Morgunblaðið - 30.12.1992, Side 1

Morgunblaðið - 30.12.1992, Side 1
64 SIÐUR B/C 297. tbl. 80. árg. MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1992 Prentsmiðja Morgunblaðsins Dýrkeypt kossaflens Seoul. Reuter. LÖGREGLAN í Seoul handsam- aði í gær 37 ára gamla barþernu sem beit tunguna af tónlistar- manni og gleypti hana. Maður- inn hafði kysst konuna án þess að biðja um leyfi. „Ég var drukk- in þegar þetta gerðist. Ég beit tunguna af honum því mér brá svo þegar hann stökk á mig og kyssti,“ sagði konan við lögregl- una. Tónlistarmaðurinn vann á barnum hennar og hyggst ekki kæra hana. Lokahönd lögð á STARTII samning Rússlands o g Bandaríkjanna Kj amavopnum fækk- að um tvo þriðju hluta Forsetar ríkjanna kunna að undirrita samninginn í næstu viku 1 Genf. Reuter. Utanríkisráðherrar Bandaríkjanna og Rússlands lögðu í gær lokahönd á nýjan afvopnunarsamning, START II. Samningur- inn bíður nú samþykkis forseta ríkjanna. Lawrence Eagleburg- er, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, kvaðst vona að niður- staða þeirra George Bush Bandaríkjaforseta og Borís Jelts- íns, forseta Rússlands, gæti legið fyrir á næstu dögum. Er talið að samþykki forsetarnir samninginn verði hann undirrit- aður á leiðtogafundi í rússnesku borginni Sotsjí í næstu viku. Samningur- inn kveður á um að kjarnavopn- um í vopnabúr- um ríkjanna tveggja verði fækkað um tvo þriðju hluta og öllum íjölodda eldflaugum á landi verði eytt. Samkvæmt fyrri Eagleburger afvopnunarsamn- Brögð í tafli í Kenýu Reuter Fyrstu fjölflokkakosningarnar í Kenýu í aldarfjórðung fóru fram í gær. Fregnir fóru af víðtæku svindli og kosningaóreiðu, einkum þar sem stjórnarandstæðingar eru taldir sterkastir. 713 menn voru í framboði til þings landsins og átta til forsetaembættisins, þeirra á meðal Daniel Arap Moi, sem gegnt hefur embættinu í 14 ár. A myndinni standa kjósendur í biðröðum við kjörstað í borginni Kabarnet. ingi ríkjanna, START I, var kjarna- vopnum fækkað um 30%, en ekki hróflað við fjölodda flaugum. Fram- kvæmd START I samningsins þykir hins vegar hafa miðað hægt. Samningamenn ríkjanna tveggja hafa að undanförnu deilt um eld- flaugabyrgi á rússnesku landsvæði sem hýsa SS 18 kjarnaflaugar, af- drif SS 19 flauga og vopn um borð í bandarískum sprengjuflugvélum. Bandaríkjamenn kröfðust þess að rússnesku skotbyrgin yrðu upprætt þegar flaugunum sem þau hýsa yrði eytt. Hafa þeir nú fallist' a að Rússar noti byrgin undir SS 25 kjarnaflaug- ar, sem eru færanlegar. Lækkun á flugfar- gjöldum Kaupmannahöfn. Frá Nils Jorgen Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins. ÞÝSKA flugfélagið Lufthansa olli miklu uppnámi í herbúðum ann- arra evrópskra flugfélaga þegar það tilkynnti í auglýsingum að það hygðist lækka flugfargjöld innan Evrópubandalagsins um allt að helming um áramótin. Nýjar og opnari reglur um flug- mál taka gildi innan bandalagsins 1. janúar og er búist við stóraukinni samkeppni evrópskra flugfélaga í kjölfarið og ákvörðun Lufthansa er talin til marks um að harðvítugt far- gjaldastríð sé í þann mund að hefjast. Skandínavíska flugfélagið SAS til- kynnti þannig í gær að það hygðist bjóða sömu fargjöld og