Morgunblaðið - 30.12.1992, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 30.12.1992, Qupperneq 26
26 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1992 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1992 27 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 110 kr. eintakið. Frændum hjálpað orsteinn Pálsson sjávarút- vegsráðherra hefur ákveðið að heimila Færeying- um að veiða sex þúsund tonn af botnfiski í íslenskri lögsögu á næsta ári, þar af 700 tonn af þorski og 400 tonn af lúðu. Veiðarnar verða takmarkaðar við tólf línubáta samtímis. Þetta jafngildir um 10% skerðingu á heildarveiðiheim- ildum Færeyinga hér við land á yfírstandandi ári en þá fengu þeir að veiða 6.500 tonn af botnfiski, þar af þúsund tonn af þorski og 450 tonn af lúðu. Þorskveiðiheimildir Færey- inga eru skertar töluvert miklu meira en aðrar veiðiheimildir, eða um 30%, enda var heildar- þorskafli við Island skertur um 22,6% á yfirstandandi fisk- veiðiári, sem hófst í septem- ber. Fiskveiðisamningur við Færeyinga var gerður árið 1976 og var þeim þá heimilað að veiða um 17 þúsund tonn af botnfiski. Aflaheimildir Færeyinga hafa síðan verið misjafnlega miklar. Þær voru lækkaðar verulega 1984, fóru svo hækkandi á ný uns þær voru aftur lækkaðar árið 1991. Það hafa lengi verið skiptar skoðanir um hvort heimila beri áfram veiðar Færeyinga í íslenskri fiskveiðilögsögu. í kjölfar aflasamdráttar og efnahagsþrenginga hérlendis hafa þær raddir orðið hávær- ari sem vilja rifta þessum samningum, enda séu ekki forsendur fyrir því að veita Öðrum þjóðum aflaheimildir á meðan heildaraflinn hrekkur ékki til fyrir íslensk útgerðar- jfyrirtæki. Vissulega er þetta á marg- ján hátt réttmætt sjónarmið. Hjá þvi verður hins vegar ekki litið að Færeyingar tengjast ökkur nánari böndum en flest- ar aðrar þjóðir og þessir frændur okkar ganga nú í gegnum mun erfíðara sam- dráttarskeið en við. Stjórn efnahagsmála hefur í raun verið tekin úr höndum lands- stjórnarinar í Þórshöfn og fal- in Alþjóða gjaldeyrissjóðnum. Færeyingar ramba á barmi þjóðargjaldþrots. í forystugrein Morgun- blaðsins hinn 22. október sl. er minnt á að þrengingarnar sem Færeyingar eiga í hafa komið illa við marga íslend- inga. „Ekki aðeins vegna þess að ýmsu svipar til þess sem er í okkar eigin þjóðarbúskap, heldur vegna þess að það er sárt að horfa upp á færeyska frændur í þessari stöðu. Náin tengsl eru milli þjóðanna og margir eru bundir ijölskyldu- og vinaböndum og svo hefur verið um aldir. Okkur kemur við hvernig frændum og vinum líður. ' Islendingum á að renna blóðið til skyldunnar og þeir eiga að koma Færeyingum til hjálpar á neyðartímum. Við getum gert það með margvís- legum hætti, m.a. á vettvangi norrænnar samvinnu og al- þjóðasamtaka sem við eigum aðild að. Við getum greitt fyr- ir lánum til þeirra úr norræn- um og alþjóðlegum sjóðum á hagstæðum kjörum, styrkt þá til náms og starfsþjálfunar á Islandi og veitt þeim aðgang að heilbrigðiskerfinu, svo eitt- hvað sé nefnt. Við getum boð- ið þeim vinnu í fiskvinnslu- stöðvum, þar sem starfsfólk skortir. En síðast en ekki síst getum við heimilað Færeyingum veiðar á fisktegundum sem við annaðhvort nýtum ekki sjálfír eða eru vannýttar. Veiðiheim- ildir þeirra á íslandsmiðum hafa eðlilega verið skornar niður í takt við okkar eigin kvóta. Hins vegar er engin goðgá að taka tillit til ástands- ins í Færeyjum, næst þegar fiskveiðisamningurinn kemur til endurskoðunar.