Morgunblaðið - 06.01.1993, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 06.01.1993, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 1993 Helgi E. Guðbrands son —Minning’ Fæddur 3. september 1923 Dáinn 23. desember 1992 í dag fer fram í Reykjavík útför Helga E. Guðbrandssonar verslun- armanns, en hann hafði um lengri tíma átt við erfiðan sjúkdóm að stríða er lagði hann að velli. Helgi E. Guðbrandsson var fæddur 3. september 1923, sonur Guðbrands Guðmundssonar og Helgu Jakobsdóttur. Ungur að árum byijaði hann að vinna fyrir sér við algeng störf og sá sér farborða með svipuðum hætti og þá tíðkaðist hjá þeim er ekki bjuggu við rúman efnahag. Námslán og styrkir voru ekki fyrir hendi eins og nú tíðkast til að auð- velda ungu og efnilegu fólki að ganga menntaveginn. Hinn harði og miskunnarlausi skóli lífsins var hlutskipti unglinga á þeim tíma. Flestir þeirra tóku hlutskipti sínu af manndómi og hösluðu sér völl úti í atvinnulífinu á unga aldri, með tiltölulega litla menntun en þeim mun meiri vilja til að nýta með- fædda hæfileika til góðra verka, sjálfum sér og öðrum til heilla. Helgi E. Guðbrandsson sannaði í verki hversu miklum árangri má ná með þrotlausu starfi og jákvæðu hugarfari til þess umhverfis sem hann starfaði í. Helgi haslaði sér snemma völl sem afgreiðslumaður í verslun Málarans hf., sem þá var staðsett á horni Ingólfsstrætis og Bankastrætis í Reykjavík. Var þetta ein þekktasta verslun sinnar tegundar í Reykjavík í fjöldamörg ár og þangað lögðu margir Reyk- víkingar leið sína til að kaupa málningarvörur. Einnig var þessi -nvverslun þekkt fyrir að hafa ætíð á boðstólum úrlvalsliti og striga fyrir listmálara og áhugafólk á því sviði. Vöndu margir þekktir listmálarar komu sína í Málarann í Banka- 'stræti á þessum tíma. Milli Helga, sem þá var orðinn verslunarstjóri, og margra viðskiptavinanna tókst gott samband og jafnvel vinátta. Hann var einstaklega viðmótsgóður og vildi af einlægni leysa hvers manns vanda. Um Helga E. Guð- brandsson er með sanni unnt að segja: Hann var góður maður sem leitaðist við að gera samstarfs- mönnum sínum lífið auðveldara. Sá sem þessar línur ritar kynnt- ist Helga fyrir mörgum áratugum, bæði í gegnum starf hans hjá Mál- aranum og í félagsmálum hjá Verslunarmannafélagi Reykjavík- ur, en þar var hann virkur félagi í áratugi og var lengi í stjóm félags- ins og síðar, allt til dauðadags, starfsmaður þess. í öllum störfum sínum í þágu VR nýttust hinir góðu eðliskostir Helga vel. Var hann félaginu ómet- anlegur starfskraftur. Hið hlýja viðmót hans og einstakur dreng- skapur í samskiptum við félags- menn VR,' stjómendur og sam- starfsfólk, var með þeim hætti að fátítt er. Fyrir það þökkum við, samferðamenn hans. Helgi E. Guðbrandsson kom víð- 'ar við. Hann hafði mikið yndi af lax- og silungsveiði og stundaði þá íþrótt meðan aðstæður og heilsa leyfðu. Var okkur tíðrætt um veiði- ferðir hans norður í Vatnsdal, en þangað fór Helgi oft til veiða á neðsta svæði á áram fyrr. Helgi E. Guðbrandsson var mik- ill sjálfstæðismaður. Hann, eins og margir af hans kynslóð, trúði á sjálfstæðisstefnuna undir kjörorð- inu „stétt með stétt“, í þeim skiln- ingi að innan Sjálfstæðisflokksins gætu menn starfað saman á jafn- * • réttisgrandvelli, óháð stöðu og efnahag. Helgi var virkur í flokks- starfinu við kosningar