Morgunblaðið - 20.03.1993, Side 31

Morgunblaðið - 20.03.1993, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MARZ 1993 31 bundnar stundaskrár, laðaði að kennara og hélt þeim ánægðum í starfi. Hún færði bókhald og annað- ist fjárreiður. Og kenndi fullan vinnudag með. Þannig gekk þetta fyrir sig og virtist ganga eins og fyrirhafnarlaust. Skipulagið var svo gott að það tók enginn eftir því. Hver sá um að sæti væru til reiða * fyrir á annað hundrað manns? Hver sá um að kaffi með vöfflum og tjóma væri á boðstólnum handa öllum? Hver gætti þess að enginn gleymd- ist og að allir nytu nauðsynlegrar > athygli? Kannski tók enginn eftir ' því. Þetta hafði alltaf verið svona. Og hver efndi svo til veislu um kvöldið fyrir konsertmeistara að sunnan eða kammersveit frá Cov- entry, eins og hún væri nývöknuð eftir síestuna, og var hrókur alls fagnaðar fram á rauða nótt? Það var konan sem við kveðjum í dag og finnst við um leið vera að kveðja veröld sem var og aldregi kemur til baka. Það er þetta sem við meinum þegar við segjum að Ragnar og Sig- ríður væru eitt. Við vissum eiginlega aldrei hvað var hvors og gátum aldr- ei hugsað okkur annað án hins. Er þetta ekki hin ófullgerða sinfónía mannlífsins, eins og hún getur risið | hæst? Samt voru þau gjörólíkar mann- eskjur að upplagi, þótt bæði væru þau Þingeyingar og því framandi í þessu vestfirska umhverfi. Hann var eldhugi, örgeðja ákafamaður, ham- I hleypa, hispurslaus í framgöngu og skoðunum. Hún var rólynd, glað- vær, íhugul, sístarfandi, praktísk og útsjónarsöm. Kannski þurfti hún að vera svona af því að hann var allt öðru vísi? Ef til vill er óhætt að segja að Ragnar hafi verið meiri íhaldsmaður í hugsun en hún, en samt róttækari að eðlisfari. Byltingarsinnaður íhaldsmaður? En madam var meira í anda hinnar þingeysku félags- hyggju, að lengi mætti laga það sem aflaga færi. Svona skynsemistrúað- ur umbótasinni? Við hrifumst af byltingarmanninum en vorum samt einlægt eitthvað að bardúsa með umbótasinnanum. En þetta tvennt } og margt fleira órætt og þversagna- kennt gekk upp og sameinaðist í þeim. Við kveðjum Sigríði J. Ragnar með djúpri virðingu og þökk fyrir allt það ómetanlega sem hún gaf } okkur af örlæti sínu. Á kveðjustund- inni leitar hugurinn til Önnu Áslaug- ar, Sigríðar yngri og Hjálmars Helga. Þau eru hóipin að hafa átt þvílíkan föður og móður. Bryndís og Jón Baldvin. Með örfáum orðum langar mig til að minnast Sigríðar Jónsdóttur Ragnar, sem í dag verður til mold- ar borin á ísafirði. Ekki mun ég rekja ætt hennar eða ævi, því að til þess skortir mig kunnugleika og eflaust verða aðrir til þess. Það var aðeins fyrir rúmum tveimur árum, sem við hjónin kynntumst Sigríði fyrst þegar » Hjálmar sonur hennar og dóttir okkar Sigríður Ása giftust. Auðvit- að vissi ég af henni fyrr, en þau hjón Ragnar H. Ragnar komu til Isafjarðar meðan ég átti þar enn heima og ég hafði spurnir af miklu | starfi þeirra í þágu tónlistarlífs á ísafirði. Ég hálfkveið fyrir þegar ég skyldi hitta hana persónulega í fyrsta sinn, því að ekki var nú tónlistarþekking- unni fyrir að fara hjá mér og eflaust væri það aðaláhugamál hennar. En sá kvíði hvarf fljótt og hljóðalaust, því að sjaldan hefi ég kynnst konu, sem mér leið betur í návist