Morgunblaðið - 06.01.1993, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 1993
21
Arabar
fordæma
hryðjuverk
TVEGGJA daga löngum fundi
innanríkisráðherra Arabaríkja í
Túnis lauk með því að gefín var
út yfirlýsing þar sem hryðjuverk
af öllu tagi eru fordæmd. Full-
trúar Egyptalands, Alsír og
Túnis hvöttu aðila Arababanda-
lagsins til þess að fylkja liði
gegn bókstafstrúuðum múslim-
um. Stjórnir þessara þriggja
ríkja eiga allar í höggi við öfga-
sinnuð öfl sem vilja að komið
verði á íslömsku stjórnar- og
réttarfari.
Gunnar „Nú“
látinn
ÞEKKTASTI íþróttafréttamað-
ur Dana, Gunnar „Nú“ Hansen,
er látinn. Gunnar hlaut lands-
frægð á Ólympíuleikunum í
Berlín árið 1936, þegar þúsund-
ir Dana hlýddu á lýsingar hans
í útvarpi. Gunnar var heiðraður
á Olympíuleikunum í Montreal
árið 1976, þegar hann sótti leik-
ana í níunda sinn. Hann var
einnig viðstaddur leikana í
Moskvu og Los Angeles, þá sem
fréttafulltrúi dönsku Olympíu-
nefndarinnar. Gunnar var 87
ára gamall.
Nauðganir í
hemaðarskyni
í áfangaskýrslu nefndar Evr-
ópubandalagsins sem rannsak-
að hefur nauðganir á múslima-
konum í Bosníu kemur fram að
um skipulagða verknaði hefur
verið að ræða. Dayid Andrews,
utanríkisráðherra íra, sem var
formaður nefndarinnar sagði að
tála fórnalamba nauðgara væri
ógnvekjandi. í yfirlýsingu hans
segir að ljóst sé að nauðganirn-
ar hafí átt sér stað með sérstak-
lega hrottafengnum hætti, til
þess að valda fórnarlömbunum
sem mestum miska. Því hafi
verknaðirnir verið hluti af hern-
aðaraðgerðum, en ekki ógeð-
felldur fylgifiskur styijaldar.
Irakar auka
vígbúnað
ÍRAKAR hafa flutt fleiri flug-
skeyti á svæði í Suður-írak þar
sem bandarísk, bresk og frönsk
stjórnvöld hafa bannað flugum-
ferð. Bandaríkjamenn grönduðu
íraskri orrustuþotu á þessum
slóðum 27. desember sl. Tals-
maður Hvíta hússins segir að
fylgst sé með flutningum Iraks-
hers og litu stjórnvöld í Wash-
ington þá alvarlegum augum.
Talsmaður vamarmálaráðu-
neytis Bandaríkjanna segir að
írakar hafi ekki beint ratsjám
sem notaðar eru til þess að miða
skeytum að bandarískum flug-
vélum. Litið yrði á slíkar aðgerð-
ir sem ógnun við bandaríska
hagsmuni, og þeim mætt af
hörku.
Dómara
vikið frá
ÞÝSK dómsyfírvöld viku í gær
frá dómsforseta í máli sem höfð-
að hefur verið gegn Erich
Honecker, fyrrverandi leiðtoga
Austur-Þýskalands. Hann er
sakaður um að misnota stöðu
sína til að ná í eiginhandaráritun
leiðtogans. Bráutigan var áður
dálkahöfundur í hægrisinnuðu
dagblaði og var tilnefning hans
í embættið afar umdeild.
Skömmu fyrir jól bað hann einn
af verjendum Honeckers að láta
sakbominginn rita nafn sitt í
ferðamannapésa, bar því við að
ætlunin væri að annar maður
fengi pésann til eignar.
Friðsöm mótmæli
Um 500 manns tóku þátt í mótmælum við komu flutningaskipsins Akatsuki
Maru til Tokai í Japan í gær. Þúsund lögregluþjónar voru til taks til að
gæta farms skipsins, sem hlaðið er tæpum tveimur lestum af plútón. Mótmæl-
in voru friðsamleg og enginn var handtekinn. Þegar fyrstu gámarnir voru
affermdir fögnuðu verkamenn við kjamorkuverið í Tokai með borða sem á
var letrað „Vertu velkomið plútón." I^yndin sýnir lögregluþjóna andspænis
mótmælendum með kreppta hnefa, sem hrópuðu „Ekkert plútón."
Aftaka í Bandaríkjunum
Barnamorðingja
varð að ósk sinni
Walla Walla í Washington-ríki. Reuter.
ALLAN Dodd, 31 árs gamall bandarískur barnamorðingi, var hengdur
í gærmorgun í Washington-ríki en áður hafði hann hafnað að fá að
láta lífið með banvænum eiturskammti í æð. Árið 1989 rændi Dodd
þrem ungum drengjum, pyntaði þá, nauðgaði þeim og að lokum myrti
hann fórnarlömb sín. Hann vildi ekki nýta sér rétt til að biðja um
náðun, vildi fá að deyja en ýmsir mannréttindahópar mótmæltu ákaft
dauðadómnum og þá einkum líflátsaðferðinni. Dodd sagðist vera sjúk-
ur, hann myndi halda áfram glæpaverkum sínum ef hann fengi til
þess ráðrúm en skömmu fyrir dauðann sagðist hann myndu finna frið
í Kristi.