í áratugi og barðist ásamt fleirum innan verka- lýðshreyfingarinnar fyrir rétti ein- staklingsins samfara lýðræðislegri félagshyggju. Pólitískar öfgar voru honum ekki að skapi, hvort sem þær vora til hægri eða vinstri. ^Skilningur á högum annarra, mannúð og umburðarlyndi í orði og verki, var í anda sannrar sjálf- stæðisstefnu leiðarljós Helga á vettvangi þjóðmála. Helgi var einstakur vinur sem unnt væri að skrifa um langt mál. Hér skal að sinni látið staðar num- ið og Helga E. Guðbrandssyni þökkuð áralöng vinátta og sam- starf sem aldrei féll skuggi á. Við Ragnheiður sendum frú Margréti, börnum og skyldmennum innilegar samúðarkveðjur. Guðmundur H. Garðarsson. Helgi frændi varð ekki gamall maður, hefði orðið sjötugur í haust, en auðnaðist ekki. Hann fæddist á Galtafelli í Hrunamannahreppi að hausti til í litlu herbergi, sem var eins konar viðbót við vesturgafl bæjarins og var reist fyrir langömmu okkar beggja, Gróu. Þar lá gamla konan síðan 13 ár í kör sinni. Ég fæddist 4 áram síðar í því sama herbergi, og fylgdumst við síðan að mestu leyti að fram á fullorðinsár. Móðir hans var þriðja bam afa og ömmu, Helga, fædd 3. desem- ber 1894 í Kampholti í Flóa, og faðirinn Guðbrandur Guðmunds- son, fæddur 7. september 1892 á Gígjarhóli í Biskupstungum. Þau voru þá trúlofuð, en berklarnir slitu það samband fljótt, og lést hún mánuði eftir fæðingu Helga. Henni er svo lýst, að hún væri myndar- stúlka, fallega vaxin og fallega rauðhærð. Guðbrandur eftirlét afa og ömmu umsjón og uppeldi drengs- ins, og fylgdi hann þeim æ síðan. Guðbrandur fluttist til Reykja- víkur og kvæntist síðar mikilli ágætiskonu, Kristínu, og áttu þau saman 3 börn. Hann lét mjög til sín taka í verkalýðsbaráttu kreppu- áranna og lést 1973. Helgi sýndi snemma létta og glaða lund og alla ævi þá góðvild til manna, sem öðrum þótti gott að njóta, heill og hrekklaus og bjóst jafnan við því sama til baka, þótt slíkt lánist misjafnlega. Gömlu hjónin bráu endanlega búi árið 1927 og fluttust suður á möl- ina, eins og fleira fátækt sveita- fólk, södd á basli búskaparins sem afi þótti aldrei hneigður fyrir. Hans hugur var við smíðarnar, hafði t.d. verið við smíðar Hóla- og Stóra- núpskirkju, en síðasta verk hans þarna fyrir austan var að standa fyrir smíði barnaskólans að Ásum 1927, árið sem hann fór. Pabbi sagði mér eitt sinn í gamni, að ekki hefði niðursetningur svo komið heim að bæ að afi yfir- gæfi ekki teiginn, svo af því má ráða áhugann. Amma var hins vegar rótgrónari í búskapnum og minntist oft upp- vaxtar síns á Ásólfsstöðum og bú- skapar þeirra afa á Galtafelli, en aldrei heyrði ég afa ýja að slíku. Þau hjón voru bæði í nettu meðallagi, utan afi stakk nokkuð við sökum gamalla meiðsla. Gömul þótti mér þau eðlilega, þegar ég man fyrst eftir, um 1930, en þegar gluggað er í gamlar sveitalífsmynd- ir síns tíma, þegar allir standa úti á hlaði að láta fótógrafera sig með frægum ættingjum að sunnan í heimsókn sést, að vinnulúið sveita- fólk um fertug var raunveralega orðið gamalt, en breyttist kannske lítt síðan allt til dauðadags. Ég minnist þess, hve þau voru bæði Ijúf innávið, einkum amma, en það gat stirðnað útávið hjá henni. Afi var meira jafngeðja. Þau bjuggu fyi-stu árin á Þórs- götu og við Bergstaðastræti, en er Guðný systir afa og Jón maður hennar reistu sér stórhýsi við