við. Sigríður var glöð, björt og hlý í öllu viðmóti, a.m.k. var það svo ávallt þegar ég hitti hana. Hún var lifandi af áhuga á flestu sem á góma bar í samræðum þó að tónlist- in skipaði þar stærstan sess sem eðlilegt var. Hún hafði mikinn I áhuga á þjóðmálum og það var * mjög gaman að ræða þau við hana, þó að ekki færu skoðanir okkar alltaf saman. Hún var mjög vel fróð á fjöldamörgum sviðum, rökstuddi mál sitt vel og það var unun að skiptast á skoðunum við hana, en mér fannst hún fyrst og fremst vera mikill íslendingur. Fyrir rúmu ári greindist sá sjúk- dómur hjá henni, sem nú hefur borið hana ofurliði. Það var þung og erfið barátta, sem hún háði þetta síðasta ár, en engum sem ekki vissi, hefði dottið það í hug ef hann hefði séð hana t.d. á sjötugsafmæli henn- ar í júlí sl. Það var glöð, kát og þrekmikil kona sem þar fór. En enginn má sköpum renna og nú hefur Sigríður gengið sín hinstu spor hérna megin, en nú gengur hún aftur léttstíg hinum megin grafar. Ég mun ávallt minnast hennar fyrst og fremst með virð- ingu. Við Nína sendum dætrum hennar og vini okkar Hjálmari syni hennar og öllu þeirra fólki okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Guð blessi minningu Sigríðar J. Ragnar. Richard Björgvinsson. í dag kveðjum við góðan vin og samstarfsmann við Grunnskólann á 'ísafírði. Sigríður Jónsdóttir Ragnar starfaði við Barnaskólann á ísafírði frá 1957, en hann heitir nú Grunn- skólinn á ísafirði. Kennslan var hennar aðalstarf, en auk þess stofn- aði hún ásamt manni sínum, Ragn- ari H. Ragnar, Tónlistarskólann á ísafirði og starfaði þar óslitið til dauðadags. Samhliða kennslunni á ísafirði í báðum skólunum fór mik- ill tími í félags- og menningarmál. Á kennarastofunni þekktu allir þessa Siggu: Hún var fyrst til þess að bjóða nýliða velkomna og bjóða þeim öll sín verkefni til afnota. Hún lét sér fátt óviðkomandi og hafði skoðun á öllum málum og kynnti sér þau af miklum áhuga og ákafa þannig að alltaf var ein- hver sem hreifst með. Eitt er það sem kennarar og nemendur geta þakkað Siggu, það er málið sem hún talaði. Hún var „með böggum hildar" „í herrans nafni og fjörutíu", kunni að „gera því skóna“ og „skella skollaeyrum" „allar götur síðan". Svo læra menn málið sem fyrir þeim er haft og ákaflega var það dýrmætt fyrir okkur unga fólkið að hafa daglega með okkur konu sem ýtti við okkur og heflaði málfar okkar. Þeir eru ófáir kennararnir sem hafa fengið þau forréttindi að mega skoppa ti hennar í Smiðjugötuna til þess að semja með henni ís- lenskupróf við borðstofuborðið góða. Á meðan íslenskuprófið var framreitt við borðið lagði hún ýmsu lið í gegnum símann, t.d. Kvenna- lista, menningarmálum, náttúru- vernd eða húsmóður sem var að strauja skyrtuermar. Stöðugur var áhugi hennar á högum fólks, s.s. heilsufari, köku- bakstri, barnagæslu og öllu þessu smálega sem gerist í daglegu lífi. Annað sem er afar mikilvægt fyrir okkur er það hversu vel hún þekkti allar hefðir skólans og mundi vel allt hið liðna, t.d. hvaða búning- ar voru notaðir í hvaða leikriti á árshátíð, hvernig sviðsmyndin var og hvaða lög voru sungin. Þegar árshátíð var undirbúin opnuðust allir skápar í Smiðjugötunni upp á gátt og út kom auk margs annars lúðrasveitaijakkinn af Hjálmari, taftkjólarnir