Morgunblaðið - 30.12.1992, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 30.12.1992, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1992 33 Á Hávarðsenda Kvikmyndir Arnaldur Indriðason „Howards End“. Sýnd í Háskóla- bíói. Leikstjóri: James Ivory. Framleiðandi: Ismail Merchant. Handrit: Ruth Prawer Jhabvala eftir samnefndri sögu E. M. Forsters. Aðalhlutverk: Anthony Hopkins, Vanessa Redgrave, Emma Thompson, Helena Bon- ham Carter, Samuel West, James Wilby. Þríeykið James Ivory, Ismail Merchant og Ruth Prawer Jhabv- ala, sem gert hafa ríkulega búnar, bókmenntalegar myndir eftir þekktum skáldsögum, hefur greini- lega fundið sér sögur við sitt hæfi í verkum breska rithöfundarins E. M. Forsters. „Howards End“, ein af jólamyndum Háskólabíós, er þriðja myndin sem þau gera eftir bókum hans og eins og fyrr hafa þau safnað saman úrvalshópi leik- ara til að fara með aðalhlutverkin. Þau hafa gert mynd sem er sannar- lega ólík því sem við eigum að venjast hér í bíóunum dags dag- lega, einstaka úttekt á ströngum siðum, hefðum og stéttaskiptingu gamla tímans og ástum og tví- skinnungi í lífi bresku efri milli- stéttarinnar um aldamótin síðustu. Efnið er talsvert þyngra eða sorglegra en t.d. í hinni fjaöur- mögnuðu Herbergi með útsýni, frægustu mynd þríeykisins sem einnig er gerð eftir sögu Forsters, en hinn lúmski húmor í persónulýs- ingum sem einkenndi þá mynd er þó ekki víðs fjarri. „Howards End“ er tæpar 140 mínútur að lengd og mætti sjálfsagt stytta frásögnina en það er bara erfítt að sjá hvar. Leikstjórinn Ivory og handritshöf- undurinn Jhabvala taka ekki þátt í þeim leik að þóknast áhorfendum heldur taka sér þann tíma sem þau þurfa til að byggja upp frásögnina og kynna persónur og viðkvæmt sambandið á milli þeirra og fyrir þá sem á annað borð njóta frábær- lega velheppnaðrar bíóútgáfu af bókmenntum fá ekkert betra. Það skáka fáir þríeykinu, sérstaklega þegar Forster er viðfangsefnið. Myndin segir frá ríkum kaup- sýslumanni, eiganda sveitaseturs- ins „Howards End“, og fjölskyldu hans, tveimur þýskættuðum systr- um sem búa í London og þekkja lítillega til fjölskyldunnar og loks bláfátækum og ljóðelskum skrif- stofumanni sem verður ástfanginn af yngri systurinni en er kvæntur, gegn vilja fjölskyldu sinnar, konu með fortíð sem þykir er fyrir neðan hans virðingu en hann telur sig fráleitt geta snúið við baki sóma síns vegna. Eldri systirin giftist kaupsýslumanninum þegar kona hans fellur frá, gegn vilja bam- anna, og yngri systirin snýst líka Fjöður í hatt þríeykisins; úr „Howards End“. öndverð gegn ráðahagnum og finnst nýi eiginmaðurinn hafa kom- ið illa fram við skrifstofumanninn, sem nú er skjólstæðingur hennar. Hér er aðeins tæpt á mun flóknari söguþræði sem Ivory dregur óend- anlega fínlegri og ljóðrænni drátt- um í smáatriðum og blæbrigðum og ríkulega endurmótuðu andrúms- lofti horfms tíma og gleymdra siða- reglna. Hin viðkvæmu tilfinninga- bönd og brothætta og stundum hættulega ást verður í höndum hans og Jhabvala og leikarahópsins