Morgunblaðið - 20.03.1993, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 20.03.1993, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MARZ 1993 41 LOK'STN'Bi7 LOK-SINS-f PTNÖ- METNN SEiM SKIL3R HVRF? SKÓÍ?INKI KREPPIR Borgaraleg ferming Frá Hope Knútsson: í SUNNUDAGSBLAÐI Morgun- blaðsins 14. mars var ágætis auka- blað um fermingu. í blaðinu var m.a. sagt frá ýmsum nýjungum í fermingarmálum hjá Fríkirkjunni. En upplýsingar um borgaralega fermingu vantaði algjörlega þrátt fýrir að sá kostur hefur verið til í fimm ár. Um 15-16 unglingar hafa fermst borgaralega á hverju ári síðan 1989 og í vor hafa 27 valið þessa leið. Tilgangur borgaralegrar ferm- ingar er að efla heilbrigð og farsæl viðhorf unglinga til lífsins og að kenna þeim að bera virðingu fyrir manninum, menningu hans og um- hverfi. Mörg ungmenni á ferming- araldri eru ekki reiðubúin til að vinna trúarheit, sum eru ekki kristin og önnur eru ekki trúuð eða trúa á guð á sinn eigin hátt. Fyrir þau ung- menni er borgaraleg ferming góður kostur. Félagið Siðmennt stendur fyrir 13 vikna námskeiði sem fjallar um eftirfarandi efni: Siðfræði, mann- leg samskipti, efahyggju, mannrétt- indi og rétt unglinga í þjóðfélaginu, kynfræðslu, forvamir um vímuefni, missir og sorg, jafnrétti, umhverfís- mál, friðarfræðslu, og mismunandi lífsskoðanir. Námskeiði lýkur með hátíðlegri athöfn sem yfír 900 manns á íslandi hafa þegar sótt. Fermingar- bömin og foreldrar þeirra taka virk- an þátt í athöfninni. Það er álit okkar í Siðmennt að ferming skuli ekki bundin við tiltekið aldursskeið. Ekki em öll böm á 14. aldursári nógu vel undir það búin að vinna trúarheit fyrir lífstíð. Ungl- ingar sem hafa fermst borgaralega hafa verið 15, 16 og jafnvel 17 ára. Borgaraleg ferming snýst ekki um trú eða trúarbrögð og er ekkert tek- ið fyrir á námskeiðinu eða við athöfn- ina sem er andstætt boðskap kirkj- unnar. í lýðræðisþjóðfélögum hefur fólk frelsi til að hafa mismunandi skoð- anir á lífí og trú eins og mörgu öðru. Með valfrelsi gefst unglingunum kostur á því að íhuga það sem þeir vilja og telja að hæfí þeim best. Mikil- vægt er að fólk viti að til em fleiri kostir og borgaraleg ferming er ein- mitt einn slíkur í vali um fermingu. HOPE KNÚTSSON, stjórnarmeðlimur í Siðmennt. LEIÐRÉTTIN G AR Skína mér enn á fjörubakka heima í minningargrein Þorsteins Ól- afssonar um Ingólf Jónsson frá Prestbakka í Morgunblaðinu í gær var tvítekið rímorð í hendingu úr kvæði eftir Ingólf. Rétt er hending- in svona: Skip minnar æsku skorðuð milli steina skína mér enn á íjörubakka heima. Hlutaðeigendur eru vinsamlegast beðnir að afsaka mistökin. Arslaun Vegna fréttar af aðalfundi Flug- leiða í Morgunblaðinu á föstudag skal áréttað, að þau laun sem aðal- fundurinn samþykkti til stjórnar- manna eru árslaun. Meira tap á ÍS AL í frétt um verðlækkun á áli í Morgunblaðinu í gær, var tap ÍSAL á síðasta ári sagt 645 milljónir króna en rétt tala er 904 milljónir króna. Röng