Sjafn- argötu 4 árið 1932, þá talaðist svo til, að þau hjón fengju inni í risinu þar ásamt Sigríði, dóttur þeirra og syni hennar, Jakobi, í frambemsku. Og Helgi fylgdi auðvitað gömlu hjónunum og varð þaðan frá leið- togi minn gegnum bemsku- og unglingsár langt fram á stríð. Þetta fólk allt fluttist nú þarna inn í allsleysi kreppunnar. Áldrei varð mér fullljóst, hvernig þau komust af fyrir utan guðsblessun, en Sigríður mun að vísu hafa geng- ið að þeirri vinnu sem gafst, en vinna afa mun liafa greiðst mis- jafnlega, enda ekki harðdrægur í viðskiptum. Risinu var skipt að endilöngu með gangi, og sá hluti sem var innréttaður, var eldhúskompa riorðantil undir bröttu þaki, mann- geng að hálfu og taldist um sex fermetrar, en sunnan við nefndan gang var rúmgóð og björt stofa undir stórum kvisti, og þar til hlið- ar var lítið herbergi aftur undir bröttu þaki og þiljað af við sperrut- ær. Þótt þröngt þætti setið nú, þá var fólk þessu vant og standarður lífsins svo á öllum sviðum. En aug- ljóst var, að oft var þröngt í búi. Um meðlag var ekki að ræða, hver átti nóg með sig. Helgi var stundum sendur í föðurhús að leita aðstoð- ar, en þar var fyrir fullt hús barna, og varð frúin jafnan fá við og heim- ilið ekki aflögufært. Ég var nú þarna svotil daglegur gestur í fjöldamörg ár og alltaf mættur á sunnudagsmorgnum til að gantast við Helga. Afi okkar var rólyndismaður, svo sem áður er sagt, og man ég varla til að hann hvessti röddu að okkur utan einu sinni í morgunhasar. Hann var að raka sig í stofunni auðvitað, því allt gerðist þar og með hníf að þeirra tíma hætti og annar okkar frænda þeytti bók þvert yfír stofu og fló nærri barka gamla mannsins. Þá fauk í góð- mennið. Afí var þúsundþjalasmiður, sér- lega í tré, leður og járn, og stund- aði þessar iðnir er gafst, en dútli sínu sem sneri að leðri og skósmíði þótti honum sjálfsagt að stunda við rúmbrík sína í stofunni einu, enda tæpast í önnur hús að venda. Þetta þóknaðist kvenþjóðinni illa og lauk svo, að pabbi byggði honum rúmgóðan vinnuskúr á lóðinni nr. 2, sem Sæmundur Ólafsson, oft nefndur Sæmundur í kexinu, bauð fram, gamall og gegn krati. Afi undi sér síðan þar við smíðar og leður, en aðra aðstöðu hafði hann í Galtafelli við Laufásveg, hjá bróð- ur sínum Bjama, sem sjálfur var listasmiður. Afí kallinn var vinmargur og frændrækinn, og oft var gest- kvæmt þar um helgar, fólk að aust- an eða ættað þaðan. Mér finnst jafnan hafa verið hlaðið borð með tertum og smákökum, a.m.k. var það svo á öllum hátíðum, en þá var jafnan öll fjölskyldan komin í súkk- ulaði og kaffi. Álveg óþarfi að þvo bollann, elskan mín, heyrðist í hverri veislu. Fastur punktur í tilveranni á þessum tíma var, að þeir komu saman, Þorgeir frændi, faðir Gests myndhöggvara, Jón bróðir hans og vinur þeirra allra, Erlendur, sem var kallaður frændi líka, svo ekki hallaðist á. Þeir ijórir settust þá saman við kaffiborðið, hressir og kátir, og sögðu hveijir öðrum sömu fræðgarsögurnar upp aftur og aft- ur, og hafði Þorgeir jafnan best. Síðan skruppu þeir gjarnan út í vinnuskúr og komu ögn hressari upp aftur. Fjölskyldubönd vora sterk, og menn sóttu veislur og annan mann- fagnað hveijir til annars og mörg voru gamlárskvöldin hjá Guðnýju frænku undir orgelspili og sálma- söng. Mannlífið okkar Helga var á öðru plani, þegar hann var kominn á