Morgunblaðið - 20.03.1993, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MARZ 1993
17
Langþráð stund
SIEGFRIED Salzmann, forstöðumaður listasafnsins í Bremen í
Þýskalandi, er staddur í Moskvu og heldur hér kampakátur á skissu
eftir franska 19. aldar meistarann Toulouse-Lautrec.
60.000 manns í hættu í umsetnum bæ múslima í Bosníu
Bandaríkjamenn bjargi
særðu fólki með þyrlum
Genf, Mali Zvomik. Reuter.
SAMEINUÐU þjóðirnar hafa farið þess á leit við bandarísku
stjórnina að hún sendi þyrlur til að flytja sært fólk frá Sre-
brenica, umsetnum bæ músiima í austurhluta Bosníu. Serbar
héldu uppi hörðum stórskotaárásum á bæinn í gær. Philippe
Morillon hershöfðingi, yfirmaður friðargæsluliðs Sameinuðu
þjóðanna í Bosníu, sagði að serbneskar hersveitir væru að-
eins tæpum tveimur kílómetrum frá bænum og gætu náð
honum á sitt vald bráðlega.
til að stöðva bílalest á vegum
Flóttamannahjálparinnar sem var
á leið til bæjarins. Morillon hers-
höfðingja tókst þó að semja við
Serba um að hleypa bílalestinni
til bæjarins. Morillon hefur nú
aðalstöðvar sínar í Srebrenica og
vill þannig sýna samhug með bæj-
arbúum.
Sadako Ogata, yfirmaður
Flóttamannahjálpar Sameinuðu
þjóðanna, sendi hraðbréf til Warr-
ens Christophers, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, og hvatti
Bandaríkjastjórn til að láta flytja
særða fólkið á brott með þyrlum
og senda tvöfalt meiri matvæl og
lyf til bæjarins með herflutninga-
vélum.
Ogata sagði að 40 manns létu
lífið á degi hveijum í Srebrenica
og jafnvel starfsmenn Sameinuðu
þjóðanna gætu aðeins borðað ann-
an hvern dag. Margir þeirra hefðu
einnig veikst vegna mengaðs
vatns.
Hungurmorða?
Um 60.000 manns eru í Sre-
brenica, meirihluti þeirra flótta-
menn, og eiga á hættu að verða
hungurmorða. Serbar skutu við-
vörunarskotum upp í loftið í gær
Herfangi
skilað
Moskvu. Reuter.
RÚSSNESKUR listaverkasafnari
er krefst nafnleyndar vill af-
henda Þjóðveijum alis 101 lista-
verk sem liðsmenn Rauða hersins
stálu i lok síðari heimsstyijaldar.
Rússnesk stjórnvöld eiga eftir að
fjalla um málið.
Verkin eru úr listasafninu í
Bremen í Þýskalandi. í stríðinu
voru þau geymd í kastala skammt
frá Berlín af ótta við að loftárásir
bandamanna myndu valda
skemmdum á safninu. Um er að
ræða skissur og vatnslitamyndir,
m.a. eftir Toulouse-Lautrec, Dúrer
og Goya.
Krefst engra launa
Safnarinn rússneski var sjálfur
liðsforingi í Rauða hernum og krefst
hann engra peninga fyrir vikið.
Þjóðveijar vissu ekkert hvað orðið
hafði um verkin fyrr en maðurinn
hafði samband við þýska sendiráðið
í Moskvu.
Fjöldi dýrmætra listaverka hvarf
í stríðinu. Þjóðveijar rændu ómet-
anlegum verkum frá keisaratíman-
um er þeir réðu yfir stórum svæðum
í Rússlandi og hefur ekkert til
margra þeirra spurst. Sama er að
segja um fjölda þýskra listaverka
sem Rússar námu á brott. Stjórn-
völd í báðum ríkjunum hafa undan-
farin ár reynt að ná samkomulagi
um að koma verkunum aftur í hend-
ur réttra eigenda.
Koivisto
ekki fram
MAUNO Koivisto Finnlandsfor-
seti tilkynnti í gær að hann
myndi ekki sækjast eftir endur-
kjöri að loknu yfírstandandi
kjörtímabili sem lýkur á næsta
ári. Hann var kosinn forseti
1982 en leysti Uhro Kekkonen
af þegar sá síðarnefndi sagði
af sér af heilsufarsástæðum
seint á árinu 1981. Forsetakosn-
ingar fara fram í Finnlandi í
janúar 1994.
Bóluefni gegn
malaríu
SPÆNSKIR og kólumþískir vís-
indamenn hafa fundið upp bólu-
efni gegn malaríu sem kynni að
verða bæði ódýrara og árang-
ursríkara gegn veikinni en önn-
ur lyf. Kemur þetta fram í
breska læknaritinu Lancet.
STÓRSÝNING
UM HELGINA
Eftirtalin fyrirtæki verða m.a. á sýningunni:
Aldamót, Boðeind, Bóksala stúdenta, Borgartölvur, Friðrik Skúlason,
Gagnabankinn Villa, Goösögn, Hans Petersen, Kerfisþróun, Kjarni,
Korn, Námsgagnastofnun, Nauðsyn, Nýherji, Prentsmiöjan Oddi, Stólpi,
Trélínan, Tæknibúnaður, Tæknibær, Tæknival, Tölvublaðið, Tölvulistinn,
Tölvupúkar, Tölvusalan, Varmás.
■ Þessi tölvufyrirtæki sýna allt það nýjasta í tölvutækni.
■ Frábær sýningartilboð!
■ Missið ekki af þessari stórspennandi sýningu!
■ Ókeypis aðgangur. ■ Mætið snemma!