Morgunblaðið - 20.03.1993, Side 30

Morgunblaðið - 20.03.1993, Side 30
30 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MARZ 1993 Sigríður J. Ragnar, ísafirði — Minning Heita eining huga og máls, hjarta gulls og vilji stáls, ljósið trúar, Ijósið vona lífs þíns minning yfir brenni. W sem unnir ei til háifs auðnu landsins áætra og sona, blómsveig kærleiks bjart um enni berðu hátt. Nú ertu fijáls. Dyggð og tryggð þitt dæmi kenni. Dána! W varst íslenzk kona. Þetta minningarljóð Einars Bene- diktssonar um Þorbjörgu Sveins- •dóttur kemur upp í hugann, nú þeg- ar Sigríður J. Ragnar á ísafirði er kvödd hinstu kveðju. Hún var búin fágætu andlegu atgervi og hafði um leið að bera hjartagæsku svo mikla að óvenjulegt er að hitta annað eins fyrir. í meira en hundrað ár hefur heim- ilið á Gautlöndum í Mývatnssveit í Suður-Þingeyjarsýslu langtímum saman tvímælalaust verið í röð kunnustu sveitaheimila landsins. Þar fæddist Sigríður Jónsdóttir Ragnar árið 1922. Faðir hennar var Jón Gauti, bóndi á Gautlöndum og lengi oddviti í Skútustaðahreppi, Pétursson, ráðherra og alþingis- manns sama stað, Jónssonar, þing- manns og alþingisforseta sama stað, Sigurðssonar, einnig bónda á Gaut- löndum Jónssonar, bónda á Mýri í Bárðardal, forföður Mýrarrættar, Halldórssonar, bónda að Lunda- brekku, Ingjaldssonar hins sterka á Kálfaströnd, Jónssonar Ólafssonar. Kona Péturs og móðir Jóns Gauta var Þóra Jónsdóttir, bónda á Græna- vatni í Mývatnssveit, Jónassonar, bónda sama stað, Jónssonar Þórðar- sonar. Kona Jóns Gauta og móðir Sigríðar var Anna Jakobsdóttir, bónda á Narfastöðum í Reykjadal, Jónassonar, bónda sama stað, Bjömssonar. Kona Jakobs og móðir Önnu var Sigríður María Sigurðar- dóttir, bónda á Geirastöðum í Mý- vatnssveit, Jónssonar. Sigga, eins og hún var ævinlega kölluð, var næstelst fjögurra systk- ina. Hin eru Asgerður, kennari í Reykjavík, Böðvar, bóndi á Gaut- löndum, og Ragnhildur, skrifstofu- maður á Akureyri. Þau ólust öll upp í föðurgarði. Þar var ávallt tvíbýli, mannmargt og mikill gestagangur. Stundum var þó Sigga hjá frænd- fólki sínu á Narfastöðum tíma og tíma og var hún meira þar en systk- ini hennar. í janúar 1934 dó Anna móðir Siggu, aðeins 44 ára gömul, og varð hún harmdauði öllum, sem hana þekktu. Þá tók að sér umsjá og umönnun systkinanna Jóhanna Björg Illugadóttir, er verið hafði vinnukona hjá Önnu og Jóni Gauta frá því að þau hófu búskap. Hún dvaldist á Gautlöndum tií dauða- dags. Systkinin og fjölskyldur þeirra unnu Jóhönnu mjög og virtu hana í orði og verki. Sigga gekk í farskóla í Mývatns- sveit, samtals í nokkra mánuði, og var Páll Kristjánsson frá Húsavík kennari hennar. Síðan réðust þær Ásgerður systir hennar til Akur- eyrarferðar 1937 og settust báðar í 2. bekk Menntaskólans. Þær fengu sér aðstoð í þeim greinum sem þær töldu sig standa verst að vígi í og mun m.a. Ingvar Bjömsson, föður- bróðir undirritaðs, hafa tekið þær í eðlisfræðitíma. Þær luku síðan gagnfræðaprófi vorið 1939. Námið sóttist Siggu mjög vel. Sumarið 1939 dvaldist hún á Laugarvatni hjá Birni móðurbróður sínum, skólastjóra íþróttakennara- skóla íslands. Ekki gaf til frekara náms að sinni, þar eð heimilið á Gautlöndum var eins og fjölmörg önnur heimili landsins í mikilli fjár- þröng vegna kreppunnar og Jón Gauti hafði ekki viljað taka kreppu- lán. Sigga settist nú í bili að heima og tók að koma við sögu félagslífs í sveitinn. Á þessum tíma var sem oft endranær fjörugt félagslíf í Mývatnssveit, m.a. var