Morgunblaðið - 30.12.1992, Síða 30

Morgunblaðið - 30.12.1992, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1992 Morgunblaðið/Rúnar Þór Toppurinn tekinn af jólatrénu Skortur var á jólatijám á Akureyri fyrir þessi jól og voru þeir margir sem ætluðu að kaupa tré á Þorláksmessudag en urðu frá að hverfa án þess að fá neitt. Sjálfsagt hefur mikil örvænting gripið um sig hjá sumum og einhver hefur gripið til þess ör- þrifaráðs að fara af stað með sögina í leit að jóla- tré fyrir fjölskylduna. Eftir jólin tóku starfsmenn á Akureyrarflugvelli eftir því að toppurinn hafði verið tekinn af einu af þremur grenitijám sem starfsmenn Flugfélags Norðurlands gróðursettu um 1970 syðst á flugvellinum. Tréð er vitaskuld ónýtt á eftir og þykir FN-mönnum sjónarsviptir af því. Morgunblaðið/Rúnar Þór Vann traust Gogga á ný Svanberg Þórðarson starfsmaður Umhverfisdeildar Akureyrarbæjar hefur um árabil gefið fuglunum á Andapollinum og hafa þeir hænst að honum fyrir vikið. Fyrir nokkrum vikum gerði ölvaður maður mik- inn usla að næturlagi er hann sneri níu fulga úr hálsliðnum og hafði á brott með sér og eftir það varð hann Goggi, sem sjá má á mynd- inni, afar hvumpinn og fálátur og vildi ekkert með Svanberg hafa. Var hann á varðbergi lengi vel, en nú loks hefur honum tekist að vinna traust Gogga á ný. Ekki virðist fuglinn þó búin að gleyma atvik- inu því hann lætur ófriðlega við aðra en Svanberg og til að mynda var honum lítið um ljósmyndarann gefið. Vélsmiðjan Oddi sameinast Slipp- stöðinni um áramót Grímsey Góð kirkjusókn á jólum KIRKJUSÓKN var afar góð í jólamessu Grímseyinga sem var síðasta mánudag, 28. desember. Að lokinni messu var jólatrés- skemmtun að viðstöddum sókn- arpresti. Jólahátiðin hefur verið afar friðsæl i Grímsey. Séra Birgir Snæbjörnsson sókn- arprestur á Akureyri og prófastur Eyjafjarðarprófastsdæmis kom til Grímseyjar á mánudag og var hátíð- arguðsþjónusta í Miðgarðakirkju. Greinilegt var að Grímseyingar kunnu að meta þessa stund, því um 80 manns voru í kirkju. Veðrið hef- ur oft komið í veg fyrir að íbúar eyjarinnar hafi fengið jólamessu, en í fyrra var hún haldin á þrettánd- anum. Að lokinni messu var haldin jóla- trésskemmtun í félagsheimilinu Múla og kom sóknarprestur þar við, en prestur hefur ekki til fjölda ára verið viðstaddur jólatrés- skemmtun í Grímsey. Vestanátt hefur verið ríkjandi um langa hríð, flogið var til Grímseyjar á laugardegi fyrir jól, en síðan var ekki hægt að fljúga hingað í heila viku vegna veðurs. Feijan Sæfari kom tvær ferðir fyrir jól, á mánu- degi og þriðjudegi, þannig að allir komust heim í jólafrí fyrir hátíðina. Línubátar hafa róið þessa síðustu daga milli jóla og nýjárs og hafa aflað þokkalega. HSH --------»-•■♦ ♦------ ■ Fimm hljómsveitir koma fram á tónleikum sem haldnir verða í skemmtistaðnum 1929 í kvöld, mið- vikudagskvöldið 30. desember, en þær eru Skrokkabandið, Hún and- ar, Tomstone, Amma Dýrunn og Rotþróin. Aldurstakmark er 18 ár. (Fréttatilkynning) SLIPPSTÖÐIN og Vélsmiðjan Oddi sameinast í eitt fyrirtæki, Slipp- stöðina Odda um áramót. Hafist verður handa við að flytja starf- semi Odda yfir á athafnasvæði Slippstöðvarinnar eftir áramót, nema hvað veiðarfæradeild verður áfram á sínum stað. Hafnarsjóður Akureyrarbæjar hefur keypt hluta af fasteignum Odda við Strand- götu, en hluti þeirra er óseldur. „Við vonum að þetta muni verða fyrirtækjunum til góðs og ætti að vera það. Við reiknum með að halda þeim verkefnum sem Oddi hefur verið með og við það aukast hér verkefni og eins náum við með þessu umtalsverðum spamaði, til dæmis hvað yfirstjórn varðar, skrif- stofuhald verður sameiginlegt, hús- næði og fleira,“ sagði Knútur Karls- son formaður stjómar Slippstöðvar- innar. Sigurður Ringsted verður fram- kvæmdastjóri Slippstöðvarinnar Odda, en starfseminni verður skipt niður í þijú starfssvið. Torfi Guð- mundsson sem var framkvæmda- stjóri Vélsmiðjunnar Odda verður yfír markaðs- og tæknisviði fyrir- tækisins, Ólafur Óm Ólafsson verð- ur yfir fjármálasviði og Brynjólfur Tryggvason verður yfírverkstjóri framleiðslusviðs. Sameining þessara tveggja fyrir- tækja er liður í endurskipulagningu Slippstöðvarinnar, en á aðalfundi í vor var ákveðið að auka hlutafé stöðvarinnar um 100 milljónir króna. Vélsmiðjan Oddi sem að mestu er í eigu Kaupfélags Eyfírð- inga kemur inn í Slippstöðina sem ígildi hlutafjár. Þá leggja Akur- eyrarbær og ríkissjóður fram nýtt hlutafé til fyrirtækisins. Mikið