Lufthansa til Grikklands, Frakklands, Ítalíu, Spán- ar og Portúgals. Fulltrúar nokkurra annarra flugfélaga gáfu þó í skyn að þau ætiuðu ekki að fara að dæmi SAS. Milan Panic knúinn til að segja af sér Belgrad. Reutcr. ÞING Júgóslavíu, sambandsríkis Serbíu og Svartfjallalands, sam- þykkti í gær tillögu um vantraust á Milan Panic, forsætisráðherra rikisins. Samkvæmt stjórnar- skránni verður hann að segja af sér en getur gegnt embættinu til bráðabirgða þar til nýtt þing kem- ur saman í næstu viku. Samþykkt þingsins er mikill sigur fyrir Slobodan Milosevic, forseta Serb- iu, sem hefur kynt undir stríðinu í Bosniu og barist fyrir stofnun „Stór-Serbíu“. Efri deildin samþykkti tillöguna með 30 atkvæðum gegn fimm, en eitt atkvæði var ógilt. I neðri deild- inni greiddu 95 þingmenn atkvæði með tillögunni, aðeins tveir á móti og 12 sátu hjá. Nýtt þing kemur saman í næstu viku eftir að úrslit Fallinn Reuter Panic verður að segja af sér emb- ætti forsætisráðherra Júgóslavíu. Bush vill undirrita samninginn Eagleburger og Kozyrev, utan- ríkisráðherra Rússlands, tilkynntu um samkomulagið á blaðamanna- fundi að loknum tveggja daga löng- um viðræðum í Genf. Talið er að Bush forseti hafí lagt fast að emb- ættismönnum að koma samningnum í höfn, þar sem aðeins þijár vikur eru til stefnu áður en hann lætur af embætti. Forsetinn hefur látið þau orð falla að hann hafi átt þátt í því að lyfta oki kjarnorkuógnarinnar af mannkyninu, og telja fréttaskýrend- ur að START II sé höfuðatriði i þeirri viðleitni hans. þingkosninganna 20. desember verða gerð opinber, en þangað til situr gamla þingið. Flokkur serbneskra þjóðemis- sinna, Róttæki flokkurinn, lagði fram vantrauststillöguna. Búist er við að flokkurinn myndi stjórn með Sósíal- istaflokki Slobodans Milosevics. Rót- tæki flokkurinn hefur aðeins átt einn þingmann á serbneska þinginu en fékk 73 þingsæti í kosningunum. Múslimar undirbúa sókn Mik Magnusson, talsmaður Sam- einuðu þjóðanna í Bosníu, skýrði frá því í gær að 10.000 múslimskir her- menn hefðu safnast saman á fjalli í grennd við Sarajevo og taldi að þeir víöru að undirbúa stórsókn gegn Serbum til að binda enda á umsátur þeirra um borgina. Sea Shepherd Tveir menn veittu Wat- son aðstoð TALSMAÐUR Sea Shepherd samtakanna i Santa Monica í Kaliforniu sagði i samtali við Morgunblaðið í gær að tveir liðsmenn O.R.C.A. hefðu aðstoðað Paul Watson við tilraun hans til að sökkva norska hvalbátnum Nybræna á annan í jólum. O.R.C.A. (Oceanic Research and Con- servation Action) eru samtök sem bera ábyrgð á aðgerðum Sea Shepherd á landi. Watson var væntanlegur til Los Angeles um tvöleytið í nótt að ísl. tíma, að sögn Peters Bralvirs á skrifstofu Sea Shep- herd. Watson hefur lýst verkn- aðinum á hendur samtökunum og segir að látið verði til skarar skríða gegn öðrum „ólöglegum hvalbátum" á næstunni. Aðgerðir ekki ráðgerðar á Islandi Magnús Skarphéðinsson, talsmaður Hvalavinafélagsins, segir að engar aðgerðir hafi verið skipulagðar hér á landi. Að sögn fréttastofunnar NTB hefur norska lögreglan ekki beðið bandarísk yfirvöld um hjálp við að hafa hendur í hári Watsons.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.