Morgunblaðið - 30.12.1992, Síða 16

Morgunblaðið - 30.12.1992, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1992 Umrugl eftirJón Steinar Gunnlaugsson i. í febrúarmánuði sl. fékk ég birta stutta grein hér í blaðinu undir fyr- irsögninni „Fyrir bömin okkar“. Til- efni greinarinnar var hálfgerð mú- gæsing sem þá hafði gripið um sig vegna fyrirætlana ríkisstjómarinnar um að skera niður útgjöld til svo- nefnds velferðarkerfis. Gat ég þess, að æsingar hefðu orðið að miklu leyti að undirlagi opinberra starfsmanna, m.a. úr hópi kennara. Var vikið að stofnun samtaka múgæsingarmanna sem kölluðu sig „Almannaheill" og sögðust í undirtitli vera samtök um réttlæti. Erindi greinarinnar var að benda á að illt væri að kenna þá starfsemi við „heill“ og „réttlæti" sem miðaði að því að fá að halda uppi velferðarkerfi í dag en láta böm- in okkar borga kostnaðinn af því síð- ar. Var þetta í grein minni talinn viðsnúningur á merkingu þessara orða. Væri nær að stofna samtök gegn þeirri hálfglæpsamlegu stefnu að skrifa kostnaðinn við lifnaðar- hætti okkar hjá bömunum okkar. Enginn vandi væri að ná miklu meiri árangri í niðurskurði ríkisútgjalda, en eiga samt nóg fé til útgjalda til hagsbóta þeim, sem eiga undir högg að sækja. Ég átti svo sem von á því að ein- hver hinna ötulu baráttumanna gegn niðurskurði ríkisútgjalda myndi reyna að svara greinarkorni mínu einhveiju. Það varð ekki. Og ekki hefur heyrst mikið frá starfsemi sam- takanna um réttlætið síðan, hveiju sem það er að þakka. Hitt gerðist svo núna íjólabókaflóðinu, að athygli mín var vakin á iitlum kafla í bók eftir ríkisstarfsmann úr hópi há- skólakennara, þar sem vikið er að grein minni. Var þar kominn Þor- steinn Gylfason, prófessor í heim- speki við Háskóla Islands, í bók sem hann kallar „Tilraun um heiminn". Hefur hann svo mikið við að eigna mér lítinn kafla í bókinni, sem hann nefnir„rugl“, en það er sú einkunn, sem hann þar gefur þessari litlu blaðagrein frá í febrúar. Ég fór að halda að greinin hefði kannski verið einhvers virði. II. Við lestur bókarkaflans varð mér strax ljóst að hér var ekki annað á ferðinni en sams konar þrætubók með útúrsnúningum og er því miður allt of algeng í dægurþrasi stjóm- málabaráttunnar á Íslandi. Mér fannst bókarkaflinn aðeins hafa að geyma eitthvað sem vel mætti kalla rugl af höfundarins hálfu. Stóð hann að því leyti undir nafni. Undarlegast var að maðurinn skyldi ekki frekar velja sér annan vettvang en þessa bók sína, sem greinilega er ætlað að vera innlegg í fræðigreinina sem honum hefur verið trúað fyrir að kenna í Háskólanum gegn greiðslu af almannafé. Ég hélt raunar að í háskólafræðum væru gerðar meiri kröfur en í dægurþrasinu. Þar væru t.d. útúrsnúningar óheimilir. Ljóst er a.m.k. aðþessi háskólamaður upp- fyllir ekki þær kröfur. Hann um það. Aðalrangfærsla Þorsteins Gylfa- sonar um grein mína er sú, að hann gerir mér upp þá skoðun, að aldrei sé réttlætanlegt að taka lán sem kunni að lenda á eftirkomendum lán- takans að borga. Þetta hef ég aldrei sagt og er reyndar alls ekki þessarar skoðunar. Hér beitir hann þeirri „list“ þrætubókarinnar að byija á að srtúa við merkingu þess, sem hann ætlar að svara, svo að betur henti svarinu. Að mínu áliti kunna lántökur vita- skuld að vera réttlætanlegar, þó að svona standi á um endurgreiðslurn- ar. Það er fyrst og fremst í þeim tilvikum að ráðstöfun lánsfjárins komi þessum efirkomendum