Morgunblaðið - 20.03.1993, Page 10

Morgunblaðið - 20.03.1993, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MARZ 1993 FASTEICN ER FRAMTID A ir FASTEIGNA ft1 MIÐLUN SVERRIR KRISTJAHSSOH LÖGGILTUR FASTEIGNASALI SUDURLANDSBRAUT 12, 108 REYKJAVÍK, FAX 687072 SÍMI 68 77 68 í hjarta bæjarins Til sölu ca 270 fm skrifstofuhæð, 2. hæð, m. sérinng. Húsið er nýstandsett að utan. Hæðin er einn salur. Rúmlega tilb. u. trév. Laus strax. Mjög góð greiðslu- kjör. ATH. sýningarsalur með myndum og upplýsing- um af öllum eignum er opinn í dag frá kl. 11-17, á morgun 13-15 og alla virka daga frá kl. 16-21. ♦ Sími 67-90-90 - Síðwmila 21 Lágaberg - glæsihús Ákaflega vandað og sérhannað glæsihús á tveimur hæðum auk hluta í kjallara samtals u.þ.b. 280 fm. Húsið stendur í útjaðri byggðar með frábæru útsýni yfir Elliðaár, Lágfjöll og víðar. Glæsilegar innréttingar og gólfefni. Arinn í stofu. 3023. Smiðjuvegur EIGISAMIÐIIMN hf Glæsilegt verslunar- og lagerhúsnæði á miðhæð (götu- hæð) í þessu glæsilega húsi. Um er að ræða u.þ.b. 1020 fm pláss sem skiptist í rúmgóðan verslunarsal með góðri aðkomu og mjög gott lagerrými með tvenn- um innkeyrsludyrum. Upplýsingar gefur Stefán Hrafn Stefánsson. 5168. Einbhús óskast á Seltjnesi Höfum fjársterkan kaupanda á Seltjnesi. Má kosta allt að 20 millj. Góðar greiðslur í boði. 911 Rfl 91 97fl LÁRUS Þ- VALDIMARSSON framkvæmdastjóri L I IvJU hl0/U KRISTINN SIGURJ0NSS0N, HRL. loggiltur fasteignasali Til sýnis og sölu meðal annarra eigna: Sérhæð skammt frá Háskólanum Neðri hæð 5 herb. um 130 fm í þribhúsi. Allt sér. Bílskúr. Glæsileg lóð með háum trjám og gosbrunni. Vinsæll staður. Sanngjarnt verð. í Garðabæ - tilboð óskast Við Lyngmóa 4ra herb. mjög góð íb. á 2. hæð, tæpir 100 fm nettó. Góður bílskúr. Mikið útsýni. Nýtt glæsilegt einbhús með útsýni við Þingás með 6 herb. 'b. á tveimur hæðum, ennfremur bílskúr með vinnuplássi, samtals 226,6 fm nettó. íbúðarhæft, ekki fullgert. Mikil og góð lán fylgja. Húsið er laust fljótlega. Glæsileg í suðurenda Nýendurbyggð 4ra herb. íbúð á 3. hæð um 90 fm við Álftamýri. Góð- ir ofnar- Danfosskerfi. Bílskúrskréttur. Góð sameign. Teikning á skrifst. Endaíbúð á 1. hæð við Stóragerði. 4ra herb. tæpir 100 fm nettó. Nýleg eldhúsinnrétting. Tvennar svalir Mikil og góð lán fylgja. Gott verð. Fellsmúli - sérhiti - laus strax Stór og góð 3ja herb. íb. á 3. hæð, vel með farin sameign. Mikið út- sýni. Rúmgóðar sólsvalir. Gott verð. í gamla góða vesturbænum Mikið endurnýjuð 5 herb. hæð um 120 fm. 3 rúmg. svefnh. Svalir. 2 saml. stofur m. nýl. parketi. Gott verð. Daglega leita til okkar fjársterkir kaupendur með margskonar óskir um fasteignaviðskipti. Sérstaklega óskast góð húseign með tveimur íbúðum. Má þarfnast lagfæringar. Skipti möguleg á glæsilegri sérhæð með bílskúr. Opiðídagkl. 