Morgunblaðið - 30.12.1992, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 30.12.1992, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1992 25 Norrænir forsætisráðherrar funda Ollum undirbún- ingi EES verði lokið sem fyrst POUL Schliiter, forsætisráðherra Danmerkur, bauð starfsbræðrum sínum á hinum Norðurlöndunum til fundar í Kaupmannahöfn í gær til að ræða það sem efst er á baugi varðandi Norðurlandasamstarfið og Evrópumálin. Einkum var fjallað um aðildarumsóknir Finna, Svía og Norðmanna að Evrópubandalaginu, EB, en Danir verða í forsvari fyr- ir bandalagið næstu sex mánuði. Davíð Oddsson forsætisráðherra sagði í samtali við Morgunblaðið að allt benti til að EB tæki umsóknir Svia og Finna fyrir þegar í janúar og umsókn Norðmanna væntanlega í mars. „Það var einnig rætt um nauðsyn þess að ljúka sem fyrst öllum þáttum varðandi Evrópska efnahagssvæðið, EES, annars vegar það sem við eig- um eftir ógert og hins vegar þær bókanir sem þarf að gera vegna þess að Sviss hætti við,“ sagði Davíð. „Menn líta á þær bókanir sem tækni- legt atriði í öllum meginatriðum. Einnig var rætt um gjaldeyrisóróleik- ann sem gengið hefur yfir og haft áhrif á gengi sænsku krónunnar, finnska marksins og nú síðast norsku og íslensku krónunnar. Þjóðirnar sem sótt hafa um EB-aðild leggja áherslu á að tengja gjaldmiðla sína á nýjan leik við gengisþróunina í Evrópu. Við erum auðvitað á öðrum báti að vissu leyti þótt við höfum einsett okkur að hafa síðar hliðsjón af þróun Evrópumyntarinnar, ecu“. Spánveijar hafa krafist þess að framlag þeirra ríkja Fríverslunar- bandalags Evrópu, EFTA, sem hyggjast taka þátt í samstarfi EES í þróunarsjóð svæðisins verði óbreytt þótt Sviss verði ekki með. Davíð var spurður hvort talin væri hætta á að kröfur Spánveija gætu kollvarpað EES. „Það var að sjálfsögðu rætt um þessi mál, formlega og óform- lega. Menn telja að Spánveijar séu mjög einangraðir með þessa afstöðu sína innan EB og vænta þess að ekki verði þarna um neitt frambúðar- vandamál að ræða. Ráðherrar EB munu hittast dagana 13.-14. janúar og þá er gert ráð fyrir að þessi mál skýrist". Davíð sagði að EB hefði þegar tjáð smáþjóðum á borð við Malt- veija, Kýpveija og fleiri að þeir myndu ekki geta fengið aðild að bandalaginu með fullum réttindum eins og hinar þjóðirnar. íslendingar hefðu ákveðið að nýta sér ekki tæki- færið er EB bauð EFTA-þjóðunum að sækja um aðild á jafnréttisgrund- velli. Um þessa stefnu hefði ríkt sæmileg sátt á íslandi að hans mati en þetta tækifæri byðist ekki aftur. „Við finnum hins vegar að nú sem stendur að minnsta kosti erum við nokkuð til hliðar í norrænu umræð- unni vegna þessarar afstöðu okkar,“ sagði Davíð Oddsson. Keutei' Norrænir ráðamenn í Kaupmannahöfn. Frá vinstri: Davíð Oddsson forsætisráðherra, Uffe Ellemann- Jensen, utanríkisráðherra Dana, Carl Bildt, forsætisráðherra Svía, Gro Harlem Brundtland, forsætisráð- herra Noregs, Poul Schliiter, forsætisráðherra Dana og Esko Aho, forsætisráðherra Finnlands. Bush ver