ákæra í frétt í Morgunblaðinu á bls. 18 í gær segir að William Kenndy Smith hafi árið 1991 verið ákærður fyrir morð. Hið rétta er að hann var sýknaður af nauðgunarákæru það sama ár. YELYAKANDI GÆLUDYR Tapaður köttur TÆPLEGA tveggja ára ómerktur högni hvarf frá húsi í hrauninu við Álftanesveg laug- ardaginn 13. mars. Hann er svartur með hvítan þríhyrning á snoppu, hvítur á bijósti og fram- fótum og með hvítar „hosur“ á afturfótum. Gæti hafa farið á flakk í Norðurbæ Hafnarfjarðar. Upplýsingar um afdrif hans eru þakksamlega þegnar í síma 50729. Fundarlaun. Kettlinga vantar heimili TVEIR sex vikna kettlingar af blönduðu kyni (loðnir) óska eftir góðu heimili. Kassavanir. Upplýsingar í síma 27949. Köttur í óskilum ÞRIGGJA til fimm mánaða gulbröndóttur fressköttur er í óskilum í Efra-Breiðholti. Upp- lýsingar í síma 75160 og 72261. Læða fæst gefins GULLFALLEG eins árs göm- ul læða, svört og hvít, mjög kel- in fæst gefíns á gott heimili. Upplýsingar í síma 657233. TAPAÐ/FUNDIÐ Týndir körfuboltaskór Glænýir Nike íþróttaskór i Nike-plastoka gleymdumst í strætisvagnaskýlinu við Haga- skóla sl. miðvikudagskvöld um kl. 20. Finnandi vinsamlega hringi í síma 679228. Fundar- laun. FÓTAÞREYTA ÚRSÖGUNNI MIG langar til að senda Vel- vakanda smá sögu af mér. Svo- leiðis er að ég hef alltaf verið slæm í fótum var fljótt þreytt alveg upp að hnjám. Þetta gerði mig ómögulega til allra verka þótt ég reyndi að harka af mér eins og ég gat. Jæja, ég á tvo unga drengi sem báðir þurftu innlegg í skó vegna fótakvilla. Þeir stíga ekki rétt í fótinn og þurfa innlegg. Ég fór með þá í Össur uppi á Hverfisgötu þar sem þeir fengu innlegg. Ég fór að tala um mín fótavandræði við manninn þar og-hann setti inn í inniskó inn- legg fyrir mig líka eins og inn- legg strákanna var. Og nú brá svo við að ég er öll önnur, óþreytt í fótum allan daginn, það er al- veg dásamlegt. Skyldu ekki fleiri geta fengið bót þarna á fóta- þreytu. Það held ég nefnilega. Þess vegna skrifa ég Velvak- anda. Og nú ætla ég að týna saman alla mína óslitnu inniskó og láta setja inn í þá. Og úti er ég alltaf í Ecco-skóm. Ef fæturn- ir eru ekki í lagi er allur líkam- inn úr lagi. Auðvitað sendi ég manninum í Össuri besta þakklæti og vona að fleiri fari til hans sem eru þreyttir í fótunum. Það getur greinilega munað öllu að setja innlegg í skóna sína. Ein fyrir austan fjall. Innilegt þakklceti til allra sem glöddu mig á 80 ára afmœli mínu meÖ gjöfum, kveðjum og margvíslegum vináttuvotti. Jóhannes Stefánsson. AÐALSAFN AÐARFU N DU R GARÐASÓKNAR verður haldinn sunnudaginn 21. mars 1993 kl. 1530 í safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli. Guðsþjónusta verður í Garðakirkju kl. 1400 Biskup íslands hr. Ólafur Skúlason predikar. SOKNARNEFD ÍSLENSKUR HEIMILISIÐNAÐUR HAFNARSTRÆTI 3 - StMI 11785 Nokkrir íslenskir handverksmenn sýna í versluninni Hafnarstræti 3, dagana 20. mars - 29. mars. Þetta er hluti sýningar sem var á nýafstöðnu