10-16. ALMENNA Fjöldi fjársterkra kaupenda. .. ... i TrTTTTTTTTi Almenna fasteignasalan sf. var stofnuð 12. júlí 1944. LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370 Bókmenntakynning og söngm* á Húsavík Húsavík. THOR Vilhjálnisson rithöfundur og Natalia Chow sópransöngkona fræddu og skemmtu Húsvíkingum nýlega með upplestri og söng á all- fjölmennri samkomu i Safnahúsinu á Húsavík. Aðalheiður Skarphéðinsdóttir. Á heiðu vori í Sverrissal AÐALHEIÐUR Skarphéðins- dóttir, opnar sýningu á akrýl- og krítarverkum í Sverrissal, Hafnarborg, menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar, í dag, laugardaginn 20. mars, klukkan 14. Aðalheiður stundaði nám í MHÍ 1967-1971 og framhaldsnám við Konstfackskólann í Stokkhólmi 1977-1981 og útskrifaðist þaðan sem textflhönnuður. Hún hefur tekið þátt í fjölda samsýninga á hinum norðurlönd- unum, einnig í Japan, Tallinn í Eistlandi, Tékkíu og í Slóveníu (fyrrum Júgóslavíu). Þetta er 4. einkasýning hennar, sýningin stendur til 12. apríl. (Fréttatilkynning) Safnvörðurinn, Guðni Halldórsson, kynnti skáldið og taldi vel viðeigandi og skemmtilegt að hefja þá ný- breytni, sem hér væri verið að taka upp, með því að fá listamanninn Thor til að verða fyrsta gest safns- ins, því skáldið ætti ekki langt að rekja ættir sínar til Þingeyinga. Thor hóf mál sitt á því að segja að það hefði verið gæfa sín að hafa verið drengur mörg sumur á Húsa- vík, þá hann var hjá afa sínum Vil- hjálmi Guðmundssyni og föðursystur sinni Maríu í Hliðskjálf. Þá hefði hann bundist sérstökum tryggðar- böndum við Húsavík og ræktaði það samband ávallt síðan, því hér liði sér vel. Hann las síðan upp úr bókum sín- um og á eftir gafst viðstöddum tæki- færi á að leggja spumingar fyrir skáldið. Að loknum bókmenntaþættinum söng Natalia Chow frá Hong Kong nokkur lög við undirleik Helga Pét- urssonar. Söngur hennar vakti óskipta ánægju og sérstaka undrun hve vel og skýrt hún fór með texta þeirra íslensku laga sem hún söng, en dvöl hennar hér á landi hefur ekki fyllt árið. Bæjarstjórinn, Einar Njálsson, taldi að hér væri hafrnn eftirtektar- verður þáttur í starfí Safnahússins og hann sagðist vilja kalla Thor Þin- geying og þakka komuna. Viðstöddum eldri manni varð að orði, að vel ætti við að tengja saman þá gömlu menningu, sem geymd væri í Safnahúsinu og nútímann eins og hér væri gert. - Frettaritari Morgunblaðið/Silli Helgi Pétursson pianóleikari, Natalia Chow sópransöngkona og Thor Vilhjálmsson rithöfundur á skemmtuninni á Húsavík. _____________________________fejHEfeCDDDáP Umsjónarmaður Gísli Jónsson 684. þáttur Halldór Kristjánsson - frá Kirkjubóli er þættinum sem fyrr innan handar og í þumlinum við okkur. Er fyrst frá því að segja, að hann hefur heyrt getið höf- undar vísunnar Gömul amboð gisna. En ekki er hann einn um það, eða eins og Halldór segir sjálfur: „Hins vegar vitum við seint hverju treysta má um höf- unda.“ Er þar nú komið, að umsjónarmaður hefur fengið upplýsingar, kannski misjafn- lega haldgóðar, um ekki færri en sjö höfunda þeirrar góðu vísu sem nefnd var. Væri þó ofmælt að segja, að allir vildu Lilju kveð- ið hafa. Þetta mál verður þá ekki, af augljósum ástæðum, afgreitt í snarkasti, en umsjón- armaður vill strax nota þetta tækifæri og þakka öllum þeim sem hafa fært honum um þetta fróðleik, munnlega eða skrif- lega. Skemmst er af því að segja að menn vita svo sem ekki hver skrifaði Njálu. ★ Halldór Kristjánsson hafði fleira fram að færa, og nú gef ég honum orðið: „Heill og sæll Gísli. Glaður varð ég að sjá smá- grein Helga Hálfdanarsonar um veitur og veitingar í Morgun- blaðinu 10. febrúar. Meðan ég var starfsmaður Alþingis var ég að reyna að benda á að af þessu sífellda tali um að veita fénu leiddi