áramótunum með fjölþjóðahemum í Sómalíu Mogadishu. Reuter. GEORGE Bush Bandaríkjaforseti heldur á morgun, fimmtudag, til Sómalíu til þess að heilsa upp á bandariska liðsmenn fjölþjóðahersins sem þangað voru sendir fyrir jól á vegum Sameinuðu þjóðanna (SÞ) til þess að tryggja að neyðarhjálp bærist sveltandi íbúum. Dvelst hann í Sómalíu um áramótin. I gær tóku bandarískir hermenn til við að afvopna vopnaðar ættflokkasveitir sem tekist hafa á um völd í höfuð- borginni Mogadishu. Bush hyggst dveljast rúman sól- arhring í Sómalíu og meðal annars heimsækja matvælamiðstöðvar, sjúkrahús og hæli fyrir munaðarleys- ingja. Til Mogadishu kemur hann með C-141 hei-flutningaflugvél frá Jeddah í Saudi-Arabíu. Franska varnarmálaráðuneytið skýrði frá því í gær að um jólin hefðu síðustu frönsku hersveitimar, sem sendar voru til liðs við fjölþjóðaher SÞ, farið til Sómalíu. Eru þá um 2.100 iiðsmenn frönsku útlendinga- herdeildarinnar og fótgöngusveita franska flotans í landinu. Fylgja þeim 500 farartæki og 22 þyrlur. Skæruliðar myrtu fimm óbreytta sómalska starfsmenn vestrænna hjálparstofnana í Mogadishu á mánu- dag, að því er stofnanirnar skýrðu frá í gær. Fjórir óvopnaðir starfs- menn Alþjóða Rauðakrossins voru myrtir í suðurhluta borgarinnar er þeir voru á smárútu að sækja starfs- félaga sína í upphafi vinnudags. Vopnaðir menn stöðvuðu bifreiðina, hófu skothríð og flýðu svo á brott. Síðar sama dag var sómalskur starfsmaður CARE, alþjóðastofn- unar sem sinnir matvæladreifíngu fyrir SÞ, myrtur við grænu línuna svonefndu í Mogadishu. Vopnaðir menn rændu bifreið hans, myrtu ökumanninn og særðu tvo aðra sam- ferðamenn hans. Atvikið átti sér stað nokkrum stundum eftir að stríðsherr- arnir í borginni höfðu samið með sér vopnahlé. Að sögn bandaríska blaðsins New York Times myrtu skæruliðasveitir Ogadeni-ættflokksins á annað hundrað trúarleiðtoga, kaupsýslu- menn og aðra áhrifamenn í hafnar- borginni Kismayú, síðustu þijá dag- ana fyrir komu fjölþjóðahersins 9. desember sl. Að sögn sjónarvotta fóru vopnaðar sveitir Omars Jess stríðsherra í Kismayu hús úr húsi að næturþeli, smöluðu mönnunum saman og tóku þá af lífi í útjaðri borgarinnar. Tilgangurinn með morðunum var, að sögn blaðsins, að koma menntuðum mönnum, sem taldir voru líklegir stuðningsmenn aðgerða fjölþjóðahersins, fyrir katt- arnef. Fórnarlömbin eru öll af Harti- ættflokknum sem á rætur í Kismayu. MISSIÐ EKKI AF S K ATTAFS LÆTT1N U M!! OPIÐ Á MORGUN KL 9:00-13:00 m KAUPÞING HF Löggilt verðbréfafyrirtœki Kringtunni 5, sími 689080 í eigu Búnaðarbanka íslands og sparisjððanna Nú eru síðustu forvöð að tryggja sér skatt- afslátt fyrir árið 1992. Hlutabréfasjóðurinn Auðlind er settur saman af traustum skuldabréfum og hlutabréfum í fjölmörgum traustum fyrirtækjum. Slík dreifing minnkar áhættuna enda hafa hlutabréfasjóðir í vörslu Kaupþings komið best út allra hlutabréfa- sjóða á árinu. •í SPARISJÓÐIRNIR /gNBÚNAÐARBANKI vQ/ ÍSLANDS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.