Morgunblaðið - 20.03.1993, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MARZ 1993
Placido
Domingo
tílíslands?
ÓLÖF Kolbrún Harðardóttir
framkvæmdastjóri íslensku óp-
erunnar, segir að rætt hafi verið
um að fá Placido Domingo hingað
til lands ásamt Robin Stableton
hljómsveitarstjóra, en haft var
eftir Domingo í Morgunblaðinu í
gær, að hann hefði áhuga á að
koma til íslands. Ef til vill gæfist,
tilefni tii að taka upp símann og
hringja í hann á næstunni.
„Við höfum nokkrum sinnum tal-
að um að fá hann hingað og ég
held að Garðar Cortes hafi haft sam-
band við hann,“ sagði Ólöf. „Placido
Domingo hefur unnið mikið með
Robin Stableton sem hefur verið
hljómsveitarstjóri hjá okkur og þeir
eru miklir vinir. Hann hefur stjórnað
upptökum með honum og það kom
einu sinni til tals að þeir kæmu hing-
að saman en það hefur ekki farið
lengra en að hugmyndin hefur
kviknað og verið rædd, svo það er
aldrei að vita. Það fer líka eftir því
hvernig hægt er að semja við svona
menn, en það er stundum að þeir
vilja koma og reyna nýja staði. Við
höfum oft fengið hingað útlendinga
sem koma eingöngu vegna þess að
þeir hafa áhuga á að koma, sjá og
kynnast, gefa ráð og styðja okkur.
Þess vegna hafa þeir komið og fyrir
allt aðra greiðslu en þeir eru vanir
að fá. Það yrði mjög gaman að fá
hann.“
Morgunblaðið Kristinn
Blessun á sjónvarpsskermi
NÚTÍMA fjölmiðlun hefur víða valdið straumhvörfum og fléttast inn
í flesta þætti menningarinnar. Þanaig hefur kirkjan notfært sér
tækni tuttugustu aldarinnar til að útbreiða boðskap sinn og geta
nú heldur fleiri hlýtt á orð sama predikarans en í gömlu íslensku
sveitakirkjunni þótt bekkurinn hafi oft verið þéttsetinn. Að ofan bless-
ar Billy Graham kirkjugesti í Neskirkju frá Essen í Þýskalandi. Tek-
ið var á móti beinni útsendingu frá samkomu hans á breiðtjaldi í
Neskirkju og Breiðholtskirkju í gærkvöldi.
Fyrrum veitinga-
maður fær fangelsi
og 5,5 milljóna sekt
HÆSTIRÉTTUR dæmdi í gær 46 ára gamlan fyrrverandi veitinga-
mann til 9 mánaða fangelsis, þar af sex mánuði skilorðsbundið, og
til greiðslu á 5,5 milljón króna sekt til ríkissjóðs fyrir fjárdrátt og
brot á lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda og söluskatt. Greiði
maðurinn ekki sektina kemur 11 mánaða fangelsi til viðbótar í stað
hennar.
Fangelsisrefsingin er sú sama en
sektir helmingi lægri en maðurinn
var dæmdur til að greiða í Saka-
dómi Seltjarnamess í upphafi síð-
asta árs.
Hæstiréttur dæmdi hann einnig
til að greiða Lífeyrissjóði starfsfólks
í veitingahúsum 415 þúsund krónur
í skaðabætur og 131 þús. kr. skaða-
bætur til Félags starfsfólks í veit-
ingahúsum.
Hélt eftir 11 milljónum
Maðurinn var sakfelldur fyrir að
hafa haldið eftir söluskatti, sem
fyrirtækjum hans bar að greiða,
dregið sér félags- og lífeyrissjóðs-
gjöld starfsfólks og haldið eftir
staðgreiðslu opinberra gjalda af
launum þess, alls 11,6 milljónir
króna.
Maðurinn rak þijú veitingahús í
miðborg Reylqavíkur og var gefíð
að sök að hafa allt árið 1988 og í
janúar og febrúar 1989 haldið eftir
427 þúsund krónum af launum
starfsfólks tveggja félaganna en
ekki staðið skil á fénu til lífeyris-
sjóða og stéttarfélaga heldur notað
féð til rekstursins.