Fyrir nokkrum vikum sagði Dodd
í viðtali að engin von væri um fyrir-
gefningu fyrir þá sem misþyrmdu
börnum eða myrtu þau. Rétt. fyrir
aftökuna sagðist hann iðrast þessara
ummæla. „Það er von, það er hægt
að finna frið. Hvorttveggja fann ég
í Guði vorum, Jesú Kristi. Leitið til
Guðs og hann veitir ykkur frið“.
Faðir eins fórnarlambsins lét í ljós
vanþóknun sína er Dodd minntist á
Guð.
BBC sækir í sig veðrið
Harðnandi samkeppni á
sviði gervihnattasendinga
Lundúnum. The Daily Telegraph.
BRESKA ríkissjónvarpið (BBC) skákar nú veldi bandarísku sjónvarps-
stöðvarinnar CNN á sviði gervihnattasendinga. Ákveðið hefur verið
að hefja útsendingar á gervihnattarás BBC, World Service Television
(WST), allan sólarhringinn. Útsendingar WST nást i Evrópu, Asíu,
Austurlöndum nær, Afríku og Kanada. Stefnt er að því að þær breiðist
út um allan heim í lok þessa árs.
Útsendingar WST hófust fyrir
réttu ári. Rásin nýtur nú vaxandi
vinsælda í Kína og á Indlandi, en
að sögn BBC bætast 100.000 áhorf-
endur í hópinn á degi hvetjum. Að
sögn John Tusa fráfarandi fram-
kvæmdastjóra BBC World Service,
gæti gervihnattarásin aukið áhrif
Breta á alþjóðavettvangi. Heimsveldi
þeirra yrði endurreist með fjölmiðlun,
en ekki hernaði. „Ef Bretar leyfa
ímyndunaraflinu að ráða geta þeir
hæglega orðið ráðandi í ijölmiðlun
heimsins," segir Tusa.
Samkvæmt upplýsingum frá CNN
eru áhorfendur stöðvarinnar um 120
milljónir í 142 ríkjum heims. Kannan-
ir benda þó til þess að þar sem áhorf-
endur geta valið milli WST og CNN,
kjósi þeir fremur þjónustu Breska
ríkisútvarpsins. CNN þykir hafa tvö
tromp í hendi, frægð eiganda stöðv-
arinnar Teds Turners og Peters Ar-
nets fréttamanns, sem hélt uppi frét-
taflutningi frá írak meðan á Persa-
flóadeilunni stóð. Stjórnendur stöðv-
arinnar hafa þó miklar áhyggjur af
samkeppninni við WST. Nýlega var
ákveðið að veija 4.800 milljónum
króna í að bæta þjónustu CNN.
Átta af níu hæstaréttardómurum
Washington og sérstök náðunar-
nefnd ákváðu á mánudag að hafna
beiðni um að seinka aftökunni. Af-
takan fór fram í ríkisfangelsinu í
borginni Walla Walla og var hópur
fréttamanna viðstaddur, einnig tveir
ættingjar fómarlamba morðingjans.
Henging hafði ekki verið notuð við
líflát í Bandaríkjunum síðan 1965
en Dodd sagðist vera hræddur við
allar sprautur, vildi því fremur heng-
ingu. Ónafngreindur böðull opnaði
hlera undir fótum Dodds fimm mín-
útur yfir miðnætti að staðartíma og
hinn dauðadæmdi, sem bar hettu er
huldi höfuðið, féll rúma tvo metra
áður en ólin stöðvaði fallið. í flestum
tilvikum hálsbrotnar fólk þá sam-
stundis og svo virðist hafa farið því
að læknir úrskurðaði Dodd látinn
fjórum mínútum síðar. Andstæðing-
ar aftökunnar höfðu fullyrt að heng-
ing væri mjög sársaukafull en vitnin
sögðu að ekkert hefði bent til þján-
inga.
Mál IJfog menning
Síðumúla 7-9, sími: 68 85 77 • Laugavegi 18, sími: 2 42 40
BANTEX BRÉFABINDI
Magn 20 stk.
Verö 6.120,-kr.
Tilboð 4.498,- kr.
Það sparast
1.627,- kr.
ÞAÐ SPARAST ALLT AÐ 20%
Á ÖÐRUM VÖRUFLOKKUM EF KEYPT ER
í HEILUM KÖSSUM!
PLASTMÖPPUR, GATAPOKAR, SKIPTIBLÖÐ, STAFRÓF,
REIKNIVÉLARÚLLUR, TÖLVUMIÐAR, TÖLVUBINDI,
DISKLINGABOX OG MARGT FLEIRA Á TILBOÐSVERÐI!