndir, hjálparlausir og fé- vana. Auðvitað tel ég að ITI sé þarfleg stofnun, og hún er það á ýmsum sviðum, en hún þarf að bæta umgengni sína við íslenska Bamasáttmáli Sam einuðu þjóðanna eftir Láru Pálsdóttur 20. nóvember 1989 var söguleg- ur dagur í lífi þeirra tveggja millj- arða barna sem lifa í heiminum í dag. Þann dag samþykktu Samein- uðu þjóðirnar sáttmálann um rétt- indi bama sem nú er staðfestur sem alþjóðlög. Sáttmálinn var sam- þykktur án atkvæðagreiðslu sem þýðir að öll þau þjóðríki sem eiga aðild að Sameinuðu þjóðunum við- urkenni að börn og unglingar eigi réttindi sem ber að virða. Þessi lög bamanna fela í sér full mannrétt- indi allra barna og unglinga. Öll börn eiga sama rétt til að alast upp í friði og öryggi. Börn og unglingar eiga rétt á að láta í ljósi skoðanir sínar og tillit skal tekið til þeirra. Velferð barnanna á alltaf að sitja í fyrirrúmi. Það ríki sem lokar aug- unum fyrir velferð barna eða van- BRÆÐURNIR DIORMSSONHF BOSCH VERKSTÆÐI Lágmúla 9 sími 3 88 20 • Vélastillingar • Smurþjónusta • Raíviðgerðir • Ljósastillingar • Díselverkstæði rækir þarfír þeirra brýtur gegn lög- unum. Með tilkomu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna var brotið blað í réttarsögu barna. Aldrei fyrr í heimssögunni hafa mannréttindi bama verið útfærð jafn rækilega og í þessum nýja Barnasáttmála. Ný af nálinni er einnig sú staðreynd að þau þjóðríki sem fullgilt hafa sáttmálann eru lagalega bundin honum. Þau ríki sem bijóta gegn ákvæðum sáttmálans em alþjóðleg- ir lögbijótar. Barnasáttmálinn var 10 ár í smíðum. Ríkisstjórn Póllands lagði fram hugmynd um eigin lög barn- anna þegar undirbúningur fyrir Ár barnsins 1979 stóð sem hæst. Mál- inu var skotið til Mannréttinda- nefndar Sameinuðu þjóðanna í Genf sem skipaði nefnd til þess að vinna hugmyndavinnu og semja texta. í þessari 10 ára undirbúningsvinnu voru fijáls félagasamtök og líknar- félög kölluð til skrafs og ráðagerða og tillit tekið til sjónarmiða sem þau höfðu fram að færa. Þetta vinnulag er nánast einsdæmi í vinnu af þessu tagi en vissulega til fyrirmyndar. Staðreyndin er einfaldlega sú að hin fijálsu félagasamtök hafa ára- tuga reynslu af líknar- og mannúð- armálum og búa yfir þekkingu sem er afar dýrmæt. Barnasáttmálinn er mjög ýtar- legur og vekur það reyndar furðu hversu langt er gengið til þess að tryggja að réttindi barna séu virt. Nýmæli er að réttindi barna og réttur til aðstoðar eru samtvinnuð. Þetta þýðir að ekki er einungis fjall- að um rétt bama heldur einnig hvemig þessum rétti skuli fram- fylgt. Bamasáttmálinn er ekki að- eins viljayfírlýsing, hann er einnig mikilvægt og öflugt hjálpartæki fyrir börn og unglinga og aðra sem Lára Pálsdóttir „Hver kynslóð sem fæð- ist í þennan heim felur í sér fyrirheit um frið á jörð. Það er hlutverk okkar fullorðna fólks- ins að sjá til þess að að þessi fyrirheit nái að verða að veruleika.