Morgunblaðið - 06.01.1993, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JANUAR 1993
19
Efnt til Árs
aldraðra í
Evrópu ’93
Alþjóðaheilbrigðismálastofnun-
in WHO, Evrópuráðið og margvís-
leg samtök aldraðra hafa ákveðið
að helga árið 1993 málefnum aldr-
aðra í Evrópu. Hér á landi felst
meginmarkmið átaksins í að
kynna kjör og stöðu aldraðra,
bæði fyrir þeim sjálfum og öðrum
þjóðfélagshópum, efna til menn-
ingar- og listviðburða með þátt-
töku aldraðra og skipuleggja sam-
komur, skemmtiferðir og gagn-
kvæmar heimsóknir aldraðra inn-
anlands og til og frá Norðurlönd-
unum. Efnt verður til fjölþjóða-
ráðstefnu í Kaupmannahöfn 1.-3.
mars um viðhorf til aldraðra.
Á kynningarfundi vegna Árs aldr-
aðra í Evrópu kom fram að mikið
hefði áunnist í mál-
efnum aldraðra frá
Ári aldraðra 1982.
Víða væri þó sár
skortur og rík þörf
á að efna til um-
ræðu um viðhorf til
aldraðra og spurn- fERv*LóDpRuA,Ð9R9*
ingar tengdar því.
Meðal þeirra eru spurningar eins og
þessar: Hveijir eru möguleikar eldra
fólks til þátttöku í stjórnmálum?,
Hvers virði eru aldraðir á vinnumark-
aðinum?, Eru eldri konur annars
flokks borgarar?, Hvernig brúum við
kynslóðabilið á 21. öldinni?
Sr. Sigurður H. Guðmundsson,
formaður ellimálasambands Norður-
landanna (NORSAM), sagði að ýmis-
legt væri á döfinni á vegum samtak-
anna í tilefni ársins. Mætti þar nefna
gerð myndefnis um stöðu og hagi
aldraðra á Norðurlöndunum, mynd-
listarsýningar á verkum eldri borg-
ara, ráðstefnu leikhópa aldraðra í
Danmörku, ferðaiög og kvikmynda-
hátíð hér á landi. Á hátíðinni er
ætlunin að sýna kvikmyndir um og
eftir aldraða. Þess má geta að stefnt
er að því að efna til dags aldraðra
í sjónvarpi og útvarpi hér á landi á
árinu.
Þess má geta að í tilefni árs aldr-
aðra ætlar fræðslunefnd Öldrunar-
ráðs íslands að leggja áherslu á svo-
kölluð „mýkri mál“ á ráðstefnu sín-
um á árinu. Á fyrstu ráðstefnunni í
Rúgbrauðsgerðinni 22. janúar verður
t.a.m. fjallað um hamingjna og verða
Óttar Guðmundsson, læknir, og Jón
Björnsson, félagsmálastjóri á Akur-
eyri, meðal annarra með innlegg.
Háskólinn veitir viðurkenningu fyrir merkt starf að dýrasöfnun
Safn íslensks sjómanns er
uppistaða fjölda fræðigreina
Þrotlaust starf þakkað
Sveinbjörn Björnsson, háskólarektor, afhendir Jóni Bogasyni viðurkenningarskjal og
ritsafnið íslenska sjávarhætti fyrir þrotlaust starf hans að söfnun lindýra við ísland.
„LINDÝRIN virka kannski
fyrst leiðinleg og ljót, en
þegar maður skoðar þau
betur þá eru þau afar
skemmtileg og falleg eins
og allt annað í náttúrunni,"
sagði Jón Bogason, sjómað-
ur, sem Háskóli Islands
heiðraði í gær fyrir þrot-
laust starf að söfnun lin-
dýra við Island. í máli
Sveinbjörns Björnssonar,
háskólarektors, kom fram
að fjöldi fræðimanna, ís-
lenskir sem erlendir, hefur
notað upplýsingar frá Jóni
sem undirstöðu fræði-
greina um lindýr.
I ávarpi háskólarektors við
afhendingu viðurkenningar til
Jóns Bogasonar í gær kom fram,
að Jón er sá íslendingur, sem
hefur verið einna atkvæðamestur
við söfnun dýra. Jón hefur safn-
að fjölda tegunda, _sem ekki
höfðu áður fundist við ísland, svo
sem þanglúsum, krabbaflóm,
burstaormstegund, skrápdýrum,
auk allra þeirra lindýra, sem
hann hefur fundið og getið er í
fræðigreinum. Sveinbjörn nefndi
þar sérstaklega greinar Svíans
Anders Warén, en tvær þeirrra
eru afrakstur heimsóknar War-
éns hingað til lands og er safn
Jóns Bogasonar meginuppistaða
greinanna. „Fundur einnar teg-
undar er einstakur og er líkleg-
ast merkasti fundur Jóns,“ sagði
Sveinbjörn. „Þetta er fundur teg-
undarinnar Micropilina minuta.