til góða, þ.e.a.s. geri þá betur stadda fjár- hagslega heldur en annars hefði ver- ið. Ég tel ekki réttlætanlegt að Þor- steinn Gylfason, eða hvaða maður annar sem er, fái upp á sjálfdæmi sitt að kosta neyslu sína með lánum, sem afkomendur hans þurfa að borga. Skiptir þá engu máli hvort neyslan er í hófi eða óhófi. Aðalá- stæðan fyrir þessu er sú, að með því að þurfa að greiða kostnaðinn af neyslu Þorsteins eru skertir mögu- leikar afkomenda hans til að kosta sína eigin neyslu. Ef við hins vegar tökum lán t.d. til þess að byggja upp hluti sem borga sig sjálfir, þ.e.a.s. ef verðmætin sem fyrir lánið koma og arðurinn af þeim eru samanlagt meira virði en lánið sem þarf að endurgreiða og vextirnir af því, þá finnst mér lántakan réttlætanleg. Enginn segir að alltaf þurfi að vera auðvelt að draga mörkin, sem hér ættu að gilda. Meginhugmyndin hef- ur engu að síður fullt gildi. í grein minni var ekki gefíð hið minnsta til- Jón Steinar Gunnlaugsson „Hann freistast til að láta vörslu sinna eigin hagsmuna spilla fyrir fræðimennsku sinni.“ efni til þeirra útúrsnúninga um þetta, sem verða uppistaðan í bókarkafla prófessorsins. m. Ég get alveg fallist á það sem fram kemur í bók Þorsteins Gylfa- sonar, að menn hafa mismunandi hugmyndir um réttlæti. Það sem er réttlæti eins er ranglæti annars. Þetta kemur t.d. vel fram við rekstur dómsmála. Þar er réttlæti annars málsaðilans oft ranglæti hins. Það er jafnvel hugsanlegt, að menn hrein- lega gefist upp á réttlætinu, eftir að hafa séð hversu erfitt það er viður- eignar. Hver og einn maður metur þetta fyrir sjálfan sig. Sá sem vill kalla það réttlætismál, að menn borgi sjálfir kostnaðinn við eigin neyslu svo að aðrir hafi jafna möguleika til sinnar neyslu, hann er í fullum rétti til að skýra öðrum frá þessari hug- mynd sinni um réttlæti og vinna henni fylgi. Og sá sem hafnar þessu t.d. vegna þess að hann telur sína eigin neyslu þýðingarmeiri en neyslu annarra, hann er líka í sínum fulla rétti til að reyna að vinna aðra á sitt band, þó að ekki sé líklegt að honum verði mikið ágengt. Það er allt í lagi þó að báðir noti orðið rétt- læti um hugmyndir sínar, vegna þess að þeir eru bara að skýra frá sínum eigin hugmyndum um hvað sé réttl- átt og öðrum er það ljóst. IV. Þorsteinn Gylfason er háskóla- kennari og þiggur laun úr ríkissjóði. Niðurskurður ríkisútgjalda, _t.d. til að kosta starfsemi Háskóla íslands, er til þess fallinn að draga úr ýmsum möguleikum hans í starfinu. Hann gæti jafnvel misst það. Það er greini- legt að honum hugnast ekki að menn skuli opinberlega styðja stjórnar- stefnu, sem gæti haft þessar afleið- ingar. Þegar hann tekur í bók sinni dæmi af blaðaskrifum mínum um þetta, snýr út úr þeim og kallar þau rugl, þá er honum ekki sjálfrátt. Hann freistast til að láta vörslu sinna eigin hagsmuna spilla fyrir fræðimennsku sinni. Þess vegna verður bókarkaflinn ekkert annað en lýsing hans á sjálfum sér. Ég er líka viss um að hann er miklu betur fær um að lýsa sjálfum sér heldur en mér. Höfundur er hæstaréttar- lögmaður. > Öfugþróiin í sjávarútvegi eftir Önund * Asgeirsson Mikið er skrifað og skeggrætt um afkomu sjávarútvegsins nú og eru þar mörg spjót á lofti í senn. Allt bendir til þess að hin ramm-íslenska stefna að hagsmunaaðilamir séu beztu umsagnaraðilar í hveijum málaflokki sé bara misskilningur. í sjávarútvegi láta menn sem þeir viti ekki að Höður hinn blindi hefir