Morgunblaðið - 06.01.1993, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JANUAR 1993
11
í fótspor„Reistra makka“
Bækur
Valdimar Kristinsson
Hjalti Jón Sveinsson: í farar-
broddi - Hestamenn af lífi og
sál, viðtalsbók. Útlit: Gísli 6.
Björnsson. Prentun: G. Ben.
prentstofa. Útgefandi: Skjald-
borg, 255 blaðsíður.
Fyrir nokkrum árum kom út bóka-
flokkurinn „Með reistan makka“ þar
sem birt voru viðtöl við kunna hesta-
menn þar sem sagt var frá frægum
eða góðum hestum eða einhverju
minnisstæðu eða undraverðu úr
heimi hestamennskunnar, skráð af
Guðrún Anna Tómasdóttir
Píanó-
tónleikar
_____Tónlist___
Jón Ásgeirsson
Guðrún Anna Tómasdóttir hélt
sína fyrstu tónleika í Listasafni Is-
lands, sl. mánudag og lék vek eftir
Haydn, Faure, Scijabín, J.S. Bach
og Schumann. Guðrún Anna hefur
stundað nám í Hollandi og nýlega
lokið þar píanókennaraprófi.
Tónleikarnir hófust á sónötu í E
dúr eftir Haydn og er hún merkt H
XVI:13. í Groves er hún flokkuð
meðal verka sem eru eignuð Haydn
og var hann ekki sjálfur (1808) viss
um þetta verk, sem ýmist er nefnd
partita eða divertimento. Hvort sem
verkið er eftir Haydn eða Playel, er
það skemmtilegt og leikandi og var
sérlega fallega flutt af Guðrúnu
Önnu. Noktúman op. 33 nr. 1 eftir
Faure er nokkuð óvenjuleg fyrir
franska músík og var á sínum tíma
talin frumleg tónsmíð. Guðrún lék
verkið á sannfærandi máta en helst
á of skýran, þar sem meiri dulúð
hefði víða mátt ráða ferðinni.
Sjö prelúdíur eftir Scijabín, sex
úr op. 11 og ein úr op. 16, voru
mjög vel ieiknar. í þessum stuttu
verkum leikur Scrjabín sér með
snjalla tækni sína og á milli horfir
hann inn í fegurð hljómanna, eins
t.d. í op. 16 nr. 4. og op. 11. nr. 9,
sem er hrein tónperla. í hægferðugu
prelúdíunum var leikur Guðrúnar
Ónnu mjög fallegur en þrátt fyrir
að þær hraðari væru vel útfærðar
vantaði hana „eldingahraðann", t.d.
í þá síðustu, op. 11 nr. 14.
B-dúr partítan (BWV 825) nr. 1
eftir J.S. Bach var glæsilega flutt
en gigue-kaflinn er sérkennilegur,
eins konar „solfeggio" og var frábær-
lega vel útfærður. Lokaverkið var
áttunda novellettan í op. 21 eftir
Schumann. Þetta er mjög „innspírer-
að“ verk, t.d. sá frægi millikafli sem
ber yfírskriftina „raddir úr fjarska",
en niðurlagið er sérlega þróttmikið
og í heild býður verkið upp á mikla
margbreytni í túlkun, sem Guðrún
Anna útfærði mjög vel.
Guðrún Anna Tómasdóttir er efni-
legur píanóleikari og lék hún öll við-
fangsefnin af öryggi og var leikur
hennar í partítunni eftir Bach mjög
góður, en þó sérstaklega eftirminni-
legur í novellettunni eftir Schumann.
Erlingi Davíðssyni. Nú fetar Hjalti
Jón Sveinsson fyrrum ritstjóri Eið-
faxa í fótspor Erlings og birtir viðtöl
við tíu nafnkunna hestamenn, átta
karlmenn og tvær konur í bók. Rekja
viðmælendumir í grófum dráttum
þann hluta lífshlaups síns sem að
hestunum og hestamennskunni lýt-
ur. Rætt er við Þorkel Bjamason á
Laugarvatni, Ingimar Bjarnason á
Jaðri, Einar E. Gíslason á Skörðu-
gili, Jón M. Guðmundsson á Reykj-
um, Skúla Kristjónsson í Svigna-
skarði, Einar Höskuldsson á Mos-
felli, Ólöfu Guðbrandsdóttur í
Nýjabæ, Jón Bergsson á Ketilsstöð-
um, Ingimar Sveinsson á Hvanneyri
og Kolbrúnu Kristjánsdóttur í
Rauðuvík. Ýmislegt hefur á daga
þessa fólks drifið í viðskiptum þess
við hestinn og hefur þar af leiðandi
frá miklu að segja.
