Morgunblaðið - 06.01.1993, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JANUAR 1993
Háskólinn á Akureyri
# # Morgunblaðið/Rúnar Þór
Slipparar 1 snjokomu
Það snjóaði hressilega um tíma í gær eins og sjá má að snúast um þessar mundir enda verkefnastaða
á þessari mynd sem tekin var á athafnasvæði Slipp- þokkaleg í upphafi árs.
stöðvarinnar Odda, en þar hafa starfsmenn í nógu
Námskeið í stærð-
fræði og aðferðar-
fræði á vormisseri
„ÉG VERÐ sáttur þegar ég hef losað mig við 20 kíló í viðbót,"
sagði Gunnar Níelsson starfsmaður íþróttahallarinnar á Akureyri,
en hann hefur frá því í lok júlí á síðasta ári losað sig við 60 kíló,
eða þokkalegan unglingsstrák eins og hann orðaði það.
Gunnar sagðist hafa byijað í uppsafnaðan fortíðarvanda að
megruninni í lok júlí á síðasta ári glíma. Ég hef líka fengið að vera
og náð þá af sér um 20 kílóum
fram til loka september þegar hann
fór að æfa reglulega hjá Stúdíó
Púls 180 í KA-heimilinu og var þá
umsamið milli hans og eigenda lík-
amsræktarstöðvarinnar að mætti
hann að lágmarki þrisvar í viku
og puðaði hressilega þyrfti hann
ekki að greiða æfingagjaldið.
„Ég fer ekki sjaldnar en átta
sinnum í viku, tvisvar suma daga'
og hvíli mig svona einn og einn
dag. Þetta er glettilega gaman og
maður finnur jákvæða strauma
sem vissulega er afar hvetjandi,
ég er mjög þakklátur fyrir þann
stuðning sem ég hefur fengið.
Fyrst og fremst verða menn þó að
fara út í svona lagað fyrir sjálfa
sig og það hefur alla tíð vakað
fyrir mér. Ég hef fengið að vera
feitur í friði í 29 ár og átti við
í friði núna þegar ég er að ná þessu
af mér,“ sagði Gunnar.
Hann sagði að í byrjun hafi hann
sett sér það markmið að komast í
Levi’s-gallabuxur fyrir jól, „ég var
alltaf í gallabuxum sem entust
ekki neitt og ákvað þvi að setja
mér það markmið þegar ég byrjaði
í júlílok að komast í Levi’s-galla-
buxur fyrir jól og það tókst og
gott betur. Þá var næst að komast
í ákveðna tegund af vöðlum sem
ég hafði ekki getað notað áður og
það tókst líka. Nú keppi ég við
ákveðinn aðila hér í bænum, en sá
okkar sem fyrr kemst niður í til-
tekna þyngd fær utanlandsferð frá
hinum,“ sagði Gunnar og tók sér-
staklega fram að þetta tímabil
hefði aldrei verið þreytandi og ekki
hefði orðið vart fýlukasta eða ann-
ars slíks.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Gunnar Níelsson saknar ekki þeirra 60 kílóa sem hann hefur
misst á síðustu fimm mánuðum, en á myndinni er hann við sam-
svarandi magn af Smjörva og hann hefur losað sig við í kílóum.
Þrettándag*leði
Þórs í kvöld
HIN árlega þrettándagleði
Iþróttafélagsins Þórs verður
haldin í kvöld, miðvikudags-
kvöldið 6. janúar, að kvöldi þrett-
ánda dags jóla, og hefst hún kl.
20. Þetta er í 57. sinn sem Þórsar-
ar efna til þrettándagleði á Akur-
eyri.
Kveikt verður í veglegum bál-
kesti kl. 20 og svo sem venja er
má búast við að álfakóngur og álfa-
drottning ásamt fylgdarliði sínu
mæti á svæðið á svipuðum tíma.
Með í för verða jólasveinar, álfar,
tröll og púkar og kynjaverur ýmiss
konar.
