Morgunblaðið - 06.01.1993, Blaðsíða 7
I
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 1993
7
Brotístinn
í leiffuíbúð
Sophiu
Hansen í
Istanbúl
Fjórmenningar, tveir karlar
og tvær konur, brutust inn í
leiguíbúð Sophiu Hansen í út-
hverfí Istanbúl í Tyrklandi rétt
fyrir áramót. Líkur benda til að
fólkið hafí dvalið í íbúðinni á
fjórða sólarhring, frá 27. fram á
30. desember, en ekki er enn ljóst
hvort einhveiju hafi verið stolið
þaðan.
Innbrotið varð uppvíst þegar hús-
vörður í fjölbýlishúsinu hafði sam-
band við kunningja Sophiu, sem
gætir íbúðarinnar, og sagði að hann
hefði orðið var við mannaferðir í
íbúðinni. Hann sagðist hafa spurt
fólkið hvort það hefði leyfi til að
vera í íbúðinni og hefði það fullyrt
að leyfi hefði fengist hjá Sophiu.
Þegar fólkið var hins vegar spurt
hvort það hefði leyfi frá gæslu-
manni íbúðarinnar neitaði það því.
Eftir að húsvörðurinn hafði haft
samband við gæslumanninn fór sá
síðarnefndi í íbúðina en þá hafði
fólkið haft sig á brott. Hins vegar
var ljóst að það hafði dvalið í íbúð-
inni, sofið og notað eldunartæki og
bar aðkoman vott um afar slæma
umgengni. Ekki er fullljóst hvort
einhveiju hefur verið stolið úr íbúð-
inni en rannsókn málsins er í hönd-
um tyrknesku lögreglunnar. Ekki
er vitað hvort innbrotið tengist for-
ræðismáli Sophiu, sem mjög hefur
verið í fréttum ytra.
----»-----
Læknisþjónusta
Afsláttar-
kortístað
fríkorta
FRÍKORT vegna læknisþjónustu
voru lögð niður um áramótin og
ekki er ljóst hvernig nýtt fyrir-
komulag verður. Jón Sæmundur
Siguijónsson í heilbrigðisráðu-
neytinu segir að afsláttarkort
verði tekin upp í staðinn og þar
sem fólk þurfi talsvert margar
heimsóknir til læknis áður en
kort fáist sé ennþá svigrúm til
að kveða á um þau.
Eftir gömlu reglunum þurftu
þeir ekki að borga meira sem farið
höfðu yfir 12.000 krónur í greiðsl-
um til sérfræðinga og heilsugæslu-
lækna á síðasta ári. Þá dugði að
framvísa fríkorti sem fengust í
Tryggingastofnun. Fyrir elli- og
örorkulífeyrisþega var línan dregin
við 3.000 krónur. Jón Sæmundur
segir að væntanlega verði mörkin
svipuð, en í stað algerrar niðurfell-
ingar gjalda borgi hið opinbera
hluta af þeim 1.500 krónum sem
heimsókn til læknis kostar. Hann
býst við að reglur um afsláttarkort-
in verði tilbúnar fyrir næstu helgi.
----» » ♦ -
5 slasast í
2 árekstrum
Þrír bílar skullu saman á mótum
Miklubrautar og Réttarholtsvegar
um kl. 11.30 á mánudag. Farþegi
og ökumaður úr einum bílanna voru
fluttir á slysadeild, en meiðsii þeirra
munu minni háttar. Þá varð árekst-
ur tveggja bíla á mótum Stjörnu-
grófar og Seljalands kl. 14.20. Öku-
maður og tveir farþegar úr öðrum
bílnum voru fluttir á slysadeild, en
eru ekki taldir alvarlega slasaðir.
Morgunblaðið/Knstinn
Annirí
bönkunum
Það var nóg að gera hjá banka-
starfsmönnum í gær, - enda
fyrsti dagurinn á nýju ári, sem
opið var. Sá dagur er einn
mesti annadagur ársins í bönk-
unum. í Landsbankanum, þar
sem myndin var tekin, náði
biðröðin að gjaldkerastúkunum
út að dyrum. Sumir voru
eflaust að ná í launin sín, sem
hafa kannski farið jafnharðan
til að greiða jólareikningana,
en aðrir hafa ef til vill viljað
kanna, hvaða vextir lögðust á
innstæður þeirra um áramótin.
ÓDÝRAR SAS-FERDIR
FRÁ KAUPMANNAHÖFN TIL 19 EVRÓPUBORGA. TILBOÐ TIL 15. JANÚAR
SAS býður ferðir frá Kaupmannahöfn á tilboðsverði sem gildir til og
með 15. janúar. Tilboðið giidir á ferðum til 19 borga í Evrópu og er
síðasti heimkomudagur 31. mars.
Frá Kaupmannahöfn
9.060 kt:* Hamborg, Hannover, Frankfurt, Diisseldorf, Stuttgart, Munchen, Berlin. 12.490 kr. Aþena, Róm, Feneyjar, Milano, Alicante, Malaga, Barcelona, Madrid, Lissabon, Nice, París, Brussel.
Reykjavík Kaupmannahöfn
Helgarfargjöld 26.940 kr. ** Hámarksdvöl 4 nætur, lágmarksdvöl aðfararnótt sunnudags. Bókun er fram að brottför. Lukkufargjöld 30.160 kr. ** Hámarksdvöl 1 mánuður, lágmarksdvöl aðfararnótt sunnudags. Bókun 7-14 dögum fyrir brottför.
Sérstakt tilboð er til eftirfarandi borga ef ekki er stoppað í Kaupmannahöfn:
Frankfurt 38.150 kr., Hamborg 36.900 kr., París 33.720 kr.
* Verð miðað við gengi. 1 DKR er 10,23 ISK. Ef stoppað er í Kaupmannahöfn bætist danskur
flugvallarskattur 670 kr. við verðið.
* * íslenskur flugvallarskattur 1.310 kr. er ekki innifalinn.
S4S
Laugavegi 172, sími 622211
S8mi/ifínuíepilpLaiiilsj/ii
Austurstræti 12, sími 691010
Söludeild Hótel Sögu, sími 692277