Morgunblaðið - 20.03.1993, Page 14

Morgunblaðið - 20.03.1993, Page 14
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MARZ 1993 14 Vann bíl í Kringlukasti Nú standa yfir í Kringlunni svokallaðir markaðsdagar, sem nefndir hafa verið Kringlukast. Alls konar tilboð eru þar í gangi, en við- skiptavinum Kringlunnar var einnig gefinn kostur á að taka þátt í sérstökum bílaleik og var dregið um hinn heppna. Hann var Hrafn- hildur Garðarsdóttir, sem hlaut Hyundai bifreið. Myndin er tekin er Hrafnhildi var afhentur bíllinn, en með henni á myndinni eru frá vinstri Óli G. Guðmundsson frá Bifreiðum og landbúnaðarvélum (t.v.) og Einar I. Halldórsson framkvæmdastjóri Kringlunnar. Göng imdir Hvalfj örð yrðu g'óður kostur Kennarafundur í Grunnskóla Borgarness Fagna stuðningi við skólastarfið í landinu KENNARAR í grunnskóla Borgarness fagna því að utanaðkom- andi aðilar skulu sýna stuðning sinn í verki við skólastarfið í landinu. Kennarar buðu því nemendum sínum aðstoð við þátttöku í Lestrarkeppninni miklu. Fundurinn lýsir þó furðu sinni á þeim vinnubrögðum sem viðhöfð hafa verið í undirbúningi keppn- innar. Svo virðist sem aðstandend- ur keppninnar geri sér enga grein fyrir starfí kennara og nemenda, sem felur í sér skipulagningu langt fram í tímann. Kennarar skora á menntamála- ráðuneytið að gera langtímaáætl- un um starfið í grunnskólum landsins, líkt og kennarar, og senda þá út áætlun í skólana að hausti. eftir Halldór Blöndal Ég hef undanfarið fundið, að ummæli mín um samgöngumál eru í einstökum tilfellum teygð og toguð eins og í spéspegli. Gott dæmi um það eru viðbrögð við eðlilegum um- mælum mínum á Alþingi um jarð- göng undir eða vegabætur fyrir Hvalfjörð. Fyrir skömmu skilaði fyrirtækið Spölur hf. tillögum um, hvernig að jarðgangagerð undir Hvalfjörð yrði staðið. Þau álitamál, sem þarf að taka afstöðu til, eru þessi: 1. Vegagerð ríkisins telur, að nauð- synlegt sé að gera frekari rann- sóknir á berginu undir botni fjarðarins, áður en verkið er boð- ið út. 2. Rétt þykir, að glögg áætlun liggi fyrir um það, hvernig Spölur hf. hyggst standa að undirbúningi, útboðsgögnum og eftirliti með jarðgangagerðinni, ef til kemur. 3. Þriðja og síðasta skrefið verður svo að Ijúka viðræðum við fjár- festa, þ.e. Nomura Bank o.fl., þannig að tryggilega sé frá öllum samningsatriðum gengið, áður en framkvæmdin er boðin út, þ.á m. hversu mikið framkvæmd- irnar megi kosta, þannig að þær séu innan þeirra arðsemismarka, að ekki þurfí að koma til ríkis- ábyrgðar en umferðin greiði kostnaðinn við göngin. Ég hef lagt áherslu á að niður- staða um Hvalfjarðargöng megi liggja fyrir sem fyrst. Fyrir því eru þessar ástæður m.a.: 1. Með göngum undir Hvalfjörð yrði Akranes á sama atvinnusvæði og Kyimiiigardag’ur Stýrimannaskólans í Reykjavík é í dag kl 13.00-17.00 á 2 Fjölþætt kynning á starfsemi skólans Nemendur og kennarar sýna gestum tæki skólans og kennslugögn. Stofnanir sjómanna og fyrirtæki í þágu sjávarútvegs og siglinga kynna starfsemi sína og þjónustu. Björgunarþyrla Landhelgisgæslunnar lendir vió skólann kl. 14.00. Sveitir Slysavarnafélagsins mæta á svæðið. Keppt í splæsingum á vír Kvenfélagið Hrönn verður með kaffisölu í matsal Sjómannaskólans. Aílir velkomnir. Stýrimannaskólinn Reykjavík J „Bæjarstjórar Akra- ness og Borgarness sitja báðir í stjórn Spal- ar hf. Þeim er því kunn- ugt um áhuga minn á Hvalfjarðargöngum, en því miður ber ályktun bæjarstjórna Akraness og Borgarness keim af því, að þeir hafi ekki komið réttum skilaboð- um áleiðis.“ höfuðborgin, ég tala nú ekki um eftir að vegur hefur verið lagður með ströndinni að Gunnunesi og yfir Kollafjörð. 