tap varð af rekstrinum á síðasta ári eða upp á 237 milljónir króna, en þar af var nam niðurskrift eigna 185 milljónum króna, sem einkum er tilkomin vegna taps á smíði nýrra skipa. Hjá Vélsmiðjunni Odda hafa ver- ið starfræktar þijár deildir, kæli- deild, þjónustudeild og veiðarfæra- deild. Flutningur tveggja þeirra fyrmefndu hefst strax eftir áramót er reiknaði Knútur með að því verki ætti að vera lokið í kringum mán- aðamótin febrúar og mars. Veiðar- færadeild verður að svo stöddu ekki flutt yfír á athafnasvæði slippsins, en hún hefur verið starfrækt í öðru húsnæði en hinar deildirnar tvær. Hafnarsjóður Akureyrar hefur keypt hluta af fasteignum Odda fyrir um 15 milljónir króna, en hluti þeirra er óseldur, þar á meðal Gránufélagshúsið sem stendur við Strandgötuna. Knútur sagði að von- ast væri til að húseignir seldust, það væri fyrirtækinu mikilvægt. Verkefnastaða er þokkaleg og hefur verið að undanförnu. „Við höfum einhver verkefni við viðgerð- ir eftir áramótin, en það er alltaf erfítt í þessari grein að sjá langt fram í tímann. Daufasti tíminn er framundan, en við getum brúað hann með vinnu við seinna Malaví- skipið, sem verður afhent fullbúið í maí á næsta ári,“ sagði Knútur. FSA tekur við rekstri Kristnesspítala Yfirmönnum sagt upp störfum en aðrir fá uppsagnarbréf í dag Þeir sem ekki fá endurráðningu sitja fyrir í störf á FSA YFIRMÖNNUM Kristnesspítala var í gær sagt upp störfum og í dag, miðvikudag fær annað starfsfólk spítalans afhent uppsagnar- bréf. Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri tekur við rekstri Kristnespít- ala um áramót, en þar verða áfram reknar tvær deildir, endurhæf- ingardeild og öldrunardeild. Gert er ráð fyrir að það starfsfólk sem ekki fær endurráðningu gangi fyrir í störf á FSA hafi þeir hug á því. Þrír yfirmenn Kristnesspítala, þeir sem ráðherra skipar fengu uppsagnarbréf í gær, en þar er um að ræða framkvæmdastjóra, hjúkr- unarforstjóra og yfirlækni öldrun- ardeildar. Setning yfírlæknis á end- urhæfíngardeild rennur úr í janúar- lok, en yfirmenn spítalans munu 'hætta störfum 31. janúar næstkom- andi. Aðrir starfsmenn Kristnesspítla, þeir sem ráðnir hafa verið hjá stjórnarnefnd ríkisspítala fá afhent uppsagnarbréf í dag, en þeir er sagt upp störfum með þriggja mán- aða uppsagnarfresti. Þar er um að ræða um 80 manns. Skömmu fyrir jól varð að sam- komulagi að íjórðungssjúkrahúsið á Akureyri taki við rekstri Krist- nesspítala og fékk á fjárlögum næsta árs til þess 100 milljónir króna. „Kostnaðaráætlun okkar er ívíð hærri en 100 milljónir, en það verður verkefni sem við munum glíma við á næsta ári að koma rekstrinum fyrir innan ramma fjár- laganna," sagði Ingi Björnsson framkvæmdastjóri Fjórðungs- sjúkrahússins á Akureyri. FSA mun áfram starfrækja á Kristnesspítala öldrunardeild og endurhæfingardeild svo sem verið hefur og sagði Ingi að gerðar hafí verið áætlanir um reksturinn sem strax yrði byijað að vinna eftir við sameininguna, en samkvæmt áætl- unum FSA er ráðgert að hafa áfram svipaðan fjölda rúma á deildunum á Kristnesi og var. Ýmis konar þjón- usta verður sameinuð, eitt þvotta- hús rekið í stað tveggja áður, við- hald verður sameiginlegt og yfir- stjórn verður á einum stað. Það starfsfólk sem þörf verður fyrir eftir breytingar og endur- skipulagningu verður endurráðið, en gert er ráð fyrir að þeir sem ekki verða endurráðnir gangi að öðru jöfnu fyrir í störf á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Akureyri hafi þeir hug á því. Messur um áramót Glerárkirkja: Dr. Guðmundur Heiðar Frímannsson heim- spekingur flytur hugvekju í aft- ansöng kl. 18 á gamlársdag, 31. desember. Kór kirkjunnar syngur undir stjórn Jóhanns Baldvinssonar. Á nýársdag verður hátíðarmessa kl. 16. Hlíð: Hátíðarguðsþjónusta verður á Hlíð kl. 16 á gamlárs- dag. Kór aldraðra syngur und- ir stjórn Sigríðar Schiöth. Aft- ansöngur verður í Akureyrar- kirkju kl. 18. Kór Akureyrar- kirkju syngur undir stjórn Björns Steinars Sólbergsson- ar. Michael Jón Clarke syngur einsöng. Akureyrarkirkja: Á nýársdag verður hátíðarguðsþjónusta kl. 14. Gordon Jack og Sveinn Sigurbjörnsson leika á tromp- et í messunni. Sunnudaginn 3. janúar verður guðsþjónusta í Akureyrarkirkju kl. 14. Jón Pálsson cand. theol predikar. Fjórðungssjúkrahúsið: Guðs- þjónusta verður á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Akureyri kl. 17 á nýársdag.'

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.