Morgunblaðið - 06.01.1993, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 06.01.1993, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 1993 31 ömmu sinni og afa, Guðrúnu Stef- ánsdóttur og Jakobi Jónssyni, bróð- ur Einars myndhöggvara, en þau bjuggu að Galtafelli. Þau brugðu búi þegar Helgi var tveggja ára og fluttu til Reykjavíkur. Þar átti Heljgi heima síðan. Eg vann með Helga í rúm 30 ár hjá VR, fyrst sem stjórnarmanni frá 1961 og síðan sem starfsmanni á skrifstofu VR frá 1964 til dauða- dags. Varla er hægt að hugsa sér ljúfari og elskulegri starfsfélaga en Helga. Hann var ævinlega glað- vær og viðmót hans og umgengni á vinnustað var öll með þeim hætti að hlýjuna leiddi af nærveru hans. Aldrei heyrði ég hann leggja illt orð til nokkurs manns. Helgi var sérstakur barnavinur. Ég minnist þess þegar börn mín voru lítil og komu á skrifstofuna til mín, hversu elskulegur Helgi var þeim ávallt, enda þótti þeim mjög vænt um hann. Helgi bytjaði ungur að vinna við verslunarstörf í Málaranum og vann þar, að fjórum árum undan- skildum, sem hann vann hjá verk- smiðjunni Magna, þar til hann hóf störf á skrifstofu VR árið 1964. Hann hafði því unnið í tæp 30 ár hjá VR þegar hann andaðist. Strax á fyrstu starfsárum sínum við af- greiðslustörf hjá Málaranum, fékk Helgi áhuga á málefnum verslunar- fólks og tók þá þegar virkan þátt í starfsemi VR. Hann var í trún- aðarmannaráði VR um fjögurra áratuga skeið og allt til dauða- dags. Hann átti sæti í stjórn félags- ins í 24 ár, frá 1961 til 1985 er hann hætti að eigin ósk. Helgi sat stofnþing Landssambands ísl. verzlunarmanna 1957 og hefur set- ið öll þing þess síðan. Hann sat einnig öll þing ASÍ frá því að versl- unarmenn fengu aðild að ASÍ 1964 að undanskildu síðasta þingi, sem hann gat ekki setið vegna heilsu- brests. Á starfsferli Helga hjá VR hafa margir og stórir áfangar unnist í kjarabaráttunni, þó hann eins og aðrir hefði auðvitað viljað að oft hefði meira náðst fram. Helgi átti þátt í að móta og fylgja eftir þeirri stefnu, sem fylgt hefur verið í sókn til bættra lífskjara. Hann var jafn- an tillögugóður og fylgdi skoðunum sínum eftir af sannfæringu. Helgi dró ekki af sér að fylgja málum fast eftir, sérstaklega ef honum fannst að í hlut ættu þeir, sem minna bera úr býtum í þjóðfélag- inu. Af breytingum sem orðið hafa á kjörum fólks frá því að Helgi fór fyrst að hafa afskipti af félaginu og hann hefur átt þátt í að móta og fylgja eftir til sigurs, má sem dæmi nefna styttingu dagvinnutím- ans úr 48 stundum í 38 stundir, lenging orlofs úr þremur vikum í rúmar fimm, stofnun Lífeyrissjóðs verzlunarmanna, sem nú er einn stærsti og traustasti lífeyrissjóður landsins, aðild að atvinnuleysis- tryggingasjóði, sem nú greiðir mánaðarlega rúmar 20 milljónir króna til 550 atvinnulausra félags- manna VR, stofnun orlofssjóðs, sem á orðið 40 orlofshús, stofnun sjúkrasjóðs, sem hefur gert mögu- legt að stórauka tryggingavernd félagsmanna, sérstaklega þeirra sem um lengri tíma eru frá vinnu vegna veikinda eða slysa, og stend- ur nú að byggingu umönnunar- og hjúkrunarheimilisins Eirar, þar sem aldraðir félagsmenn VR munu njóta aðhlynningar og umönnunar þegar heilsan brestur. Margt fleira væri hægt að telja upp en hér skal staðar numið. Þegar Helgi kom til starfa á skrifstofu VR voru umsvif félagsins lítil. Félagsmenn voru rúmlega eitt þúsund og starfsmenn voru tveir allan daginn og einn hálfan dag- inn. Nú eru um 15.000 manns á félagaskrá og 20 starfsmenn á skrifstofunni. Helgi lifði því miklar breytingar á starfsemi félagsins. Hann sá VR verða stærsta og öflugasta stéttarfélag landsins. Fyrstu