“ beijast fyrir rétti bama til betra lífs. Barnasáttmálinn skiptist í þijá höfuðþætti. I fyrsta lagi er fjallað um grundvallarmannréttindi, þ.e.a.s. daglegt lífsviðurværi, viðun- andi húsaskjól, heilsugæslu, mennt- un o.s.frv. I öðru lagi er fjallað um rétt barna til verndar gegn hvers kyns misrétti og ofbeldi. T.d. and- legu og líkamlegu ofbeldi, vændi, hugvitsmenn til þess að þeir líti hana hýru auga, ef svo má segja. Ég fékk send gögn til þátttöku í „Snjallræði", Leikreglur og Um- sókn. Jú, mér datt í hug að senda eins og tvær hugmyndir í keppn- ina. Þegar ég hafði lesið þessi blöð, komst ég að þeirri niðurstöðu að ég hefði ekki áhuga á þátttöku og ekki heldur fjárhagslega getu, ef svo líklega vildi til að ég lenti í úrslitum hennar. Gögnin era skýr og vel útfærð, vel læsileg með stóra letri, nema á bakhlið um- sóknareyðublaðs, þar er klausa með mjög smáu letri. Þetta er trú- lega gert til að sú klausa skeri sig betur úr eða þannig sko. Nú skulum við segja að ég yrði einn af átta til úrslita í fyrsta áfanga, þá ætlar ITI að verðlauna mig með 600 þúsund kr. Ég fæ það ekki í peningum heldur fæ ég það í reikningum yfir kostnað þeirra við að skoða hugmynd mína. Og gott betur, ég á greiða þeim 200 þúsund kr. til vibótar. Ég yrði að láta ellistyrkinn minn í fimm mánuði til að greiða þetta. Ef ég yrði svo vitlaus að láta mér detta í hug að ég lenti aftur í seinni áfanga, yrði einn af fjórum úr fyrsta áfanga, þá segjast þeir ætla að verðlauna mig með 1,5 milljón- um kr. En ekki í peningum held- ur, eins og áður, í reikningum og þá vantar meira því nú er ég skyld- aður að leggja fram 1,5 milljónir kr. á móti. Þá hef ég samanlagt, í báðum áföngum, lagt til 1,7 milljónir kr. í peningum. Þetta kalla þeir verð- laun. Eg fæ ekki betur séð en að það sé ég sem er að verðlauna ITI fyrir að dæma og kíkja á teikning- arnar mínar. Hvað er það? „Snjallræði". Höfundur er varaformaður og heiðursfélagi Félags ísl. hugvitsmanna. klámiðnaði, vinnuþrælkun, eitur- lyfjaneyslu o.s.frv. í þriðja lagi er fjallað um rétt barna til þess að taka þátt í umræðu og ákvarðana- töku í málum sem lúta að þeim. Grundvallarsjónarmið Barnasátt- málans er „velferð barnsins“. Mannréttindi barna eru skýlaus og án skilyrða. Einstaklingar á aldrin- um 0-18 ára eru í sáttmálanum skilgreindir sem börn. Með þessu er lögð áhersla á að uppvaxtarárin hafa sjálfstætt gildi og eru ekki einungis undirbúningur fyrir full- orðinsárin. Barnasáttmálinn leggur stjórn- völdum á herðar þá ábyrgð að vernda börn gegn líkamlegu eða andlegu ofbeldi af hálfu foreldra eða forsjáraðila. Þetta þýðir að í sumum tilvikum getur verið nauð- synlegt að aðskilja foreldra og börn. í Barnasáttmálanum er þar með viðurkennt að hagsmunir barna og fullorðinna eigi ekki alltaf samleið. Á hinn bóginn er kveðið á um rétt barna til þess að þekkja uppruna sinn og hafa samneyti við báða for- eldra. Mikilvægt er að hafa hugfast að þetta er réttur barnsins til for- eldranna en ekki réttur foreldra til barns. I Barnasáttmálanum er lögð áhersla á alþjóðlega samábyrgð. Iðnríkin skuldbinda sig til þess að vera fátækari löndum innan handar við að framfylgja sáttmálanum þannig að þau börn sem fædd eru í eymd og fátækt eygi von um mannsæmandi tilveru. Hver kyn- slóð sem fæðist í þennan heim felur í sér fyrirheit um frið á jörð. Það er hlutverk okkar fullorðna fólksins að sjá til þess að að þessi fyrirheit nái að verða að veruleika. Það er okkar ábyrgð að sjá til þess að hvert og eitt einasta mannsbarn fái möguleika til þess að blómstra og þroskast. Nú höfum við eignast öflugt tæki í baráttunni fyrir betra lífi. Látum þetta tæki ekki liggja ónotað í skrifborðsskúffum. Látum baráttuna fyrir framtíð barnanna hefjast fyrir alvöru. Höfundur er félagsráðgjafi og varaformaður Barnaheilla.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.