Morgunblaðið - 30.12.1992, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1992
Grass geng-
ur úr SPD
TALSMAÐUR Jafnaðar-
mannaflokks Þýskalands
(SPD) segir forystu hans
felmtri slegna yfir þeirri
ákvörðun rithöfundarins
Gunther Grass að segja sig úr
flokknum. Grass vill með úr-
sögn sinni mótmæla stefnu
SPD í málefnum flóttamanna.
Jafnaðarmenn, sem eru í
stjórnarandstöðu, hafa fallist á
að styðja stjómarskrárbreyt-
ingu sem mun gera flótta-
mönnum erfíðara um vik að
leita hælis í Þýskalandi. Grass
segir að með stjórnarskrár-
breytingunni muni Þjóðveijar
velta flóttamannavandanum í
Evrópu yfir á Pólveija og Ung-
veija. Flestir þeirra sem sækja
um hæli dvelja í þessum ríkjum
áður en þeir koma til Þýska-
lands. Búist er við að breyting-
in taki gildi snemma á nýju ári.
A gægjum í
þrjá daga
Lögregla í Tókíó hefur hand-
tekið mann sem lá á gægjum
í íbúð samstarfskonu sinnar í
þijá sólahringa, vopnaður
myndbandstökuvél. Faldi mað-
urinn sig á háalofti og kvik-
myndaði allar athafnir konunn-
ar. Myndbandagægir þessi
mun hafa fellt hug til konunn-
ar, en hún vildi ekki þýðast
hann.
Deng maður
ársins
Breska blaðið Financial Times
hefur valið einn af leiðtogum
Kínverska alþýðulýðveldisins,
Deng Xiaoping, mann ársins.
Deng varð nýlega 88 ára og
er talinn heilsuveill. Hann
gegnir nú engu embætti innan
flokks eða ríkisstjórnar. í til-
kynningu blaðsins segir að
Deng hafi átt stærstan þátt í
markaðsvæðingu Kína og auk-
inni hagsæld landsins. Þjóðar-
framleiðsla á mann í Kína er
talin hafa vaxið um 12% á
árinu, sem þýðir að fjölmenn-
asta ríki heims býr jafnframt
við mesta hagvöxt á byggðu
bóli.
Rauðu
khmerarnir
sakaðir um
morð
Fulltrúar Sameinuðu þjóðanna
sökuðu skæruliða Rauðu
khmeranna um morð á 12
mönnum af víetnömskum upp-
runa eftir árás á þorp í
Kambódíu um helgina.. Meðal
látinna eru fjögur börn. Talið
er að skæruliðarnir hafi komið
til þorpsins á tveimur bátum,
vopnaðir flugskeytum. Aróð-
ursbæklingur sem beint er
gegn Víetnömum fannst á
vettvangi. Khmeramir leggja
sig í líma við að æsa upp hat-
ur gegn fólki af víetnömskum
uppruna, sem þeir telja að
gangi erinda stjórnvalda í Ví-
etnam er vilji leggja Kambódíu
undir sig. Hersveitir stjórnar-
innar í Hanoi réðust inn í
Kambódíu í desember árið
1978 og voru víetnamskir her-
menn í landinu fram til ársins
1989. Að undanförnu hafa
skæruliðamir margsinnis brot-
ið vopnahléssáttmála sem er í
gildi í Kambódíu, og bera þeir
því við að víetnamskar her-
sveitir séu enn í landinu.
Starfsmönnum Sameinuðu
þjóðanna hefur ekki tekist að
renna stoðum undir þessar
fullyrðingar.
Rcuter
Tveir palestínsku útlaganna bera eigur sínar um tjaldbúðirnar á dýnu eftir að vindhviða feykti tjaldi
þeirra á brott. Veður hefur verið mjög slæmt í suðurhluta Líbanon undanfarna daga og töluvert frost.
Útlagarnir segjast þó ætla að þrauka áfram þar til þeim berist hjálp frá Sameinuðu þjóðunum.
Hert bar-
átta gegri
glæpum
Moskvu. Reuter.
RÚSSNESKA innanríkisráðu-
neytið hefur blásið til herferðar
gegn skipulögðum glæpum og
fjölgað liðsmönnum sérsveita
sinna um 19.000 í því skyni, auk
þess sem þær fá þyrlur og bryn-
varðar bifreiðar til umráða.
