Morgunblaðið - 20.03.1993, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 20.03.1993, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 20. MARZ 1993 43— HANDKNATTLEIKUR / HM I SVIÞJOÐ Erwin Lanc, forseti IHF, um heimsmeistarakeppnina 1995 á íslandi Ekki margir íslendingar á úrslitaleik í Reykjavík - ogtapgegn Tékkum ÍSLENDINGAR urðu í áttunda sæti á heimsmeistaramótinu í handknattleik en sameinað lið Tékka og Slóvaka í því sjö- unda. íslenska liðið tapaði 22:21 í afskaplega dauf um og leiðinlegum leik þar sem ís- lendingar hefðu átt að sigra ef þeir hefði leikið nálægt getu. En því var ekki fyrir að fara og enn og afturtapar íslenska landsliðið leik um sæti. FORYSTUMENN Alþjóða- handknattleikssambandsins héldu blaðamannafund f gær þar sem rætt var um keppnina hér í Svíþjóð og keppnina 1995 á íslandi. Lítið nýtt kom fram á fundinum um keppnina heima enda eru margir endar lausir þannig að iítið er hægt að fastsetja annað en að 24 lið verða í keppninni. Erwin Lanc, forseti IHF, sagði aðspurður að ef öllum skilyrð- um yrði fullnægt yrði keppnin á íslandi 1995 en hann vildi ekki tjá sig nánar um hvaða skilyrði þetta væru. „Ef skilyrðunum verður ekki fullnægt þá eru mörg lönd sem gætu tekið keppnina með stuttum fyrirvara. Við viljum ekki setja óþarfa þrýsting á vini okkar frá íslandi en um mitt sumar verður að vera ljóst hvort breytingamar á Höllinni verða gerðar og ýmis- legt annað sem er ekki á hreinu ennþá,“ sagði Lanc. Hann sagði ennfremur að 4.200 manna hús væri of iítið fyrir úr- slitaleik en undanþága_ væri gerð til að halda keppnina á íslandi. „Ef við reiknum með að blaðamenn, dómarar, við hjá IHF og leikmenn annarra liða vilji sjá úrslitaleikinn þá eru það 2.000-2.500 manns og síðan má búast við að stuðn- ingsmenn verði með sumum liðun- um og þeir verða að sjá leikinn þvi þeim verður ekki seld ferð til lslands á HM nema að þeir fái sæti á úrslitaieiknum. Það er því ljóst að það verða ekki margir ís- lendingar sem fá miða á úrslita- leikinn í Reykjavík," sagði Lanc. Danskur blaðamaður spurði hvort það væri rétt að helmingur- inn af riðlakeppninni ætti að fara fram í Danmörku og hinn helming- urinn á Íslandi. „Þetta hef ég ekki heyrt áður en hef þó heyrt margar sögusagnir," sagði Lanc og bætti þvi síðan við að þetta væri ekki rétt. Hann var síðan spurður hvort hann vildi frekar háfa leiki í tómri en stórri höll eða fullri lítilli, og var þar vísað til þess hve aðsókn hefur verið dræm á leikina í Stokk- hólmi. „Það er betra að leika í lít- illi höll þar sem er fólk en í stórri höll þar sem ekkert fólk er.“ Lanc sagði að reglugerð um 24 þjóða heimsmeistarakeppni væri í smíðum og hún yrði tilbúin fyrir næsta fund framkvæmdastjómar IHF sem yrði 17. apríl, en hann sagðist búast við að leikið yrði í sex liða riðlum þannig að hvert lið fengi að minnsta kosti fimm leiki. Fjögur lið færa áfram en tvö væra úr leik. Spenna undir lokin Erik Elias var spurður hvort hann væri ánægður með dómgæsluna á mótinu. „Eg hef ekki séð nema leik- ina í Málmey og síðan í Halmstad og þar vora flestir leikirnir ágætlega dæmdir. Hins vegar hef ég fengið margar ljótar skýrslur