mikið sung- ið. Sigga var eitt ár formaður ung- mennafélagsins Mývetnings og voru þá tvær aðrar stúlkur með henni í þriggja manna stjóm, þannig að þar ríkti óskorað kvennaveldi. Einn vetur snemma á stríðsámn- um vann Sigga á skrifstofu í Reykjavík en veturinn 1943-44 var hún bamakennari — farkennari — í Mývatnssveit og komu afbragðs- góðir kennarahæfileikar hennar þá í ljós. Næsta vetur stundaði hún undirbúningsnám undir kennara- próf við Kennaraskóla íslands. í Reykjavík söng Sigga í Þingey- ingakómum. Þá kynntist hún söng- stjóranum Ragnari H. Ragnar, sem var frá Ljótsstöðum í Laxárdal í Suður-Þingeyjarsýslu, þannig að ekki var mjög langt á milli fæðing- arstaða þeirra. Þau vom gefin sam- an í hjónaband 21. júlí 1945. Jafn- skjótt fluttust þau til bæjarins Garð- ar í Norður-Dakota í Bandaríkjun- um, en Ragnar hafði fýrir stríðið starfað í mörg ár í Norður-Ameríku. Við förina vestur um haf 1945 mun Ragnar þó hafa gefið Jóni Gauta tengdaföður sínum loforð um að setjast ekki að með dóttur hans til frambúðar í Ameríku. Ár þeirra hjóna í Garðar urðu þijú og kenndi Ragnar þá miklum fjölda nemenda á píanó auk þess sem hann æfði kóra. Sigga fékkst nokkuð við ís- lenskukennslu þar vestra. Meðan hún var þar ritaði hún um menntun og kjör íslenskra kvenna í Ásdísi, ársriti Bandalags lútherskra kvenna í Winnipeg. Árið 1948 fluttust Sigga og Ragnar til ísafjarðar, en þar tók hann við skólastjóm nýstofnaðs tón- listarskóla. Sigga hafði ekki áður litið ísafjörð augum, en þangað kom hún ásamt Ragnari og Önnu Ás- laugu, dóttur þeirra á öðm ári, 21. september með Grumman-flugbáti frá Akureyri í súldarveðri. Líklega fannst henni í fyrstu ekki alltof mikið til staðarins koma, eftir Amer- íkudvölina. Það álit breyttist síðar. Fyrstu fjögur árin á ísafirði bjuggu Sigga og Ragnar í Hafnar- stræti 2, en 1952 fluttust þau að Smiðjugötu 5 og áttu þar heima eftir það. Þau keyptu það hús af Tónlistarfélagi ísafjarðar um 1977. Framan af hafði Sigga nóg að gera við að eignast og ala upp böm sín. Árið 1957 fór hún að kenna við Bamaskóla ísafjarðar og kenndi þar jafnan eftir það, allt fram á veturinn 1991-92, er hún veiktist. Lengi var hún í % af fullri stöðu við bamaskól- ann. Einnig kenndi hún í mörg ár tónfræði við Tónlistarskóla ísafjarð- ar, líklega hóf hún þá kennslu í smáum stíl um 1956, en formlega varð hún kennari við skólann 1972; sú kennsla fór jafnan fram í borð- stofunni heima hjá henni. Hún afl- aði sér fullra kennsluréttinda með því að sækja ýmis námskeið í Reykjavík. Sigga var orðlögð sem mjög nærgætinn og góður kennari. Hinum íjölmörgu nemendum hennar fyrr og síðar þótti einkar vænt um hana. Sigga hafði fjölbreytileg áhuga- mál og sinnti ýmsum félagsstörfum á Ísafírði. Hún átti sæti á framboðs- lista óháðra borgara fyrir bæjar- stjórnarkosningar 1982. í heilbrigð- is- og umhverfisvemd ísafjarðar var hún 1976-79, en síðan í náttúruvemdarnefnd kaupstaðarins 1979-86. Sigga var í stjórn vestfirskra náttúruvemdarsamtaka frá 1975 og hún var annar tveggja ritstjóra Kaldbaks, rits samtakanna, 1977-78. Hún var mjög áhugasöm um kvenréttindi og jafnréttismál og tók þátt í undirbúningi að stofnun Sam- taka um kvennalista, sem hún síðan studdi með ráðum og dáð, enda átti hún sæti á framboðslistum samtak- anna bæði til Alþingis og bæjar- stjórnar. Áratugum saman söng Sigga í Sunnukómum á ísafírði. Sumarið 1992 gaf kórinn henni í afmælisgjöf Evrópuferð og fór þá Sigríður dótt- ir hennar utan með henni. Hún