árin vann hann aðallega við að túlka kjarasamninga og vinna að leiðréttingu á kjörum fólks. Hann var einnig gjaldkeri félagsins um langt árabil. Framanaf hafði hann yfirumsjón með byggingu og rekstri orlofshúsa félagsins og var formaður stjórnar orlofssjóðsins um langt árabil. Hann var fyrsti formaður nefndar er úthlutaði at- vinnuleysisbótum á vegum VR og sá lengi um þann málaflokk fyrir félagið. Helgi var kosinn ábyrgðar- maður af hálfu VR við stofnun Sparisjóðs alþýðu árið 1966. I svo umfangsmiklu félagsmála- starfi eins og hjá VR, koma upp á borðið mörg og oft flókin vanda- mál hjá félagsfólki. í slíku starfí er ekki hægt að leysa öll mál og verða við óskum allra. Oftast hefur fólk skilning á þessu þegar málin hafa verið rædd og skoðuð niður í kjölinn. Helgi var sérstaklega lag- inn að tala við fólk og gera því grein fyrir stöðunni og jafnan fór það sátt frá Helga þó hann þyrfti að segja nei. Eins og sést á því sem hér hefur verið sagt, hefur Helgi lagt mikið af mörkum með störfum sínum fyrir VR sem hér skal þakkað af einlægni. Hann var sæmdur gull- merki VR á 90 ára afmæli félags- ins 1981 fyrir mikil og góð störf í þágu félagsins. Helgi var víðlesinn og hafði unun af lestri bóka, einkum um sagn- fræðileg efni, og var hann hafsjór af fróðleik í þeim efnum, því hann hafði gott minni. Hann var einnig mikill áhugamaður um bridge og stundaði það allt frá því að hann var unglingur. Einnig hafði hann gaman af að renna fyrir lax og silung þegar hann kom því við. Helgi gladdist innilega í vinahópi, þegar menn gerðu sér dagamun. Hann var söngmaður góður og hafði yndi af fallegum söng. Helgi giftist eftirlifandi konu sinni, Margréti Friðleifsdóttur, 17. nóvember 1945. Þau eignuðust þijú börn: Friðleif, hárgreiðslumeistara, Lilju, frú, sem er gift Gísla Jón- mundarsyni, vélstjóra, og Gunnar. Helgi var mikill fjölskyldufaðir. Hann bar mikla umhyggju fyrir konu sinni og börnum. Þá fóru afa- börnin, þrír synir Lilju og Gísla, 12, 13 og 16 ára gamlir, ekki var- hluta af umhyggjunni og ástúðinni sem Helgi veitti þeim. Þeir hafa misst mikið en geta huggað sig við góðar minningar um kærleiksríkan afa. Nú þegar kemur að kveðjustund vinar míns Helga E. Guðbrandsson- ar, færi ég honum þakkir fyrir mikil og góð störf í þágu verslun- ar- og skrifstofufólks um fjörutíu ára skeið, sem unnin voru af ein- lægni og trúmennsku. Ég þakka honum langa og góða samfylgd, sem einkenndist af vináttu hans og drengskap í minn garð. Enda þótt skuggi saknaðar hafi gengið yfir við fráfall Helga og sorgin hvíli þyngst yfir eftirlifandi konu hans, börnum og ættingjum, er það huggun harmi gegn að minnast með þakklæti svo góðs drengs sem Helgi var. Kæra Margrét, ég sendi þér og börnum ykkar og fjölskyldum þeirra einlægar samúðarkveðjur og bið Guð að gefa ykkur styrk í sorg ykkar. Magnús L. Sveinsson. Kveðja frá samstarfsfólki Það varð stundarþögn, þegar við, samstarfsmenn Helga fréttum af andláti hans, hugsanir okkar sam- einuðust í minningu um einstæðan mann. Mann sem var alltaf góður nýjum starfsmönnum, hjálpsamur og fórnfús og mátti aldrei vamm sitt vita ef einhver átti við erfiðleika að etja. Helgi var einstaklega geð- góður og glaðlyndur vinnufélagi og við munum lengi minnast kveðju hans á morgnana, „góðan og bless- aðan daginn", sem dugði okkur al- lan daginn. Við minnumst hans í djúpri virð- ingu og þakklæti. Hann var elstur okkar og hafði starfað lengst á skrifstofunni að undanskildum formanninum og hafði vaxið með félaginu í nærri 30 ár, frá því að þar voru aðeins tveir starfsmenn og félagsmennirnir fáir, í að hafa 20 samstarfsmenn og u.