Morgunblaðið - 06.01.1993, Síða 2

Morgunblaðið - 06.01.1993, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 1993 Fiskvinnslustöðvar Vaxtahækk- un þvert á gefin loforð SAMTÖK fiskvinnslustöðva mót- mæla þeim vaxtahækkunum um áramótin og skora á banka að endurskoða þær nú þegar að því er fram kemur í fréttatilkynningu sem samtökin hafa sent frá sér. Hækkun innlendra vaxta um hvert prósentustig leiði til 350 millj. heildarhækkunar á fjármagns- kostnaði á íslenskum sjávarút- vegsfyrirtækjum á ári. Segja samtökin þessar vaxta- hækkanir ganga þvert á gefin loforð bankastofnana og stjómvalda við gerð síðustu kjarasamninga um að- gerðir þeirra til lækkunar raunvaxta. „Þessar vaxtahækkanir munu leiða til aukins vaxtamunar innlána og útlána hjá bankastofnunum. Greinilegt er að útboð á spariskírtein- um ríkissjóðs og ríkisvíxlum frá síð- asta hausti hafa misheppnast og leitt til vaxtahækkunar í stað vaxtalækk- unar sem þeim var ætlað,“ segir í fréttatilkynningunni. Þá er bent á að verði ekkert að gert nú þegar muni vaxtahækkanir banka án efa kynda undir verðbólgu og leiða til hækkunar dráttarvaxta frá 1. febr- úar næstkomandi. * Utför Ingvars Vilhjálmssonar Morgunblaðið/RAX ÚTFÖR Ingvars Vilhjálmssonar var gerð frá Dóm- kirkjunni í gær. Frumflutt var verk sem Atli Heim- ir Sveinsson tónskáld samdi í minningu Ingvars við sálminn Lærdómstími ævin er, eftir Helga Hálfdán- arson. Sigrún Hjálmtýsdóttir söng einsöng í útför- inni, Gunnar Kvaran lék á selló, Laufey Sigurðardótt- ir á fíðlu og Marteinn H. Friðriksson á orgel. Þá söng Karlakórinn Fóstbræður en séra Guðmundur Óskar Ólafsson og séra Frank M. Halldórsson önnuð- ust athöfnina. Myndin er tekin eftir útförina en kist- una bera Jón H. Bergs, Sveinbjöm Dagfínnsson, Hjalti Geir Kristjánsson, Kristján Ragnarsson, Hörð- ur Sigurgestsson, Garðar Halldórsson, Benedikt Sveinsson og Indriði Pálsson. Fjármálaráðuneytið um lækkun endurgreiðslu virðisaukaskatts Eingöngu þörf á 7% hækk- un á verði landbúnaðarvara SÉRFRÆÐINGAR fjármálaráðuneytisins telja að lækkun endurgreiðslna vegna virðisaukaskatts á nautgripakjöti, kjúklingum, eggjum og hrossakjöti leiði til mun minni verð- hækkunar á þessum búvörutegundum en talsmenn þessara búgreina hafa talið þörf á. Samkvæmt útreikningum á áhrif- um þessara breytinga sem gerðar voru í fjármálaráðuneytinu í gær munu þær geta leitt til um 6% hækkunar á verði eggja, 6,5% hækkunar á kjúklingum og svínakjöti og um 10% hækk- unar á verði nautakjöts eða um 7% verðhækkunar að meðal- tali. komist að niðurstöðu á grundvelli búvörulaganna. Fjármálaráðuneytið hefur komist að annarri niðurstöðu. Við höfum hvorki forsendur né er það okkar hlutverk að reikna út hækkanir," sagði hann en hann kvaðst fagna því mjög ef hækkanirn- ar yrðu minni én boðað hafí verið. Þorfinnur fær Gylli Flateyrarhreppur hefur form- lega neytt forkaupsréttar síns á togaranum Gylli og endurselt Þorfinni hf. skipið. Það verður afhent í dag og segir Þorleifur Pálsson stjórnarformaður Þor- finns að afla úr fyrsta túr verði landað