2. Ég sé fyrir mér að íbúðarbyggð rísi í Leirársveitinni. 3. Leiðin vestur og norður mun styttast um 45 km eða svo, sem skiptir ekki litlu máli fyrir þá, sem þar búa. 4. Það er brýnt að ákvörðun um Hvalfjarðargöng geti legið fyrir sem fyrst, svo að unnt verði að hefjast handa. Að öðrum kosti yrði óhjákvæmilegt að ráðast í kostnaðarsamar framkvæmdir til að styrkja veginn fyrir Hvalfjörð. 5. Mér sýnist einsýnt, að Akraborg verði rekin áfram uns sér fyrir endann á Hvalfjarðargöngum. Það hefur komið mér á óvart, að bæjarstjórar Akraness og Borg- arness skuli hafa séð ástæðu til að gera sérstaka sameiginlega ályktun af því tilefni, að ég minnti á það í umræðum á Alþingi að í vegaáætlun er gert ráð fyrir undirbyggingu veg- arins fyrir Laxá og brú yfir Botns- Halldór Blöndal veg frá Kattarhöfða, og rifjaði upp gamlar hugmyndir um nýjan veg yfir Dragháls, sem ég tók fram, að ekki væri á dagskrá. I örstuttu and- svari minnti ég einungis á að við mat á göngum undir Hvalfjörð væri óhjákvæmilegt að draga inn í hag- kvæmnisútreikninga þær fram- kvæmdir, sem spöruðust með göngunum. Bæjarstjórar Akraness og Borg- arness sitja báðir í stjórn Spalar hf. Þeim er því kunnugt um áhuga minn á Hvalfjarðargöngum, en því miður ber ályktun bæjarstjórna Akraness og Borgarness keim af því, að þeir hafi ekki komið réttum skilaboðum áleiðis. Höfundur er samgönguráðherra. Úrslit í slagorðasamkeppni vegna lestrarátaks í Kópavogsskóla „Lestur er lær- dómsins lykill“ SLAGORÐASAMKEPPNI hefur staðið í Kópavogsskóla í tengslum við lestrarátak og úrslit voru kunngjörð síðastliðinn mánudag 8. mars. Verðlaunaslagorðin verða notuð sem yfirskrift lestrarátíiksins og kennarar hafa útbúið bókamerki með verðlaunaslagorðum hvers aldursstigs. Umsjónarmaður átaksins í Kópavogsskóla er Þóranna Tómasdóttir skólasafnkennari. Verðlaunaslagorðin eru: í 1.-4. bekk: „Ævintýrin eru í bókum“, höfundur: Johan Viijakainen, 3. Þ. í 5.-7.bekk: „Lestur er lærdóms- ins lykill", höfundur: Harpa Stein- unn Steingrímsdóttir 6. G. í 8.-10. bekk: „Að lesa sitt mál er hollt hverri sál“, höfundur: Elín Anna Helgadóttir 9. Y. Ólafur Guðmundsson skólastjóri afhenti verðlaunahöfum bókaverð- laun við upphaf rithöfundakynning- ar, en Þorgrímur Þráinsson og Her- dís Egilsdóttir heimsóttu skólann sama dag. Kaffisala Dómkirkju- kvenna á morgnn HIN árlega kaffisala Kirkjunefndar kvenna Dómkirkjunnar er á morgun, sunnudaginn 21. mars, og hefst hún kl. 15 í Safnaðarheim- ili Dómkirkjunnar, Lækjargötu 14A, að lokinni guðsþjónustu í Dóm- kirkjunni kl. 14, þar sem sr. Hjalti Guðmundsson dómkirkjuprestur prédikar og þjónar fyrir altari. í guðsþjónustunni syngur einsöng Eiríkur Hreinn Helgason bassa- söngvari, Dómkórinn syngur og org- anleikari verður Kjartan Siguijóns- son. Kaffisala Kirkjunefndarinnar er orðin árviss viðburður fyrir löngu og þeir, sem þangað leggja leið sína vita, að þar er allt framborið af mikilli rausn og glæsibrag. Kaffisal- an er ein mikilvægasta íjáröflunar- leið Kirkjunefndar kvenna, en allt starf nefndarinnar miðar að því að fegra og prýða Dómkirkjuna. Um síðustu jól gaf Kirkjunefndin Dómkirkjunni höfðinglega gjöf, en það er hátíðarhökuil, forkunnarfag- ur, gerður af Sigrúnu Jónsdóttur vefjarlistakonu. Auk kaffisölunnar verða konurnar með söluhorn, þar sem selt verður fallegt páskaföndur, sem þær hafa sjálfar unnið. Velunnarar Dómkirkjunnar eru innilega hvattir til að ijölmenna til kaffisölunnar, fá sér þar góðan kaffisopa og leggja konunum Iið í þeirra góða og óeigingjarna starfi fyrir Dómkirkjuna. Hjalti Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.