þ.b. 15.000 félagsmenn til að veita þjónustu. Gagnvart félagsmönnum var hann ævinlega ráðagóður og gaf sér alltaf nógan tíma til að spjalla og svara hinum ólíkustu spurning- um af alúð og einlægni og enginn okkar minnist þess að hafa nokkru sinni heyrt styggðaryrði falla af hans vörum um nokkum mann. Svona var Helgi. Síðastliðið sumar og nú í vetur átti hann við mikil veikindi að stríða, veikindi sem nú hafa fært hann yfir móðuna miklu til betri líðanar og til betri dvalar. Guð blessi og varðveiti Helga E. Guðbrandsson.Við sameinumst í hljóðri bæn og vottum Margréti, börnunum, tengdasyni og barna- börnunum innilega samúð. Krisijana Péturs- dóttír — Minning Fædd 30. ágúst 1918 Dáin 27. desember 1992 Látin er mágkona mín Kristjana Pétursdóttir. Hún var dóttir Ólafar Björnsdóttur og Péturs Halldórs- sonar fyrrverandi borgarstjóra. Fallin er í valinn merk kona, hóg- vær og vönduð. Hún giftist Ludvig bróður mínum 18. maí 1945, en hann lést í júní 1990, og er því ekki langt á milli þeirra hjóna. Það var alltaf gott samband milli mín og Nönu, ég gat alltaf talað við hana bæði í gleði og sorg, hún hafði svo góðan skilning á öllu. Vegna góðmennsku hennar gat ég trúað henni fyrir því sem mér lá þyngst á hjarta. Nana var ekki allra, en var sannkallaður vinur vina sinna. Ég minnist margra gleðistunda úr Hátúninu, en þar bjuggu Nana og Polli um árabil, samhentni þeirra, gestrisni og létt lund réði ríkjum á þeirra listræna og fallega heimili. Eftir að Nana missti mann sinn fluttist hún að Skúlagötu 40. Þar hafði hún komið sér vel fyrir, en enginn ræður sínum næturstað. Nana var hamingjusöm, átti góðan mann og tvö elskuleg börn. Þau eru Pétur, barnalæknir, kvæntur Nínu Birgisdóttur og eiga þau tvö börn, Birgi og Hildi. Erna María, gift Haraldi Haraldssyni heildsd- ala og eiga þau þijú börn, Pétur Albert, kvæntan Berglindi Johans- en og eiga þau litla stúlku sem ber nafn langömmu sinnar, Unni og Harald Ludvig. Nana var ástrík móðir, tengda- móðir, amma og langamma, sem vildi bömum sínum allt það besta. Pétur, Erna og fjölskyldur, Guð gefi ykkur styrk á slíkri sorgar- stund. Ég og fjölskylda mín þökk- um Nönu fyrir allt og allt. Ásta. í dag kveðjum við elskulega konu, Kristjönu Pétursdóttur, með söknuði. Þegar hátíð ljóssins var á næsta leiti dró skugga yfir huga ættingja og vina Nönu, eins og hún var oftast kölluð, þegar hún veiktist skyndilega. Dauðinn gerir hvorki boð á undan sér né velur stað og stund og eftir stutt en erfið veikindi kvaddi hún þennan heim hinn 27. desember sl. á 75. aldursári. Kristjana var glæsileg kona og lánsöm. Hún átti elskulegan eigin- mann og tvö börn sem hún vafði ást og umhyggju sem var ríkulega endurgoldin. Eg tel mig lánsama að hafa fengið að kynnast Nönu og eiginmanni hennar Ludvig Hjálmtýssyni sem lést í júní 1990. Glaðværari og samrýndari hjón voru vandfundin. Þau höfðu bæði tvö sterkan og Ijúfan persónuleika og áttu auðvelt með að koma við- mælendum sínum í gott skap. Við fórum alltaf fróðari af fundi þeirra því Ludvig naut þess að segja frá mannlífinu í Reykjavík fyrr á árum og sagði skemmtilega frá. Þá sjaldan honum fataðist flugið var Nana reiðubúin að leiðrétta hann á sinn kankvísa hátt. Mér býður í grun að fráfall Ludvigs hafi ver- ið Nönu mikið áfall, en henni var ávallt efst í huga þakklæti ti' barna sinna, tengdabarna og barnabarna fyrir allt sem þau voru henni. Hún var trúuð kona og sá alltaf hið góða í hveijum manni. Hún naut samverustundanna með börnum sínum, tengdabörnum og barnabörnum. Lítill gleðigjafi, langömmubamið og alnafna henn- ar, lýsti upp líf hennar síðustu mánuðina sem hún lifið. Frá