héðan frá Stokkhólmi," bætti hann við. Að- spurður hvort hann vissi til þess að dómurum væri mútað sagði hann. „Nei, ef ég vissi til þess þá yrði ég að gera eitthvað í því. Ég kannast ekki heldur við að menn séu að ræða um meinta mútuþægni dómara í kringum svona mót,“ sagði Elias. Skúli Unnar Sveinsson skrifar frá Stokkhólmi I slenska liðið náði fyrr að yfírvinna " taugatitringinn sem virtist ein- kenna bæði lið í upphafi. Liðið komst í 7:2 þrátt fyrir að hafa misnotað tvö vítaköst. Staðan í leikhléi var 11:8 og hefði í raun átt að vera miklu meiri munur því dómar- amjr voru á okkar bandi og Tékk- ar/Slóvakar ótrúlega daprir. En því miður voru okkar strákar líka dapr- ir. Og það átti eftir að versna. Við vorum 15:11 yfir í síðari hál- feik en á tæplega ellefu mínútna kafla breytist staðan í 16:18. ís- lenska liðið gerði aðeins eitt mark í tæpar ellefu mínútur og slíkt geng- ur auðvitað ekki. Markvörður Tékka/Slóvaka varði reyndar mjög vel á þessu tímabili en engu að síð- ur áttu strákarnir að skora meira. Lokamínútumar vora spennandi. Staðan 20:19 fyrir ísland og aðeins þijár og hálf mínúta eftir. Við fáum á okkur þijú mörk í röð og þrátt fyrir maður á mann vöm síðustu sekúndumar náðum við ekki boltan- um og urðum því að sætta okkur við að tapa enn einum leiknum um sæti á stórmóti. Þetta var leikur mjög mikilla mis- taka. Hvað eftir annað glötuðu strákamir knettinum í sókninni og hjá hinu liðinu var það lítið skárra, en þó nóg til að leggja ísland að velli. íslenska liðið var á hælunum að þessu sinni, að minnsta kosti nokkr- ir lykilmenn þess. Raunar voru bæði lið greinilega örmagna af þreytu en Tékkar/Slóvakar höfðu það sem okkar strákar höfðu ekki, sigui'yiljann. Miðað við gang leiksins hefði ísland átt að sigra því í svona leikjum er mjög algengt að það lið sem nær forystunni eftir 15-20 mínútur nái að sigra, ekki síst ef forskotið er fimm mörk eins og í þessu tilfelli. Bjarki og Guðmundur markvörð- ur, sem var útnefndur besti leikmað- ur íslands, vora eiginlega þeir einu sem léku af eðlilegri getu, aðrir voru þungir og slakir. Menn virðast þó tiltölulega sáttir við áttunda sætið þó svo allir hefðu kosið að síðasti Ieikurinn færi betur, og yrði skemmtilegri. Mikill taugatitringur varð innan dómaranefndar IHF í gær þegar sænskt dagblað sagði frá því, í Iítiili frétt, að Stefán Amaldsson og Rögnvald Erlingsson hefðu sagt í samtali við Morgunblaðið fyrir HM að handknattleiksdómuram væri mútað. Erik Elias, formaður nefndar- innar, sagði við Morgunblaðið að þetta væru alvarlegar ásakanir ef sannar væru og gaf í skyn að þeir þyrftu ekki að hafa áhyggjur af því að dæma meira á alþjóðavettvangi. Rögnvald og Stefán bjuggust við að dæma leikinn um fimmta sætið milli Spánveija og íjóðveija en þegar dómaralistinn var birtur i gær vora þeir hvergi á honum. Sænska dóm- araparið, Bo Johannsson og Bemt Kjellqvist dæma úrslitaleikinn, Hans Thomas og Jurgen Thomas frá Þýskalandi leikinn um 3. sætið, Rúss- ar dæma leikinn um 5. sætið og Norðmenn leikinn um 9. sætið. Fastur liður, eins og ... Það er ekkert nýtt að íslenska landsliðið tapi leik um sæti í alþjóðlegu stórmóti. ísland hefur tólf sinni leikið um sæti, en aðeins þrisvar sinnum náð sigri i þeim leikjum. Fyrst er leikið var við Pólveija, 21:19, um þriðja sætið í undankeppni ÓL í Munchen 1972. Næst kom hinn fræki- legi sigur, 29:26, gegn Pólveijum í úrslitaleik B-keppninnar í Frakklandi 1989 og síðan sigur gegn Sviss, 22:21, í leik um þriðja sætið í B-keppninni í Austurríki 1992. Tvisvar hefur tapast leikur um sæti í B-keppninni. 