Morgunblaðið - 28.10.1992, Side 38

Morgunblaðið - 28.10.1992, Side 38
38 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER 1992 fclk f fréttum Jet Black Joe leikur lög af breiðskífu sinni. Morgunblaðið/Sverrir COSPER ÚTGÁFA Rokk og jass á Fógetanum Hljómplötuútgáfa haustsins er sem óðast að komast á fullan skrið og í síðustu viku efndu Stein- ar hf. til fyrsta útgáfuteitisins af mörgum. Þar var kynnt útgáfa tveggja breiðskífna ólíkrar gerðar, því Kuran Swing kynnti jassplötu sem ber heiti sveitarinnar, og rokksveitin Jet Black Joe kynni rokkskífu sem ber einnig heiti sveitarinnar. Fjölmargir gestir voru á staðnum, þágu veitingar og skemmtu sér vel við að hlýða á leik sveitanna. Nvjar vörur Kringlukast 27., 28. og 29. okt. 20% afsláttur af drögtum, kjólum og stökum jökkum JOSS ^______v Kringlunni 8-12 Sími 689150 YFIRREIÐ Heilbrigðisráðherra a ferð um Heilbrigðis- og tryggingamála- ráðherra, Sighvatur Björg- vinsson, og frítt föruneyti ráðu- neytismanna og maka þeirra, var á ferð um norðanverða Vestfirði fyrir skemmstu. Ferðuðust þau milli staða og ræddu við starfs- menn og stjórnendur sjúkrahúsa og heilsugæslustöðva á svæðinu auk sveitarstjórnarmanna. Til- gangur ferðarinnar var m.a. að kynna sér aðstæður á hverjum stað fyrir sig. Vestfirði Á Suðureyri skoðaði hópurinn m.a. húsnæði heilsugæslustöðvar- innar á Túngötu 2 sem einnig hýsir dagdeild aldraða. Húsnæðið hefur verið mikið endurbætt á liðnu sumri og var húsið m.a. klætt að utan með stálklæðningu auk annarra minni viðhaldsverka. iAð loknu kaffiboði og spjalli við heimamenn kvaddi hópurinn Súð- ureyri og hélt til Bolungarvíkur í sömu erindagjörðum. - Sturla. Arnór Jónsson, 4 ára drengur úr Garðabæ, varð hlutskarpastur í verðlaunagetraun Vara. Hlaut hann ýmis eldvarnartæki í verðlaun. FORELDRASAMTÖK Fjölskyldudag- ur í Perlunni að var margt um manninn í Perlunni sunnudaginn 18. október þegar Foreldrasamtökin, landssamtök foreldrafélaga og áhugafólks um málefni barna, efndu til fjölskyldudags. Tilgangurinn var að fá börn og foreldra til að eiga ánægjulega stund saman, auk þess sem sérstök áhersla var lögð á ör- yggi barna á heimilum. Börn sáu um skemmtiatriðin, nemendur úr Tónlistarskólanum á Seltjamarnesi léku á hljóðfæri, barnakór Grensáskirkju söng og Rokklingarnir tóku nokkur lög við góðar undirtektir. Unglingar úr Tónabæ máluðu andlit þeirra sem vildu og vakti það mikla hrifningu, einnig var almenn ánægja með ýmis leiktæki sem voru gestum til afnota. Lögregla og slökkvilið mættu í full- um skrúða og vöktu verðskuldaða athygli. Slökkviliðsmenn sýndu gest- um meðal annars hvernig bregðast Faxafeni 9, 108 Reykjavík, sími 679299 Bjóðum upp ó ráógjöf um meðferð hárs fyrir fólk á öllum aldri. Leiðsögn í klippingu, litun, álstrípum, „jetting", blásturspermanenti og greiðslu. Ráðgjafi frá Matrix og Sebastian veita ráðgjöf um meðferð efna. Námskeiðin verða 2., 3., 4., 9., 10. og 11. nóv. Tímapantanir í síma 679299. Hárgreiðslumeistararnir Inga, Ásta, Erla og Indjana. i. 2

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.