“ Það er fagnaðarefni að sjáv- arútvegsráðherra hefur ákveðið að endurnýja fisk- veiðiheimildir Færeyinga fyrir næsta ár og þeir eru Islending- um þakklátir. „Út af fyrir sig þykir okkur miður að leyfíleg- ur afli minnki úr 6.500 tonnum í 6.000 tonn með tilliti til þess að kvótinn nam 18 þúsund lestum fyrir nokkrum árum. En við höfum fullan skilning á þeirri aðstöðu sem íslensk stjórnvöld eru í vegna afla- samdráttar íslenskra fiski- skipa og erum því þakklátir fyrir það sem við fáum,“ sagði Atli Dam, lögmaður Færey- inga, í Morgunblaðinu á að- fangadag. Við íslendingar þekkjum það sjálfír af eigin raun hversu mikilvægt það er að fá rétta hjálparhönd þegar mikið liggur við. Við ættum því að gleðjast yfir að geta liðsinnt frændum okkar í neyð. Atvinnuleysi aldrei meira Búíst við enn meira at- vinnuleysi eftir áramót STARFSMENN verkalýðsfélaga muna fæstir eftir jafn miklu atvinnu- leysi meðal félagsmanna og nú þó sumir nefni stutt tímabil á árunum 1965-1969. Víða er búist við að atvinnuleysi aukist eftir áramót. Verslun- armannafélag Reykjavíkur efnir til námskeiða í sjálfstyrkingu, fjármál- um heimilanna, atvinnuleysistryggingum, atvinnuumsóknum og mann- legum samskiptum fyrir atvinnulausa félagsmenn sína eftir áramót. Ekki jiefur verið tilkynnt um fleiri fjöldauppsagnir í desember til Vinnu- málaskrifstofu en í venjulegu ári. Gunnar Helgason, forstöðumaður Ráðningarskrifstofu Reykjavíkur- borgar, sagði að 1.134 karlar og 836 Hjáiparstofnun kirkjunnar Safnast hafa 11,5 milljónir króna ALLS HAFA nú safnast um 11,5 milljónir króna í landssöfnun Hjálparstofnunar kirkjunnar, Brauð handa hungruðum heimi. Er það heldur lægri tala en á sama tíma í fyrra. Söfnunin stendur fram í janúar og enn er hægt að koma framlögum til skila með gíró- seðlum sem liggja frammi í bönk- um og sparisjóðum eða til skrif- stofu Hjálparstofnunar við Tjarn- argötu í Reykjavík. Söfnunarféð fer að þessu sinni bæði til þróunarverkefna Hjálpar- stofnunar á Indlandi, í Kenýa og víð- ar og í neyðarsjóð stofnunarinnar, en gera má ráð fyrir að áfram verði þörf fyrir framlög til neyðarhjálpar bæði í ýmsum Afríkulöndum vegna hungursneyða og á Balkanskaga. Jónas Þórisson framkvæmdastjóri Hjálparstofnunar kirkjunnar vildi koma á framfæri þökkum til lands- manna fyrir góðar undirtektir við söfnunina sem greinilega ætti sína föstu stuðningsménn þrátt fyrir þrengri efnahag og minnti jafnframt á að enn væri hægt að koma framlög- um til skila með gíróseðli eða láta skuldfæra greiðslukort. konur, samtals 1.970 manns, hefðu verið á atvinnuleysisskrá á þriðjudag. Á sama tíma í fyrra hefðu 496 karlar og 213 konur, samtals 709 manns, verið á atvinnuleysisskrá. „Atvinnu- leysið nú er það mesta sem við höfum séð,“ sagði Gunnar og benti á að búast mætti við enn meira atvinnu- levsi eftir áramót. „Miða ég þá við upplýsingar sem ég hef fengið og reynslu undangenginna ára. Það hef- ur sýnt sig að janúar, febrúar og mars hafa verið erfíðustu mánuðirnar í atvinnulegu tilliti," sagði Gunnar. Guðrún Óladóttir, varaformaður Sóknar, sagði að 86 félagsmenn hefðu fengið bætur 18. desember sl. en sam- tals