Morgunblaðið - 30.12.1992, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1992
Lausnir j ólaskákþrauta
Skák
Margeir Pétursson
Vonandi hafa jólaskákþraut-
ir Morgunblaðsins ekki staðið í
neinum. Skáktölvur og skákfor-
rit fyrir einkatölvur eru nú til
á mörgum heimilum og það tek-
ur slíka gripi aðeins örfáar mín-
útur eða sekúndur að leysa
tveggja og þriggja leikja dæmi.
Lesendur hafa þó væntanlega
ekki gripið til þeirra um úrræði
fyrr en öll sund voru lokuð.
1. R. Réiti 1928
abcdat gh
Hvítur leikur og heldur jafntefli
Með hjálp peðsins á c6 nær
hvíti kóngurinn að hafa í fullu tré
við öll svörtu frípeðin.
1. Kg6 - Kb6 (Eða 1. - h5 2.
Kxg7 - h4 3. Kxf6 - h3 4. Ke7
— h2 5. c7 og heldur jafntefli og
1. - f5 2. Kxg7 - f4 3. Kf6 -
f3 4. Ke7 leiðir til sömu niður-
stöðu) 2. Kxg7 - h5 3. Kxf6 -
h4 4. Ke5 - h3 5. Kd6 og heldur
jafntefli.
2. E. Pogosjantz 1967
Hvitur mátar i fimmta leik
Lausnin leynir ekki mikið á sér:
1. Re3+ - Khl 2. Hfl+ - Rgl
3. Hcl! — g2 4. Rdl og riddara-
leik svarts er svarað með 5.
Rf2++ tvískák og mát!
3. A. Bottacci 1922
Til þess að hóta máti þarf hvít-
ur að losa riddarann á d5 úr lepp-
un. Þetta er ekki mjög snúið: 1.
Kc8! - Bd6 2. Rc7 mát eða 1. -
Bd4+ 2. Rc3 mát.
4. J. Valuska 1988
Það hafa líklega margir getað
leyst þetta dæmi en ekki áttað sig
á því af hveiju það fékk fyrstu
verðlaun tvíleiksdæma í nýafstað-
inni heimskeppni. Ástæðan er út-
færsla höfundarins á hinu svo-
nefnda Rúkhlis þema, sem felur í
sér varnavíxl eða mátvíxl. Það
þykir gott að hafa tvö mát sem
víxlast frá upphafsstöðu til lausn-
ar, en hér eru þau ekki færri en
fjögur.
I upphafsstöðunni er hvíta
sóknarliðiðinu haldið í skefjum af
svörtu drottningunni og svarta
hróknum á c3. Ef vámarmáttur
þeirra í upphafsstöðunni er minnk-
aður mátar hvítur auðveldlega: 1.
— Dxa5 2. Hd3 mát, 1. — Rc3
2. Hxd2 mát. Tvö önnur afbrigði
miðað við að svartur eigi leik í
upphafsstöðunni eru: 1. — Bd6
2. Hc4 mát, 1. — Rc6 2. Hd5
mát. Eftir rétta lausnarleikinn,
1. Dg6! sem hótar 2. Df5 mát,
breytast mátstefin í öllum tilvik-
um: 1. — Dxa5 2. Hd5 mát, 1. —
Rc3 2. Hc4 mát, 1. — Rc6 2.
Dxc6 mát og 1. — Bd6 2. Dxd6+
mát.
5. Hvítt: Sam Loyd, svart: C.C.
Moore
Mátstefið sem Sam Loyd þurfti
aldarfjórðung til að finna er afar
fallegt. Á íslensku er það nefnt
vegamótastef: 1. De6! — Hxe6-
(Eða 1. - Bxe6 2. Rf5+ - Kg8
3. Re7 mát)2. Rhg6+ — Kg8 3.
Hh8 mát
6. P.A. Orlimont 1904
Lausn þessarar þrautar byggist
á þema sem nefnt er „músagildr-
an“. Hér er það hrókur svarts sem
lendir í gildrunni: 1. Df5!Gildran
opnast 1. — Hxc6 2. Dc5!og smell-
ur aftur, svartur er óverjandi mát
í næsta leik.