Búnaðarþingi. HEIMIUSIDNAÐARFÉLAG ÍSLANDS Fióilegir fyrirlestrar um rannsóknir Hó- skólamanna í ognu hósi í Hóskðla íslands á morgun, sunnudaginn 21. mars 1993. f tilefni opins húss hjá Háskóla (slands á morgun, sunnudaginn 21. mars, verða fluttirfyrirlestrarífjórum byggingum Háskólans. Fyrirlestrar í Odda um rannsóknir háskólamanna: Fluttir verða 13 fyrirlestrar um rannsóknaverkefni sem hlotið hafa styrki úr Rannsóknasjóði Háskólans. Dagskráin veröur sem hér segir: Kl. 14.00 Páll Skúlason, prófessor í heimspeki: Um heimsmyndina. Kl. 14.15 Pétur Pétursson, dósent í guðfræði: Nýtrúarhreyfingar og nýöld ó íslandi. Kl. 14.30 Sigurður Steinþórsson, prófessor í jarðfræði: Eldfjallafræði. Kl. 14.45 Logi Jónsson, dósent í líffræði: Streita í laxfiskum í eldi. Kl. 15.00 Jón Daníelsson, lektor í hagfræði: Hlutabréf og upplýsingar. Kl. 15.15 Guðrún Pétursdóttir, dósent í hjúkrunarfræði: Hvernig rata taugar? Kl. 15.30 Jóhann Axelsson, prófessor í læknisfræði: Hversu algengir eru áhaettuþættir hjarta- og æðasjúkdóma meðal Islendinga og V-íslendinga? Kl. 15.45 Vésteinn Ólason, prófessor í bókmenntum: Ný útgáfa Eddukvæða. Kl. 16.00 Einar Stefánsson, prófessor i læknisfræði. Augnsjúkdómar meðal sykursjúkra. Kl. 16.15 Stefán Már Stefánsson, prófessor í lögfræði: Vandi smáþjóða i evrópsku samstarfi. Kl. 16.30 Kristín Ingólfsdóttir, dósent í lyfjafræði lyfsala: Eru líffræðilega virk efni í fjallagrösum og öðrum fléttum? Kl. 16.45 Gísli Pálsson, prófessor í mannfræði: Eignaréttur i fiskveiðum. Kl. 17.00 Sæmundur E. Þorsteinsson, verkfræðingur hjá Verkfræði- stofnun: Notkun staðsetningarkerfisins GPS á íslandi. Fyrirlestur Siðfræðistofnunar í Lögbergi, stofu 101. Fyrirlesari er Dr. Nigel Dower frá Háskólanum í Aberdeen. Fyrirlesturinn ber yfirskriftina: „The idea of an environment." Fyrirlesturinn hefst kl. 14.00 og verða umræður að honum loknum. Áætlaö er að þeim Ijúki kl. 16.30. Fyrirlestrar í VR-II á sviði raunvísinda, stofu 158. Dagskráin verður sem hér segir: Kl. 14.00 Ágústa Guðmundsdóttir, matvælafræðingur: Náttúruleg rotvarnarefni úr fiskbakteríum Kl. 14.15 Þórður Jónsson, eðlisfræðingur: Afstæðiskenningin og endanleiki hraðans Kl. 14.40 Hermann Þórisson, líkindafræðingur: Nokkur orð um tilviijunina, eða: hvað er líkt með spila- kassa og kjarnorkusprengju? Fyrirlestrar íTæknigarði um sjávarútvegsmál, stofu 1. Fluttir verða fjórir fyrirlestrar um efni sem tengjast sjávarútvegi. Dag- skráin verður sem hér segir: kl. 14.00 Dr. Snjólfur Ólafsson, Sjávarútvegsstofnun og Viðskipta- og hagfræðideild. Hermilíkan fyrir stjórn fiskveiða. kl. 14.15 Ágúst H. Ingþórsson, Sammennt, samstarfsnefnd atvinnulifs og skóla. Gæðastjórnun i evrópskum sjávarútvegi. kl. 14.30 Dr. Steingrímur Jónsson, útibú Hafrannsóknastofnunar á Akureyri. Vistfræði Eyjafjarðar. kl. 14.45 Dr. Jörundur Svavarsson, Líffræðistofnun Háskóla íslands. Botndýr á íslandsmiðum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.