Morgunblaðið - 31.01.1993, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ SAMSAFIMIÐ SUNNUDAGUR 31. JANÚAR 1993
B 27
Agnar Kofoed Hansen, þáverandl flugmálastjóri, er hér búinn að hagræða sér í flugstjórasætinu og
tilbúinn að hefja flugið.
SÍMTALID...
ER VIÐ SIGURÓSK SVANHÓLMNUDDARA
Sameiginlegt átak
683960
Sigurósk!
- Góðan daginn, þetta er á
Morgunblaðinu, Sveinn Guðjóns-
son heiti ég ...
Komdu blessaður.
- Ég var að frétta að nuddar-
ar, bæði svæðanuddarar og hinir
almennu, hefðu opnað sameigin-
lega skrifstofu. Hvers vegna?
Já, Pélagið Svæðameðferð og
Félag íslenskra nuddara opnuðu
þessa skrifstofu nú skömmu fyrir
áramót og tilgangurinn er fyrst
og fremst sá að nýta sameigin-
lega krafta okkar á ýmsum svið-
um. Til dæmis sameiginleg nám-
skeið, sameiginlega fundi og
fleira.
- En eru þetta ekki mjög ólík-
ar greinar, bæði hvað varðar að-
ferðir við nuddið sjálft og nám
eða undirbúning undir fagið?
Jú, þær eru það, en grunnurinn
er sá sami. Menn fara fyrst í
fomám, sem er sjúkraliðabraut í
Pjölbrautaskólunum. Það eru
tvær annir hjá þeim sem ætla að
læra svæðanudd, en ljórar annir
hjá hinum sem ætla í almennt
nudd. Síðan hefur það verið þann-
ig að lærlingar hafa verið á samn-
ingi hjá nuddurum, en nú erum
við að undirbúa stofnun skóla,
sem yrði þá eins
árs fagskóli. Að
því námi loknu
geta svæða-
nuddarar farið
að starfa, en
hinir, sem ætla
í almennt nudd,
fara til meist-
ara í eitt ár í
viðbót.
Þetta er sem
sagt fjögurra
ára nám hjá
þeim sem ætla
í almenna
nuddið, en
tveggja ára
nám hjá svæðanuddurum?
Já.
- Hvenær verður þessi fag-
skóli kominn í gagnið?
Við ætlum að reyna að opna í
apríl. Við höfum sent mennta-
málaráðuneytinu bréf um málið
og vitum ekki annað en að þetta
erindi hafi verið tekið fyrir þar.
- Nú eru einhver áhöld um
það hvort þessi starfsemi sé í
samræmi við lög. Menn fá til
dæmis ekki endurgreitt frá sjúk-
rasamlaginu, eins og þegar leitað
er til löggildra sjúkranuddara ...?
Nei, það er ekki enn búið að
samþykkja þessa grein af hinu
opinbera, en við erum að vinna í
því að fá þetta viðurkennt sem
ákveðinn þátt í heilbrigðisþjón-
ustunni, það er að segja svæða-
nuddið annars vegar og almenna
nuddið hins vegar.
— En nú eru til ýmsar tegund-
ir af nuddi. Verður lögð áhersla
á einhveija eina tegund í þessum
fagskóla?
Það þarf að taka tillit til ýmissa
ólíkra þátta, bæði í svæðanuddinu
og almenna nuddinu og hvað það
síðarnefnda varðar verða líklega
kynntar tvær til þijár tegundir
af nuddi í fagskólanum. Síðan fer
það eftir hveijum og einum, og
jafnframt meist-
aranum, sem
menn fara til
eftir fagskólann,
hvers konar
núdd þeir koma
til með að
stunda.
- Ég vona
bara að þetta
gangi vel hjá
ykkur og ég
þakka fyrir
spjallið.
Já, þakka þér
sömuleiðis.
Blessaður.
Morgunblaðið/Kristinn
Sigurósk Svanhólm.
FRÉTTA-
LfÓSÚR
FORTÍÐ
SKIPT YFIR ÍHÆGRIUMFERÐ1968
ALLTÖFUGT
Sunnudagurinn 26. maí 1968
rennur þeim sem komnir eru á
miðjan aldur sjálfsagt seint úr
minni, en þá var tekin upp
hægri umferð á íslandi. Breyt-
ingin fór ekki fram hjá neinum,
fjölmiðlar voru undirlagðir og
hátíðarstemmning í Reykjavík
þegar bílstjórar fikruðu sig
fyrstu bíllengdirnar hægra
megin götunnar. Tók almenn-
ingur breytingunni vel og þótti
hún ganga afbragðsvel fyrir
sig.