Míkhaíl Jegorov, aðstoðarinnan-
ríkisráðherra Rússlands, sem
stjórnar baráttunni gegn glæpun-
um, kvaðst þó efins um að sigur
ynnist. Hann vildi ekki upplýsa
hversu margir væru í sérsveitunum
en sagði að um 3.000 glæpasamtök
væru nú í landinu, með tugþúsund-
ir félaga. Mörg þeirra væru í
tengslum við erlend glæpasamtök.
Jegorov sagði að um fimmtungur
glæpasamtakanna væri í sambandi
við spillta embættismenn, sem
veittu þeim upplýsingar og aðstoð
við glæpastarfsemina.
Líbanír hafna tíllögum Isra-
ela uin flutning hjálpargagna
Beirut. Reuter.
STJÓRNVÖLD í Líbanon vísuðu
í gær alfarið á bug þeirri tillögu
ísraela að stjórnir beggja land-
anna myndu heimila sendingu
hjálpargagna til þeirra rúmlega
Kúbverskri
farþegavél
rænt og snú-
ið til Flórída
Miami, Reuter.
Kúbverskri flugvél var rænt í
innanlandsflugi í gær og snúið
til Miami á Florída. Talið er að
á fimmta tug manna hafi verið
um borð í vélinni. Talsmaður
yfirvalda á alþjóðaflugvellinum
í Miami segir að flestir farþeg-
anna hyggist sækja um hæli i
Bandaríkjunum. Sjónvarpsstöð í
Miami sagði að 44 farþegar
hefðu sótt um hæli, en fimm biðu
nú eftir fari heim til Kúbu.
Vélin, er rússnesk af gerðinni
AN26 og í eigu ríkisflugfélagsins
Empresa Aero Caribeean. Hún var
í áætlunarflugi milli Havana og
ferðamannastaðarins Varadero,
sem er um 120 km austur af höf-
uðborginni. Flugmaðurinn tilkynnti
flugturni í Havana á níunda tíman-
um í gærmorgun að vélinni hefði
verið rænt og snúið til Bandaríkj-
anna.
Talsmaður bandarísku flugmála-
stjórnarinnar sagði að grunur léki
á að fiugmaðurinn hefði átt frum-
kvæði að því að fljúga vélinni til
Bandaríkjanna. Hann hefði hugs-
anlega svæft aðstoðarflugmanninn
með klóróformi til að ná valdi á
vélinni. Starfsmenn á flugvellinum
sögðust hafa séð flugmenn vélar-
innar slást á flugbrautinni skömmu
eftir að vélin lenti í Miami. Tals-
maður tollyfirvalda sagðist ekki
vita hvort vopn eða sprerigjur væru
um borð.
Á síðasta ári flúði kúbverskur
stjómmálamaður til Bandaríkjanna
í rússneskri orrustuþotu. Hann
snéri síðar til baka skömmu fyrir
jól í Cessna einkaflugvél og flaug
með konu sína og börn til Flórída
í óþökk kúbverskra yfirvalda.
fjögur hundruð útlaga sem haf-
ast við í tjaldbúðum í suður-
hluta Líbanon. ísraelar vísuðu
mönnunum úr landi fyrir tæp-
lega tveimur vikum síðan á
þeirri forsendu að þeir hefðu
verið í tengslum við samtök
múhameðstrúarmanna fjand-
samleg ísraelum.
Útlagarnir búa við mjög krapp-
an kost enda hafa jafnt ísraelar
sem Líbanir komið í veg fyrir send-
ingu hjálpargagna til þeirra fram
til þessa. ísraelar hafa verið harð-
lega gagnrýndir á alþjóðavett-
vangi fyrir að reka mennina úr
landi og í gær lögðu þeir til við
Rauða krossinn að tveimur birgða-
lestum með hjálpargögnum, ann-
arri frá ísrael en hinni frá Líban-
on, yrði leyft að halda til útlegð-
anna. Hafði Rauði krossinn áður
farið fram á að honum yrði leyft
að færa útlögunum hjálpargögn.