væru um 100 manns án vinnu. Á sama tíma í fyrra voru innan við 10 á atvinnuleysisskrá hjá félaginu. Aðspurð sagði Guðrún að atvinnu- Ieysi hefði verið að smá aukast allt árið og myndi sjálfsagt ekki minnka eftir áramót. Hún sagðist þó ekki vita til þess að von væri á fjöldaupp- sögnum í félaginu. Samkvæmt upplýsingum starfs- manna Dagsbrúnar fengu 398 félags- menn greiddar bætur á Þorláksmessu en rétt rúmlega 100 á sama tíma í fyrra. Starfsmennirnir mundu ekki eftir meira atvinnuleysi síðústu 10 ár en sögðu að það nálgaðist tímabil á árunum 1965-1969. Hjá Guðmundi Finnssyni, fram- kvæmdastjóra Verkalýðs- og sjó- mannafélags Keflavíkur, fengust hins vegar þær upplýsingar að álíka marg- ir væru á atvinnuleysisskrá og á sama tíma í fyrra, eða um 380 manns. Hann bjóst þó við að atvinnuleysi myndi aukast eftir áramót. Margir væru að vinna út uppsagnarfrest og sennilega bættist hópur fólks á at- vinnuleysisskrá í janúar og annar með vorinu. Aldrei hafa jafn margir fengið at- vinnuleysisbætur frá Verslunar- mannafélagi Reykjavíkur og nú eða 542 félagsmenn að sögn Valdísar Garðarsdóttur starfsmanns VR. Hún sagði að á sama tíma í fyrra hefðu rétt rúmlega 100 manns verið á at- vinnuleysisbótum. Félagið efnir til námskeiða fyrir atvinnulausa félagsmenn í samvinnu Yeiðiheimildir Færeyinga Erum mjög hissa á þessari úthlutun segir Kristján Ragnarsson KRISTJÁN Ragnarsson, formaður LÍÚ, segir að þeir séu mjög hissa á því að veiðiheimildum hér við land, 6.000 tonnum, skuli vera úthlut- að til Færeyinga á næsta ári. „Við töldum að í þeim mikla niður- skurði sem er á afla hérlendis væri nánast sjálfgefið að úthlutun á veiðiheimildum til Færeyinga væri hætt,“ segir Kristján. Óskar Vigfús- son, formaður Sjómannasambands íslands, segir að sambandið hafi enn ekki tekið afstöðu til þessa máls og meðan svo sé vilji hann ekki tjá sig um það. í máli Kristjáns Ragnarssonar kemur fram að íslendingar þurfi nú á öllum sínum afla að halda sjálfir. Dregið hafi mjög úr afla einstakra tegunda eins og lúðu, keilu og löngu þrátt íyrir stóraukna sókn sem sýni að þar sé ekkert til skiptana fyrir Færeyinga. „Það er svo annað mál að Færey- ingar hafa undirboðið þessar teg- undir fyrir okkur á mörkuðum ytra og einnig má nefna undirboð þeirra á öðrum afurðum eins og karfaflök- um í Þýskalandi,“ segir Kristján. „Þetta hafa þeir gert í krafti ríkis- styrkja hjá sér og okkur finnst skjóta skökku við að ætla að verðlauna þessa hegðun þeirra með áframhald- andi veiðiheimildum hér við land. Við teljum að Færeyingar eigi ekk- ert inni hjá okkur,“ sagði hann enn- fremur. við Menningar- og fræðslusamband alþýðu eftir áramót. Námskeiðin standa í 5 daga, hálfan dag í senn, og eru samtals 25 klukkustunda löng. Þau verða haldin í húsnæði félagsins í Húsi verslunarinnar og er skipt í 5 meginþætti sem eru: Sjálfstyrking, fjármál heimilanna, atvinnuleysis- tryggingar, atvinnuumsóknir og mannleg samskipti, Þá hefur verið ákveðið að bjóða öllum, sem hafa verið atvinnulausir í a.m.k. einn mánuð og hafa unnið meira en 25% starf áður en til at- vinnuleysis kom, fríkort í forvarnar- og endurhæfingarstöðina Mátt. Frí- kortið veitir aðgang að stöðinni milli kl. 9 og .16 og gildir í sex vikur. Gert er ráð fyrir að hægt verði að 'framlengja kortið. Óskar