Morgunblaðið - 28.10.1992, Síða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER 1992
Starfsmanna-
heilsuvemd
eftír Guðrúnu
Sigurðardóttur
Áhættuþættir í starfsumhverfi
Starfsmannaheilsuvemd er þýð-
ing á enska orðinu Occupational
Health Service. Viðfangsefni hennar
er að vinna með áhættuþætti í
starfsumhverfi.
Hér erum við komin að kjama
málsins. Að vinna með áhættuþætti
í starfsumhverfinu.
Heilsuvernd á vinnustöðum
Mikil umræða um heilsuvemd á
vinnustöðum hefur átt sér stað að
undanfömu. Mörg fyrirtæki hafa
boðið starfsmönnum sínum upp á
ýmiskonar þjónustu þar að lútandi.
Sem dæmi má nefna reglubundnar
heilsufarsathuganir. Greitt er alveg
eða að hluta fyrir nudd, ýmis konar
heilsurækt, og aðgang að sundstöð-
um. Þetta er allt góðra gjalda vert
og sýnir að atvinnurekendum er
annt um starfsmenn sína. En er
þetta starfsmannaheilsuvemd?
Þetta er starfsmannaheilsuvemd ef:
— Þetta er gert á vinnutíma.
— Það sem gert er, er byggt á
áhættuþáttum í vinnuumhverf-
inu.
Að leggja fé í heilsuvernd
starfsmanna
En skiptir þetta máli? Á evrópsku
vinnuvemdarári hljótum við að
staldra við og hugsa okkar gang.
Nú er lag fyrir atvinnurekendur,
launþega, verkalýðshreyfinguna,
heilbrigðisyfirvöld og stjóm Vinnu-
eftirlits ríkisins að staldra við og
skoða þessi mál vandlega. Það þarf
m.a. að skoða hvenær er verið að
leggja fé í heilsuvemd starfsmanna
samkvæmt XI. kafla vinnuverndar-
laganna og hvenær er verið að
leggja fé í meðferð eða almenna
heilbrigðisþjónustu.
Heilsufarsstimpill?
Því miður býr heilbrigðisþjónust-
an í heiminum ekki yfír neinu því
tæki sem hægt er að setja fólk í
og út komi einstaklingur sem hefur
verið skoðaður frá toppi til táar og
fengið stimpillinn 1. flokkur, eða
það er ekkert að. Minnt skal á að
huliðstími margra krabbameina er
um 20 ár.
Það verða allir að gera sér grein
fyrir að allar mælingar/rannsóknir
sem gerðar em á fólki, sýna aðeins
hvemig ástandið var á þeirri mínútu
sem mælingar/rannsóknir voru
gerðar.
_________Brids___________
Umsjón ArnórG. Ragnarsson
Bridsfélag Sauðárkróks
Mánudaginn 26. október var spiluð
2. umferð í úrstlitakeppninni.
Staðan eftir tvær umferðir:
Kristján Blöndal - Bjami Brynjólfsson 57
SteinunnHlöðversd.-SigrúnAngantýsd. 39
Haukur Haraldss. — Erla Guðjónsd. 20
Páll Hjáimarss. - Gunnar Þórðars. 10
Hæsta skor síðasta spilakvöld:
Erla Guðjónsdóttir - Haukur Haraldss. 28
SigurgeirÞórarin8s.-GunnarGuðjónss. 19
Kristján Blöndal - Bjami Brynjólfss. 17
Bridsdeild
Barðstrendingafélagsins
Fjórar umferðir era búnar í aðaltví-
menningi deildarinnar og er staða
efstu para nú þessi:
Hannes Ingibergsson - Jónína Halldórsdóttir 702
GunnarPétureson-AllanSveinbjömsson 685
AntonSigurðsson-ÁmiMagnússon 666
RagnarBjömsson-LeifurJóhannsson 662
HaraldurSverrisson-LeifurKr.Jóhannesson 657
ÞórarinnÁmason-GísliVíglundsson 657
Hæsta skor í A-riðli síðast:
Sigurður ísaksson - Edda Thorlacius 186
GunnarPétureson-AllanSveinbjömsson 183
Þórarinn Ámason - Gísli Víglundsson 177
Hæsta skor í B-riðli:
RagnarBjömsson-LeifurJóhannsson 182
Sérfræðingar í heilbrigði
En höfum við sérfræðingarnir í
heilbrigði kannski alið almenning
upp í þeirri trú að hægt sé að gefa
áðumefndan stimpil? Er það þess-
vegna sem fólk er reiðubúnara að
mæta í rannsóknir eða líkamsskoð-
anir heldur en að sitja fræðslufundi
um áhættuþætti í vinnuumhverfi?