fyrir löngu skotið mistilteininum að Baldri sem nú gistir Hel. Stórir og aflmikl- ir skutttogarar hafa sjálfir sannað að þeir eru gjöreyðingartæki í fisk- veiðum, sem ekki eiga sér lengur tilverurétt. LÍÚ hefur verið slæmur ráðgjafi gagnvart stjómvöldum og enn verri gagnvart meðlimum sínum, útgerð- unum, sem keppast við að breyta gömlum skipum sínum og byggja ný. Stærri og aflmeiri fyrstiskip en nokkru sinni fyrr. Nú blasir landauðn við landsmönnum, ef ekki verður strax breytt um stefnu í útgerðar- málum. Þetta á ekki aðeins við Vest- firði, sem fram til þessa hafa verið taldir bezta veiðislóð landsins, heldur einnig um allar aðrar veiðislóðir. Hin fullkomna tækni veiðiskipanna legg- ur allt í rúst. Fyrirhyggjuleysið er algjört. Nú byggja menn frystitogara sem kosta almennt 800-1.000 milljónir og allt upp í 1.350 milljónir með tækjabúnaði, en án veiðarfæra. Rekstrargrundvöllur frystitogara Samkvæmt nýútgefnum atvinnu- vegaskýrslum Þjóðhagsstofnunar nam beinn rekstrarkostnaður frysti- togara 74% af rekstrartekjum, án fjármagnskostnaðar á árinu 1988. Gefum okkur, að þessi nýju skip veiði jafnt og bezti frystitogari lands- ins, Akureyrin, gerði 1981, eða fyrir 604 mkr. og ennfremur að afskriftir, vextir og verðbreytingarfærslur nemi 26% af tekjum, svo sem fram kemur af gögnum Þjóðhagsstofnunar, þá verða dæmin svona fyrir þessi nýju skip: Kostnaðarverð skips (mkr.) Rekstrartekjur: Beinn rekstrarkostnaður (74%) Tekjur án fjármagnskostnaðar Afskriftir, vextir og verðbreyting- arfærslur (26%) Bókhaldslegt tap: „Hugmyndafræði Sam- bands-framsóknar- manna er lævís. Hrun SÍS ætti að vera nægi- leg aðvörun, enda sam- félaginu dýrt. Punktur. Skammturinn er orðinn of stór.“ þannig 123 mkr. upp á að meðaltals- skipið nái Akureyrinni í aflaverð- mæti. Miðað við framangreinda út- 1.350 1.000 800 600 604 604 604 604 448 448 448 448 156 156 156 156 351 260 208 156 193 102 50 + 2 Hér hefir verið gengið út frá því að þessi nýju og dýru skip gætu veitt til jafns við Akureyrina, 18 ára gamla, sem breytt var í frystiskip 1983. En fyrir því er engin trygging, þvf að það vantar nefnilega bæði ' kvóta og fiskinn í sjónum, sem skut- togararnir hafa eytt á undanförnum 20 árum. Árið 1991 voru 25 frystiskip á veiðum og meðaltalsaflaverðmæti voru 381 mkr. á árinu. Það vantar reikninga, myndi 600 mkr. frystiskip tapa 57 mkr. á rekstrarárinu. Það er þannig enginn rekstrargrundvöll- ur fyrir þessu skipi. Stjórnvöld geta ekkert gert fyrir slíka útgerð, nema með þeirri hefðbundnu aðgerð að stela frá almenningi til að bæta skaða útgerðarinnar. Þetta hefir verið gert með aðferðum Framsóknarflokksins á undanförnum árum, þ.e. stofnað er til sjóða á vegum ríkisins, sem lána fé til gjaldþrota félaga, sem Friðsæl jól í Stykkishólmi Stykkishólmi í desember. HÉR I Hólminum áttu borgarar og gestir friðsæl jól. Margir vitjuðu heimahaga og gamalla ættingja og vina. Á sjúkrahúsi og dvalarheim- ili var allt tíðindalítið og ekkert í frásögur færandi, nema að þar voru jólamessur og bænastundir. Kirkjusókn var góð þegar tekið er til veður- ofsans sem æddi um bæ og sveitir með annaðhvort éljum eða rigningu og af þeim krafti að við sannfærðumst um að Kári gefur ekki eftir þegar hann er í ham. Hvítasunnusöfnuðurinn hélt sína jólasamkomu með indælli stemmn- ingu og hátíðarhug eins og vant er. Ekkert tjón er vitað um af völdum veðurs, hvorki í höfninni, þar leið