á Isafirði á næstu dögum. Flateyrarhreppur á 30% í Þorfinni og íshúsfélag Isfírðinga 70% en fé- lagið var stofnað rétt fyrir áramót. Samið hafði verið um sölu á Gylli austur á firði eftir að ísfirðingar kváðust ekki hafa hug á togaranum síðasta haust. Kaupin nú má að sögn Þorleifs rekja til breyttra áforma um Ishúsfélagið. Það á að gera að al- menningshlutafélagi og nauðsynlegt að styrkja hráefnisöflun þess. Stefnt sé að því að mestöllum afla Gyllis verði landað á fsafirði til vinnslu hjá íshúsfélaginu. Áhöfnin af Flateyri verði að mestu óbreytt. „Við von- umst til að með Gylli hverfí atvinnu- leysi á ísafirði," segir Þorleifur. Hann segir menn horfa til jarð- ganga varðandi möguleika Flateyr- inga til vinnu við vinnsluna. Til að byija með komi Gyllir fyrst og fremst ísfirðingum til góða. Gyllir fari út á næstunni og landi líklega í_ byrjun næstu eða þarnæstu viku á ísafirði. --------» ♦ ♦-- Aðeins 6% þorskaflans óunninutan ÚTFLUTNINGUR á óunnum fiski fjögurra helztu nytjategundanna, þorski, ýsu, ufsa og karfa, til Bret- lands og Þýzkalands varð í fyrra minni en nokkru sinni síðustu 6 árin, eða 56.600 tonn. Þetta er samdráttur upp á tæp 15.000 tonn frá árinu áður eða um 21%. Verulegur samdráttur hefur orðið í sölu þorsks, ýsu og ufsa en karfasalan stendur nánast í stað. Sjá nánar í Úr verinu bls. B1 Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, segir að ef þessir útreikningar ráðuneytisins séu réttir verði tafarlaust að draga hluta verðhækkananna til baka og samtökin hljóti að krefjast skýringa á þessum mun. Þetta veki spurning- ar um hvort ekki sé hægt að treysta útreikningum í miðstýrðu verðlagn- ingarkerfi landbúnaðarvara. Talsmenn búgreinafélaganna hafa talið þörf á nær 12% verðhækk- un að meðaltali á þessum matvörum eða frá 10-15%. Að sögn Bolla Þórs Bollasonar, skrifstofustjóra í fjármálaráðuneyt- inu, voru útreikningar ráðuneytsins sendir til forsætisráðherra í gær. Þeir byggðust á sömu forsendum og landbúnaðarráðuneytið hefði reikn- að út í haust vegna breytinganna. Aðspurður hvort hann teldi eðlilegt að verðhækkanir kæmu allar strax fram sagði Bolli að gera mætti ráð fyrir að niðurfelling aðstöðugjalds myndi vega að einhveiju leyti upp á móti þessum hækkunum. Á blaðamannafundi sem bú- greinafélögin boðuðu til á mánudag kom fram að samkvæmt þeirra út- reikningum hækkar verð á nauta- kjöti þegar um 14% en hinar grein- arnar taka hækkun á sig að hluta til í fyrstu og því hækkar verð á kjúkl- ingum fyrst um sinn um 9,6% og egg um 5% en ákvörðun um hækkun svínakjöts hefur ekki verið tekin. „Hið undarlegasta mál“ Jóhannes Gunnarsson segir þetta hið undarlegasta mál. „Opinber nefnd verðleggur nautakjöt og hefur Reykjavíkurprófastsdæmi kaþólsku kirkjunnar á íslandi Fyrstu úrskurðir um ógildingu hjónabanda Reykjavíkurbiskupsdæmi kaþólsku kirkjunnar á íslandi hef- ur nú í fyrsta sinn tekið á móti beiðnum um ógildingu hjóna- banda og hafa þegar verið kveðnir upp fjórir úrskurðir fyrir biskupsdæmið. Málsmeðferð ógildingarmála er talsvert flókin og þarf að