Hallgrímsson, forstöðumað- ur Vinnumálaskrifstofu Félagsmála- ráðuneytisins, sagði að ekki hefði verið tilkynnt um fleiri fjöldauppsagn- ir í desember en venja væri í þeim mánuði og kynni ástæðan að vera sú að uppsagnir hefðu farið fyrr af stað en venjulega. Hann sagði að tilkynnt hefði verið um uppsagnir 1.500 starfsmanna frá því í ágúst til jóla en sumir starfsmannanna hefðu verið endurráðnir. Nokkrar af þessum upp- sögnum taka gildi í janúar. Þj óðarbúskapurinn -"- -,*• .. ... ....................................■■■ Morgunblaðið/Bjöm Blöndal Hin nýja viðhaldsstöð Flugleiða á Keflavíkurflugvelli sem senn verður tekin í notkun. Keflavíkurflugvöllur Viðhaidsstöð Flugleiða tilbúin Keflavík. FRAMKVÆMDIR við hina nýju viðhaldsstöð Flug- leiða á Keflavíkurflugvelli hafa gengið samkvæmt áætlun þrátt fyrir smávægilegar tafir vegna veð- urs og þessa dagana keppast iðnaðarmenn við að Ijúka frágangi stöðvarinnar. Guðmundur Pálsson framkvæmdasljóri tæknisviðs Flugleiða sagðist reikna með að nýja viðhaldsstöðin yrði vígð í byrj- un janúar og í lok mánaðarins væri stefnt í fyrstu stórskoðunina i nýja flugskýlinu. Guðmundur Pálsson sagði að með tilkomu nýju við- haldsstöðvarinnar myndi öll starfsemi tæknideildarinn- ar flytjast í nýju bygginguna, og þar með um 130 starfsmenn. Guðmundur sagði að áætlaður kostnaður við bygginguna, sem væri stærsta byggingin á íslandi í eigu íslendinga, hefði einnig staðist í flestum atriðum og yrði hann á bilinu 850-900 milljónir króna. Hátt er til lofts og vítt er til veggja í nýju viðhalds- stöðinni, lofthæðin er um 20 metrar en sjálf bygging- in er 12.500 fermetrar. f kjallara er risastór vatnsþró fyrir slökkvikerfí sem tekur um 1,8 milljón lítra og á flugskýlinu sem tekur 5 af 6 millilandaþotum Flug- leiða verða tvær risahurðir sem hvor um sig er 1.120 fermetrar. Sérstakur útbúnaður er á þakinu til að mæta hitasveiflum, hvor þakplata er um 5.000 fer- metrar, en áætlað er að flatarmálsaukningin geti orð- ið allt að 15 fermetrum í mestu sveiflunum og leikur þakið í sleðum til að mæt.ta þeirri þenslu. -BB Skuldabréfaviðskipti lífeyrissjóðanna og Húsnæðisstofnunar Þátttaka í útboð- um á húsnæðis- bréfum vonbrigði - segir Hrafn Magnússon, framkvæmda- stjóri Sambands almennra lífeyrissjóða Lífeyrissjóðirnir keyptu sérskuldabréf fyrir 70 milljónir króna af Húsnæðisstofnun í gær. Sigurður E. Guðmundsson, framkvæmdastjóri Húsnæðisstofnunar ríkisins, spgir að sér komi ekki á óvart þó sérskulda- bréf fyrir 300-400 milljónir seljist í dag og fyrir hádegi á morgun. Hrafn Magnússon, framkvæmdasljóri Sambands almennra lífeyrissjóða, segir vonbrigði hversu lífeyrissjóðirnir hafi í litlum mæli komið inn í útboð Húsnæðisstofnunar fram til þessa. Hann segir að stefnt sé að því að aðeins sú leið verði farin í framtíðinni og sjóðirnir eigi væntanlega eftir að taka við sér. Mesti samdráttur síðan í lok sjöunda áratugar SAMDRÁTTUR í þjóðarbúskap íslendinga á þessu ári er meiri en orðið hefur hér á landi frá því í lok sjöunda áratugarins. Á móti hefur dreg- ið verulega úr verðbólgu og viðskiptahalla og hefur verðbólgan ekki verið minni síðan á sjötta áratugnum. Þjóðhagsstofnun gerir ráð fyrir áframhaldandi samdrætti á næsta ári, þó ekki eins miklum og á þessu, en telur að úr því geti farið að rofa