af Önnu Áslaugu eða voru það evergleis-kjólarnir af Siggu yngri? Alls staðar þar sem hún var í góðra vina hópi var sungið, söngur í skólanum, söngur á tónleikum, í skólaferðalögum eða á haustþing- um kennara (á Flóka-Núpi) allt til morguns og voru þó eftir sálmarnir og væmnu lögin. Sigga í skólanum var þó fyrst og síðast kennarinn Sigga og lang- ar okkur nú sem nánir samstarfs- menn að segja örlítið frá því hvern- ig við kynntumst henni af frásögum nemanda. í skólanum tóku krakkarnir ekki eftir því að Sigga væri neitt eldri en hinir kennararnir, en þeir tóku eftir því að hún vissi meira. Þeir voru sannfærðir um að hún hefði verið uppi á Sturlungaöld og hefði jafnvel þekkt Miklabæjar-Sólveigu og riðið út með djáknanum á Myrká. Hún þekkti meira að segja karlana sem sömdu íslendingasögurnar! Nemendur hennar sóttu ekki aðeins þekkingu sína til Siggu í skólanum, heldur áttu beir sitt. pláss við borð- stofuborðið góða þar sem þeir fengu eitthvað gott í munninn um leið og glímt var við námsefnið sem reynst hafði erfitt í skólanum. Síðastliðna mánuði höfum við fylgst með erfiðum veikindum Siggu sem nú hafa tekið enda. Við sem þekktum Siggu og störfuðum með henni erum þakklát fyrir að hafa fengið að vera samferða konu sem skilur svo mikinn fjársjóð eftir handa okkur. Vinir og samstarfsfólk við Grunnskólann á ísafirði. Við vorum svo lánsöm að hafa Sigríði J. Ragnar sem kennara í 5. og 6. bekk. Hún hafði sérstaka hæfileika til að segja sögur og hún notaði þá hæfileika mikið við kennslu. Það var eins og hún hefði komið á alla.þá staði sem hún sagði frá. Hún sagði okkur frá bernsku sinni í Mývatnssveit og hún hafði miklar taugar til átthaganna. Hún sagði draugasögur frá heimaslóðum sínum, sem voru mjög ógnvekjandi og flestar sannar, slíkar sögur eru vandfundnar þótt leitað sé með log- andi ljósi um veröld alla. Hún var alltaf skapgóð og létt í lund sama hvað á dundi og horfði alltaf á björtu hliðarnar. Hún hugs- aði alltaf svo hlýtt til okkar. Eitt sinn vaknaði hún árla morguns og bakaði vöfflur til þess að bjóða okkur í morgunkaffi. Á meðan við borðuðum las hún fyrir okkur Grett- issögu og sagði okkur draugasögur. Hún ferðaðist mikið og miðlaði okk- ur af þekkingu sinni. Umhverfismál voru ávallt ofarlega á baugi í henn- ar frásögnum. Henni þótti gaman að syngja og lagði mikla áherslu á að við lærðum ljóð og að við mynd- um geta sungið þau og haft gaman af þeim. Nokkur af uppáhaldslög- unum hennar voru, Malakoff, Litlir kassar, Að lífíð sé skjálfandi lítið gras, Suðurnesjamenn og mörg önnur gömul íslensk lög. Siggu þótti gaman að kenna íslandssögu og við lifðum okkur alltaf inn í frá- sögnina. Hún kenndi mörgum kyn- slóðum barna á ísafirði, en við vor- um síðasti bekkurinn sem hún kenndi. Þó að Sigga hafi aðeins kennt okkur í tæp tvö ár er hún sá kenn- ari sem mest áhrif hefur haft á okkur, við munum ávallt minnast hennar sem yndislegs kennara. Blessuð sé minning hennar. Bekkurinn 7.