Morgunblaðið - 30.12.1992, Síða 48

Morgunblaðið - 30.12.1992, Síða 48
48 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBElt 1992 „þá. þob, O-M i logi. Ffmmtán. eírntf/itís 3 7- mtnútar. " Ast er... Með morgunkaffinu ... að kjósa hana „Konu ársins“. TM Reg. U.S Pal Ofl.—all righls reserved • 1992 Los Angeles Times Syndicale Það er minni vinna nú en áður þegar báðir gengu úr hárum... HOGNI HREKKVISI BREF TIL BLAÐSINS Aðalstræti 6 101 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691222 Afnám aðstöðugjaldsins Frá Guðbirni Jónssyni: MIKIÐ er um það rætt og ritað, um þessar mundir, að fyrirhugað afnám aðstöðugjaldsins muni verða verulegt innlegg í uppbygg- ingu atvinnulífsins hjá okkur á árinu 1993. Nokkuð finnst mér vanta á röksemdafærslu í þessu sambandi, einkanlega með tilliti til þess að í sömu umræðu er þess getið að allir helstu atvinnuvegir þjóðarinnar séu reknir með bull- andi tapi og langvarandi rekstrar- erfiðleikar atvinnulífsins hafa hlaðið upp miklum vanskilum þess af fjárskuldbindingum hjá lána- stofnunum. Ég tel það nokkuð fjærri raunveruleikanum að ætla það, að hámark 1,3% lækkun rekstrarkostnaðar geri mikið meira á næstu 1 til 2 árum en grynnka nokkuð á skuldahalanum hjá fyrirtækjum. Hugsanlega gæti afnám aðstöðugjaldsins farið að skila sér í uppbyggingu atvinnu- lífsins á árinu 1995. Það er sorglegt að horfa á að ríkisstjórnin skuli ekkert gera til þess að auka gjaldeyristekjur þjóð- arinnar, en eyði allri sinni starfs- orku í að rústa það velferðarkerfi sem marga áratugi hefur tekið að byggja upp. Það gefur augaleið, að það, að nýta ekki betur þær fjárfestingar sem fyrir eru í land- inu, til þess að framleiða verðmæt- ari afurðir úr afrakstri fiskimiða okkar, er fyrst og fremst pólitísk ákvörðun um að halda þessu sam- félagi okkar á stigi hráefnisöflun- ar, fyrir hin ýmsu úrvinnslustig annarra þjóða. EES-samningurinn mun litlu breyta í þeim málum, þar sem engar tollaniðurfellingar eru á fullunnum sjávarafurðum, einungis af hráefni, þ.e. fiski, til frekari úrvinnslu erlendis Það hef- ur sýnt sig, hjá þeim sem reynt hafa, að það er fyllilega raunhæft að framleiða fullunnar gæðavörur úr afrakstri fískimiða okkar og með þeim hætti auka verulega gjaldeyristekjur þjóðarinnar. Það eru jú auknar gjaldeyristekjur sem okkur vantar, tíl þess að standa undir rekstrarkostnaði samfélags- ins. Fjöldi annarra tækifæra eru við bæjardyrnar hjá okkur, ef við aðeins tökum ákvörðun um að nýta okkur þá möguleika, og skapa fjármögnunar- og rekstrar- grundvöll til þess, með markviss- um og yfírveguðum aðgerðum af hálfu stjórnvalda. Ef við víkjum nú aðeins að upp- runa þessa ástands í þjóðfélaginu, verðum við að horfast í augum við það að við höfum á sl. 12 árum framkallað verðmætalausa kostn- aðaruppsöfnun í samfélaginu, upp á u.þ.b. 1283%. Þessi veltuaukning samfélags- ins, umfram það sem rauntekjur gátu borið, er að koma niður á okkur núna, þegar verðbólgu- skrúfan er hætt að fela þessa vit- lausu efnahagsstjórnun á verð- bólguárunum. Af þessum ástæð- um eru heimilin yfírsett af skuld- um og atvinnulífíð með óraunhæf- ar fjárfestingar miðað við eðlileg- an rekstrar- eða viðhaldsmátt frá rauntekjum þjóðarinnar. Þessi óraunhæfa veltuaukning leiðir af sér of hátt hlutfall teknanna í greiðslu fjármagnskostnaðar, þannig að lánastofnanir okkar eru að mestu orðnar milliliðir fyrir vaxtagreiðslur til erlendra fjár- magnseigenda. Hlutfall innlends fjármagns hefur farið ört minnk- andi í veltu lánastofnana okkar á undanförnum árum, á sama tíma og endurlánun á erlendu fjármagni hefur aukist hættulega mikið. Á sama tíma og þetta er að gerast er hringrás fjárstreymis rofín í fjölmörgum byggðarlögum víðsvegar um landið, með því að auka ijárfestingar í fískiskipum sem flaka fiskinn úti á sjó, og senda hann beint á erlendan mark- að. Þetta hefur dregið verulega úr getu sjávarútvegsins til þess að uppfylla þá skyldu sína, að við- halda hringrás fjárstreymis í byggðarlögunum. Samhliða hefur aukist verulega það hlutfall verð- mætis úr auðlindum þjóðarinnar, sem fer beint úr landi, í formi vaxta og afborgana af þessum fjárfestingum, án þess að koma nokkurs staðar við sögu í veltu- þætti þjóðfélagsins, þar sem þessi fískiskip selja afurðir sínar beint í erlendri mynt, og þau greiða síð- an aftur vexti af stórum hluta lánsfjár síns einnig í erlendri mynt. Það er næsta furðulegt að