bísaaldurinn en ég enn græn- ingi, þá höfðu þeir jafnaldrar hans komið sér upp snjóhúsi miklu við suðurgarðvegginn. Hafði stórráðið komið þar saman til fundahalda við kertaljós og lokaði á græningja. Vildi ég samt láta vita af mér, þótt ég dirfðist ekki að hafa illt í huga, kleif upp á vegginn, sem var ívið hærri en húsið og lét mig pompa á þakið. Er nú skjótt að segja, að snögg- lega sat ég í óvinafagnaðinum miðj- um og munaði því, að ég sat ofan á rústunum, en stórráðið undir, að ég kom fyrr undir mig fótunum, náði upp til ömmu og var borgið í það skiptið. Menntabraut Helga varð aldrei löng, hefðbundin ganga í Barna- skóla Austurbæjar var það, sem í boði var. Strax er hann mátti og henni lauk var hann ráðinn sem vikapiltur í Málarann við Banka- stræti gegnum vinskap við eigand- ann, Pétur, sem bjó í næsta húsi á Sjafnargötunni. Þar ílentist hann í mörg ár og varð þekktur í Reykja- vík, sem Helgi í Málaranum. Stríðsárin voru ár mikilla breyt- inga, þar gengum við unglingarnir fyrstu sporin í einkennilegri veröld þar sem annar hver maður var hermaður og allt, sem því fylgdi, samneyti við þá og sjoppuferðir utan enda, sem voru 3 á hveiju götuhomi, bíóin, stríðsmyndirnar, sem þá blómguðust, stríðsrómantík þeirra og okrarabransinn sem fýlgdi. Og allir bárum við batt- ersbyhatta. En sorgin var á næsta leiti, ég man glöggt óveðursnóttina þegar séra Jón, föðurbróðir minn og móð- urbróðir Helga, fórst með Þormóði veturinn 1943. Þá áttu gömlu hjón- in bágt, hann var þeirra yngsta barn. Seint í hóvember það ár gekk afi fyrir bíl og var þá allur, þá voru döpur jól. Lífið tók upp úr þessu nýja stefnu, Helgi kvæntist og Sjafnar- götulífinu, sem verið hafði svo langt og viðburðaríkt að manni fannst, lokið. Fjölskyldan fluttist í annan borgarhluta og nýtt líf hófst hjá henni í öðru formi, Helgi kvænt- ist inn í reykvíska stórfjölskyldu á Lindargötu 40, Margréti Kristínu Friðleifsdóttur Friðrikssonar, fædd 20. nóvember 1924, og Halldóru Eyjólfsdóttur, sem nú situr í hári elli. Friðleifur var á sinni tíð þekktur sem formaður Þróttar og framar- lega í pólitísku lífí Reykjavík í þá daga. Mikil og góð vinátta tókst strax með fjölskyldum okkar og Lindar- götufólkinu og pólitískir barríerar hrundu þar eins og berlínarmúrar, hafi þeir þá einhveijir verið. Margrét er mikil ágætiskona og fæddist þeim þarna bömin þijú, Friðleifur, fæddur 1947, Lilja, fædd 1951 og Gunnar Helgi, fæddur 1957. Lilja er gift Gísla Jónmundi, og eiga þau bömin Helga Reyr, Jónmund og Róbert, öll á unglings- aldri. Þar sem alla tíð var mjög kært milli ömmu og Helga gat hún naumast hugsað sér að skilja við hann, þótt hann kvæntist, og því buðu húsráðendur á Lindargötunni henni, Sigríði og Jakobi íbúð í sama húsi og á sömu hæð, þegar rýmd- ist um í stórfjölskyldunni, en sjálf bjuggu þau á efri hæð í sátt og samlyndi meðan allir entust. Þegar bernskuheimili Margrétar var selt eftir dauða Friðleifs, keyptu þau sér íbúð við Grensásveg og bjuggu þar lengst af síðan, og þar ólust börnin upp uns þau eitt af öðra fóra að heiman. Eftir langa vera í Málaranum gamla og eftir nokkurt hlé, settist Helgi niður við hlið þeirra manna er vörðu og sóttu hag verslunar- stéttarinnar og vann Verslunar- mannafélagi Reykjavíkur það sem hann mátti á langri vinnuævi. Hann var félagslyndur og átti gott með