Jólaskákmót grunnskóla
Taflfélag Reykjavíkur og
íþrótta- og tómstUndaráð Reykja-
víkur gengust í desembermánuði
fyrir jólaskákmóti grunnskóla.
Teflt var í tveimur aldursflokkum
og var þátttaka yngri nemendanna
góð, en þeirra eldri dræm. Um-
hugsunartíminn var 15 mínútur á
skákina.
Flokkur 1—7. bekkjar:
1. Æfingaskóli Kennaraháskóla
ísl., A sveit I8V2 v. af 24 möguleg-
um
2. Hvassaleitisskóli I6V2 v.
3—4. Melaskóli, A sveit og Hóla-
brekkuskóli, A sveit 16 v. '
5. Ártúnsskóli 15 v.
6—8. Hamraskóli, A sveit, Breið-
holtsskóli, A sveit og Fossvogs-
skóli, A sveit 14‘/2 v.
9. Selásskóli 14 v. 10-13.
Grandaskóli, Breiðagerðisskóli,
Langholtsskóli, B sveit og Mela-
skóli, B sveit I2V2 v.
14—16. Langholtsskóli, A sveit,
Skóli ísaks Jónssonar og Hóla-
brekkuskóli, B sveit 12 v. o.s.frv.
Flokkur 8—10. bekkjar:
1. Æfingaskóli Kennaraháskóla
ísl. 13 v. af 16 mögulegum
2. Hlíðaskóli IOV2 v.
3. Breiðholtsskóli 9 V2 v.
4. Hólabrekkuskóli B sveit 5 '/2 v.
5. Hólabrekkuskóli A sveit IV2 v.
í sigursveitum Æfmgaskólans
voru eftirtaldir:
Yngri flokkur: Bragi Þorfínnsson,
Davíð Ó. Ingimarsson, Magnús
B. Ólafsson og Héðinn Björnsson
Eldri flokkur: Amar E. Gunnars-
son, Bjöm Þorfínnsson, Oddur
Ingimarsson, Freyr Karlsson og
Ragnar Páll Dyer
Mótsstjóri var Gunnar Örn
Jónsson, en skákstjórar þeir Ólaf-
ur H. Ólafsson og Ríkharður
Sveinsson.
Helgarmót þriggja félaga
Skákfélag Hafnarfjarðar, Tafl-
félag Kópavogs og Taflfélagið
Hellir í Reykjavík gengust nýlega
fyrir helgaratskákmóti sem fram
fór í félagsheimili TK að Hamra-
borg 5. Mótið hófst á föstudags-
kvöldi og lauk á laugardegi. For-
maður SH, Ágúst Sindri Karlsson
hreppti fyrstu verðlaunin, hlaut 6
v. af 7 mögulegum. Úrslit urðu
þessi:
1. Ágúst S. Karlsson 6 v.
2—3. Róbert Harðarson og Sig-
urður Daði Sigfússon 5 V2 v.
4—5. Dan Hansson og Sigurbjörn
Björnsson 5 v.
6. Björn Freyr Björnsson 4V2 v.
7—14. Gunnar Björnsson; Ingvar
Ásmundsson, Þröstur Ámason,
Jóhann Helgi Sigurðsson, Sveinn
Kristinsson, Gunnar Gunnarsson,
Tómas Bjömsson og Einar Krist-
inn Einarsson 4 v. o.s.frv.
Helgaratskákmót félaganna á
höfuðborgarsvæðinu em sérlega
vinsæl á meðal sterkari skák-
manna eins og sést á þessari upp-
talningu. Þau eru að vinna sér
fastan sess í skáklífínu.
Til að laða að fleiri en þrau-
treynda meistara ættu forráða-
menn félaganna að skoða þann
möguleika að hafa sérstök bóka-
verðlaun á helgaratskákmótum
sínum, t.d. fyrir skákmenn yngri
en 20 ára, yngri en 16 ára, þá sem
hafa minna en 1.800 skákstig,
minna en 1.400 skákstig o.s.frv.
og sérstök kvennaverðlaun.