skjóta málinu til hjúskapardómstólsins í Osló og því næst til hjúskapardómstóls erkibiskupsdæmisins í Westm- inster til endurskoðunar. Þetta kemur fram í grein eftir AI- freð Jolson, biskup kaþólskra á Islandi í 4. hefti Merki kross- ins 1992 sem gefið er út af kaþólsku kirkjunni á íslandi. í grein sinni bendir Alfreð Jol- að umrætt hjónaband hafi frá son á að ógilding hjónabands feli í sér yfirlýsingu sem gefin er um í dag Dómkirkjun Fyrsti vígsluþegi við kirkjuna í 83 ár 5 Kristján Jóhannsson____________ „Þetta tók mikið á og ég var mjög hrærður“ 18 ýz=wmm§m Útflutningur á ísudutn físki mÆlAa' minnkaði um 21% milli ára ST—T~i Winston ChurchiU Flýtti hann hruni Breska heims- veldisins? 20 Úr verinu Leiðari Vígvæðingarkapphlaupinu lokið 22 ► 20% samdráttur í ísfisksöl- unni - Veiðar á síld í flottroll - Þróun stærðar fiskiskipaflot- ans - Tillaga um hvalveiðar næsla sumar - Myndasögur ► Stafarugl - Völundarhús - Strikaspil - Pflukast - Músabox. upphafi verið ógilt. Höfuðatriði þess að hjónaband sé gilt sé að báðir aðilar hafi gengið í það af fijálsum vilja og sé ljóst að hjóna- bandið sé ævilangt og óijúfanlegt. Ýmis atriði geta þó leitt til þess að hjónaband sé lýst ógilt, s.s. vanþroski, kynhvörf svo og hvaða frávik frá eðlilegu kynferðislífi sem er, áfengissýki, lyfjafíkn og stjórnleysi í kynlífi. Þrýstingur og nauðung geta einnig dregið úr frelsi karls eða konu til að ganga í gilt hjónaband og skortur á full- nægjandi þekkingu vegna andlegs vanþroska eða geðbilunar. Sama á við ef aðrir aðilar hafa beitt þrýstingi til að koma fólki í hjóna- band. Auk þess geta lagalegir eða kirkjuréttarlegir meinbugir gert hjónaband ógilt að því er fram kemur í greininni. Rannsókn á hjónabandinu Þegar leitað er eftir ógildingu hjónabands innan kaþólsku kirkj- unnar er sérfróður maður fenginn til að kanna hvort ástæða virðist til umsóknarinnar og hefst rann- sókn á því hvemig að upphafi hjónabands var staðið. Ef svo reynist vera er farið nánar út í málið, og spurningar lagðar fram til þess að afla upplýsinga um hvort fyrir hendi séu sannanir sem heimili ógildingu. Málinu er síðan skotið til hjúskapardómstólsins í Osló sem kveður upp dóm. Fallist hann á ógildingu er úrskurðurinn sendur til hjúskapardómstóls erk- ibiskupsdæmisins í Westminster til endurskoðunar sem sendir úr- skurð sinn síðan aftur til Oslóar. Einnig kemur fram í greininni að talsverður kostnaður fylgi mál- um af þessu tagi og að í fyrstu fjórum úrskurðunum í Reykja- víkurbiskupsdæmi hafi kostnaður numið 20 þúsund krónum á hvert mál. Alfreð Jolson segir að ráð- gert sé að koma hjúskapardóm- stóli á laggirnar í Reykjavík. „Kaþólska kirkjan hefur ekki breytt afstöðu sinni varðandi hjónabandið. Menn fá ekki að ganga í annað hjónaband nema hún hafi lýst því yfir að hjónaband annars hvors aðilans eða beggja hafi verið ógilt frá upphafi og til þess að hægt sé að lýsa því yfir þarf sannanir sem oft er erfitt að afla,“ segir Alfreð Jolson biskup að lokum í grein sinni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.