Morgunblaðið - 30.12.1992, Síða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1992
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Gáfur þínar njóta sín í vinn-
unni. Þú gætir tekið til hendi
við að ljúka uppsöfnuðum
verkefnum. Forðastu
ágreining.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Einhver ágreiningur gæti
komið upp varðandi fjármál-
in, en dagurinn annars góð-
ur. Vinafundir veita þér
ánægju.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú finnur hjá þér hvatningu
til að ná árangri í lífinu.
Láttu til skarar skriða og
hlýddu ráðum þeirra sem til
þekkja.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí) Hig
Sumir eru þegar farnir að
fagna áramótunum og eru í
hátíðarskapi í dag. Aðrir eru
með hugann við væntanleg
ferðaiög.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú gætir verið með áhyggjur
vegna eyðslusemi unglings.
Heimavinna heillar þig. Þú
þarfnast hvíldar í kvöld.
Meyja
(23. ágúst - 22. septemterí <jíe£
Þótt eitthvað fari ekki eins
og þú vildir, ættir þú ekki
að láta það á þig fá. Þetta
verður góður dagur í hópi
ástvina.
(23. sept. - 22. október)
Þú ert á framabraut í vinn-
unni og vonir þínar glæðast.
Taktu frumkvæðið og
stefndu að því að ná settu
marki.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Skemmtanalífið á hug þinn
allan í dag og þig langar að
njóta lífsins. Gakktu frá
ferðaáætlunum og njóttu
kvöldsins með ástvini.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember) m
Það er nóg að gera á heimil-
inu eftir jólin. Reyndu að
sýna ættingja umburðar-
lyndi. Bjóddu vinum heim í
kvöld.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar) &
Það er í nógu að snúast í
dag og þú hefur gaman af
að blanda geði við aðra. Þú
nýtur þín í samvistum við
vini og félaga.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar)
Þú vinnur að nýju verkefni
og finnur leið til að auka
tekjumar. Svarið sem þú
leitar að finnst þegar á dag-
inn líður.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Þú hugsar meira um
skemmtanalífið en vinnuna
í dag og átt frumkvæðið að
því að skipuleggja sam-
kvæmi í kvöld.
Stjörnuspána á að lesa sem
dœgradv'ól. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
visindalegra staðreynda.
DYRAGLENS
TOMMI OG JENNI
I/'tvr. Úr FyR/R /}£>TZ>m svt/
Ísá rtrroR. ay&TAE>OG. í
—7 LJOSKA
FERDINAND
SMAFOLK
cÚmui fáfiondymij
CCfumJk H&tt
tf\SL
UJMAT PID 6RANPMA
61VE ME FOR
CURISTMAS?
UUMI04 6RANDMA?
ANV 6RANPMAÍJ
Kæra amma, þakka þér Hvaðgafammaméríjóla- Hvor amman?
fyrir. gjöf?
Hvaða amma sem er!
BRIPS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Önnur jólaþrautin. Suður gef-
ur; allir á hættu.
Vestur Norður ♦ 54 ¥ Á8752 ♦ KD765 ♦ Á Austur
♦ Á98 ...... ♦DG10762
VG63 ¥KD9
♦ 982 ♦ 103
♦ G843 ♦ 102
Suður ♦ K3 ¥104 ♦ ÁG4 ♦ KD9765
Vestur Norður Austur Suður
Belladonna Avarelli
- - - 1 tígull *
Pass 2 hjörtu Pass 3 lauf
Pass 4 tíglar Pass 4 spaðar
Pass 5 lauf Pass 5 tíglar
Pass 6 tíglar Allir pass
* Kerfið er sterkt lauf, svo opn-
un á tígli getur verið byggð á
lauflit.
Útspil: hjartaþristur.
Avarelli stakk upp hjartaás í
fyrsta slag og austur lét níuna.
Slemman er bersýnilega heldur
hörð, vinnst varla nema trompið
sé 3-2 og laufið 3-3. Og þó.
Avarelli kom auga á einn örlítinn
aukamöguleika og tók hann með
í reikninginn.
Eftir að hafa tekið á laufás-
inn, lét hann nægja að spila
trompinu tvisvar, spilaði tígul-
kóng og tígli á ás. Lagði síðan
niður laufhjónin og henti spöðum
úr borði. Vandvirknin skilaði sér
þegar í ljós kom að austur gat
ekki trompað.
Avarelli spilaði nú hjartatíu.
Austur átti slaginn og spilaði
spaða. Avarelli trompaði í borði,
fríspilaði hjartað með trompun,
fór inn á blindan með því að
stinga spaða og lagði niður tígul-
drottningu. Síðustu tvo slagina
fékk hann á fríhjörtu.
Vissulega var Avarelli hepp-
inn með leguna í hjartalitnum.
Ekki einasta lá liturinn 3-3,
heldur varð austur að taka
hjartaslaginn og því gat vörnin
ekki trompað út til að koma í
veg íýrir fríspilun litarins.
Og við skulum ekki gagnrýna
austur of mikið fyrir að Iáta
ekki hjartakónginn undir ásinn
í fyrsta slag. Hann gat tæplega
séð fyrir þá stöðu sem uop kom.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á mótinu í Baden Baden í
Þýskalandi um daginn kom þessi
staða upp í skák stórmeistaranna
Johns Van der Wiel (2.545),
Hollandi, sem hafði hvítt og átti
leik, og Klaus Bischoff (2.510),
Þýskalandi. Svartur lék síðast 28.
— Kf6-e5 og virðist hafa náð að
króa hvíta hrókinn á d6 inni. Hvíti
riddarinn á heldur ekki aftur-
kvæmt eftir 29. Rxc7? — Kxd6.
Hollendingurinn hafði undirbúið
öflugt svar við þessu: 29. Hxd7!
og svartur gafst upp, því 29. —
Hxd7 er auðvitað svarað með 30.
f4+ — Kxd6, 31. e5 mát. Anatólí
Karpov sigraði með yfirburðum á
A flokknum. Van der Wiel sigraði
hins vegar í B flokki ásamt þeim
Ribli, Ungveijalandi, og Brunner,
Sviss. Þeir hlutu allir 6'A v. af
11 mögulegum og er óvenjulegt
að svo lágt vinningshlutfall nægi
til sigurs.