Svíum gekk vel, hví ekki okk-
ur?“ spurði Morgunblaðið 23.
maí, en þar var rakið hvernig ná-
grönnum okkar gekk að skipta
yfir í hægri umferð. Það var i
september 1967 og mynduðust
miklir umferðarhnútar fyrstu dag-
ana vegna þess að mörgum akst-
ursleiðum var gjörbylt í tilefni
breytingarinnar. Segir í fréttinni
að hefðu Svíar ekki skipt yfír í
hægri umferð, hefði breytingin ef
til vill aldrei orðið hér. Ekki voru
gerðar jafn miklar breytingar á
íslenska gatnakerfinu og því
sænska og gekk umferðin því mun
greiðar fyrir sig hér á landi við
breytinguna.
Viðbúnaður var mikill, flytja
þurfti flestöll umferðarmerki,
breyta strætisvögnum, fá yfir 600
manns til að starfa við umferðar-
vörslu og lögreglumenn og bíl-
stjórar slökkviliðs- og sjúkrabíla
æfðu akstur í hægri umferð. Sagði
einn þeirra að akstur í hægri
umferð væri ekkert erfiður, maður
yrði bara að einbeita sér að því
að gera allt öfugt við það sem
áður var. Morgunblaðið var með
sérstaka umferðarfræðsluþætti
1im akstur í H-umferð, eins og hún
var kölluð til þægindaauka, les-
endur voru minntir á það sem
koma skyldi með ýmsum hætti;
„Munið — við erum öll byijendur“
og „Hægri umferð á íslandi“ sagði
í flennistórum fyrirsögnum sama
dag og breytingin varð og birtur
var vísupartur sem ortur var af
þessu tiléfni; „Er þú ekur veg-
inn, / aktu hægra rnegin."
Breyting þessi var vel undirbú-
in, en að henni stóð „hægri nefnd-
in“ svokallaða. í henni áttu sæti;
Einar Pálsson verkfræðingur,
Kjartan Jóhannsson læknir, Val-
garð Briem hdl. og Benedikt
Gunnarsson. Var haft á orði að
góður undirbúningur breytingar-
innar hefði stuðlað að því hversu
vel hún gekk fyrir sig og að um-
ferðaróhöppum hefði fækkað fyrst
28.51968
Mynd frá Miklubraut, stuttu fyrir H-dag, 26. maí 1968.
Hægri umferð á Is
eftir breytinguna þar sem öku-
menn vönduðu sig meira en áður.
Fyrstu dagana virtust beygjumar
vefjast dálítið fyrir fólki, sér í lagi
vinstri beygjumar, sem vora oft á
tíðum full krappar. Og fólki var
svo umhugað um aksturinn að
þegar lögregluþjóni sem stýrði
umferð í Aðalstræti varð það á
að klóra sér í hnakkanum, lá við
slysi þar sem einn bílstjórinn hélt
að hann væri að aðvara sig. Lög-
reglunni til aðstoðar vora umferð-
arverðir, margir ungir að áram
eins og þau Amgrímur Hermanns-
son íjórtán ára og Marta Jónsdótt-
ir, nemandi í Húsmæðraskólanum,
sem tóku starf sitt alvarlega og
stýrðu umferð gangandi og akandi
af skörangsskap.
H-daginn fóra blaðamenn
Morgunblaðsins á stjá rétt eins
og fjölmargir ibúar höfuðborgar-
svæðisins og heyrðu hljóðið í veg-
farendum. Allir brostu þeir —
nema sómamaðurinn Jón, sem var
nokk sama um þetta brölt. „Ég
hef ekki hugmynd um hvort um-
ferðin gengur vel eða illa, og ætla
ekki að skipta mér af því,“ sagði
Jón og arkaði með það á braut til
að grípa í telpukorn sem virtist
hafa það í hyggju að steypa sér út
í Tjörnina. Þar hittu blaðamenn
einnig Guðmund Pálsson leikara,
sem var ásamt dóttur sinni Hrafn-
hildi að fylgjast með hægri umferð
hjá öndunum. Töldu þau að hún
gengi eftir áætlun og leist ekki
síður á umferðina. Viðmælendur
blaðsins, utan Jón, voru vel með
á nótunum, meira að segja Mar-
grét Friðriksdóttir fjögurra ára
sem sagðist alveg vita hvað væri
verið að gera. „Það á sko alltaf
að keyra hægra megin núna.“