Morgunblaðið - 30.12.1992, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 30.12.1992, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1992 37 Anna Krisljáns- dóttir - Minning Fædd 7. apríl 1906 Dáin 21. desember 1992 Góð vinkona er fallin frá. Anna Kristjánsdóttir frá Bjarkar- lundi í Garðabæ er farin yfir móðuna miklu og verður útför hennar í dag. Hún hafði um tíma kennt sér las- leika, er snögglega ágerðist, svo að hún var flutt á sjúkrahús. Þar lá hún helsjúk í rúma viku. Ég leit inn til hennar, en lítið varð um samræður, því að hún mókti að mestu og átti erfítt um mál. Þó sagði hún greini- lega, að sér liði ágætlega. Þau orð lýstu henni vel. Það var ekki hennar venja að kveina eða kvarta, þótt eitt- hvað bjátaði á með heiisuna. Ég kynntist Önnu fyrir tæpum þrem áratugum. Ekki man ég hvern- ig fyrstu kynnin voru, en hitt man ég, að fljótt veitti ég því eftirtekt, hve mikla göfgi og góðvild ásamt reisn hún bar með sér. Ekki leið á löngu, áður en ég sat yfir kaffibolla hjá þeim Önnu og Jóhanni Jónssyni manni hennar. Ýmist var það í eldhúsinu eða stof- unni, sem búin var mörgum góðum bókum auk blóma og annars þess, er Ijær heimili hlýju og notalegan svip. Aður hafði hún komið á heim- ili mitt í einhveijum erindum Guð- spekifélagsins. Við vorum bæði í félaginu og áttum samleið í andleg- um málum, enda bar þau brátt á góma, er litið var inn hvort hjá öðru. Hugur Jóhanns hneigðist ekki í sömu átt um andleg mál. En hann las mikið um margvísleg efni og var hafsjór af þjóðlegum fróðleik. Þótti mér ég ævinlega hafa sótt mikið til þeirra beggja, er heimsókn hjá þeim lauk. Jóhann andaðist árið 1981. Hon- um kynntist kona mín ekki og Önnu ekki að ráði fyrr en að honum látn- um. Til Önnu þótti henni gott að koma og féll hún sérlega vel í geð. Ekki var verra, að^'við þijú vorum öll á sömu línu í andlegum efnum, en hvað sem því leið, sagðist kona mín finna mikinn frið og ró í návist hennar. Við Anna störfuðum saman í all- mörg ár í Flataskóla. Ég hafði kennt þar í nokkur ár, er hún réðst þangað í gangavörslu. Þar áttum við margar ánægjulegar rabbstundir um lífið og tilveruna. Anna var skyldurækin og ákveðin, en svo hlý og móðurleg við börnin, að sjaldan eða aldrei þurfti hún að beita þau hörku. Hugur þeirra til hennar kom líka berlega í ljós, þegar Vilbergur Júlíusson þá- verandi skólastjóri, skýrði frá því við skólaslit eitt vorið, að Anna ætlaði að hætta störfum vegna dvínandi þreks og heilsu. Þá kváðu við undr- unaróp og mótmæli frá bamahópn- um. Anna sagði mér frá því, hvemig atvik, sem virtust tilviíjanir einar, leiddu hana inn fyrir dyr á húsi Guðspekifélagsins og síðan í félagið, sem hún hafði ekki vitað nein deili á. Þann atburð taldi hún hafa orðið sér til mikillar gæfu. Skoðanir guð- spekisinna á eðli lífsins með lögmál orsaka og afleiðinga í fyrirrúmi.urðut henni verðmæt viðbót við kenningar meistarans frá Nasaret og raunar fylling á þeim. Taldi hún skoðanir þær og kenningar, sem hún kynntist í félaginu, hafa gefið sér meiri og betri skilning á öldpróti lífsins og misjöfnum aðstæðum fólks. Anna var mjög skyldurækin, eins og fyrr segir. Til orðs og æðis var hún sannkristin kona, sem mat skyldurækni og heiðarleika meðal mestu dyggða, auk góðvildar glað- værðar og hjálpsemi við náungann. Þeir munu líka orðnir margir, sem á einhvern hátt nutu hjálparhandar hennar, bæði í þjónustureglu Guð- spekifélagsins og á öðrum vettvangi. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama, en orðstír deyr aldregi hyeim er sér góðan getur. (Hávamál.) Vinar er saknað. En minningin um góða og vandaða konu lifir. Mestur harmur er kveðinn að börn- um Önnu og öðrum ástvinum og aðstandendum. Við hjónin vottum þeim öllum dýpstu samúð og biðjum þann, sem öllu ræður, að styrkja þau í sorginni. Ari V. Ragnarsson. Því hvað er að deyja annað en standa nakinn í blænum og hverfa inn í sólskinið? (Kahlil Gibran.) Það er skrítið að maður heldur alltaf að þeir sem manni þykir vænst um verði alltaf hjá okkur, verði eilíf- ir og alltaf í kallfæri. Nú kveð ég langömmusystur mína sem ég kallaði alltaf ömmu eftir að ég fór að venja komur mínar í Bjar- karlundinn, til hennar og Guð- brands. Alltaf kvaddi hún mig vel og þakkaði mér vel fyrir komuna. Núna síðast á St. Jósefsspítala þakk- aði hún okkur Dalla fyrir að líta til sín, ég hefði þá mikið frekar átt að þakka henni betur fyrir allt sem hún er búin að gefa mér, en ég gat ekk- ert sagt. Það er sárt að hugsa til þess að geta ekki lengur skroppið í Garðabæinn og fengið góð ráð hjá ömmu sinni. Aldrei fann maður fyrir kynslóða- bilinu þó að nokkrir ættliðir væru á milli okkar og alltaf gat maður ver- ið viss um að hlustað væri af at- hygli á hvað maður hafði að segja. Hún var trúuð kona og hafði ákveðnar skoðanir á trúmálum. Hún sagði mér oft frá því að hún bæði alltaf Guð um að vernda hana Ellu sína í Vesturbænum á hveiju kvöldi, þegar hún talaði til Himnaföðurins. Það þótti mér vænt um. Nú bið ég Guð um að taka á móti ömmu og vona að við hittumst aftur í næsta lífi og verðum jafn góðar vinkonur og við vorum í þessu. Elinóra. Mér er ljúft að minnast hennar. Kynni okkar skilja eftir sig góðar minningar. Anna var höfðingi heim að sækja. Það var yndislegt að heim- sækja hana í litla húsið hennar, Bjar- karlund, og síðan í nýju íbúðina hennar hjá öldruðum í Garðabæ. Anna var einstaklega hjartahlý og glaðvær kona. Ég var búin að þekkja hana frá því að ég var smá- stelpa. Síðar reyndist hún minni fjöl- skyldu vel. Anna var mikil hannyrða- kona. Saumaði og pijónaði margar fallegar flíkur. Það er erfitt að sætta sig við að sjá hana aldrei aftur en minningin um hressa, lífsglaða, góða vinkonu mun alltaf lifa í hjarta mínu. Nú þegar komið er að kveðjustund biðjum við góðan Guð að blessa minningu hennar og við sendum aðstandendum hennar innilegar samúðarkveðjur. Jóhanna og fjölskylda. í dag kveðjum við með söknuði sæmdarkonuna Önnu Kristjánsdótt- ur. Anna í Bjarkarlundi eins og hún var kölluð var myndarleg og hlý kona. Á stundum sem þessari koma fram í hugann margar góðar minn- ingar. Ég var svo lánsöm að kynn- ast þessari góðu konu þegar ég var barn og hélst sú vinátta ætíð síðan. Anna tók alltaf vel á móti mér þótt hún hafi haft nóg að gera. Það var alltaf tími fyrir spjall. Hennar líf og yndi var að pijóna lopapeysur sem hún gaf eða seldi. Það var unun að sitja á skammeli fyrir framan hana og horfa á hve hratt pijónarn- ir gengu. Og fyrr en varði var kom- in peysa. Kleinubaksturinn var líka merkilegur, þá sat ég í tröppunni í þvottahúsinu á meðan hún bakaði og ég horfði löngunaraugum á hve staflinn stækkaði fljótt. Alltaf fékk ég mjólk og kleinur og Anna var ekki að spara þær. Anna sá og heyrði bara það sem var gott. Hún átti allt- af til hrós og þakklæti handa manni hversu lítilfjörlegt það var sem gert var fyrir hana. Anna var trúuð kona og það hef- ur hjálpað henni að taka því sem framundan var. Það var venja að heimsækja Önnu á aðfangadag færa henni vanilluhringi sem henni þóttu svo góðir, þá var sest niður og mál- in rædd og skipst á jólakveðjum. En fyrir þessi jól var það ekki nema í huganum. Því var mikill söknuður hjá okkur ijölskyldunni. Eins og yngri stelpan mín sagði: „Mamma því þurfti Anna sem var svo góð að deyja?