fyrstu kynnum hefur Nana verið mér og fjölskyldu minni sannur vinur og á kveðjustund er mér efst í huga þakklæti fyrir öll hlýju orðin hennar og þétt hand- takið. Hún hefur nú náð endurfundum við sinn ástkæra vin og ég er sann- færð um að hún mun vaka áfram yfir velferð fjölskyldu sinnar. Ég bið algóðan Guð að styrkja böm Nönu og fjölskyldur þeirra. Eins og hátíð ljóssins lýsir upp svart- asta skammdegið mun minningin um góða og elskulega konu lýsa upp hugi þeirra og sefa sorgina við fráfall hennar. Blessuð sé minning Kristjönu Pétursdóttur. Erla Ólafsdóttir. Sigurður Krisijáns- son — Minningarorð Fæddur 5. febrúar 1905 Dáinn 23. desember 1992 í dag kveðjum við tengdaföður okkar, Sigurð Kristjánsson, er lést í St. Jósepsspítala í Hafnarfirði 23. desember sl., á 88. aldursári. Sigurður fæddist 5. febrúar 1905 á Akranesi. Foreldrar hans voru Ragnheiður Finnsdóttir og Krist- ján Guðmundsson. Sigurður giftist eftirlifandi konu sinni Magneu Símonardóttur 29.júní 1929. Sigurður og Magnea eignuðust 8 börn og eru 6 þeira á lífi, Áslaug, f. 23. desember 1929, Kristján, f. 12. apríl 1931, Ásmundur, f. 21. september 1932, d. 27. júlí 1961, Dóttir, f. 12. sept- ember 1938, d. febr. 1939. Finn- ur, f. 29. október 1939, Finnbogi, f. 17. desember 1941, Símon, f. 15. mars 1943. Ástráður, f. 19. júní 1945. Afkomendur þeirra eru orðnir 63. Sigurður var stoltur af sínum stóra barnahóp og naut samvistar með þeim. Sigurður stundaði sjómennsku um 36 ára skeið, var síðan fisk- matsmaður til 70 ára aldurs. Með- hjálpari og kirkjuvörður við Frí- kirkjuna í Hafnarfirði 1978-1985. Sigurður og Magnea bjuggu lengst af í Hafnarfirði. Fyrir rúmum átta árum fluttu það að Hrafnistu í Hafnarfirði. Þar hefur þeim liðið vel og notið góðrar umönnunar starfsfólks. Tengdafaðir okkar var mjög minnugur og fylgdist vel með því sem var að gerast. Hann hafði ákveðnar skoðanir og fór ekki dult með þær. Sigurður og Magnea voru gift í 63 ár, hjá þeim ríkti gagnkvæm virðing sem ávallt var í fyrirrúmi. Tengdafaðir okkar var góður maður sem okkur þótti vænt um og við eigum um hann ljúfar minningar. Elsku Magga, Guð þig styrki og blessi. Blessuð sé minning Sigurðar Kristjánssonar. Ragna Helgadóttir, Guðrún Júlíusdóttir. Okkur langar að minnast með örfáum orðum afa okkar Sigurðar Kristjánssonar sem lést á Þorláks- messudag. Það er erfitt að sætta sig við það að fá ekki að hitta hann framar. Afi og amma bjuggu í Hafnar- firði og var því auðvelt fyrir okkur systkinin að koma við hjá þeim, sem oft var gert. Þar var gott að koma og alltaf tekið vel á móti okkur. Afi hafði mikið dálæti á kindum og var hann með kindur meðan heilsan leyfði. Ekki voru fáar ferð- irnar sem við bræðurnir fórum með honum í kindakofann og smalamennskur, þá var mikið spjallað, þetta voru fræðandi og skemmtilegar stundir. Afi keyrði bíl þar til hann var rúmlega áttræður og höfðu afi og amma mjög gaman af því að ferð- ast og fóru þau víða um landið. Hann hafði gaman af ferðum upp í Borgarfjörð, austur fyrir fjall og á Suðurnes, þar var Garðskaga- viti, einn af hans upáhalds stöðum. Það voru margar ferðimar sem þau fóru á þessar slóðir og fengum við þá oft að fara með. Okkur systkinunum fannst afí vera form- fastur maður, hann sagði oft þó í gamni að best væri að láta smyija bílinn í Keflavík og þvo hann í Hveragerði. Þetta er brot af þeim minning- um sem við eigum um hann Sigga afa okkar. Elsku amma, við biðjum góðan guð að styrkja þig á þessari stundu. Far þú í friði, friður guðs þig blessi, hafðu þðkk fyrir ailt og allt. Júlli, Gísli og Adda.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.