Einnig var honum gefið að sök
að hafa frá maí 1988 til febrúar
1989 haldið eftir tæplega 1,3 millj-
ónum króna af skattskyldri stað-
greiðslu opinberra gjalda starfs-
manna tveggja fyrirtækjanna og
notað í rekstur fyrirtækjanna.
Loks var hann sakfelldur fyrir
að hafa frá maí 1987 til febrúar
1989 haldið eftir um 9,8 milljónum
af þeim söluskatti fyrirtækjanna
þriggja sem skila hefði átt til inn-
heimtumanns ríkissjóðs og notað
það fé í reksturinn.
Hæstaréttardómararnir Hrafn
Bragason, Guðrún Erlendsdóttir og
Hjörtur Torfason dæmdu í málinu.
-----» ♦ ♦----
Skáklandskeppni
Jafnt í 3.
umferð
Vextir lækka
um 0,25-0,5%
Landsbanki Islands lækkaði ekki
en er áfram með lægstu útlánsvexti
BANKAR og sparisjóðir, aðrir en Landsbanki íslands, lækka vexti
um helgina. Lækkunin er í flestum tilvikum á bilinu 0,25% til 0,5%.
Landsbankinn er þó áfram með lægstu vexti i algengustu flokkum
almennra skuldabréfaútlána og vísitölubundinna Iána og sparisjóðirn-
ir með hæstu vexti.
Breyting á vöxtum algengustu
útlánaforma 21. mars 1993
Vextirfyrir21. mars
Almenn skuldabréf*
£ £ e
4' 4
ks cvY
Vextir frá og með 21. mars
Verðtryggð lán*
n h—i
L
n
<
Lán i B-flokki eru algengustu útlán í íslandsbanka
en algengustu útlán annara banka og sparisjóða er I C-flokki.
íslandsbanki lækkar innlánsvexti
á almennum sparisjóðsbókum, al-
mennum tékkareikningum og sér-
tékkareikningum um 0,25% og um
0,5% á óbundnum sérkjarareikning-
um og bankavíxlum. Bankinn lækk-
ar útlánsvexti á aimennum víxillán-
um, viðskiptavíxlum og almennum
skuldabréfum um 0,3%, visitölu-
bundin lán um 0,4% og yfirdráttar-
lán um 0,5%.
Búnaðarbankinn lækkar innláns-
vexti á óbundnum sérkjarareikning-
um um 0,25%, verðtryggðum reikn-
ingum, 15-30 mánaða, og hús-
næðisspamaðarreikningum um
0,3% og á bundnum skiptikjara-
reikningum um 0,5%. Hann lækkar
jafnframt útlánsvexti. Yextir á al-
mennum víxillánum, viðskiptavíxl-
um, vísitölubundnum lánum og af-
urðalánum í íslenskum krónum
lækka um 0,25% og yfirdráttarlán
og almenn skuldabréf lækka um
0,5%.
Sparisjóðimir lækka innlánsvexti
á óbundnum sérkjarareikningum
um 0,25%, á verðtryggðum reikn-
ingum, 15-30 mánaða, um 0,4% og
á húsnæðisspamaðarreikningum
um 0,5%. Búnaðarbankinn lækkar
útlánsvexti á almennum víxillánum,
viðskiptavíxlum, yfirdráttarlánum
og almennum skuldabréfum um
0,35% og á vísitölubundnum lánum
um 0,15%.
Sparisjóðirnir með hæstu vexti
Eftir þessar breytingar eru al-
gengustu útlánsvextir hæstir hjá
sparisjóðunum_ en lægstir hjá
Landsbanka íslands. Samkvæmt
upplýsingum Seðlabanka íslands er
c-flokkur algengasti útlánaflokkur-
inn hjá bönkum og sparisjóðum,
utan íslandsbanka þar sem b-flokk-
urinn er algengastur. Landsbankinn
er með 13,25% vexti á almennum
skuldabréfaútlánum í þessum
flokki, Búnaðarbankinn með
13,75%, íslandsbanki með 14,15%
og sparisjóðimir hæstir með
14,25%. I vísitölubundnum lánum
er Landsbankinn með 9,25% vexti,
íslandsbanki með 9,35%, Búnaðar-
bankinn með 9,75% og sparisjóðirn-
ir með 9,85%.