19:21 gegn Tékkó- slóvakíu í leik um þriðja sætið 1977 í Austurríki og einnig leik um þriðj^i sætið á Spáni 1979, 18:32, gegn Úngveijum. Á Ólympíuleikum tapaðist leikur um fimmta sætið gegn Svíum, 24:26, í Los Angeles 1984, um sjönda sætið gegn A-Þjóðveijum - eftir vítakast- keppni, í Seoul 1988 og gegn Frökkum um þriðja sætið, 20:24, í Barcel- ona 1992. Fjórir leikir um sæti hafa tapast í HM. 1961 í V-Þýskalandi tapaðist leikur gegn Dönum, 13:14, um sjötta sætið. 1986 í Sviss tapaðist leikur gegn Spánveijum, 22:24, um fimmta sætið. 1990 í Tékkóslóvakíua tapað- ist leikur gegn Fi-ökkum, 23:29, um níunda sætið og í gær tapaðist leik- ur gegn Tékkum, 21:22, í leik um sjöunda sætið. --------—-------------------------------------------------—----------— ísland - Tékkóslóvakía 21:22 Globen-íþróttahöllin í Stykkishólmi, HM í handknattleik — leikur um 7. sætið, föstu- daginn 19. mars 1993. Gangur leiksins: 1:0, 3:1, 7:2, 9:4, 10:6, 11:8. 12:9, 13:11, 15:11, 16:13, 16:18, 17:19, 20:19, 20:20, 20:22, 21:22. Mörk islands: Bjarki Sigurðsson 8, Sigurður Sveinsson 5, Héðinn Gilsson 2, Gunn- ar Beinteinsson 2, Gunnar Gunnarsson 1, Sigurður Bjamason 1, Einar Gunnar Sig- urðsson 1. Geir Sveinsson, Júlíus Jónasson, Gústaf Bjamason. Varin skot: Guðmundur Hrafnkelsson 15 (Þar af fjögur til mótheija). Bergsveinn Bergsveinsson. Utan vallar: Enginn. Mörk Tékka: Roman Dccvar 7, Dohumir Prokop 5, Zdenek Vack 5, Martin Setlik 2, Vladimir Suma 2, Michael Tonar 1. Varin skot: Potar Mestarik 18 (Þar af fimm til mótheija). Utan vallar: 4. mín. Áhorfendur: 2.394. Rögnvald og Stef án út í kuldann? muiguuuiauiu/ iwvA Tjaldið fellur .. . íslensku leikmennirnir, þjálfarar og aðstoðarmenn, voru vonsviknir eftir leikinn gegn Tékkum - enn einn leikurinn um sæti á stórmóti var tapaður. URSLITAKEPPNI KVENNA Ragnheiður tryggði Stjömunni þriðja leikinn Ragnheiður Stephensen tryggði Stjömunni þriðja leikinn í úr- slitakeppni 1. deildar kvenna gegn Selfossi með því að skora sigurmark liðsins úr vítakasti, sem Sigrún Más- dóttir fiskaði, þegar leiktíminn var úti, 13:14. Selfoss vann fyrsta leikinn í Garðabæ sl. miðvikudag en Stjarn- an jafnði í gær og því þarf þriðja leikinn og fer hann fram á morgun, sunnudag, í Garðabæ kl. 20. Mörk Selfoss: Ágústa Hermannsdóttir 5, Heiða Erlingsdóttir 4, Hulda Bjamadóttir 2, Guðrún Hergeirsdóttir 1, Guðfinna Tryggva- dóttir 1. Mörk Stjörnunnar: Margrét Vilhjálmsdóttir 5, Ragnheiður Stephensen 3, Stefánía Guð- jónsdóttir 2, Guðný Gunnsteinsdóttir 2 og Sig- rún Másdóttir 2. Víkingur sigraði ’Armann 28:17 og er komið í undanúrslit. Leik Gróttu og ÍBV, sem fram átti að fara í gær, var frestað vegna ófærðar. —

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.