til í efnahagsmálum. í samtali við Morgunblaðið sagði Þórður Friðjónsson forstjóri Þjóð- hagsstofnunar, að samdráttur hefði einkennt þjóðarbúskapinn á þessu ári. „Nú er talið að samdráttur í lands- framleiðslu verði 2,7% frá árinu á undan og þjóðarútgjöld dragist saman um 4,9%. Þessi samdráttur hefur leitt til þess_ að atvinnuleysi hefur aukist mikið. í nóvember voru 4.300 manns atvinnulausir að meðaltali en meðal- tal ársins var 3.700 manns, sem svar- ar til um það bil 3% af mannafla, sem er tvöfalt það atvinnuieysi sem var á árinu á undan,“ sagði Þórður. Hann sagði efnahagssamdráttinn þann mesta, sem orðið hefði hér á landi frá því í lok sjöunda áratugar- ins. Hann væri þó nokkru minni en spáð var í byijun síðasta árs, einkum vegna þess að horfur um sjávarafla voru mjög dökkar í upphafi ársins en síðan rættist úr með loðnuaflann sem hefur verið mjög góður á þessu ári. „Orsakir þessa andstreymis hér á landi eru fyrst og fremst tvær. Ann- ars vegar hafa alþjóðlegir efnahags- erfiðleikar væntanlega haldið niðri ' verði á og eftirspurn eftir útflutnings- afurðum okkar. Hins vegar hefur sjávarafli okkar dregist töluvert sam- an á undanförnum árum. Þjóðhagsleg skilyrði voru að ýmsu leyti verri á árinu en reiknað var með frá miðju árinu. Þegar leið á árið komu fram upplýsingar um ástand þorskstofnsins og í kjölfarið ákvörðun um samdrátt í þorskafla. í öðru lagi hefur bata í alþjóðaefnahagsmálum seinkað sem hefur lagst á þá sveif'að gera þjóð- hagsleg skilyrði lakari. Þetta gerði það að verkum, að talið var óhjá- kvæmilegt að grípa til efnahagsað- gerða í lok nóvember,“ sagði Þórður Hann sagði að sumt hefði þó geng- ið betur en ráð var gert fyrir. „Verð- bólgan hefur til dæmis orðið minni en spáð var, einungis 1,5% innan þessa árs, sem er minnsta verðbólga sem hefur verið hér á landi frá 6. áratugnum og raunar minni verð- bólga en er í nágrannalöndum okkar. Sömuleiðis er viðskiptahallinn talinn verða 6-7 milljörðum minni en árið 1991, og það hefur heldur meira dreg- ið úrViðskiptahallanum en spáð var.“ Þegar Þórður var spurður hvort minni viðskiptahalli og minni verð- bólga en gert var ráð fyrir bendi til skjótra viðbragða íslendinga við sam- drættinum svaraði hann að þetta sýndi að þjóðarbúskapurinn væri sveigjanlegur. „í öðru lagi virðist þetta sýna betri skilning almennings hér á gangverkinu í efnahagslífinu en víða annarstaðar og það er freist- andi að draga þá ályktun að íslend- ingar séu upplýstari um þessi mál en gengur og gerist,“ sagði Þórður. „I því sambandi er mjög mikilvægt að orðið hefur viðhorfsbreyting gagnvart verðbólgunni og það ríkir skilningur á að það sé mjög mikilvægt markmið að halda verðbólgunni hér svipaðri og er í nálægum löndum. Þetta teng- ist nánara samstarfi Evrópuþjóða í efnahagsmálum og þeim breytingum sem eru að verða með opnara hag- kerfi.