Morgunblaðið - 30.12.1992, Qupperneq 51

Morgunblaðið - 30.12.1992, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1992 51 HANDKNATTLEIKUR / LANDSLIÐIÐ Morgunblaðið/Sverrir Patrekur Jóhannesson kemst lítið áfram gegn LePetit og félögum í franska landsliðinu. Ef ti! vil dæmigerð mynd frá leiknum því íslensku Ieikmennimir máttu sín lítils gegn Frökkum. ^ Kemur ekki á óvarl - sagði Þorbergur Aðalsteinsson ÞORBERGUR Aðalsteinsson, landsliðsþjálfari, var mjög ánægður með fyrri hálfleikinn hjá íslenska liðinu í gærkvöldi, en sagði að við ofurefli hefði verið að etja. Frakkar væru einfaldlega sterkari á öllum sviðum og yrðu örugglega á toppnum í HM í Svíþjóð, „en leikirnir sýna að við erum stutt á veg komnir í undirbúningnum." Hann sagðist hafa lagt áherslu á góða vörn og agaðan sókn- arleik, sem hefði tekist fyrir hlé. „Það er gott að gera Eftir 13 mörk, en okkur Steinþór tókst ekki að fylgja Guðbjartsson þessu eftir. Við hleyptum Frökkunum alltof fljótt inní leikinn, þeir gerðu þijú mörk á skömmum tíma í byijun seinni hálf- leiks og voru okkur erfiðir, en mis- tökin hjá okkur voru líka dýrkeypt." Þú hældir Gústafi Bjamasyni eftir mótið í Danmörku en hann lék nán- ast ekkert gegn Frökkum. „Við ákváðum að skipta á tveimur mönnum í vöm og sókn og hann hefði verið þriðji maðurinn. En Júlíus fékk snemma tvo brottrekstra og við það varð ekki ráðið.“ Dagur Sigurðsson fékk litið að spila? „Hann er nýkominn inní hópinn og ég vildi ekki leggja á hann að stjóma spilinu. Hins vegar er Patrek- ur góður í því hlutverki gegn svona liði og er fljótur að nýta sér svæði, sem skapast, þegar menn koma vel út á móti.“ Hvað með markvörsluna? „Hún var mjög góð í fyrstu tveim- ur leikjunum, en ekki núna.“ Þú sagðir eftir mótið í Danmörku á dögunum að eftir Frakkaleikina lægi fyrir hvar íslenska liðið stæði. Kemur staða þess þér á óvart? „Nei. Við vitum að við þurfum meiri samæfingu, fjóra til fimm daga fyrir svona leiki. Vegna þess hvað þétt hefur verið leikið hjá félagsliðun- um hefur ekki gefist tími fyrir landsl- iðið, en ég vona að við fáum þijá daga fyrir mótið í Noregi uppúr miðj- um janúar." Langt í land ætli landsliðið sér gott sæti á HM ÍSLENSKA landsliðið í hand- knattleik á langt í land ef það ætlar að standa sig í heims- meistarakeppninni sem hefst í Svíþjóð eftir rúma tvo mánuði. í gær tapaði liðið með sex mörkum fyrir Frökkum, 22:28, og átti í raun aldrei möguleika gegn sterku frönsku liði í síð- ari hálfleik. Frakkarnir voru betri á öllum sviðum. Markverðimir vörðu betur, homamennimir voru spræk- ari, skytturnar SmUnoaT beittari, vamarleik- Sveinsson urinn sterkari og skrifar mun léttara yfir sóknarleiknum. Það má því teljast gott að hafa haldið jöfnu til leikhlés. íslendingar bytjuðu þó betur’ komust í 4:1. Síðan var jafnt á flest- um tölum fram í leikhlé en þá hafði báðum liðum tekist að gera 13 mörk. í síðari hálfleik seig fljótlega á ógæfuhliðina hja'heimamönnum. Gestimir náðu undirtökunum og tókst meira að segja að halda í við okkar menn þó þeir væru tveimur leikmönnum færri um tíma. Ekkert gekk hjá okkur og eftir ellefu mín- útna leik hafði liðinu aðeins tekist að gera tvö mörk. Frakkamir virtust í mun betra líkamlegu ástandi og höfðu kraft til að leika sterkan varnarleik og agaðan sóknarleik. Allir virðast geta skorað hvar sem er og í gær yoru ellefu leikmenn sem skoruðu. íslenska liðið virtist ekki hafa kraft til að leika fijálsan sóknarleik og sterka vörn þar sem átökin eru mikil, svo jaðrar stundum við slags- mál. Júlíus hefur þó þennan kraft og sýndi það í gær. Landsliðsþjálfarinn virðist enn vara að leita að leikstjórnanda. í gær lék Patrekur á miðjunni en Gunnar Gunnarsson hefur leikið þar í undanförnum leikjum. Auk þeirra hafa Guðjón Ámason úr FH leikið þessa stöðu, Dagur Sigurðsson úr Val er í hópnum og fékk að reyna sig í nokkrar mínútur í gær og Sig- urður Bjamason hefur einnig próf- að þessa stöðu í landsliðinu. Fimm leikmenn, en trúlega verða aðeins tveir með í för til Svíþjóðar. Þorbergur Aðalsteinsson á mikið verk fyrir höndum til að koma lið- inu saman fyrir HM og ef leika á þennan fijáls sóknarleik þá þurfa leikmenn að komast í betra form. Sem betur fer hefur árangur ís- lenska landsliðsins fyrir stórmót oft verið upp og ofan þó svo liðið hafi síðan staðið sig ágætlega þegar á hólminn