Morgunblaðið - 30.12.1992, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1992
V-Húnavatnssýsla
Hvammstangi.
SPARISJÓÐUR Vestur-Húna-
vatnssýslu varð 75 ára á þessu
ári. I tilefni þeirra tímamóta hef-
ur sjóðurinn gefið út afmælisrit,
sem prýtt er mörgum myndum,
bæði úr sögu sjóðsins og einnig
eru myndir úr héraði. Þann 1.
september bauð sparisjóðurinn til
veislu og opins húss fyrir hér-
aðsbúa.
Sparisjóðurinn var stofnaður árið
1917 og voru lög um starfemi hans
undirrituð af Ara Arnalds sýslu-
manni þann 28. febrúar 1917. Frá
árinu 1881 höfðu Húnvetningar
sameiginlegan sparisjóð, en með
skiptingu Húnavatnssýslu í tvö
sýslufélög árið 1907, var stofnun
Sparisjóðs V-Hún eðlilegt framhald
af þeirri skiptingu. Á þessum 75
árum hafa aðeins fjórir sparisjóðs-
stjórar setið við stjórn hans, en þeir
eru; ísólfur Þ. Sumarliðason (1917-
1944), Kjartan Guðmundsson
(1944-1945), Sigurður P. Tryggva-
son (1945-1959) og núverandi
sparisjóðsstjóri Ingólfur Guðnason
frá árinu 1959. Formaður sparisjóðs-
stjórnar er Jóhannes Björnsson.
Sparisjóðurinn er eina peninga-
stofnun héraðsins og er staða hans
allgóð. Á ýmsum tímum hafa ríkis-
bankar landsins leitað eftir að kom-
ast í héraðið, og oftast með hugleið-
ingar um að yfirtaka starfsemi sjóðs-
ins. Heimamenn hafa ávallt brosað
að slíkum hugleiðingum.
Afmælisrit Sparisjóðs V-Hún er
saga sjóðsins, aðdraganda að stofn-
un hans og yfirlit yfir starfsemi og
fjárreiður. Olafur H. Kristjánsson,
fv. skólastjóri skráði bókina, sem
fæst í afgreiðslu sjóðsins og er
ókeypis.
- Karl.
Sparisjóð-
urinn75ára
Morgunblaðið/Arnór
Sigurvegarar í bridsmóti BS og Keflavíkurverktaka. Talið frá vinstri: Bjarni Krisljánsson, Þorgeir
Halldórsson, Lárus ólafsson, Einar Júlíusson, Gísli Torfason, Magnús Hallbjörnsson, Sigurður Al-
bertsson og Sigurður Sigurðsson.
Karl Einarsson mætti til leiks með eiginkonuna Grétu Fredriks-
en. Með þeim á myndinni eru Stefán Jónsson og Krislján Kristjáns-
son. Þrír spilaranna mættu með konur sínar sem ekki höfðu áður
spilað í keppni. Þær fengu konfekt að gjöf frá mótshöldurum.
Brids
ArnórG. Ragnarsson
Fjölmenni í vel heppnuðu
móti Keflavíkurverktaka og
Bridsfélags Suðurnesja
Fjörutíu og tvö pör spiluðu í
eins kvölds tvímenningsmóti sem
Bridsfélag Suðurnesja hélt sl.
mánudagskvöld en það voru
Keflavíkurverktakar sem styrktu
félagið til mótshaldsins. Þessi
glæsilega þátttaka fullvissaði for-
svarsmenn félagsins um hvort
tveggja, nauðsyn þess að gera
eitthvað fyrir hinn venjulega spil-
ara sem ekki spilar harðan keppn-
isbrids og nauðsyn þess að taka
upp bridskennslu á Suðumesjum.
Keppnisformið var Mitchell-tví-
menningur og var þess óskað að
keppnisspilarar kæmu með óvan-
an keppnismann með sér eða þá
að spilarar sem spila heima kæmu
og reyndu með sér. Allir sem
mættu fengu að sjálfsögðu að
vera með en þó var eitthvað um
að keppnismenn spiluðu saman.
Stjóminni þótti hins vegar þannig
til takast í samsetningu paranna
að allir væm gjaldgengir til verð-
launa.
Nokkrar gangtmflanir voru í
mótsmaskinunni í upphafl móts.
Félagið hefir eignast tölvu til
vinnslu gagna í mótum sem þessu
en gangsetningin gekk illa. Þetta
stendur auðvitað til bóta og varð
ekki til skaða. Gestir fengu sér
kaffi og biðu átakanna og ánægj-
unnar.
Gísli Torfason og Magnús Hall-
björnsson náðu langhæstu skor í
keppninni. Þeir spiluðu í aust-
ur/vestur og hlutu 414 stig en
meðalskor var 312. í öðru sæti í
þessum riðli urðu feðgarnir Sig-
urður Albertsson og Sigurður Sig-
urðsson með 374 stig og Högni
Oddsson og Guðjón Jónasson
þriðju með 352 stig.
í norður/suður-riðlinum sigr-
uðu Þorgeir Halldórsson og Bjami
Kristjánsson, hlutu 376 stig.
Sandgerðingarnir Láms Ólafsson
og Einar Júlíusson urðu í öðm
sæti með 359 stig. Guðjón Jensen
og formaður félagsins, Arnór G.