“ Um næsta ár sagði Þórður, að búast mætti við áframhaldandi sam- drætti, þó ekki eins miklum og á þessu ári. „Árið verður frekar erfitt í efnahagslegu tilliti og það er óraun- sæi að gera ráð fyrir snöggum um- skiptum til hins beira. Hins vegar eru horfurnar betri þegar litið er fram yfir næstu misseri. Flest bendir til þess að efnahagslíf í heiminum rétti úr kútnum og þótt það skiii sér tæp- ast inn á næsta ár ætti það að hafa áhrif árin 1994-95, hugsanlega á þann hátt að áhugi á álversfram- kvæmdum og annarri fjárfestingu hér á landi vakni á ný. Síðan er sjávar- afli nú tiltölulega lítill í sögulegu sam- hengi og gera má ráð fyrir því að fiskimiðin geti gefið meira af sér. Því er full ástæða til þess að ætla að þessir þættir geti skilað þjóðarbúinu meiru ef horft er lengra fram í tím- ann,“ sagði Þórður. „Almennu kaupin fóru ekki í gang fyrr en í vor og auðvitað tekur það sinn tíma fyrir lífeyrissjóðina að læra á útboðin. Sjóðirnar þurfa svo líka að kaupa beint af stofnuninni og hafa kannski verið eitthvað á eftir og því hert róðurinn að gera skil í þessum mánuði. En það hefur vissulega vald- ið okkur vonbrigðum hvað sjóðirnir hafa komið inn í útboðin í litlum mæli. Við teljum að það sé framtíðin að koma þessum skuldabréfum Hús- næðisstofnunar á almennan fjár- magnsmarkað og sjóðirnir bjóði í slík bréf,“ sagði Hrafn þegar spurst var fyrir um hvaða ástæður lægju að baki litlum kaupum lífeyrissjóðanna á bréfum Húsnæðisstofnunar í geng- um almenn útboð. Aðspurður sagði Sigurður E. Guð- mundsson, framkvæmdastjóri Hús- næðisstofnunar ríkisins, að 1. desem- ber sl. hefðu lífeyrissjóðirnir átt eftir að kaupa sérskuldabréf að verðmæti einn milljarður króna af Húsnæðis- stofnun upp í gerða samninga. Nú væri búið að panta og kaupa bréf fyrir um 430 milljónir og stæðu þá aðeins um 570 milljónir eftir. „Ég er bjartsýnn á að það seljist fyrir ára- mót. Reynslan hefur margoft sýnt að lífeyrissjóðirnir eru snöggir og stór- tækir síðustu daga ársins,“ sagði Sig- urður og nefndi að selst hefðu sér- skuldabréf fyrir 70 milljónir í gær. „Mér kæmi ekki á óvart þótt bréf fyrir 300-400 milljónir seldust dag- inn fyrir gamlársdag og fram að há- degi þann dag. Þá tel ég að dæmið um samningsbundin kaup hafi gengið upp,“ sagði hann. Kjör sérskuldabréfa eru ákveðin eftir á og fara eftir meðalávöxtun spariskírteina ríkissjóðs að sögn Hrafns. -------» » ♦------ Húsbréf um 900 milljónir yfir áætlun ÚTHLUTUN úr síðasta flokki hús- bréfa í ár hófst skömmu fyrir jól. Kvóti ársins 1992, sem alls var áætlaður 12 milljarðar króna, dugði ekki til að anna eftirspurn, og var því fjórða flokkinum bætt við. Áætlað er að úthlutun úr hon- um nemi um 900 milljónum nú fyi ir áramót. Afgangurinn af flokkin- um, sem alls hljóðar upp á 4 millj- arða króna, færist yfir á næsta ár og kemur til frádráttar 11 millj- arða áætlaðri heildarútgáfu 1993. Að sögn Sigurðar Geirssonar, yfir- manns húsbréfadeildar Húsnæðis- stofnunar, er áætlað að þessi af- greiðsla endist fram í apríl eða maí á næsta ári. Næstsíðasti flokkur þessa árs kláraðist snemma í desember, og um hundrað manns hefðu þá mátt bíða eftir afgreiðslu, sumir í 2 til 3 vikur. Sigurður sagði að desember væri sá mánuður sem einna minnst væri að gera í húsbréfadeildinni, og vonir stæðu til að unnt væri að klára af- greiðslu velflestra umsókna fyrir ára- mót. Haraldur Johannessen fangelsismálastjóri Óskað eftir lóð undir fangelsi við borgarvfirvöld á næstunni HARALDUR Johannessen, fangelsismála- stjóri og formaður framkvæmdanefndar um fangelsismál, segir að framkvæmdanefndar- menn allir séu mjög sáttir við þá niðurstöðu sem Þorsteinn Pálsson dómsmálaráðherra hefur kynnt varðandi staðsetningu fangelsis- bygginga, enda