Stíll Hjalta Jóns er látlaus, einfald-
ur og rennur yfirleitt þægilega í
gegnum viðtölin og oft á tíðum nær
hann athygli manns allri en sjálfsagt
ræðst það af áhugasviði hvers les-
anda. Þarna kemur ýmislegt fram
hjá þessu þekkta fólki sem almenn-
ingur vissi ekki og er bæði fróðlegt
og skemmtilegt eins og til dæmis
samskipti Þorkels Bjarnasonar við
hestinn á sínum yngri árum svo eitt-
hvað sé nefnt. Hjalti ritar inngang
með hveiju viðtali en gefur síðan
viðmælendunum orðið án frekari inn-
skota, í flestum tilfellum. Setja má
spumingamerki við þessa aðferð eða
framsetningu efnisins. Hugsanlega
hefði bókin verið skemmtilegri ef
skrásetjarinn hefði kryddað viðtölin
með innskotum þar sem komið hefðu
fram skoðanir annarra eða skýringar
á ýmsu sem fjallað er um eða jafn-
vel eitthvað frá eigin bijósti skráse:
tjarans. Þá hefði hugsanlega hafa
mátt hafa viðmælendurnar færri en
fara þess í stað ítarlegra í ýmis
áhugaverð mál eða atvik. Aðeins ber
á því að hratt sé farið yfir sögu á
stöku stað og rétt tæpt á hlutum.
Hefur maður á tilfinningunni að vað-
ið sé úr einu i annað. Millifyrirsagn-
ir létta mjög útlit bókarinnar og lest-
urinn sömuleiðis sérstaklega ef grip-
ið er niður í bókina hér og þar.
Gísli B. Björnsson sá um útlit
bókarinnar og fer hann ekki venju
fremur troðnar slóðir. Brýtur hann
nokkuð upp hið hefðbundna form,
er til dæmis með sum viðtölin í tví-
dálk og fyrirsagnir settar inn á miðj-
ar síður og felldar inn í textann. All
nokkuð er af myndum í bókinni yfir-
leitt tengdar umræðuefninu. Eins og
eðlilegt má telja eru þetta ekki allt
úrvals góðar myndir enda margar
þeirra gamlar og teknar við misjafn-
ar aðstæður. Margar hveijar eru
stórskemmtilegar og ómissandi eigi
að síður. Gott jafnvægi er á milli
texta og myndafjölda það er að segja
að bókin er ekki ofhlaðin myndum,
en sjá má dæmi um slíkt í hestabók-
um sem gefnar hafa verið út síðustu
árin.
í fararbroddi er hvort tveggja í
senn fróðleg og skemmtilgg bók auk
Hjalti Jón Sveinsson
þess að vera um leið söfnun og varð-
veisla á ýmsum góðum heimildum
um það fólk sem rætt er við. Eðli
málsins samkvæmt býður þetta form
upp á framhaldsútgáfu svo lengi sem
athyglisverðir og skemmtilegir
hestamenn koma fram á sjónarsvið-
ið. Er það undir skrásetjara og útgef-
anda komið hvort framhald verður á
en mest veltur það þó á kaupendun-
um. Ég gæti vel hugsað mér að fá
aðra slíka bók um næstu jól en þá
fyndist mér skrásetjari mætti leggja
ögn meiri vinnu í textann í þá átt
er ofan var getið. Vera kann að í
þessum efnum sé um smekksatriði
að ræða. Nokkrar meinlegar og
óþarfar villur hafa sláeðst inn í bæði
mynda- og megintexta og hefði
mátt koma í veg fyrir slíkt með því
að láta kunnuga lesa yfir handrit.
Gámastöðvar - Breyttir tímar
Breytingar hafa veriö geröar á opnunartíma gámastööva sem hér segir:
Opið í vetur frá kl. 13.oo-20.oo
LOKAÐ verður á stórhátíðum og eftirtalda daga:
ÁNANAUSTUM mánudaga
GARÐABÆ mánudaga
MOSFELLSBÆ mánudaga og fimmtudaga
JAFNASELI þriðjudaga
GYLFAFLÖT miðvikudaga
KÓPAVOGI miðvikudaga
SÆVA RHÖFÐA fimmtudaga
Sumartími: 15. apríl-30.september kl.13-22
Reglum um losun fyrirtækjaúrgangs á
gámastöðvum hefur einnig verið breytt
og verða þær nánar kynntar á næstunni.
SORPEYÐING HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS bs
Gufunesi, sími 67 66 77