er komið. Við skulum vona að leikirnir við Frakka sýni aðeins sannleiksgildi máltækisins: Fall er fararheill. ísland - Frakkland 22:28 Laugardalshöll, vináttulandsleikur í handknattleik, þriðjudaginn 29. desember 1992. Gangur leiksins: 1:0, 4:1, 4:4, 6:6, 8:8, 10:8, 10:10, 12:12, 13:13, 13:15, 14:15, 14:18, ,15:19, 17:20, 17:23, 19:25, 22:28. Mörk íslands: Sigurður Sveinsson 6/4, Júlíus Jónasson 4, Valdimar Grimsson 4, Geir Sveinsson 3, Konráð Olavson 2, Patrekur Jóhannesson 2, Gústaf Bjömsson 1. Varin skot: Guðmundur Hrafnkelsson 6/1, Sigmar Þröstur Óskarsson 3 (þaraf 2 til mótheija). Utan vallar: 12 mínútur. Mörk Frakklands: Gardent 5, Munier 4, Stoecklin 4, Volle 3/1, Wiltberger 3/2, Pascal 2, Monthure! 2, Quintin 2, LePetit 1, Anquetil 1, Julia 1. Varin skot: Thiebaut 8 (þaraf eitt til mótheija), Martini 5/1 (þaraf eitt til mótheija). Utan vallar: 10 mínútur. Áhorfendur: 747. Dómaran Hans og Jiirgen Thomas. Dæmdu þokkalega en leyfðu svolítið mikið. Landsliðið sigraði Landslið kvenna hefur þegar tryggt sér sigur í jólamótinu sem fram hefur farið undanfama daga. Mótinu lýkur í kvöld í Ás- garði i Garðabæ. Selfoss og Víking- ur leika kl. 19.30 en KR og Stjam- an kl. 20.45. Síðan verður verð- launaafhending til sigurvegara og bestu einstaklinga. í gær sigraði KR Víkingsstúlkur 19:15 og Landsliðið vann Stjömuna 28:22 og tryggði sér þar með sigur í mótinu. 59% nýting fyrirhlé I iðin vom með 59% sóknamýt- ™*ingu í fyrri hálfleik, en eftir hlé skildu leiðir; íslendingar náðu tæp- lega 43% nýtingu í seinni hálfleik en Frakkar liðlega 71% nýtingu. Árangur einstakra leikmanna ís- lenska liðsins í tölum var á þá leið að Sigurður gerði 6/4 mörk í 9/4 tilraunum, fiskaði vítakast, átti tvær línusendingar, sem gáfu mörk og missti boltann tvisvar. Valdimar gerði fjögur mörk úr sjö tilraunum. Júlíus skoraði úr þremur af fimm skotum eins og Geir, en fiskaði tvö víti og átti tvær línusendingar, sem skorað var úr. Geir fiskaði eitt víti. Konráð skoraði tvö úr þremur tilraunum og fiskaði víti. Patrekur var með 50% nýtingu og missti boltann tvisvar eins og Gunnar, sem var með 100% nýt- ingu, en það var Gústaf einnig. Magnús skaut einu sinni og skoraði ekki, en Dagur missti boltann einu sinni. íslendingar gerðu sjö mörk fyrir utan en Frakkar 11. Línumörkin voru 4:4, vítin 4:3, hraðaupphlaupin 2:6, mörk úr hornum 4:4 og Sigurð- ur Sveinsson gerði eina mark leiks- ins með gegnumbroti. KNATTSPYRNA / ENGLAND Guðni með Spurs og stal senunni GuAnl Bergsson GUÐNI Bergsson vakti athygli ensku dagblaðanna í gær og hefur ekki fyrr fengið eins ..mikla umfjöllun. Hann lék tvær sfðustu mínúturnar með Spurs, sem vann Nottingham Forest 2:1, en leikur hans var ekki á allra orði heldur „villtur stríðsdans á hliðarlínunni við Stuart Pearce, fyrirliða Forest og enska landsliðsins rétt áður en ég kom inná,“ eins og Guðni orðaði það við Morgunblaðið í gær. Atvikinu voru gerð góð skil f máli og myndum. Tildrög málsins voru þau að Mabbutt gerði ánnað mark Spurs flórum mínútum fyrir leiks- lok. Skömmu sfðar barst boltinn út fyrir hliðarlfnu, „nánast upp í fangið á mér, þar sem ég var að hita upp,“ sagði Guðni. „Pearce ætlaði að taka innkastið strax, en ég var ekkert á því að láta hann fá boltann umsvifalaust, tafði að- eins á minn íslenska hæga hátt og það kunni hann ekki að meta. Hann ýtti við mér og ég hrasaði, en í hita leiksins rauk ég til baka og fór fram fyrir hann.“ Ensku blöðin sögðu að þú hefð- ir skallað hann og tekið um háls hans? „Nei, það er ekki rétt. Hins vegar setti ég andlitið upp að hans svo nefin nánast snertust, gnísti tönnum og horfði grimmdaraug- um á hann, var mjög vondur. Enda skiljanlegt eftir framkomu hans, en dómarinn og h'nuvörður skárust í leikinn og menn af bekknum stukku til og héldu mér, en ekki stóð til að láta hnefana tala.“ Hafði þessi uppákoma einhvem eftirmála? „Nei. Hins vegar finnst Bretum gaman af svona og eftir leikinn vildu blaðamenn gera mikið úr framkomu fyrirliða enska lands- liðsins, sem var ekki réttlætanleg. Svona getur alltaf gerst og hann sagði að þetta hefði ekki verið neitt. En eftir á að hyggja get ég ekki annað en brosað. Oll gremja sfðustu mánuði rauk út í veður og vind í þessu skemmtilega atviki og ég er allt annar maður eftir.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.