“ Eitt er víst að dauðann flýr enginn. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Nú þegar kveðjustundin er komin þá þakka ég Önnu fyrir allar góðu stundirnar. Börnum, tengdabörnum og fjölskyldum þeirra sendi ég sam- úðarkveðjur og bið góðan guð að gefa þeim styrk á þessari sorgar- stundu. Kolbrún Sigmundsdóttir. Ég vil þakka henni Önnu ömmu fyrir allt sem hún hefur gefíð mér um árin. Alltaf var gott að heim- sækja hana í Silfurtúnið. Ég sótti mikið í að vera hjá henni. Þar var ætíð svo rólegt og alltaf gaf hún sér tíma til að hlusta á mig og sýndi áhuga á mínum hugðarefnum. Hún amma var alltaf hress og fylgdist vel með því sem var að ger- ast í kringum hana. Hún hafði ákveðnar skoðanir á hlutunum og kom þeim á framfæri á sinn ljúfa máta. Amma var af þeirri kynslóð sem upplifað hefur miklar þjóðfé- lagsbreytingar. Hún var ekki alveg sátt við hið mikla Iífsgæðakapphlaup sem væri alltaf að aukast. Amma átti stutta æsku, ráðin sem vinnu- kona í sveit aðeins 12 ára gömul. Hún var ætíð að þjóna öðrum. Þótt lífsbaráttan hafi oft verið erfið var hún ekki bitur og reyndi að gera gott úr því sem lífið bauð upp á. Hún var mjög skilningsrík og í góðu andlegu jafnvægi, sem gerði henni auðvelt að gefa öðrum af kærleika sínum. Amma kynntist mörgu ólíku fólki og átti marga vini. Ef henni fannst fólk gera góða hluti átti hún til að hafa samband við það þótt hún þekkti það ekkert. Þannig var hún. „Ef fólk gerir gott á að láta það vita,“ sagði hún. Anna amma vann um tíma sem gangavörður í Flataskóla. Þar eign- aðist hún magra unga vini sem héldu tryggð við hana alla tíð og heim- sóttu hana oft. Amma var því aldrei einmana í ellinni. Hún hafði gefið mikið af sér alla tíð og mörgum fannst gott að koma til hennar. Amma var sátt við lífið og var því tilbúin að fara þegar kallið kom. Ég vil þakka ömmu fyrir allt sem hún gaf mér og fjölskyldu minni og ég veit að fyrir mér verður hún allt- af lifandi í minningunni. Ragnheiður Halldórsdóttir. Anna tengdamóðir mín lést á St. Jósefsspítalanum í Hafnarfirði þann 21. þessa mánaðar eftir stutta legu. Hún var hress allt fram undir það að hún fór á sjúkrahúsið, en vegna gigtar sem þjáði hana vissi hún að hún gæti ekki mikið lengur verið ein og yrði þá öðrum háð og þyrfti aukna umönnun, en hún gat ekki hugsað sér að aðrir þyrftu að hafa fyrir sér. Þess vegna var hún sátt við að jarðvist sinni væri lokið nú þegar hún veiktist og hún kveið ekki því sem koma skyldi. Okkur hénnar nánustu kom það meira á óvart en henni að hún væri á förum, því eins og oft vill víst verða á svona stund- um þá fannst okkur að hún ætti og myndi lifa mikið lengur. Tengdamóður minni kynntist ég fyrst árið 1949 og höfum við hjónin alltaf haft mjög náið samband við hana síðan og um tíma bjuggum við á heimili tengdaforeldra minna. Aldrei hefur fallið skuggi á samband hennar við okkur hjónin og börnin okkar. Þegar ég nú kveð kæra tengda- móður mína er mér efst í huga þakk- læti fyrir allar samverustundirnar sem við hjónin og öll okkar börn áttum með henni auk alls hennar hlýleika og vináttu sem við alla tíð nutum. Samfylgd hennar var okkur öllum til þroska. Anna