hag- fræðingar skuli ekki vera löngu farnir að vara við þessari óheilla- þróun. Ég hef reglulega varað við þessu ferli í greinaskrifum mínum undanfarin ár, en því miður án þess að mark væri tekið á því. Nú verður ekki undan vikist, stað- reyndirnar tala sínu máli. Ég sagði áðan að óraunhæf veltuaukning samfélagins hefði verið 1283% á sl. 12 árum. Eftir- stöðvar þessarar vitleysu situr eft- ir í þjóðlífi okkar, sem yfirskuld- sett heimili og atvinnulíf. Hreint innlent fjármagn í lánastofnunum okkar er einnig í miklu lágmarki, að þær eru ófærar um að fjár- magna uppbyggingu atvinnulífs- ins. Vandi okkar er því mikill. Við leysum hann ekki með því að færa skuldabyrði á milli aðila sem þegar eru ofhlaðnir skuldum fyrir. Ef atvinnulífið getur ekki borið sinn hluta leiðréttingarinnar, er vart við því að búast að heimilin geti bætt þeirra hlut á sig. Það verður því að finna aðra Ieið til raunhæfr- ar lausnar. Ég hef áður bent á þá leið í skrifum mínum, og mun fara yfír það í öðru bréfí, sem ég skrifa fljótlega. GUÐBJÖRN JÓNSSON Hverfísgötu 100 b, Reykjavík Víkverji skrifar Vinur Víkveija hafði orð á því í vikunni að alltof fáir virtust kunna textann „Nú árið er liðið...“ eða aðeins fyrstu línurnar. Vildi hann því koma þeirri áskorun á framfæri við Ríkissjónvarpið að það birti texta ljóðsins á skjánum um leið og það er sungið um áramótin. Margir vildu taka undir og á þennan hátt væri fólki gert auðveldara fyr- ir. Víkverji gerir þessa áskorun að Oft ber á því í umræðum um Evrópumál, jafnt hér á landi sem annars staðar, að menn telja Evrópubandalagið reka gífurlegt skrifræðisveldi í Brussel, sem hafi það eitt að markmiði að gera al- menningi lífið leitt með reglugerða- fargani. Eru til óteljandi þjóðsögur um þetta mikla bákn, sem ekkert mannlegt virðist vera óviðkomandi, og er „Brussel" blótsyrði í flestum aðildarríkjum EB. Breska tímaritið Economist gerir í nýjasta hefti sínu úttekt á þessu „bákni“ og mörgum þeim goðsögnum sem umlykja það. Niðurstaðan er á margan hátt at- hyglisverð. Skrifstofuveldið I Brussel er sagt vera frekar lítið miðað við embættismannakerfi aðildarríkj- anna og líklega eitt það opnasta og aðgengilegasta í heimi. Þannig vinna til að mynda einungis um 800 emb- ættismenn að landbúnaðarmálum á vegum framkvæmdastjórnar EB (sem er nokkurs konar ríkisstjórn bandalagsins) en 30 þúsund í Frakk- landi og samtals 150 þúsund í aðild- arríkjunum tólf. Þá eru rakin frægustu dæmin um „glæpi“ framkvæmdastjórnar- innar gagnvart íbúum aðildarríkj- anna. Franska ostamálið vakti mikla athygli fyrr á árinu en það blossaði upp I kjölfar þess að settar voru reglur um leyfilegt bakteríumagn í ostum. Hefðu þær að óbreyttu þýtt að ostar, sem unnir voru úr ógeril- sneyddri mjólk, yrðu bannaðir. Franskir ostaunnendur risu upp til handa og fóta og mikil herferð fór í gang. Jafnvel Karl Bretaprins varði frönsku ostana í ræðu í marsmán- uði. Framkvæmdastjórnin virðist annað hvort hafa gleymt ógeril- sneyddu ostunum eða þá ætlað sér að útbúa sérstakar reglur um þá. Sú varð líka raunin og niðurstaðan sú að Frakkar fengu mun víðfeðm- ari markað fyrir ostana sína þar sem slakað var á reglum um bakteríu- magn í t.d. Danmörku. Samt taldi einn franskur embættismaður að ostamálið hefði legið að baki fjórum atkvæðum af hverjum fimm gegn Maastricht-samkomulaginu I þjóðar- atkvæðagreiðslunni í september. Danir áttu svo aðild að nýlegri uppákomu. Utanríkisráðherra þeirra, Uffe Ellemann Jensen, veif- aði epli fyrir framan sjónvarps- myndavélarnar á leiðtogafundi EB í Birmingham í október og sakaði framkvæmdastjórnina um að vilja banna sölu á litlu sætu dönsku epl- unum. Þetta vakti mikla reiði meðal embættismanna þar sem engar regl- ur eru yfír höfuð til um sölu á epl- um. Epli eru hins vegar af einhverj- um ástæðum niðurgreidd innan bandalagsins en til að setja það ekki algerlega á hausinn eru til reglur sem takmarka rétt eplabænda til niðurgreiðslna. Oteljandi önnur dæmi eru til, s.s. varðandi ítalskt pasta, þýskan bjór og breskar snakkflögur, þar sem framkvæmdastjórnin hefur verið borin röngum sökum. Segir Econom- ist það í flestum tilvikum vera ríkis- stjórnir aðildarríkjanna sem vilji fá einhveijar undanþágur sér til handa, oftast til að koma í veg fyrir utanað- komandi samkeppni, eða að þær setji reglurnar sem svo mjög fara í taugarnar á fólki.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.