að umgangast fólk, ljúfur, skiln- ingsríkur, kurteis og virtur, því hann átti jafnan auðvelt með að setja sig í annarra spor sem á sjálf- um brynni og þar á bæ ríkti hveij- um góður andi. En svo líður æskan unga, hann stóð meðan stætt var, og eins og fúr Theodóra segir: hljóður vina- hópurinn / horfir út í bláinn. Hreggv. Stefánsson. „Það er aðfangadagur. Þessi ljósi dagur í dimmasta skammdeginu. Ég er búsett erlendis og síminn er sambandið mitt við fjölskyldu og vini. Gleðileg jól, segir mamma, en hann Helgi frændi dó í gær. Við grátum báðar svolítið í símann, en eftir samtalið græt ég miklu meira. Það er svo erfitt að losna við þennan köggul úr hjartanu. Jú, ég vissi víst að hann Helgi frændi hafði verið veikur. Og ég held að hann hafi kvalist og þess- vegna verið hvíld í því að sofna. En það breytir bara ekki því að ég tárast enn yfir þessu öllu, og svo fæ ég ekki tækifæri til að fylgja honum til grafar. En hann Helgi frændi og hún Magga, eftirlifandi kona hans, áttu bara alltaf svo stórt hjarta. Er það ekki skrýtið hvað litlar íbúðir geta hýst margt fólk, ef fólkið sem býr þar hefur stórt hjarta? Svona var þetta alltaf heima hjá Helga og Möggu. Alltaf pláss fyrir fleiri, bara sjálf- sagt að gista hjá þeim, ef við vorum á ferð. Þó er ég alveg viss um að stundum reyndi ég á þolrifin í þeim, því að uppátæki og ærsl voru hátt skrifuð hjá mér í æsku. En alltaf var pláss í hjartanu hans Helga frænda og seinna meir hjálpaði hann mér einnig með sinni reynslu frá Verslunarmannafélaginu, þar sem hann vann svo lengi. Já, það er margs að minnast. Góður drengur er fallinn frá, en aldrei skal ég gleyma honum Helga frænda og þakka fyrir þann tíma, sem ég þó fékk að eiga með honum. Inga Jóhannsdóttir. Dauðinn spyr ekki um tíma. All- ir dagar era honum jafnir. Hann ber að garði alla daga ársins, jafnt þá daga þegar mesta hátíð mann- anna fer í hönd, jólin, sem er sú hátíð sem tengir fjölskyldurnar betur saman en nokkur önnur há- tíð. Tilfinningar manna verða þá næmari og opnari og fjölskyldur hafa ríkari þörf en oftast annars til að vera saman og njóta jólahátíð- arinnar sameiginlega. Þannig var það með Helga E. Guðbrandsson, sem lést 23. desem- ber, þegar við vorum að stíga síð- ustu skrefin að helgum jólum. Þá var hann kallaður frá þessu jarð- neska lífi, frá ættingjum og vinum. Helgi hafði verið veikur um alllangt skeið og hann gerði sér grein fyrir að hverju stefndi. Hann var trúaður maður og tók því sem að höndum bar með jafnaðargeði. Helgi var mikill fjölskyldumaður sem gaf mikið með þeirri góðmennsku og umhyggju, sem hann bar fyrir fjöl- skyldu sinni og öllum sem hann unni. Lífsferill Helga einkenndist af trúmennsku, hógværð og góðvild í garð allra sem hann umgekkst og lét sig skipta. Hann vildi öllum hjálpa, sem til hans leituðu. Honum fannst hann hafa skyldur til að verða öðrum að liði og lagði þá oft mikið á sig, jafnvel meira en hann hafði getu til. Hann var einnig full- ur þakklætis til þeirra sem honum fannst hafa veitt sér liðsinni eða hjálparhönd. Helgi var fæddur 3. september 1923 að Galtafelli í Hrunamanna- hreppi, og var því á sjötugasta ald- ursári þegar hann lést. Móðir hans, Helga Jakobsdóttir, andaðist þegar Helgi var aðeins þriggja vikna gamall. Hann ólst því upp hjá

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.