var í Menningarráði ísafjarð- ar 1971-86, lengst af formaður þess. Fundi í mfenningarráðinu hélt hún heima hjá sér og var þá kaffi ásamt vöfflum og ijóma og ýmsu öðru góðgæti á boðstólum um leið og helstu fundarstörf voru afstaðin. Á þessum tíma stóð Menningarráð Isafjarðar stundum fyrir stómm myndlistarsýningum, bókmennta- kynningum sem vöktu verðskuldaða athygli og jafnvel fyrirlestrarhald um áhugaverð fræðileg efni. For- ysta Siggu um þessi efni var mjög lofsverð. Heimili þeirra hjóna á Smiðjugötunni hafði mikla séístöðu innan Isafjarðarkaupstaðar um ára- tuga skeið. Þar var að finna miðstöð lista og menningar. Sigga var í allmörg ár driffjöður í litlum bókmenntaklúbbi eða les- hring og vom þar einkum teknar til meðferðar skáldsögur frá mörg- um löndum og ýmsum tímabilum. Hún kunni mikið af Ijóðum og var yfirleitt mjög áhugasöm um skáld- skap. í mörg ár, einkum fyrst eftir að þau hjónin fluttu heim til íslands 1948, unnu þau saman að bókasöfn- un og eyddu oft miklum tíma í að hreinsa og laga gamlar bækur. Á sumrin ferðaðist hún oft um landið, einkum með Ragnari á meðan hann lifði, og var þá náttúran skoðuð. Sigga vissi auðvitað skil á henni eins og öðru, þekkti t.d. íslenskar jurtir mjög vel. Til að auðvelda ferðalögin tók Sigga bílpróf þegar hún var sextug að aldri. Sá er þessi orð ritar átti stundum samleið með þeim hjónum og voru það ánægju- legar stundir. Mörgum þessara ferða var heitið norður í Þingeyjar- sýslu, þar sem ættingjar hennar búa. Ferðirnar veittu Siggu óblandna ánægju, svo mjög sem hún unni íslenskri náttúru og lét sér annt um verndun hennar. í æðsta sessi meðal áhugamála hennar sat þó tónlistin, enda er hún öðrum list- greinum óhlutbundnari, eins og ýmsir vita og oft hefur veirð bent á af hálfu Smiðjugötufjölskyldunn- ar. Málefni Tónlistarskólans á ísafírði voru Siggu eðlilega alltaf mjög ofarlega í huga. Bygging tón- listarskólahúss í kaupstaðnum var henni svo mikið hjartans mál, að einungis hálfum mánuði fyrir dauða sinn bauð hún stjóm tónlistarfélags- ins á sinn fund til viðræðna um það efni. Sigga lét sér svo fátt mannlegt óviðkomandi að jafnvel kom fyrir að hún fylgdist með fótboltaleilqum, ef þeir vöktu almenna athygli. Óvenjuleg glaðværð og ástríki ríkti ávallt í kringum hana og lífsfjörið geislaði af henni. Oft virtist svo sem hún þyrfti mjög lítið að sofa. Hún hreif aðra með sér og fjöldi manns leitaði löngum til hennar með vanda- mál af ýmsum toga. Allir vinir barna hennar urðu líka undir eins vinir hennar. Niðurstaðan var sú, að hún náði að umgangast og þekkja ótrú- lega margt fólk. Gestrisnin á heimil- inu var yfirleitt með fádæmum; þar fóru fram áratugum saman um helgar samæfingar tónlistarskólans, sem orðið hafa landskunnar, auk þess sem heimilið stóð flestum stundum opið gestum og gangandi. Þangað var ætíð með fádæmum skemmtilegt að koma. Undirritaður naut gestrisninnar þar margsinnis, m.a. oft á gamlárskvöld og er þakk- látur fyrir. Sigga var að verðleikum sæmd riddarakrossi Fálkaorðunnar árið 1979. Hjónaband Ragnars og Siggu var ástríkt og farsælt. Ragnar andaðist í árslok 1987 nær níræður að aldri. Fyrir rúmu ári kom í ljós að Sigga var orðin veik af krabbameini. Síð- ustu mánuðina lá hún heima og andaðist þar. Sigga og Ragnar eignuðust þijú börn, sem öll hafa orðið handgengin tónlistargyðjunni. Þau eru: Anna Áslaug, f. 1946, píanóleikari í Miinchen, maður hennar er Ludwig Hoffmann; Sigríður, f. 1949, skóla- stjóri Tónlistarskóla