sé sú niðurstaða í samræmi við annan af tveimur kostum sem nefndin gerði tillögu um til ráðherra nú í desember. Eins og greint var frá í Morgunblaðinu í gær hefur dómsmálaráðherra ákveðið að fangels- isplássum í landinu verði fjölgað úr 117 í 139 með því að byggt verði við fangelsið á Litla- Hrauni og reist nýtt afplánunar- og gæslu- varðhaldsfangelsi í Reykjavík er komi í stað Hegningarhússins og Síðumúlafangelsisins, auk þess sem rekstri fangelsisdeildarinnar á Akureyri verður hætt. Staðsetning hins nýja fangelsis í Reykjavík hefur ekki verið ákveð- in en að sögn Haralds Johannessen er verið að skoða nokkra kosti í því sambandi og verður formlega óskað eftir lóð undir fang- elsið við borgaryfirvöld á næstunni. Framkvæmdanefndin starfar áfram að undir- búningi bygginganna og vinnur einnig að ýmsum öðrum verkefnum, svo sem breytingum á skipu- ’ lagi fangelsismála og undirbúningi reglugerðar- og lagabreytinga í tengslum við tillögur þær sem gerðar voru í skýrslu fangelsismálanefndar um að flutt verði verkefni frá dómsmálaráðuneyti til Fangelsismálastofnunar. Að sögn Haralds verður haldinn fundur í nefndinni eftir áramót þar sem ákveðið verður hvernig standa eigi að undirbúningi byggingar- framkvæmdanna en sá undirbúningur verður meginverkefni nefndarinnar á næsta ári. 30 milljónir króna voru veittar til verkefnisins á Qárlögum ársins 1993 og verður því fé varið til ýmiss konar uhdirbúnings framkvæmdanna, meðal annars vegna hönnunarkostnaðar. „Við vonumst til að geta hafið byggingarframkvæmd- ir í lok ársins 1993 eða snemma á árinu 1994 en það er ekki búið að taka ákvörðun um það hver verður forgangsröð á verkefnum; hvort bytjað verður á Litla-Hrauni eða í Reykjavík eða hvort byggt verður samtímis á báðum stöðum," sagði Haraldur. Hann sagði útilokað að svo stöddu að spá fyrir um hvenær nýtt fangelsi yrði tekið í notkun; það ylti á fjái-veitingum. Þá sagði hann að ekki hefði verið leitað form- lega til Reykjavíkurborgar með ósk um úthlutun á lóð þótt rætt hafi verið við skipulagsstjórn borgarinnar um lóðir sem komi til álita og á næstunni verði farið formlega fram á það við Reykjavíkurborg að fá úthlutað lóð í þeim til- gangi. Haraldur vildi aðspurður ekki tjá sig um þá kosti sem verið hefðu til skoðunar á Reykja- víkursvæðinu. Aðspurður um kostnað við væntanlegar fang- elsisbyggingar sagði Haraldur að áætlanir þar að lútandi væru ekki farnar að taka á sig endan- lega mynd, enda hönnunarvinnu ólokið, en laus- legar áætlanir hefðu gert ráð fyrir að kostnaður- inn yrði á biiinu 280-400 milljónir króna. Framkvæmdanefnd um fangelsismál var skip- uð í framhaldi af því að skýrsla fangelsismála- nefndar var birt í vor og féllst dómsmálaráð- herra á tillögur nefndarinnar um úrbætur og stefnumörkun í fangelsismálum. Ráðherra fól framkvæmdanefndinni að vinna að úrvinnslu og framgangi tillagnanna og er þeirri vinnu nú lok- ið með fyrrgreindum hætti hvað varðar staðsetn- ingu fangelsisbygginga. Formaður fangelsis- málanefndar, Haraldur Johannessen, er formað- ur framkvæmdanefndarinnar eins og fyrr segir en aðrir í framkvæmdanefnd eru Björn Matthías- son, Hjalti Zóphóníasson og Sigurður Jónsson. Ritari framkvæmdanefndarinnar er Erlendur S. Baldursson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.