Næsta helgaratskákmót hefur
verið boðað í febrúarmánuði að
afloknu Skákþingi Reykjavíkur
sem mun hefjast sunnudaginn 10.
janúar næstkomandi.
Skákæfingar í Grafarvogi
Taflfélagið Hellir mun frá ára-
mótum gangast fyrir æfingum
barna í 1—7. bekk grunnskóla í
félagsmiðstöðinni Fjörgyn í Graf-
arvogi. Æfíngamar verða á
þriðjudögum kl. 17.
Þetta nýjung í starfsemi Hellis.
Venjulegar æfingar félagsins
verða eftir áramótin á mánudög-
um kl. 20 í menningarmiðstöðinni
Gerðubergi í Breiðholti og eru
opnar öllum skákunnendum.
Fýrsta mánudag hvers mánaðar
fer ávallt fram mánaðarhraðskák-
mót á æfingunum og em þá veitt
peningaverðlaun. Sigurvegarar í
vetur hafa orðið:
7. sept: Ágúst S. Karlsson
5. okt: Guðmundur Gíslason
2. nóv: Héðinn Steingrímsson
6. des: Ágúst S. Karlsson
Meistaramót Hellis fór fram í
nóvember og vora tefldar atskák-
ir, þ.e. umhugsunartíminn var
hálf klukkustund á skákina. Úrslit
urðu þessi:
1. Andri Áss Grétarsson 6V2 v.
2—3. Ingvar Ásmundsson og
Gunnar Gunnarsson 5 'h v.
4. Arinbjöm Gunnarsson 4 '/1 v.
5—7. Sveinn Kristinsson, Þorvald-
ur Logason og Svavar Guðni Svav-
arsson 4 v.
Félagar í sönghópnum Rjúkanda. Morgnnbiaðið/Aifons
Ólafsvík
Eldri borgarar heimsóttír
Ólafsvík.
VISTMENN dvalarheimilisins Jaðars fengu jólaglaðning fyrir
skemmstu er nokkrir nemendur Tónlistarskóla Olafsvíkur og söng-
hópurinn Rjúkandi komu í heimsókn og skemmtu þeim með söng
og hfjóðfæraleik.
Spiluðu nokkrir nemendur tón-
listarskólans jólalög og einnig söng
sönghópurinn Rjúkandi nokkur
jólalög við góðar undirtektir en þess
má geta að félagarnir í sönghópnum
eru allir starfandi sjómenn og er
þeim fleira til lista lagt en að draga
fisk úr sjó. Helgi Kristjánsson,
skólastjóri tónlistarskólans, sá um
stjórnina.
Þá flutti séra Friðrik Hjartar
sóknarprestur hátíðarræðu í tilefni
jólanna og í lok þessarar skemmt-
unar var boðið til veitinga og voru
vistmenn að vonum ánægðir með
þessa heimsókn. Fréttaritari
fes<MWKsíOS55<>Œ5oswBa5k>c:5t>ssí<sa»BS>0!S5Uí£!<vaa<it
SKATTALÆKKUN
VEGNA HLUTABRÉFAKAUPA
Vegna lítillar eftirspumar eftir hlutabréfum að undanfömu er verð þeirra nú
sérlega hagstætt. Hlutabréfasjóðurinn hf. hefur starfað síðastliðin sex ár.
Hann ver hlutafé sínu til fjárfestinga í hlutabréfum og skuldabréfum traustra
atvinnufyrirtækja. Hlutabréfasjóðurinn hf. er elsti og öflugasti
hlutabréfasjóður landsins. Hluthafar em nú 2.008. Eignir em 550 milljónir
og skuldir engar. Kaup einstaklinga á hlutabréfum í sjóðnum em
frádráttarbær ffá skattskyldum tekjum upp að vissu marki.
Áhættudreifing á einum stað
OPIÐGAMLARSDAG TIL KL. 13.00
HLUTABRÉFASJÓÐURINN HF.
Skólavörðustíg 12,101 Reykjavík, sími 21677