Ragnarsson, urðu í þriðja sæti
með 357 stig.
Keppnisstjóri var ísleifur Gísla-
son en Karl Hermannsson móts-
stjóri. Aðrir í stjórn félagsins eru
Arnar Arngrímsson, Gunnar
Sigutjónsson og Hafsteinn Ög-
mundsson. Allir þessir aðilar eru
boðnir og búnir til aðstoðar við
spilara sem vilja reyna sig í keppni
félagsins í vetur,
Fjorða janúar verður spilaður
eins kvölds tvímenningur.
Væntanlega verður spilað í Hótel
Kristínu kl. 19.45. Það verður
auglýst nánar síðar. Sparisjóðs-
mótið, sem er aðalsveitakeppni
vetrarins, hefst svo annan mánu-
dag. Spilarar sem eru í vandræð-
um með myndun sveita hafí sam-
band við stjórnarmenn.
Drykkir á nýársnótt
Aþessum árstíma grípum við niður í og pælum í bókum, sem í annan tíma
lægju ósnertar.
Bókin, „Quantum Healing", eftir Deepak Chopra, MD er ein þeira.
„Dropi af sjó hefur sama saltbragð og heilt úthaf. Vökvi líkamans bragð-
ast jafn saltur og hafíð og er jafn ríkur af magnesíum, gulli og öðrum snefílefnum.
Lífíð byijaði í sjónum og því aðeins lifum við utan hans, að við berum hafíð innra
með okkur. Þegar við erum þyrst og svölum þorstanum erum við að koma jafnvægi
á efnasamsetningu alls staðar í okkar innra hafí.“
Bók þessi er hafsjór af fróðleik og maður er sem landkönnuður, þar sem lönd
leyndardómanna ljúkast upp á hverri síðu og opnar nýja sýn á sköpunarverkið og
höfund þess.
Það rifjaðist líka upp, að tengdafaðir minn, sem var togarasjómaður, hafði það
fyrir sið, að sökkva flösku í hafíð mitt á milli Skotlands og Islands og hafa sjó
heim með sér. Þegar börnin hans fengu ræmu í hálsinn var þeim gefíð Atlantshafíð
úr silfurskeið. Það var borin virðing fyrir Atlantshafínu á því heimili enda reru
forfeður hjónanna úr Loftsstaðasandi og Tunguósi.
Atlantshafíð verður ekki í bland í þá drykki, sem bomir verða fram í þessum
þætti, en koma tímar og koma ráð.
Gleðilegt nýár.
Heitur súkkulaðidrykkur
6 dl mjólk
6 msk. súkkulaðisíróp
rifinn börkur af 1 appelsínu
100 g vanilluís
appelsínusneiðar
1. Setjið mjólk og súkkulaðis-
íróp í pott. Þvoið appelsínuna og
rífið börkinn. Setjið út í og látið
sjóða.
2. Hellið í 4 glös, setjið ís ofan
á. Skerið upp í appelsínusneið og
setjið á barm glassins. Kreistið
sneiðina út í um leið og þið drekk-
ið úr glasinu.
Kaffi/kakó með kanil
2 dl vatn
1 dl mjólk
3 tsk. kakó
1 msk. sykur
'A tsk. kanill
1 msk. kaffiduft (instant)
1 dl þeyttur rjómi
1 tsk. kanil/sykur
1. Setjið vatn í pott og látið
sjóða. Setjið mjólk, kakó, sykur
og kanil í hristiglas, hristið og
setjið saman við vatnið. Látið
sjóða upp. Setjið kaffiduft út í.
2. Hellið í glös og setjið þeyttan
ijóma ofan á, stráið kanil/sykri
yfir.
Grenadine/ávaxtadrykkur
2 dl grenadinesíróp
2 eggjahvítur
safi úr 1 stórri sítrónu
6 dl ananassafi
2 dl greipsafi
1. Setjið grenadinesíróp, eggja-
hvítur og sítrónusafa í blandara,
hristiglas eða hrærivél. Hrærið
eða hristið saman svo að froða
myndist.
2. Setjið ananassafa og greips-
afa út í. Hellið strax í glös.
Athugið: Þennan drykk má
bera fram heitan, þá er ananas-
safínn og greipsafínn hitaður og
hinu blandað saman við.
Umsjón: KRISTÍN GBSTSDÓTTIR
Teikningar: SIGURÐUR ÞORKELSSON
Grenadinesíróp er búið til úr
Granadaeplum, það fæst í flestum
stærri verslunum.
Hér kemur einn áfengur drykk-
ur í lokin.
Kívídrykkur (áfengur)
1 sítróna
1 dl koníak eða brandy
2 msk. sykur
3 kíví
1 flaska hvítvín
1 flaska freyðivín
1. Setjið hvítvín og freyðivín í
kæliskáp.
2. Þvoið sítrónuna, skerið í ör-
þunnar sneiðar, notið ekki enda-
sneiðarnar. Setjið í skál, setjið
sykur og koníak eða brandy sam-
an við og látið standa í kæliskáp
í 6-8 klst. Hrærið öðru hveiju í
þessu. Setjið disk eða plastfílmu
yfír skálina.
3. Afhýðið kíví, skerið í sneiðar
og setjið saman við.
4. Hellið hvítvíni og freyðivíni
saman við og berið fram.