Er það þess vegna sem atvinnurek-
endur era frekar reiðubúnir að
greiða fyrir heilsufarsathuganir á
starfsmönnum heldur en að halda
vinnustaðafundi í vinnutíma um
áhættuþætti í starfsumhverfinu og
áhrif þeirra á heilbrigði starfs-
manna?
Að segja_____
Það er erfítt að segja fólki hvem-
ig áhættuþættir í starfsumhverfi
hafa áhrif á heilsufar þess þegar
það hefur fengið niðustöður sem
sýna að heilsufarsathuganir eða
rannsóknir séu eðlilegar. Fólk situr
sælt í þeirri trú að ekkert sé að.
„Það bítur ekkert á mig. Sjáið, ég
reyki pakka á dag og er búin að
vinn í þessu ryki og skít í 10 ár.
Mér var sagt að lungun væra hrein.“
En það er einmitt það sem þarf
að gera. Að segja starfsmönnum frá
hvaða líkur séu á því að áhættuþætt-
ir í vinnuumhverfí þeirra hafí áhrif
á heilsufar þeirra og líðan. Það verð-
ur að segja þeim hvemig þeir geti
minnkað þessa áhættu. Með því t.d.
að breyta hegðunarmynstri sínu.
Það þarf að segja atvinnurekendum
frá því sama svo að þeir geti breytt
og bætt vinnuumhverfið og komið
þannig í veg fyrir eða minnkað lík-
urnar á að starfsmenn þeirra verði
fyrir heilsutjóni eða slysi. Það verð-
ur að segja atvinnurekendum hvem-
ig fjárfesting í bættum aðbúnaði og
„hér gildir sú regla að allir starfs-
menn noti persónuhlífar" skili sér
til baka samanber fækkun dauða-
slysa í byggingariðnaði. Það þarf
að segja atvinnurekendum frá hve-
nær þeir era að fjárfesta í réttum
hlutum. Síðan geta þeir lagt eins
mikið fé og þeir vilja í aðra heilbrigð-
isþjónustu sem ekki er bundin
AntonSigurðsson-ÁrniMagnússon 182
Hannes Ingibergsson - Jónína Halldórsdóttir 177
Bridsfélag Kópavogs
Sl. fímmtudag lauk hraðsveita-
keppninni með sigri sveitar Magnúsar
Torfasonar. Með honum spiluðu Sig-
tryggur Sigtryggsson, Gísli Torfason,
Hjálmtýr Baldursson og Karl Her-
mannsson.
Lokastaðan:
Magnús Torfason 1622
Ingvaldur Gústafsson 1614
HelgiViborg 1585
Sveitin fyrir sunnan 1557
Guðmundur Pálsson 1557
Sigurður Siguijónsson 1539
Kvöldskor:
Guðmundur Pálsson 566
Ingvaldur Gústafsson 558
Sigurður Siguijónsson 538
Næsta fimmtudag verður spilaður
eins kvölds tvímenningur, en fímmtu-
daginn 5. nóv. hefst 6 kvölda barómet-
er. Skráning er þegar hafín og er
væntanlegum þátttakendum bent á
að skrá sig sem fyrst hjá Þorsteini
hs. 40648 vs. 73050 eða hjá Her-
manni 41507.