tengdamóðir mín var fædd í Brúnavík en ólst upp á Jökulsá í Borgarfirði eystri. Hún var yngst þriggja dætra hjónanna Kristjáns Kristjánssonar og Rósu Halldóru Friðriksdóttur. Systur Önnu, Sara og Sigurveig, eru báðar látnar fyrir nokkrum árum. Kristján faðir Önnu var ættaður úr Skagafirði en Rósa Halldóra móðir hennar var sunnan úr Höfnum. Anna missti ung föður sinn og fór skömmu eftir fermingu að heiman og vann fyrir sér í vist á ýmsum stöðum í Reykjavík, Eskifirði og Fáskrúðsfirði. Árið 1925 eignaðist Anna dóttur, Guðríði Hallsteinsdóttur. Guðríður ólst upp hjá föður sínum og föð- urömmu. Ánna hafð alla tíð gott samband við Guðríði dóttur sína svo og börn hennar og þeirra börn. Anna endaði sína lausamennsku sem kaupakona í Brautarholti á Kjalarnesi þar sem hún kynntist Jóhanni Jónssyni sem hún giftist 30. maí 1929. Jóhann var sonur Jóns Eyjólfssonar og Ragnhildar Þórðar- dóttur sem bjuggu á Háreksstöðum í Norðurárdal, en nýfæddur fór Jó- hann í fóstur til föðurbróður síns og nafna, Jóhanns Eyjólfssonar, sem bjó í Sveinatungu í sömu sveit og ólst upp hjá honum og konu hans Ingibjörgu Sigurðardóttur. Jóhann og Anna hófu búskap í Eliiðakoti ofan við Lögberg en flytj- ast til Reykjavíkur eftir skamman búskap þar. Fram til ársins 1943 búa þau í Reykjavík iengst að Auðn- um sem voru við Langholtsveginn í innanverðu Kleppsholti. Frá Reykja- vík flytjast þau suður í Garðahrepp og urðu þar einir af frumbýlingunum í þéttbýlinu sem byggðist á túnunum frá Vífilsstaðavegi og norður að Arnarneslæk. Lengst bjuggu þau í húsi sem var kallað Bjarkarlundur, eða frá 1953 til 1981, er Jóhann lést. Anna býr þar áfram eftir lát manns síns þar til fyrir rúmum tveimur árum er hún flytur í Kirkju- lund 6 sem er fjölbýlishús fyrir aldr- aða þar sem hún bjó það sem eftir var. Anna var oftast kennd við Bjar- karlund. Anna og Jóhann eignuðust fjögur börn: Söru, Kristján, Helgu og Jóann Inga. Þau lifa móður sína öll nema Kristján, sem dó ungbarn. Barnabörn Önnu eru 17, barna- barnabörn 25 og eitt barnabarna- barn og eitt barnabarnabarn er lát- ið. Anna hafði gott samband við alla sína afkomendur eftir því sem hún hafði tök á og bar mikla umhyggju fyrir þeim öllum. Anna var mikil trúmanneskja og starfaði mikið í Guðspekifélagi Ís- lands. Hún var umburðarlynd í trú- málum og sterkur þáttur í lífsvið- horfi hennar var að nota krafta sína til að styðja þá sem á einhvern hátt höfðu orðið undir í lífinu og liðu neyð. Nú þegar Anna tengdamóðir mín er gengin mun í huganum lifa minn- ingin um sterka, heilsteypta og góða konu. Megi trú hennar um aukinn þroska rætast. Blessuð sé minning hennar. Sigurberg H. Elentínusson. IÞROTTAFELAG HEYRNARLAUSRA Stofnað 3. apríl 1979 Iþróttafélag heyrnarlausra óskar öllutn landsmönnum gleðilegs nýs árs og þakkar veittan stuðning. Dregið var í Hausthappdrætti íþróttafélags heyrnarlausra þann 24. desember sl. MMC Colt árg. 1993 frá Heklu kr. 935.000 33726 Vöruúttekt frá Smith og Norland kr. 200.000 2883 7048 32892 36039 Ferð með Samvinnuferðum kr. 120.000 22355 Tölvubúnaður frá Tæknivali kr. 100.000 9341 9613 35898 Vöruúttekt hjá Japis kr. 100.000 255 12334 13839 35715 35796 Ferðir með Samvinnuferðum kr. 80.000 2304 16582 29426 3837 17468 33554 Vöruúttekt hjá Radíóbúðinni kr. 20.000 5108 10293 18117 25119 31979 7236 17516 23676 30945 39951 Vöruúttekt hjá IKEA kr. 10.000 245 945 10308 19004 30564 607 6549 13904 29219 33348

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.