James Jonah, sérlegur fulltrúi
Sameinuðu þjóðanna í málinu hélt
í gær frá Jerúsalem til Beirút og
var búist við að hann myndi reyna
að fá líbönsk stjórnvöld til að fall-
ast á tillögu ísraela. Að loknum
fundi Jonah með Elias Hrawi, for-
seta Líbanon, sögðu embættis-
menn að forsetinn hefði alfarið
neitað að ræða þetta mál. Jonah
ræddi einnig við Rafik al-Hariri
forsætisráðherra og var afstaða
hans jafn afdráttarlaus. „Jonah
er að eyða tíma sínum hér. Þessi
ferð er til einskis. Okkar sjónar-
mið eru skýr,“ sagði forsætisráð-
herrann fyrir fund sinn með full-
trúa SÞ. Hann sagði það ekki
koma á óvart að ísraelar kæmu
með tilboð af þessu tagi þar sem
þeir skilgreindu þennan hluta Suð-
ur-Líbanon sem einskismanns-
land. Líbönsk stjórnvöld teldu það
hins vegar vera hernumið af ísra-
elum og því væri það á ábyrgð
ísraela að færa útlögunum mat
og lyf.
Grunur um að rafeindatæki trufli siglingatæki flugvéla
Rakvélar og tölvur bannað-
ar í norskum flugvélum?
SVO kann að fara að sett verði bann við því að nota ferðatölv-
ur, reiknivélar og rakvélar um borð í norskum farþegaflugvélum.
Ástæðan er sú að talið er að tæki af þessu tagi trufli siglinga-
og sljórntæki, einkum i nýrri flugvélategundunum. Hugsanlegt
er að norsk flugmálayfirvöld beiti sér fyrir því að samsvarandi
bann verði sett á alþjóðlegum flugleiðum, samkvæmt frétt í norska
blaðinu Aftenposten.
Rafeindatæki hvers konar
verða stöðugt algengari í handfar-
angri flugfarþega. Grunur leikur
á að notkun þeirra trufli flókinn
og fullkominn rafeindabúnað í
stjómtækjum flugvéla af nýrri
gerðinni. í versta falli er talið að
notkun þeirra geti dregið úr flu-
göryggi.
Geislaspilarar rugla
stjórntæki
Skýrt hefur verið frá atvikum
þar sem talið er að tölvur og ferða-
geislaspilarar hafí mglað stjóm-
tæki farþegaflugvéla. I einu tilviki
var MD-80 þota komin 15 gráður
út af réttri flugstefnu. Var ástæð-
an rakin til þess að farþegi á
fyrsta farrými skrifaði án afláts
á ferðatölvu sína meðan á flug-
ferðinni stóð. í öðru tilviki blikk-
uðu viðvörunarljós fyrir vökva-
kerfi þotu af gerðinni DC-10 en
um leið og farþegi í sæti 33A
slökkti á ferðageislaspilara sínum
slokknuðu þau.
Sérfræðingar í flugmálum telja
þó að flugmenn tilkynni aldrei um
langflest atvika af þessu tagi.
Vitað er að flugmenn tala þó sín
á meðal um alls kyns tæknileg
vandamál sem upp koma í flugi
og þeir kunna enga skýringu á.
Vandamálið er líka það nýtilkomið
að allt eins er líklegt að flugmenn
geri sér ekki grein fyrir því að
samband geti verið á milli tækja-
truflana í stjórnklefanum og notk-
unár tölvutækja í farþegaklefan-
um.
1 Noregi hafa sérfræðingar
samtaka flugmanna, rannsóknar-
stofnunar landsímans og loft-
ferðaeftirlitsins fjallað um leiðir
til að stöðva eða útiloka notkun
smátækja í farþegaklefa sem
kunna að trufla stjórntæki.
Vandamálið er að ekki hefur tek-
ist að skilgreina hvenær tæki get-
ur valdið truflun er varðar flugör-
yggi en vonir eru bundnar við að
rannsókn sem nú stendur yfir í
Bandaríkjunum leiði það í ljós.
Langur listi
Á lista sem£ sérfræðingarnir
hafa gert um tæki sem hugsan-
lega verður bannað að hafa með
í handfarangri eða nota um borð
í flugvélum eru öll tæki sem senda
frá sér hljóðbylgjur. Þar á meðal
eru farsímar og talstöðvar, ferð-
aútvarpstæki með FM-bylgju,
ferðasjónvarpstæki, fjarstýringar,
geislaspilarar og rakvélar. í að-
flugi og brottflugi yrði bannað að
nota segulbandstæki og vídéó-
tökuvélar, öll tölvuspil, reiknivélar
og tölvur.
Samkvæmt niðurstöðum sér-
fræðinganna þykir hins vegar
ástæðulaust að setja skorður við
notkun heyrnartækja sem heyrn-
arskertir nota, hjartagangráða,
rafeindaúra og eigin síma og kvik-
myndatækja flugvélanna.