Isafjarðar, maður hennar er Jónas Tómasson; Hjálmar Helgi, f. 1952, tónskáld í Reykjavík, kona hans er Ása Rich- ardsdóttir. Brottför Sigríður Jónsdóttur Ragnar af sviðinu markar tímamót í sögu lista og menníngar á ísafirði. Undirritaður sendir bömum hennar, bamabömum og öðram vanda- mönnum innilegar samúðarkveðjur. Björn Teitsson. Lífið og undur þess hefur verið mér ákaflega hugstætt síðasta ár. í vitund mína er greypt minningin um fæðingu dóttur minnar, sem óx frá því að vera örsmátt korn í kviði mínum til þess að verða fullkomið stúlkubam. Það er svo skrítið en samt svo sjálfsagt að fæðingin og dauðinn era eitt, spegilmyndir, aðeins tíminn skilur á milli. Ljósið sem tendrast og ljósið sem slökknar. Allt hluti af sömu hringrás sem aldrei hófst og aldrei lýkur. Nýja lífið og það gamla. Bæði flytja með sér frið sem ekki verður fundinn annars staðar. Enda fór það svo að það var dóttir mín sem fékk björtustu bros ömmu sinnar síðustu dagana sem hún lifði. Tengdamóðir mín, Sigríður J. Ragnar, var einstök kona. Hún var sterk kona sem þó leyfði sér að vera viðkvæm þegar hún þurfti. Það sýndi best styrk hennar. Hugsun hennar var alltaf fijó og aldrei gömul. Hún var síung, ánægður unglingur sem allt vildi vita og beið með óþreyju eftir næsta degi. Hún var eins og óstýrilátur kálfur á vorin, ærslafengin, duttlungafull og ... full af lífsgleði. Hún var falleg kona sem með sannfæringarkrafti sínum og visku hreif mann með sér og fékk mann til að trúa að allt væri mögulegt. Þannig vil ég muna hana. Ása. Farsæl og viðburðarík lífsganga stórbrotinnar konu er á enda. Sigríð- ur J. Ragnar var þeirrar gerðar að hún mun seint gleymast þeim er áttu því láni að fagna að kynnast henni. Á það ekki síst við um nem- endur hennar og samstarfsmenn. Það ríkti aldrei nein lognmolla í kringum Siggu. Hún hafði ákveðnar skoðanir og talaði af eldmóði um það sem var henni hugleikið. Auð- velt var að hrífast með henni vegna þess sannfæringarkrafts sem hún bjó yfir og ekki síður vegna kímn- innar sem aldrei var langt undan. Henni var bjartsýni í blóð borin og skoðanir hennar einkenndust jafnan af óbilandi trú á land og þjóð. Ást Siggu á íslenskri tungu og menningu, var ekki eitthvað sem hún flaggaði aðeins á hátíðum og tyllidögum, heldur bar allt hennar líf og starf henni glöggt vitni. Það var sálarbætandi að ræða við Siggu um íslenskt mál, bókmenntir og menningu yfirleitt. Hún geislaði af gleði og áhuga þegar þessi hugðar- efni hennar vora til umræðu og orð hennar og fas létu engan ósnortinn. Það varð okkur samstarfsmönn- um og nemendum Siggu í Grann- skólanum á ísafírði mikið áfall þeg- ar hún veiktist sl. vetur. Mikið fagn- aðarefni varð það því þegar hún mætti aftur til starfa í lok skólaárs- ins. Batahorfur virtust nokkuð góð- ar og þegar Sigga hélt upp á sjö- tugsafmælið sitt lék hún á als oddi eins og henni einni var lagið. Frá henni stafaði lífsgleði og orku þann- ig að ekki var hægt að ímynda sér annað en hún hefði náð fullum bata. Otrauð hóf hún kennslu sl. haust, vildi bæta nemendum sínum upp fjarverana veturinn áður því að allt- af sátu hagsmunir þeirra í fyrirrúmi hjá Siggu. Sjúkdómurinn skæði hafði þó aðeins legið í dvala skamma stund og tók sig upp aftur á haustdögum. Síðast þegar ég heimsótti Siggu, í byijun febrúar, var ljóst að hveiju stefndi. Hennar andlegi styrkur og áhugi á lífinu og tilveranni hafði þó hvergi hopað og ekki féll henni eitt æðruorð af vörum. Sigga var auðug kona. HÚn var auðug að þeim