Morgunblaðið - 06.01.1993, Qupperneq 34
34
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 1993
fclk f
fréttum
6.-16. JANUAR
Gerið góð kaup
Ath: útsalan stcndur aðein
6-16 januar.
SÍÍlÍiíi-:
Stórhöfða 17, við Gullinbrú
sími 67 48 44
FJÖLSKYLDAN
Fimm ættliðir
að er ævinlega forvitnilegt er
fimm ættliðir koma saman og
einhvern veginn eru þeir oftast í
kvenlegg þegar svo ber við og hef-
ur trúlega með mikið langlífi og
frjósemi kvenna að gera. Við ber
þó að til fimm ættliða í karllegg
sjáist og einn slíkur hópur safnaðist
saman fyrir nokkru í tilefni af komu
fímmta ættliðarins í heiminn. Var
ljósmyndari meðal viðstaddra.
Elstur er Haraldur Jóhannsson
bóndi á Bakka í Viðvíkursveit í
Skagafirði, fæddur 21. desember
1903. Síðan kemur Bergur Haralds-
son framkvæmdastjóri Félags
vatnsvirkja og varaformaður stjórn-
ar Sameinaðra verktaka. Hann er
fæddur 8. nóvember 1926. Þá kem-
ur næstur Frosti Bergsson fram-
kvæmdastjóri HP áíslandi hf. Hann
er fæddur 30.desember 1948. Sonur
hans er Freyr Frostason námsmað-
ur fæddur 17. apríl 1970 og síðast
en ekki síst er að nefna Viktor Þór
Freysson fæddur 9.ágúst 1992.
Forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, afhendir Kristjáni Jóhannssyni orðuna á Bessastöðum,
en með þeim á myndinni eru Sigurjóna Sverrisdóttir, eiginkona söngvarans, og móðir hans Fann-
ey Oddgeirsdóttir.
ÓPERUSÖNGUR
KRISTJÁN JÓHANNS-
SON HEIÐRAÐUR
BRESKA KONUNGSFJÖLSKYLDAN
Karl á krossgötum
Daginn fyrir gamlársdag af-
henti forseti íslands, frú
Vigdís Finnbogadóttir, Kristjáni
Jóhannssyni óperusöngvara
riddarakross fálkaorðunnar, sem
honum var veittur 17. júní síðast-
liðinn. Athöfnin fór fram í Bessa-
staðastofu að viðstöddum ætt-
ingjum og vinum Kristjáns.
Sama dag hélt Ólafur G. Ein-
arsson, menntamálaráðherra og
eiginkona hans, Ragna Bjarna-
dóttir kvöldverðarboð í Þingholti
til heiðurs Kristjáni Jóhannssyni.
Þar voru m.a. viðstaddir, starfs-
fólk úr menntamálaráðuneytinu ______________________________________________________________
og ættingjar og vinir Kristjáns. Úr boði menntamálaráðherra, Sigurjón Sighvatasson, Ólafur G.
Einarsson og Kristján Jóhannsson.
Sagan um prinsinn sem afsalaði
sér krúnunni vegna konunnar
sem hann elskaði virðist nú vera
að endurtaka sig í bresku konungs-
fjölskyldunni. Frændi Karls prins,
Edward VIII, afsalaði sér krúnunni
árið 1936 og ekki er ósennilegt að
Karl geri það líka.
Bókin um Díönu, sem margir
telja að hafi verið gefin út með
hennar samþykki, var mikil niður-
læging fyrir verðandi kóng, en
menn eru ekki á eitt sáttir um hvort
útkoma hennar og langvarandi erf-
iðleikar í hjónabandi eða hvort frú
Camilla Parker-Bowles hafí verið
orsök skilnaðar Díönu og Karls.
Breska leyniþjónustan hefur
lengi vitað um samband þeirra
Karls og Camillu og á í fórum sínum
nokkrar ljósmyndir af þeim saman.
Þau hafa þekkst í ein fímmtán ár,
en almenningur hefur ekki vitað
um tilvist þessarar dularfullu vin-
konu prinsins fyrr en nú síðustu
mánuði.
Camilla Parker-Bowles er gift
Andrew Parker-Bowles, en þau
hjónin hafa ekki búið saman lengi.
Þykir mörgum undarlegt að Karl
prins skuli hafa tekið hina 45 ára
gömlu Camillu fram yfír Díönu
prinsessu, sem er 31 árs og ein
glæsilegasta kona Bretlands. Ekki
hefur verið auðvelt að ná myndum
af Camillu, enda ku hún hafa forð-
að sér til útlanda þegar ástarsam-
band hennar og prinsins var gjört
opinbert. Þó hafa iðnir Ijósmyndar-
ar náð að smella af henni nokkrum
myndum og ef dæma má af þeim
kemst hún ekki í hálfkvisti við
prinsessuna hvað glæsileik snertir.
En það er víst sama gamla sagan,
útlitið er ekki allt.
Hvað arftaka krúnunnar viðvíkur
virðast bresk blöð hallast að þeirri
skoðun að það verði annaðhvort
Anna prinsessa eða Andrew prins
Karl prins er nú milli tveggja
elda. Ef hann velur Camillu, sem
þykir ekki komast í hálfkvisti við
Díönu hvað glæsileik snertir,
verður hann að afsala sér krún-
unni eins og frændi hans Edward
gerði árið 1936.
sem taki við krúnunni, falli Elísabet
drotting óvænt frá. En Díana prins-
essa hefur gefíð út þá yfirlýsingu,
eftir því sem bresku blöðin herma,
að annaðhvort gildi hjónaband
hennar og Karls eða hann afsali sér
krúnunni. Hún ætli sér ekki að
gefast upp.
■íárgreiöslustö™
FEIMA
Miklubraut 68
Viðskiptavinir athugið!
10% afsláttur
af allrí þjónustu
mánudaga -fimmtudaga
út janúar.
^ Sími 21375 ^
Camilla ásamt eiginmanni sínum,
Andrew Parker-Bowles.