-S. Er faðmurinn fjalla blárra, sem umlykur ísafjörð, traustvekjandi? Eru svartir tindarnir sem ýmist skaga upp úr fönnum eða marka ramma um græna spildu með lit- fögrum smáblómum stórbrotnir? Er speglunin í Pollinum á kyrrum sumarmorgni fögur? Er lítill lækur sem hjalar við mosató undir Nón- horninu fulltrúi orkunnar sem lýsir og yljar í húsum mannanna? Er blámi himinsins fordyrið að hásæti Guðs? Sumum finnst það og þakka Guði fyrir stórbrotleik og fegurð náttúrunnar. Nálægðin við undur veraldarinnar gefur lífinu óendan- legt gildi fyrir sumt fólk. Öðrum er alveg sama. Hvaða máli skiptir þetta allt? Ekki borða menn fjalls- tindana, eða drekka sjóinn úr Pollin- um. En náttúrunni er alveg sama hvað við hugsum, hún er þama áfram, brosir við þeim sem við henni brosa, en er afskiptalaus af hinum. í heimi menningarinnar er þessu öðruvísi farið. Þar er ekkert án mannsins og hugsunar hans. Þar koma og fara fjöll og dalir, þar sökkva lendur og tindar rísa í ólgu mannlífsins þannig að sumir heyra og sjá, en aðrir vita ekki af. Með komu hjónanna Sigríðar og Ragn- ars H. Ragnar til ísafjarðar fyrir hartnær hálfri öld urðu kaflaskil í mennmgarsögu bæjarins, sem allir sáu sem fylgdust með þeim málum. Ragnar varð hinn lýsandi viti mennsku og mannkosta sem náði fram slíkum árangri hjá ungu fólki á tónlistarsviðinu, að undrum sætti og hafa aldrei komið jafn margir nemendur utan af landi til fram- haldsnáms í tónlist í Reykjavík og frá ísafirði á skólastjóraárum hans. En nemendum Ragnars frá þessum tíma ber flestum ef ekki öllum sam- an um að náminu hafi síður en svo lokið við hlióðfærið. Heimilið í Smiðjugötu 5 var menningar- og tónlistarhöll þar sem Sigríður sá um tónfræðinámið og almenna fræðslu um hina betri eðliskosti mannsandans. Þessi höll þekkingar og visku var álíka traust og fjöllin sem umlykja bæinn svo að þeir sem komu inn úr kuldanum fundu sig í unaðsreit endalausrar uppsprettu mannúðar og skilnings á því sem auðgar mannsandann. Samæfingarnar á sunnudögum, þar sem Ragnar gagnrýndi á sinn jákvæða hátt árangur nemendanna, enduðu í glæsilegri veislu, þar sem borð svignuðu undan tertum og öðrum kræsingum sem Sigríður hafði bakað. Sigríður Jónsdóttir Ragnar var ótrúlega atorkusöm kona. Kraftur- inn og útgeislunin voru með ein- dæmum. Viku fýrir andlát hennar hafði ég samband við hana í síma vegna boðunar stjórnarfundar í Tónlistarfélagi ísafjarðar þar sem hún átti sæti. Ég vildi ræða við hana um málefni sem okkur báðum eru afar kær og höfum reynt að koma áleiðis þrátt fyrir ýmist and- streymi skilningslítilla manna. Hún vildi þá endilega fá að sitja stjórnar- fundinn, en sagðist ekki komast að heiman og bað um að við kæmum heim í Smiðjugötuna ti Ifundarins. Þar beið hún okkar svo í stofunni þar sem Ásgerður systir hennar hafði hlúð að henni í sófa. Kaffi- borð var dekkað og við skáluðum í sherrýi. Dagskrá fundarins var rædd, en auk þess að taka þátt í allri þeirri umræðu, bar hún upp mál sem um árabil hafði legið óhreyft, en mikilvægt að tekist yrði á við. Ekkert okkar skynjaði að þarna færi fársjúk kona, sem kom- in var langt yfir þann tíma sem læknisfræðin hafði gefið vonir um. Hún talaði um framtíðina á sama hátt og við hin sem höldum að við eigum hana eftir og verkefni næstu ára voru rædd eins og hún vildi að unnið yrði. Sigríður var alla tíð ung og frísk. Hún giftist rúmlega tvítug nær fimmtugum manni. í stað þess að eldast til manns síns yngdist Ragnar til hennar, en bæði þroskuð- ust og efldust vegna gagnkvæmra mannkosta. Ekkert sem