Jóhann Már Jóhannsson söngvari
syngur nokkur nýárslög fyrir gesti
og þá verður boðið upp á óvænt
skemmtiatriði fyrir börnin, sem fá
að bregða á leik með fylgdarliði
kóngs og drottningar. Að lokum
verður fjölbreytt flugeldasýning.
Nýtt blað gef-
ið út í Eyja-
fjarðarsveit
Ytri-Tjörnum.
NÝTT blað, Eyvindur, hóf
göngu sína í Eyjafjarðarsveit
nýverið. Það er menningar-
málanefnd hreppsins sem sér
um útgáfuna.
Leifur Guðmundsson formað-
ur nefndarinnar fylgir blaðinu
úr hlaði og segir m.a.: „Tilgang-
ur með þessu blaði er ekki síst
sá að kynna það öfluga félags-
starf sem fram fer í Eyjafjarðar-
sveit. Öllum félögum sem og
embættismönnum ýmsum sem
við vissum af var gefmn kostur
á að senda efni í blaðið og greina
frá sinni starfsemi.“
Efni blaðsins er fjölbreytt og
er þar m.a. greint frá félagi aldr-
aðra í sveitinni, félagsskapnum
Högum höndum, kvenfélögun-
um, ungmennafélögunum, lions-
klúbbnum, leikfélaginu og
Hjálparsveitinni Dalbjörgu. Þá
eru í blaðinu nokkur ljóð eftir
íbúa sveitarinnar, fróðleg grein
um komrækt í Eyjafirði og sagt
frá öllum kirkjum sveitarinnar,
sem eru sex talsins. Blaðinu var
dreift á öll heimili í sveitarfélag-
inu. Fyrirhugað er að það komi
út áftur síðla vetrar.
- Benjamín
TVÖ námskeið fyrir væntanlega kennaranema við Háskólann á Akur-
eyri verða í boði nú á vormisseri, í stærðfræði og aðferðarfræði, og
hefjast þau dagana 19. og 20. janúar næstkomandi, en síðasti skráning-
ardagur á námskeiðin er 15. janúar á skrifstofu Háskólans á Akureyri.
Umsjónarkennari á stærðfræði-
námskeiðinu verður dr. Stefán G.
Jónsson. Áhersla verður lögð á rúm-
fræði, algebru, tölfræði og falla-
fræði. Miðað verður við að nemendur
hafí tileinkað sér efni algengustu
stærðfræðiáfanga á framhaldsskóla-
stigi. Kennt verður í fyrirlestrum og
dæmatímum. Farið verður yfir þá
stærðfræði sem nauðsynlegt er að
kennarar í grunnskólum hafi á valdi
sínu, en námskeiðið gildir 4 einingar.
Á aðferðarfræðinámskeiðinu
verða umsjónarkennarar dr. Kristján
Kristjánsson og dr. Guðmundur
Heiðar Frímannsson. Áhersla verður
lögð á rökfræði, vísindalega aðferð,
upplýsingaöflun, notkun bókasafna
og tölva. Námskeiðinu er ætiað að
gefa nemendum almennan grunn í
háskólanámi og venja þá við fræðileg
vinnubrögð. Námskeiðið gildir 2 ein-
ingar.
Námskeiðsgjald verður 11.500
krónur fyrir þá sem ekki skráðu sig
í Háskólann á Akureyri á haustmiss-
eri og er gjaldið óháð því hve mörg
námskeið menn taka á vormisserinu.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar
á skrifstofu Háskólans þar sem
skráning fer fram.
Um 10% félag'smanna Einingar á Akureyri eru atvinnulausir
Um 570 á atvinnuleysisskrá
og hafa aldrei verið fleiri
ATVINNULEYSI á meðal félagsmanna Verkalýðsfélagsins Einingar
nálgast nú að vera um 10% á Akureyri og hefur það aldrei áður verið
jafn mikið. Mikil fjölgun hefur orðið á atvinnuleysisskrá og eru um
570 manns skráðir atvinnulausir á Akureyri og hafa frá því skráning
hófst ekki verið fleiri. Formaður Einingar telur að um viðvarandi ástand
sé að ræða og vill að fjármagni verði veitt inn á svæðið til atvinnuupp-
byggingar eins og gert var á Suðumesjum í lok síðasta árs.