það að þingnefnd sú sem heitið hefði fjárveitinganefnd ætti nú að réttu lagi að heita fjárveitunefnd. Þeir vísu feður á hinu háa Alþingi leystu vandann með því að láta nefndina heita fjárlaganefnd. Fyrir nokkru varð manntjón vegna eldgoss í Ameríku. Frétta- menn gátu þess og sögðu þá hver af öðrum að menn hefðu verið ofan í gígnum þegar sprenging varð. Þegar ég var að læra málið var mér sagt að hefði ég farið ofan í eitthvað væri ég niðri í því. Þá var mér líka sagt að færi ég upp á íjjall, alla leið neðan úr fjöru og upp á efstu brún, væri ég alls ekki neðan á fjallinu, heldur uppi á því. Það þótti mér líka skiljan- legt. Mér er í bamsminni að leik- bróðir minn einn sagði stundum: „Ég er eftir“ þegar hann átti eitthvað ógert. Það orðafar lagð- ist af. Nú glymur sí og æ í eyr- um okkar: „Eftir á að gera“ hitt og þetta. E.s. Hvaðan skyldi Áma Johnsen koma „að hafa vaðinn fyrir neðan sig“? Og Jóhanna ráðherra vill ekki una því að Seðlabankinn sé „heilög kú“. Með bestu kveðju og kærri þökk.“ ★ Hlymrekur handan kvað: Sagði Jökull: Ég fróun ei fæ, ég frýs, hvorki græt eða hlæ. Svo sem viku eftir jól mælti suðurkær Sól: Við sjáum til, vinur, í mæ. ★ Tíningur. 1) „Þess bera menn sár/ um ævilöng ár/ sem aðeins var stundar hlátur“ kvað Hannes Hafstein. Hins vegar kann það líka að koma fyrir að menn bíði ekki einhvers bætur. Það merkir að þeir hljóti ekki bata eða bót. Svo mikil kunna sár manna að verða. En ég kann því verr, þeg- ar sagt er að menn „beri“ ekki einhvers bætur. 2) Enn verð ég að furða (ekki ,,fuðra“) mig á því að þaulvanir fréttamenn kunni ekki að segja að snurða hafi hlaupið á þráð- inn, heldur sleppa út úr sér ómyndinni „snuðra“ í þessu sambandi. Sögnin að snuðra er hins vegar góð og gild, en bara allt annar handleggur, sbr. sögn- ina að snudda, bæði hjá sjálfum okkur og frændum okkar Fær- eyingum. Hún merkir að hnusa eða snapa. En hvað er þá snurðan sem hleypur á þráðinn? Þetta er lík- ingamál frá spuna á rokk. Þá heitir „samsnúningur á þræði, hnökri, arða, ójafna" bæði snyrða og snurða, kannski skylt orðinu snar. Éf „snart“ var spunnið, var eins víst að snurða hlypi á þráðinn, og það var auðvitað ekki gott. Höldum svo öllu snuðri frá spunanum. 3) Mér þykir orð Margrétar R. Bjarnason hentifáni betra en „þægindafáni", sbr. e. con- venience. Sjá þátt nr. 5. 4) Ég bið vægðar sögninni að gægjast. Mér þykir allóþarft að láta sögnina að kíkja drepa hana. ★ Þorlákur Þórarinsson (1711- 1773) prófastur í Vaðlaþingi „var lipurmenni, andríkur kenni- maður, gáfumaður mikill og skáld“. (E.Ó.) Hann varð einna frægastur af kvæði sínu Dans- lilju, sem menn hafa lesið eitt og annað út úr, en prestur var meira kenndur til kvenna en hann vildi viðurkenna og hafði af því nokkra þraut. Hér er nafnavísa, eignuð sr. Þorláki, þar sem karlheiti öll eru eitt atkvæði, og hefur hann greini- lega víða sópast um til fanga: Tuttugu og átta nöfn í vísu. Kár, Frans, Geir, Án, Kam, Björn, Hethj Kort, Steinn, Mons, Páll, Lars, Gað, Ón, Már, Hans, Kis, Loth, Sem, Öm, Seth, Sveinn, Bel, Styr, Vagn, Ner, Ok, Jón. ★ Fór á sjó með Eggerti, komst út að Gijótseli. Fékk ekki kvikindi, eyddi þrem pottum af olíu. Já, það er status. (Óþekktur hófundur.)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.