Morgunblaðið - 20.03.1993, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MARZ 1993
ÞORRABLÓT
Merkar niðurstöður um
málvísindi
Boston. Frá Karli Blöndal, fréttaritara Morgunblaðsins.
Islendingar í Boston og nágrenni
efndu fyrir skömmu til fyrsta
þorrablótsins, sem haldið hefur
verið hér í fímmtán ár. 95 manns
blótuðu þorra, sporðrenndu súr-
meti og stigu dans fram á nótt.
Fagnaður þessi var haldinn að
frumkvæði tveggja vaskra náms-
manna, Sveins Valfells, eðlisfræði-
nema við Boston University, og
Steingríms Kárasonar, sem nemur
aðgerðagreiningu við Massachu-
setts Institute of Technology.
Lengi vel hafa nokkrir Islend-
ingar hér gengið með þá hugmynd
í kollmum að stofna með sér fé-
lag. Á þorrablótinu var ákveðið
að stofna íslendingafélag og er
Jægar kominn vísir að þjóðbún-
inga- og þjóðlaganefndum.
Norðlendingar ekki eftirbátar
Sunnlendinga
Merkust tíðindi þóttu þó erindi
Höskuldar Þráinssonar, sem um
þessar mundir leiðir nemendur við
Harvard-háskóla um refílstigu
málvísindanna. Með niðurstöðum
úr rannsóknarverkefni, sem hann
hefur unnið að ásamt Kristjáni
Eiríkssyni, lektor í Björgvin, færði
hann málvísindaleg rök að því að
á Norðurlandi hefði síst verið
minna ritað á söguöld en sunnan-
lands. Sunnlendingar ættu varð-
veislu síns pírumpárs því einu að
þakka að nautgripir væru hent-
ugri til handritagerðar en sá bú-
fénaður, sem hafður var fyrir
norðan.
Kvað Höskuldur Þingeyinga til
að mynda hafa ritað mikið á kind-
ur. Er lesa átti af þeim þurfti
pijóna til að greiða frá ullina svo
greina mætti letrið. Væri síðan
talað um prjónles.
Á sum dýr hefðu verið letraðar
verri bókmenntir en önnur og
mætti til þess rekja orðin hundleið-
inlegur og hrútleiðinlegur. Kynd-
ugastan sagði hann þó hafa verið
þann sið að rita á gæsir. Hefðu
þeir, sem gátu í sjónhendingu
greint texta af gæsum á flugi,
verið sagðir fluglæsir.
Góður rómur var gerður að því
uppátæki að halda þorrablót og
var hamrað á því í viðtölum að
halda bæri uppteknum hætti á ári
komanda.
Ásdís Arnardóttir sellóleikari lét
sig ekki muna um að klæðast
upphlut á þorrablótinu. Undir
elgnum standa auk Ásdísar Haf-
þór Yngvason, listráðunautur
borgaryfirvalda í Cambridge, og
Sarah Brownsberger, kona hans.
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
Matthildur Þórarinsdóttir fegurðardrottning Austurlands.
FEGURÐ
Noröfirðingiir kjör-
in fegnrðst eystra
Matthildur Þórarinsdóttir frá
Neskaupstað hefur verið
kjörin fegursta stúlka Austur-
lands. Alls tóku sex stúlkur þátt
í keppninni um titilinn fegurðar-
drottning Austurlands sem fram
fór á Hótel Egilsbúð.
Matthildur var einnig kosin
besta ljósmyndafyrirsætan. Þá
kusu stúlkurnar Rannveigu Þór-
hallsdóttir frá Egilsstöðum vin-
sælustu stúlkuna úr sínum hópi.
Matthildur er 18 ára gömul og
stundar nám við Verkmennta-
skóla Austurlands. Foreldrar
hennar eru Sigríður Gunnars-
dóttir og Þórarinn Ölversson.
SKEMMTUN
Dúndrandi kántrýhátíð
Það var mikið fjör og sérstök stemmning ríkti í
Ármúla 17a síðastliðinn miðvikudag, en þá var
haldin kántrýhátíð á vegum SÁÁ-samtakanna. Þekktir
skemmtikraftar komu fram eins og KK-bandið, Anna
Vilhjálms, Hallbjörn Hjartarson og fleiri. Auk þess var
sérstakt kántrýband sett saman í tilefni kvöldsins.
Einnig sýndi danshópur úr Fótmenntafélagi SÁA ýmsa
dansa, meðal annars bandarískan hringdans.
Kántrýkóngurinn Hallbjörn Morgunbiaðið/Ami sæberg
Hjartarson lét sig að sjálfsögðu Það var klappað taktfast á hátíðinni, en bæði ungir og aldnir skemmtu
ekki vanta.
sér vel.
Morgunblaðið/Stefanía Þorgeirsdóttir
Islendingar I Boston hlaða hrútspungum, lundaböggum, bringukoll-
um og öðru góðgæti á diska sína. Aftast á myndinni gnæfir Stein-
grímur Kárason, annar forsprakka blótsins, yfir hópinn, en annar
frá hægri stendur Höskuldur Þráinsson málvísindamaður á milli
konu sinnar, Sigríðar Magnúsdóttur talmeinafræðings, og Sigurðar
Helgasonar, stærðfræðiprófessors við MIT.
Þorleifur Gunnlaugsson (t.v.), Atli Ágústsson, Helgi Haraldsson og
Ragnar Guðmundsson í stuði.
(C.PIB
tinmtii
COSPER
COSPER
Við þurfum að halda uppá þetta. Ertu í fríi í kvöld?!