spennandi og hríf- andi söguefni þar sem sveitasetrið Howards End verður tákn fyrir mannúð og friðsæld. Emma Thompson fer á kostum sem eldri systirin, skopleg þar sem hún er síma- landi eins og af taugaóstyrk en alltaf skynsemin og mann- gæskan uppmáluð. Hopkins geymir annan og tilfinningaríkari mann undir hörðum og ósveigjanlegum skrápnum og tekst illa að fela það þótt hann haldi fyrir andlitið. Redgrave er gömul og vís og svolít- ið útúr heiminum, Bonham Carter er uppreisnarseggurinn, Samuel West er frábær sem veiklynda skrifstofublókin og James Wilby er öfundsýkin og hugleysið upp- málað. Howards End er enn ein föðrin í hatt Ivorys, Merchants og Jhabv- ala. Lækkaðu skattana þína og láttu hjól atvinnulífsins vinna fýrir þig. Með kaupum á hlutabréfum í almenningshlutafélögum geta einstaklingar lækkað tekjuskattsstofn sinn um 94.357 kr. Endurgreiðsla á tekjuskatti er því um 37.500 kr. Ef um hjón er að ræða eru tölurnar 188.714 og endurgreiðslan um 75.000 kr. Viö hjá FJÁRFESTINGARFÉLAGINU SKANDIA höfum til sölu hlutabréf ítraustum félögum, s.s.: EIMSKIP, FLUGLEIÐUM, SKEUUNGI, OLÍS, GRANDA, SKAGSTRENDINGI, ÚTGERÐARFÉLAGIAKUREYRINGA auk annarra félaga. Upplýsingar um hlutabréf og hlutabréfamarkaöinn veita ráögjafar FJÁRFESTINGARFÉLAGSINS SKANDIA í síma 619700 í Hafnarstræti, 689700 í Kringlunni og 96 -11100 á Akureyri. Skandia FJÁRFESTINGARFÉLAGIÐ SKANDIA HF WtÆkSÞAUGL YSINGAR Blindrabókasafn íslands er lokað til mánudagsins 11. janúar vegna skipulagsbreytinga á bókakosti safnsins. Sjálfboðaliðar óskast, sími 686935. Við óskum lánþegum og öðrum velunnurum gleðilegs árs. Blindrabókasafn Islands. *&$) Sjómarumfélag Reykjavíkur Félagsfundur Fundur með farmönnum í dag, miðvikudag- inn 30. desember, kl. 14.00 á Lindargötu 9, 4. hæð. Gestir fundarins verða Halldór Blöndal, sam- gönguráðherra og Borgþór Kjærnested, framkvæmdastjóri NTF. Stjórn Sjómannafélags Reykjavíkur. Jólatrésskemmtun Í100. skipti Verzlunarmannafélag Reykjavíkur heldur eitthundruðustu jólatrésskemmtunina fyrir börn félagsmanna sunnudaginn 3. janúar nk. kl. 15.00 í Perlunni, Öskjuhlíð. Miðaverð er kr. 600,- fyrir börn og kr. 200,- fyrir fullorðna. Miðar eru seldir á skrifstofu V.R. í Húsi verslunarinnar, 8. hæð. Nánari upplýsingar í síma félagsins 687100. Verzlunarmanna félag Reykja víkur. ÖKUKENNSLA Aukin ökuréttindi Ökuskólinn í Mjódd, rekinn af Ökukennarafé- lagi íslands, býður uppá námskeið til aukinna ökuréttinda, þ.e. próf á vörubíl, rútubíl og leigubíl, og hefjast þau um miðjan janúar. Upplýsingar í síma 670300. Verslunarhúsnæði við Laugaveg Óskum eftir að taka á leigu ca 150 fm versl- unarhúsnæði við Laugaveg. Svör leggist inn á auglýsingadeild Mbl., merkt: „L - 1304“, fyrir 6. janúar. Atvinnuhúsnæði til leigu Til leigu nýtt, glæsilegt 500 fm skrifstofuhús- næði, stutt frá Hlemmi. Um er að ræða glæsi- lega þakhæð með miklu útsýni. Frábær staðsetning. Bílastæði úti og inni. Nánari upplýsingar í símum 14174 og 985-21010.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.