bátunum vel, né á fjallvegum og þótt Kerlingarskarð væri byljótt, komust allir með guðs hjálp leiðar sinnar. Flóabáturinn Baldur hélt einnig sínu striki, enda byggður til stórræða og storma á Breiðafirði. Og leikféiag- ið Grímnir hafði miðnæturleiksýn- ingu á leikritinu Síldin kemur og síld- in fer þrátt fyrir óhagstætt veður. Hótelið og Knútsen buðu upp á skötuveislu á Þorláksmessu og þótti takast vel. Mikar skreytingar voru að venju á bænum og kirkjugarðurinn lýstur og merkilegt hvað vindurinn lét það allt í friði. Á þriðja í jólum var svo haldin hin árlega jólatrésskemmtun barnanna (barnaballið) þar sem var húsfyllir í félagsheimilinu og sókn barna og foreldra mikil. — Árni. aldrei greiða það aftur, enda ekki til þess ætlast. Þetta sýnist refsilaust, a.m.k. nefnir enginn annað en þetta sé sjálfsagt, jafnvel þótt vitað sé að samfélagið hefir þegar brotnað und- an álaginu. Fjármögnun offjárfestingarinnar Sú stefna ríkir nú í fjárfestingar- málum útgerðarinnar, að lánastofn- anir, aðallega sjóðir og bankar, lána allt að % hluta kostnaðarverðs fiski- skipa, en áður var þetta hlutfall um 85%. Því á útgerð, sem kaupir frysti- togara fyrir 1.350 mkr. „rétt“ á lána- fyrirgreiðslu allt að 900 mkr. Þetta gildir alveg jafnt, þótt rekstraráætl- anir sýni stórfellt tap, sbr. að ofan, og eins þótt enginn fiskur sé í sjón- um, og þannig fyrirsjáanlegt að lítinn afla sé þaðan að hafa. Eina umsögn stjórnvalda er frá sjávarútvegsráð- herranum, sem segir að „útgerðin verði að vinna sig út úr vandanum". Það skiptir engu máli, þótt vitað sé að þetta sé ekki hægt. Það verður nefnilega ekki aftur tekið, sem þegar hefir verið gert og orðið er að stað- reyndum. Helgi Ólafsson, hagfræðingur, hefir nýlega gengið frá skýrslu fyrir Seðlabankann um efnahag sjávarút- vegsins, sem sýnir þetta í áþreifan- legum og augljósum tölum: Önundur Ásgeirsson og mun fljótlega fá sömu hækkun og verður þá heildarhækun á skuld- um útgerðarinnar 6,38% af 93.018 mkr. eða 5.935 mkr. Þetta gengistap bætist við 8.000 mkr. tap á höfuð- stól á sl. 3 árum og verður þá heild- artap sjávarútvegsins um 14 millj- arðar á þessum stutta tíma. Talsmað- ur Sambandsfrystihúsanna óttast lietta þó ekki. Hann vildi fyrir nær ári fá 28% gengislækkun, sem nú myndi hafa því nær þurrkað út allt eigið fé í greininni, og það verður ekki séð, hvar taka eigi fé til áfram- haldandi reksturs. Hvorki lánasjóðir né innlánsstofnanir myndu taka við slíku þrotabúi. Hugmyndafræði Sambands-framsóknarmanna er læ- Efnahagur sjávarútvegs í árslok 1990, 1991 og 30.9.1992 Eignir: (mkr.) Fiskiskip Fiskvinnsla Aðrar eignir 1990 71.671 37.936 23.831 1991 74.428 38.384 21.848 30.9.1992 71.175 39.425 20.916 Eignir samtals Skuldir: 133.438 134.660 131.516 Innlánsstofnanir, lán 37.192 38.699 39.592 Sjóðakerfi 31.690 32.291 34.078 Lánakerfið alls 68.882 70.990 73.670 Utan lánakerfis 18.101 18.644 19.348 Skuldir samtals 86.983 89.634 93.018 Eigið fé 46.455 45.026 38.498 Af 93.018 mkr. pr. 20.9. sl. voru 56.623 mkr. beint gengistryggt og hefði þannig hækkað um 6,38% eða 3.613 mkr. við 6% gengisfellinguna. Mismunurinn 17.047 mkr. ertrúlega verðtryggt miðað við lánskjaravísi- tölu og kemur sú hækkun fram síðar vís. Hrun SÍS ætti að vera nægileg aðvörun, enda samfélaginu dýrt. Punktur. Skammturinn er orðinn of stór. Höfundur er fyrrverandi forstjóri Olís.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.