Bridsfélag byrjenda
Þijátíu pör mættu sl. þriðjudag og
var að venju spilaður Michell-tvímenn-
ingur.
Guðrún Sigurðardóttir
áhættuþáttum í vinnuumhverfí
starfsmanna.
Heymarmælingar á vinnustöðum
er eitt atriði sem mikið hefur verið
barist fyrir sl. ár. Það er ekki nóg
að mæla heym starfsmanna. Það
þarf að nota niðurstöðumar til að
segja starfsmönnum hvernig og
hvaða áhrif hávaðinn hefur á heyrn-
ina. Það þarf að segja þeim hvemig
heymarhlífar eða tappar veija
heymina. Það þarf að hlusta á um-
kvartanir starfsmanna varðandi
notkun hlífa og finna lausnir með
þeim.
Hver tekur ákvörðunina?
Það er hægt að mæla margt,
bæði í vinnuumhverfinu og hjá
starfsmanninum. Það er hægt að
segja starfsmönnum hvemig þeir
eiga að hegða sér og hvaða persónu-
hlífar þeir eiga að nota. En það er
starfsmaðurinn sem fyrst og síðast
ákveður hvort hann fer eftir því sem
honum er sagt.
Það er þetta sem atvinnurekendur
eiga að greiða fyrir. Það er þetta
sem starfsmenn eiga að taka þátt
í. Það er þetta sem heilsugæslu-
stöðvarnar í landinu eiga að vinna
markvisst að. Það er þetta sem
Vinnueftirlit ríkisins á að búa til
starfsramma um.
Eg hvet hvem einasta launþega
og atvinnurekanda, að leggjast á
eitt í tilefni af evrópska vinnuvemd-
arárinu til að skoða nánasta
starfsumhverfi sitt m.t.t. áhættu-
þátta. Vinna með þessa áhættu-
þætti, okkur öllum til hagsbóta.
Þannig leggjum við okkar lóð á
vogarskálina til að ná markmiði
Alþjóða heilbrigðismálastofnunar-
innar (WHO) að allir starfsmenn
eigi kost á starfsmannaheilsuvernd
fyrir árið 2000.
Höfundur lauk sémámi í
starfsmannaheilsuvemd frá
Sænska vinnueftirlitinu 1986 og
er hjúkrunarfrædingur í
starfsmannaheilsuvernd.
Hæsta skor í N/S:
ÓlafúrHand-SigurðurPállHauksson 304
DagrúnHauksdóttir-BorgþórBjamason 262
Amar Eyþórsson - Björk Lind Óskarsdóttir 248
Daisy Karlsdóttir - Ragnheiður Guðmundsd. 241
Óskar Mapússon - Einar Rafnsson 241
Hæsta skor í A/V:
Gunnar Hámundason - Þorleifur Þórarinsson 294
Álfheiður Gísladóttir - Pálmi Gunnarsson 249
María Jónsdóttir - Þorbjörg Bjamadóttir 239
KolbrúnThomas-EinarPétursson 234
Næsta spilakvöld er 3. nóvember
nk.
íslandsmót kvenna og yngri
spilara í tvímenningi 1992
Skráning í íslandsmót kvenna og
yngri spilara í tvímenningi 1992 stend-
ur nú yfír hjá Bridssambandi íslands
í síma 91-689360. Mótið verður haldið
helgina 14.-15. nóvember nk. í Sig-
túni 9. Keppnisgjald verður það sama
og síðasta ár, 4.000 kr. á parið. Keppn-
isstjóri verður Kristján Hauksson og
spilaður verður barómeter, tvö spil á
milli para. Skráningarfrestur er til
fimmtudagsins 12. nóvember. Áætlað
er að mótið hefjist kl. 13 laugardaginn
14. nóvember, en öll tímaáætlunin
miðast við fjölda para svo hún getur
breyst og verður ekki endanleg fyrr
en að lokinni skráningu. Til yngri spil-
ara teljast þeir sem fæddir era 1968
og síðar. Vinsamlega látið skrá ykkur
sem fyrst.