bætti og göfgaði var henni óviðkomandi. Hún var einn af frumkvöðlum stofn- unar vestfirskra náttúruverndar- samtaka og sat um árabil í menn- ingarráði ísafjarðar. Á báðum þess- um stöðum lét hún mjög til sín taka. Hún tók þátt í kórastarfi og vann ötullega að því að fá til bæjarins þekkta tónlistarmenn bæði til starfa og tónleikahalds. Okkur í Tónlistarfélagi ísafjarðar er söknuður í huga. Við höfum misst þann sem leiðina hefur varðað í tónlistarmálum okkar, fyrst með Ragnari, en að honum látnum með fulltingi Sigríðar dóttur sinnar og Jónasar tengdasonar. Við getum aðeins þakkað Guði fyrir að hafa fengið að njóta návistar þessara gagnmerku hjóna vitandi það að ef við viljum að hér blómstri áfram menning og þó sérstaklega blóm- legt tónlistarlíf þá verðum við að halda merkinu á loft sjálf. Við sem trúum því að þau sitji nú við fótskör Guðs föður almáttugs og horfi niður til okkar vitum að þau sjá Kubbann, Eyrarfjallið, Ern- irinn og Pollinn brosa við þeim eins og þau hafa alltaf gert. En jafn- framt sjá þau tærða járnfleina skaga upp úr grunnplötu óbyggðs húss, sem gráta ryðguðum tárum biðjandi um að mega hverfa í trausta steinsteypu hússjns sem fóstra á tónmenntina á Isafirði í framtíðinni. Því rétt eins og Ragnar sagði að skóli væri ekki hús, heldur fólk, þá þarf fólkið hús til að nema og kenna í á okkar ískalda landi. Við í Tónlist- arfélagi ísafjarðar kveðjum Sigríði með virðingu og þökk og sendum ástvinum hennar innilegar samúð- arkveðjur. Ulfar Ágústsson. Árin líða og setja bresti í lífsmúr- inn. Menn hverfa yfir hann og maður situr eftir og virðir fyrir sér sprunguna, en brátt fyllist hún af elskulegum minningum um fólkið sem fór. Sigríður Jónsdóttir frá Gautlönd- um, ekkja Ragnars H. Ragnar, fór án þess að kveðja mig. Eg hélt alltaf að hún yrði eilíf. Hún hefur komist næst því að verða mér sem móðir, þegar ég ungur tónlistamemi gerðist fýrsti nemandi Ragnars í Tónlistarskólan- um á ísafirði. Síðan urðu þau bæði vinir mínir. Ég naut visku þeirra, lífsreynslu og gæða, deildi með þeim gleði og alvöru, þau mótuðu mig mjög þann tíma sem ég var á þeirra vegum vestur á ísafirði. Vináttan sem skaut þar rótum dugði til leiðarloka þeirra beggja. Þau létu mér eftir listina að hlusta á tónlist, kenndu mér að láta himn- ana syngja í bijósti, beygja höfuð mitt í lotningu fyrir listagyðjunni, þroskuðu með mér vinnusemi og sjálfsrýni, ræktuðu með mér kær- leikann fýrir reisn mannssálarinnar. Ég er nú dæmdur til að vera ijarri, þegar Sigríður verður flutt síðasta spölinn, til fundar við elsk- una sína, og saman munu þau efla himnagleði söngs og elsku. Mikið öfunda ég englakórinn, að fá nú að njóta þeirra beggja, Ragn- ars, míns meistara, og Sigríðar, stúlkunnar sem hann bað símleiðis og guðimir blessuðu samband þeirra alla tíð. Minning mín um þau gerir mig ríkastan mann á landinu um leið og við Sigrún stijúkum hugfingrum um vanga barna þeirra. Jónas Jónasson. SJÁ NÆSTU SÍÐU pH 4,5 húðsápan er framleidd úr völdum ofnæmisprófuðum efnum og hentar jafnt viðkvæmri húð ungabarna sem þinni húð. Hugsaðu vel um húðina og notaðu pH 4,5 sápuna alltaf þegar þú þværð þér. pH 4>5 húðsápan vinnur gcgn of háu sýrustigi húðarinnar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.