ÍSLENDINGAR og Frakkar
skildu jafnir í 3. umferð lands-
keppni þjóðanna í skák í gær.
íslendingar hafa vinningsforskot
eftir 3 umferðir af 10.
Jóhann Hjartarson vann Kock og
Hannes Hlífar Stefánsson vann
Renet. Þeir Margeir Pétursson,
Helgi Ólafsson, Jón L. Árnason,
Karl Þorsteins, Þröstur Þórhallsson
og Héðinn Steingrímsson gerðu
jafntefli í sínum skákum en Björg-
vin Jónsson og Róbert Harðarson
töpuðu.
Fjórða umferð verður tefld í dag
og sú fimmta á sunnudag.
Ólöglegar
veiðar á
Húnaflóa
FLUGVÉL Landhelgisgæsl-
unnar, TF-SIN, stóð Harald
EA að ólöglegum línuveið-
um á lokuðu svæði á Húna-
flóa síðdegis í gær.
Bátnum, sem er frá Dalvík,
var fyrirskipað að halda inn
til hafnar þar er búist við að
réttað verði í málinu í dag.
í dag
Undarleg örlög
Leifar af hauskúpu Hitlers og fund-
in skjöl hafa bundið enda á vanga-
veltur um örlög hans 16
Greiðsluerfiðleikar____________
Talið er að um 2.800 heimili séu
sex mánuðum á eftir með greiðslur
húsnæðislána 18
Gott orðspor íslands___________
Stjómarformaður Hambrosbanka í
Bretlandi segir ísland hafa mjög
gott orðspor í því að standa við
erlendar skuldbindingar sínar 26
Leiðari________________________
Bretar á batavegi 26
Menning/Listir Lesbók
► Kjarvalsstaðir 20 ára - Leður- ► Skóli á nýrri öld - Samfélagið
blakan - Kammersveit Hafnar- í Tjamargötu eftir aldamót-
fjarðar stofnuð - Hamrahllðar- Ferðafrásögn frá Nýja - Sjálandi-
kórinn - Myndlist - Fyrsta Hófst landnám hér uppúr árinu
kvennaforlagið - Derek Walcott 700?
Orri Vigfússon og stuðningsmenn
Margfeldiskosniiig
hjá Islandsbanka
ORRI Vigfússon lagði ásamt stuðningsmönnum í gærmorgun fram
kröfu um að margfeldiskosning yrði til setu í bankaráði á aðalfundi
íslandsbanka sem haldinn verður 29. mars næstkomandi. Sjö menn sitja
í sljóm íslandsbanka og með margfeldiskosningu geta hluthafar lagt
öll atkvæði sín á einn mann. Orri sagði í samtali við Morgunblaðið að
krefjist eigendur 10% hlutafjár margfeldiskosningar þá sé skylt að
verða við þeirri ósk. Eigendur rúmlega 11% atkvæða hafi lagt fram
kröfu um þetta og nú sé verið að yfirfara þetta hjá hlutafjárdeild ís-
landsbanka.
Þetta er fyrsti aðalfundur íslands-
banka eftir að eignarhaldsfélög Iðn-
aðarbanka og Verslunarbanka voru
leyst upp. Eignarhaldsfélag Alþýðu-
banka er enn til í smækkaðri mynd
með rúm 12% hlutaljár innan sinna
vébanda og er það stærsti eigandi
hlutafjár. Orri sagðist sækjast eftir
sæti Asmundar Stefánssonar í ís-
landsbanka en hann hætti nú í
bankaráðinu. Hann sagði að hingað
til hefðu einkum setið í ráðinu fulltrú-
ar stofnana en hann liti á sig sem
fulltrúa hins almenna hluthafa.