verðmætum sem góður kennari safnar í sjóð lífsins. Manngæska hennar og umhyggja fyrir nemendum og velferð þeirra, trú á hæfileika þeirra og mann- gildi, gáfu nemendum hennar það veganesti út í lífið, sem enginn get- ur frá þeim tekið. í staðinn öðlaðist hún ást þeirra og virðingu. Það er skarð fyrir skildi þar sem Sigga var og þ_að skarð verður vand- fyllt. Frábær kennari sem helgaði ísfirskum börnum starfskrafta sína í áratugi er horfinn af sjónarsviðinu. Ég er forsjóninni þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast Siggu og starfa með henni. Dýpstu samúðarkveðjur sendi ég íjölskyldu hennar og öllum þeim fjölmörgu vinum hennar sem syrgja hana nú. Guð blessi minningu hennar. Björg Baldursdóttir. Hvernig getum við minnst Sigríð- ar J. Ragnar, án þess að heiðra minningu Ragnars um leið? Þau verða ekki í sundur skilin í minningu okkar sem tókum við þau ástfóstri. Þau voru eitt. Sameiginlega vora þau næstum fullkomin. Hún var tuttugu og þremur áram yngri en hann. Menn sem eiga ungar konur geta ekki leyft sér að eldast, segir Bryndís. Kannski það sé rétt hjá henni. Allavega sannaðist það á Ragnari. Hann var síungur. Samband þeirra var fallegt - næstum göfugt. Það var ekkert smátt í fari þeirra. Engin ómerkileg dægurmál náðu að trufla samhljóm- inn. Milli þeirra ríkti þögult trúnað- artraust. Við námum það í augnatil- litinu milli þeirra. Þannig var sam- vera þeirra eins og sígild tónlist - hvergi falskur tónn. Við vorum um þrítugt þegar náin kynni tókust með okkur Sigríði og Ragnari. Hún var þá að nálgast fimmtugt, hann var rúmlega sjötug- ur. Þau vora á þeim aldri þegar venjulegt fólk fer að draga sig í hlé - finnst farið að halla undan fæti. En ekki þau. Þau vori í fullu fjöri. Lífsþorstinn var óslökkvandi, starfs- gleðin smitandi, vinnuþrekið óbil- andi. Við fundum engan aldursmun á okkur. Börn þeirra Siggu og Ragn- ars, Anna Áslaug, Sigríður yngri og Hjálmar Helgi, vora öll í tónlist- amámi í útlöndum, þegar hér var komið sögu. Þau komu og fóru, eins og farfuglamir. Kannski var það þess vegna sem Sigga og Ragnar gengu okkur eiginlega í foreldra- stað? Allavega eigum við engum óvensluðum jafnmikla þakkarskuld að gjalda. Skóli Ragnars og Siggu - Tón- listarskóli Isafjarðar - á ekki sinn líka í íslenskri skólasögu. Skólinn sá fannst ekki í símaskránni, því hann átti sér hvergi hús eða götu- númer. Eiginlega var hann eins konar hugboð. Heimili Siggu og Ragnars var allt í senn: Skóli, tón- leikahús og hótel - fyrir listamenn. Nemendurnir voru á öllum aldri, frá fjögurra ára og fram yfir fer- tugt. Kennslan var sniðin að þörfum hvers einstaklings eins og í almenni- legu konservatoríum. Þegar makr- áðir menn tóku sér hvíld frá amstri hversdagsins, til að njóta hvíldar- daganna um helgar - þá var allt á fullu í Tónlistarskólanum. Þá voru samæfingar. Hver ein- asti nemandi mætti og spilaði fyrir meistarann. Ragnar og Sigga fylgd- ust persónulega með iðni, ástundun og framföram hvers einasta nem- anda frá viku til viku. í þessum skóla var komið fram við hvern.ein- stakling eins og um fullveðja lista- mann væri að ræða. Boðorðið var hvergi skráð, en allir vissu samt af því: Gerðu þitt besta - minna er ekki nógu gott. Hver var hlutur Siggu í þessu sköpunarverki? Hann var sá, að án hennar hefði þessi skóli ekki getað verið til. Hún var hin ósýnilega hönd að baki öllu. Hún skipulagði skóla- starfið, úthugsaði einstaklings-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.