Morgunblaðið - 30.12.1992, Qupperneq 42
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1992
rm——n—f7—i—!—7-n :—"t"}1 r —t—:—I—t?—
félk f
fréttum
VIÐURKENNIN G
Davíð Olafsson
Forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, óskar Steinunni Ólínu til
hamingju með frammistöðuna.
Þrjár íslenskar Elísur: Ragnheiður Steindórsdóttir (Leikfélag Akur-
eyrar 1984), Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir (Þjóðleikhúsið 1992) og
Vala Kristjánsdóttir (Þjóðleikhúsið 1962).
LEIKHÚS
Frumsýning á My Fair Lady
Söngleikurinn My Fair Lady var
frumsýndur í Þjóðleikhúsinu
á 2. í jólum. Húsfyllir var á sýning-
unni og var henni mjög vel tekið.
Fyrsta uppfærsla á My Fair
Lady hér á landi var í Þjóðleikhús-
inu í mars 1962 og fór þá Vala
Kristjánsdóttir með hlutverk Elísu
Doolittle. Árið 1984 réðist Leikfé-
lag Akureyrar í uppsetningu á
söngleiknum og í hlutverki Elísu
var Ragnheiður Steindórsdóttir. í
uppfærslunni að þessu sinni fer
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir
með hlutverk Elísu og var henni
óspart klappað lof í lófa í lok sýn-
ingar.
Eftir sýninguna var mikil um og öðrum aðstandendum til
stemmning að tjaldabaki og kom hamingju.
fjöldi áhorfenda til að óska leikur-
fær portúgalska orðu
Forseti Lýðveldisins Portúgal,
Mario Soares, hefur sæmt Davíð
Ólafsson, f.v. seðlabankastjóra, orð-
unni „Order of Merit“ af gráðunni
Grand Officer.
Davíð hefur lengi átt sæti í fram-
kvæmdanefnd EFTA-fjárfestingar-
sjóðsins og lagt þar af mörkum
ómetandi reynslu sína og þekkingu
til þróunar í portúgölskum iðnaði.
Ræðismaður Portúgals, Þór Þor-
steins, afhenti Davíð orðuna á
heitnili hans fyrir skömmu.
Muddskóli Rafpis Geirdals
NUDDNAM
janúar 1993 - desember 1994
Mánudaginn 11. janúar nk. hefst nýtt nuddnám
og skiptist það í eftirfarandi þrjá þætti:
1. Nuddkennsla
kl. 9 - 16 virka daga frá 11. janúar til 7. apríl.
Kenndar verða helstu aðferðir í almennu líkams-
nuddi: Slökunarnudd, klassískt nudd, íþróttanudd,
heildrænt nudd og nudd við vöðvaspennu. Einnig
verður kynning á svæðanuddi og síatsú. Áhersla er
lögð á fræðslu um helstu vöðva líkamans. Einnig
fræðsla um heilbrigði, bæði út frá hefðbundnum og
óhefðbundnum sjónarmiðum. 500 kennslustundir.
2. Starfsþjálfun
Sveigjanlegur þjálfunartími yfir tveggja ára tímabil.
500 klukkustundir.
3. Bókleg fög
Öll kennsla í bóklegum fögum fer fram í fjölbrauta-
skólum landsins og má taka áður, meðfram eða eftir
nuddnám, en sé endanlega lokið fyrir 31. desember
1994: Líffæra- og lífeðlisfræði (LOL 103, 203), líf-
fræði (LÍF 103), heilbrigðisfræði (HBF 102, 203),
líkamsbeiting (LIB 101), næringarfræði (NÆR 103),
skyndihjálp (SKY 101). 494 kennslustundir.
Námið er alls 1.494 stundir. Nemandi, sem stenst
öll skilyrði skólans, útskrifast með viðurkenningu
sem nuddfræðingur og hefur rétt til sjálfstæðra starfa.
Námið er viðurkennt af Félagi íslenskra nuddfræðinga.
Upplýsingar og skráning í símum
676612/686612
Smiðshöfða 10, 112 Reykjavík.
En þessi sjóður hefur á undanförn-
um árum stutt mikið af fjárfesting-
arframkvæmdum Portúgala.
Henry Higgins, Elísa Doolittle og Pickerton ofursti (Jóhann Sigurðar-
son, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir og Helgi Skúlason) fagna því
að langri og strangri æfingatörn er lokið og My Fair Lady er komin
á svið.
COSPER
Gamlárskvöld
UNCUNCfiEALL
16 ára/kl. 23-04
JET BLACK JOE
KOLRASSA KRÓKRÍÐANDI
Diskótek
Verð kr 2000.-. Forsala aðgöngumiða kl. 11-18.
KAMELIÓNIÐ
á Hótel íslandi, síml 687111
KVIKMYNDIR
Krókodíla
Dundee
eignast
erfingja
Nú er undirbúningur að gerð
þriðju kvikmyndarinnar um
Krókodíla-Dundee í fullum gangi
og verður aðalhlutverkið sem fyrr
í höndum Ástralans Paul Hogan.
Eiginkona hans, Linda Kozlovski,
sem hefur leikið aðalkvenhlutverkið
í báðum fyrri myndunum hefur
hafnað stóru boði um að leika enn
á ný, þannig að leit stendur yfir
að leikkonu til að standa andspæn-
is Hogan.
Linda hefur sagt skilið við kvik-
myndaleik um sinn, hún gengur
með barn þeirra hjóna undir belti
og hefur sagt að það gangi fyrir
að koma því á legg. Vel megi at-
huga málin síðar, er barnið sé orðið
nokkurra ára gamalt. Þau Hogan-
hjónin þénuðu vel á Krókodílamann-
inum og hafa reist sér risastórt ein-
býlishús á Gullströndinni í Ástralíu.
Linda segir það alltaf hafa verið
draum sinn að standa úti á verönd
á stóru einbýli, sínu eigin einbýli,
á eignarjörð, og skima til hafs þar
sem það gjálfrar við gullna strönd.
Sér fínnist ótrúlegt að draumar af
því taginu geti ræst.
Hogan-hjónin.