Tegundin er af lindýraflokknum
Monoplacophora, sem var talinn
útdauður fyrir um 350 milljónum
ára, fram til þess tíma að tegund-
in Neopilina galathea fannst í
danska Galathea-leiðangrinum
1950-1952. Síðan þá hafa 11
tegundir fundist, en Jón fann
tólftu tegundina, Micropillina
minuta, á rúmlega 700 _ metra
dýpi vestan og suðaustan íslands
og er þetta nyrsti fundur
Monoplacophora hingað til og
fjórða tegundin sem 'finnst í
Norður-Atlantshafi.“
Sveinbjörn Björnsson benti á
að í greinum Anders Waréns
væri að finna viðurkenningu á
starfi. Jóns, sem fælist í því að
Warén hefði nefnt áður óþekkta
ættkvísl og dýrategund í höfuðið
á Jóni, snigil, sem lifir á 100 til
200 metra dýpi norðan og norð-
austan Islands, af ættinni Diap-
hanidae. Tegundin heitir nú
Bogasonia volutoides.
Áhuginn kviknaði í Flatey
Jón Bogason sagði í stuttu
samtali við Morgunblaðið, að
áhugi hans á dýrum hefði kvikn-
að þegar hann var drengur í
Flatey á Breiðafirði, en þar
fæddist hann hinn 9. apríl árið
1923. „Ég safnaði nú litlu þá,
en fylgdist með dýralífinu í fjör-
unni,“ sagði hann. „Þá fylgdist
ég einnig vel með þegar ég var
á sjónum, en ég var sjómaður í
fjölda ára. Söfnunin byijaði hins
vegar ekki af alvöru fyrr en ég
hóf störf hjá Hafrannsóknar-
stofnun árið 1972. Ég var á skip-
um Hafrannsóknarstofnunar og
hélt alltaf þeim sið að taka sýni
úr sjónum allt í kringum landið.
Nú hef ég um 1.500 tegundir á
skrá og hef útbúið kort sem sýn-
ir útbreiðslu þeirra.“
Jón sagði að safnið væri að
mestu á Náttúrugripasafni
Kópavogs. „Ég á mér ekki neina
uppáhaldstegund, enda er erfitt
að gera upp á milli dýranna. Þau
virðast kannski ljót og leiðinleg
í fyrstu, en þegar maður fer að
skoða þau þá eru þau skemmti-
leg og falleg, eins og allt í náttúr-
unni,“ sagði hann.
Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson
Frá afhendingu 1. bindis ritverksins um sögu Akraness. F.v. Indriði Valdimarsson, framkvæmdastjóri
Prentverks Akraness, Jón Böðvarsson, söguritari, Steinunn Sigurðardóttir, forseti bæjarstjórnar Akra-
ness, forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, og Gísli Gíslason, bæjarstjóri og formaður ritnefndar.
Fjölbreyttu afmælishaldi
Akraneskaupstaðar lokið
Akrnnpsi.
FORMLEGU afmælishaldi í tilefni 50 ára kaupstaðarafmælis á
Akranesi lauk nú á síðustu dögum liðins árs og hafði að vonum
margt á daga heimamanna drifið, enda afmælishátíð fjölbreytt
og vel til hennar vandað. Hápunktur hátíðarhaldanna var heim-
sókn forseta Islands til Akraness 3.-4. júlí sl., en sú heimsókn
þótti takast sérlega vel enda skörtuðu veðurguðirnir sínu fegursta.
óvart koma hve saga Akurnesinga
í nóvember kom út fyrsta bindi
ritverksins Akranes, en ritverkið
verður í þrem bindum. Jón Böðvars-
son ritar söguna. Flestum mun á
er samofin stjórnmála- og menning-
arsögu þjóðarinnar, einkum á Sturl-
ungaöld og á endurreisnarskeiði því
er upp rann um 1800 eftir alda-
langa hnignun og hörmungar af
völdum náttúruafla og versluna-
reinokunar. Það er Prentverk Akra-
ness hf. sem gefur ritverkið út og
fer vel á því, enda fagnaði fyrirtæk-
ið eins og Akraneskaupstaður 50
ára afmæli á sl. ári þann 27. nóvem-
ber sl. Forseta lslands var afhent
fyrsta bindi ritverksins.
Skrifstofutsekni
• INNRITUN HAFIN •
Við leggjum áherslu á vandað nám sem sniðið er að
kröfum vinnumarkaðarins og nýtist þér í atvinnuleit.
Kenndar eru eftirtaldar námsgreinar:
§ Bókfærsla
§ Ritvinnsla
§ Verslunarreikningur
§ Tölvubókhald
§ Töflureiknir
§ Tollskýrslugerð
§ Gagnagrunnur
§ Windows og stýrikerfi
Athugið okkar hagstæðu greiðslukjör, kr. 5.000
á mánuði til tveggja ára.
Tölvuskóli íslands
sími 67 14 66 • opið til kl. 22