Um áramót voru 492 á skrá hjá
Vinnumiðlunarskrifstofunni á Akur-
eyri og greinilegt að atvinnuleysi er
mun meira hjá körlum en konum,
því 320 karlar voru skráðir án at-
vinnu og 172 konur. í desembermán-
uði voru skráðir rúmlega 10 þúsund
atvinnuleysisdagar á Akureyri.
Til samanburðar má geta þess að
{ lok árs 1991 voru 266 skráðir at-
vinnulausir á Akpreyri eða helmingi
færri en um nýliðin áramót, en des-
embermánuð það ár voru atvinnu-
leysisdagar 5.300 talsins. Um mán-
aðamótin nóvember/desember voru
370 á skrá, þannig að atvinnulausum
fjölgaði því milli mánaðamóta um
120 manns.
Sigrún Björnsdóttir forstöðumað-
ur Vinnumiðlunarskrifstofunnar
sagði að mikið væri um að verið
væri að fækka starfsfólki á vinnu-
stöðum, ekki væri um fjöldauppsagn-
ir að ræða, í flestum tilfellum væri
um fáa starfsmenn að ræða á hveij-
um stað. Þá sagði hún að eitthvað
af fólki hefði fengið atvinnu tíma-
bundið fyrir jólin og væri það nú
aftur komið á atvinnuleysisskrá.
Langflestir þeirra sem atvinnu-
lausir eru nú eru félagsmenn Verka-
lýðsfélagsins Einingar eða rúmlega
200 manns, þá eru um 70 úr Félagi
verslunar- og skrifstofufólks og einn-
ig um 70 frá Iðju, félagi verksmiðju-
fólks á Akureyri og nágrenni. Þá eru
55 iðnaðarmenn á atvinnuleysisskrá
og 36 sjómenn.
Sigrún sagði að *stór hluti þess
fólks sem væri skráð án atvinnu
væri á aldrinum 16 til 30 ára og
eins væri áberandi hversu margt fólk
yfir sextugu væri atvinnulaust. Flest-
ar nýskráningar upp á síðkastið
væru frá ungu fólki.
Mikið hefur verið að gera á skrif-
stofunni eftir áramótin og hafa á
bilinu 70 til 80 manns komið til
nýskráningar á þeim tíma, þannig
að á atvinnuleysisskrá nú eru um
570 manns. Að sögn Sigrúnar hefur
atvinnuleysi aldrei verið svo mikið
frá því skráning hófst, en þar til nú
síðustu tvo mánuði var mest atvinnu-
leysi skráð í febrúar árið 1990 þegar
347 manns voru á atvinnuleysisskrá.
Missti 60 kíló á fimm mánuðum
Engin bjartsýni í upphafi árs
Björn Snæbjörnsson formaður
Verkalýðsfélagsins Einingar sagði
að menn hefðu ekki áður séð svo
svartar tölur og nálgaðist atvinnu-
leysi í félaginu nú að vera um 10%
á Akureyri. „Þetta er langt fyrir ofan
það sem við höfum áður séð, það er
orðið nokkuð greinilegt að þetta er
viðvarandi ástand en ekki tímabund-
ið og mér finnst kominn tími til að
menn fari að skoða í alvöru hvort
ekki þurfi að leggja til sérstakt fjár-
magn til atvinnuuppbyggingar hér á
svæðinu líkt og gert var á Suðumesj-
um fyrir nokkru. Það má vera að
eitthvað fækki á skránni með vorinu,
en hún tæmist ekki svo glatt. Sú
mynd sem við blasir er þannig að
atvinnuleysi hijáir stóran hluta okkar
félagsmanna og vinna hefur minnkað
hjá þeim sem hana hafa og ofan á
þetta bætast þær stórauknu álögur
sem lagðar hafa verið á fólk sem
leiðir til þess að við erum allt annað
en bjartsýn í upphafi árs,“ sagði
Bjöm Snæbjörnsson formaður Ein-
ingar.
-------»-♦ ♦-------